Morgunblaðið - 10.03.2007, Síða 17
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
GPG fiskverkun á Húsavík hefur
keypt fyrirtækið Knarrareyri á
Húsavík. Það gerði út bátinn Aron
ÞH og var með um 450 þorskígildis-
tonn í aflaheimildir í litla kerfinu.
Gunnlaugur Hreinsson, eigandi og
framkvæmdastjóri GPG, segir að
síðan hafi nokkrar heimildir verið
færðar yfir á bátinn. Fyrirtækið
hafi verið að fjárfesta töluvert í
heimildum síðustu árin, en það
keypti töluvert af aflaheimildum úr
Grímsey á síðasta ári.
„Við höfum líka verið að reyna að
halda í þær veiðiheimildir sem hafa
verið á svæðinu og hafa nýtzt okk-
ur í vinnslunni. Hefðum við ekki
keypt, hefði einhver annar gert það
og þá hefðu heimildirnar farið eitt-
hvert annað. Þetta var bátur sem
fiskaði nærri 1.100 tonn á síðasta
ári og það munar um minna. Megn-
ið af því fór í vinnslu í okkar hús-
um,“ segir Gunnlaugur.
GPG kaupir
Knarrareyri
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2007 17
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
SIGLINGASTOFNUN Íslands
leggur til að innsigling í Rifshöfn á
Snæfellsnesi verði breikkuð og
dýpkuð í sveig innan við Rifið og
Töskuna. Erfiðasta hluta hennar
verði skýlt með brimvarnargarði á
Rifinu út undir Töskuvitann. Eftir
þær breytingar verður hafnarmynn-
ið komið út að Tösku. Kostnaður er
áætlaður um 860 milljónir miðað við
120 metra langan viðlegukant.
Úrbætur myndu skapa nýja notk-
unarmöguleika fyrir Rifshöfn, en
þær eru meðal annars miðaðar við
þarfir vatnsverksmiðju, sem fyrir-
hugað er að reisa í Snæfellsbæ.
Bæði krókótt og þröng
Nú er að ljúka rannsóknum Sigl-
ingastofnunar á því hvernig unnt sé
að endurbæta innsiglingu í Rifshöfn
á Snæfellsnesi en líkantilraunir hafa
staðið frá því í seinni hluta nóvem-
bermánaðar 2006. Núverandi inn-
sigling að Rifshöfn er bæði krókótt
og þröng og dýpi er þar takmarkað.
Hún er um 1,2 kílómetrar að lengd
og liggur því sem næst í stefnu norð-
vestur til suðausturs.
„Þar sem norðaustan- og suð-
vestanáttir eru algengar þurfa skip
oft að sigla inn með öldu og vind á
hlið. Innsiglingin er því oft erfið,
einkanlega frá skerinu Tösku inn að
höfninni. Þessir ágallar hafnarinnar
koma einkum niður á flutningaskip-
um og stærri fiskiskipum.“
Þarf bæði að breikka og dýpka
„Eigi Rifshöfn að mæta þörfum
vatnsverksmiðju þarf ytri hluti inn-
siglingar að vera um 80 metra breið-
ur en um 60 metra innan Tösku.
Dýpi í ysta hluta rennu um hálfa leið
inn að Tösku þarf að vera um 9 metr-
ar en annars staðar um 8 metrar.
Lagt er til að vöruflutningar
vatnsverksmiðju fari um kant sem
verður byggður austan við núver-
andi höfn á svæði sem nýtur skjóls af
garðinum út eftir Rifinu. Slíkur
kantur þyrfti að vera um 120 metra
langur,“ segir meðal annars í niður-
stöðum stofnunarinnar.
Kostnaður við brimvarnargarð og
sandfangara er áætlaður um 160
milljónir króna. Kostnaður við dýpk-
un innsiglingar í samræmi við þarfir
vatnsverksmiðju er áætlaður um 400
milljónir króna.
Kostnaður við kant fyrir flutn-
ingaskip vatnsverksmiðju er áætlað-
ur um 2,5 milljónir króna á lengd-
armetra.
Líkan af Rifshöfn verður til sýnis
hjá Siglingastofnun í dag, laugardag,
milli 13 og 17.
Leggja til verulegar
úrbætur á Rifshöfn
Morgunblaðið/G. Rúnar
Hafnargerð Líkanið af höfninni var byggt í mælikvarðanum 1:60. Líkanið
var látið ná út á 25 metra dýpi þannig að þeir landfræðilegu þættir sem
móta ölduna í og við höfnina hefðu sín áhrif eins og í náttúrunni.
Kostnaður gæti verið um 860 milljónir króna
Í HNOTSKURN
»Líkanið nær út á 25 m dýpiþannig að þeir þættir sem
móta ölduna í og við höfnina
hafi sín áhrif.
»Nákvæmar mælingar afsjávarbotninum á staf-
rænu formi voru lagðar til
grundvallar.
ÚR VERINU
www.benni.is Opið virka daga frá kl. 9.00 - 18.00. Lau. 12.00 - 16.00
Lacetti
Vertu klár – engin útborgun fyrir nýjan bíl
Þú færð nýjan fjölskyldubíl úr kassanum með 100% fjármögnun og borgar aðeins 26.980 kr. á mánuði.
Bíllinn, sem er hluti af evrópulínu Chevrolet, er með 3ja ára ábyrgð og Chevrolet gæðastimplinum.
Vertu því klár, komdu og kynntu þér málið. Við erum á Tangarhöfðanum og tökum vel á móti þér.
Tangarhöfða 8-12 Sími 590 2000
Umboðsmenn: Bílahornið hjá Sissa, Keflavík. Bílasalan Ós, Akureyri. Bílasala austurlands, Egilsstöðum.
Engin útborgun…
…og þú ert kominn á nýjan fjölskyldubíl!
*m
.v
. 8
4
m
án
að
a
bí
la
sa
m
ni
ng
(
í e
rle
nd
ri
m
yn
t,
v
ex
tir
4
,2
7%
)
A
uk
bú
na
ðu
r
á
m
yn
d:
Á
lf
el
gu
r
Nýr Chevrolet Lacetti Station
á aðeins 26.980,- á mán.*
100% fjármögnun
Engin útborgun
Í erlendri mynt, vextir 4,27%
3 ára ábyrgð
Chevrolet Lacetti
frá GM stærsta bílaframleiðanda í heimi
Verð: 1.899.000,-
100%
FJÁRM
ÖGNUN
D
Y
N
A
M
O
R
EY
K
JA
V
ÍK