Morgunblaðið - 10.03.2007, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 10. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Eftir Sigurð Jónsson
Selfoss | „Þetta er skemmtilegt
starf og líflegt, maður fær viðbrögð
frá íbúum, bæði gagnrýni og hrós, og
það er gott. Gagnrýnina notum við til
þess að laga það sem betur má fara
og það er bara eðlilegt. Mér líkar vel
að hafa mikil samskipti við fólk og
svo við þann mikla fjölda unglinga
sem er hjá okkur á sumrin,“ sagði
Siggeir Ingólfsson, yfirverkstjóri
umhverfisdeildar Árborgar, sem um
þessar mundir undirbýr vorverkin í
sveitarfélaginu ásamt sínu fólki.
„Ég sé ekki eftir því að fara þessa
leið, þetta gaf mér mikið og maður
þekkir sig betur í því sem maður er
að gera í græna geiranum og aukin
þekking eykur sjálfstraustið,“ sagði
Siggeir. Hann fór í skrúðgarð-
yrkjufræði eftir að hann tók við
starfinu og er ánægður með það nú.
Tökum á, tökum til
Það er auðheyrt að hann hlakkar
dálítið til vorsins og sumarsins. Þeg-
ar hann er inntur eftir því nánar
kemur fram að þar á Vinnuskóli Ár-
borgar stóran þátt, en Siggeir hefur
gaman af því umstangi og þeim at-
höfnum sem fylgja því að fá 250 ung-
linga til vinnu hjá sveitarfélaginu.
„Mér finnst gaman af samskiptunum
við unglingana á sumrin. Við höfum
farið í umhverfisfræðslu og fórum til
dæmis í fyrra niður á ströndina þar
sem farið var yfir alla söguna og
uppbygginguna sem þar hefur orðið.
Við höfum líka farið til Landsvirkj-
unar og kynnst því hvernig vatn
verður að rafmagni. Mér finnst
krakkarnir taka þessu vel og þetta
er skemmtilegt verkefni með
vinnunni hjá þeim. Þau byrja hjá
okkur 6. júní, 14 til 16 ára unglingar.
Yngsti hópurinn vinnur hálfan dag-
inn alla vikuna, þeir eldri vinna allan
daginn en fá frí á föstudögum. Já,
það er mikið líf og fjör hér þegar
Vinnuskólinn byrjar og gaman í
vinnunni eins og reyndar alltaf. Við
erum með ákveðnar reglur sem þau
þurfa að fylgja, svo sem því að það er
bannað að reykja í vinnuskólanum,“
sagðir Siggeir og að því væri fylgt
fast eftir.
„Það vorar þannig hjá okkur að
þegar snjórinn fer þá situr eftir ým-
iskonar rusl sem þarf að fjarlægja.
Því miður virðist þróunin vera þann-
ig að þetta rusl fer vaxandi. Fólk
fleygir frá sér rusli en tekur ekkert
upp sem það sér liggja á jörðinni. Við
verðum með átak í vor undir heitinu:
„Tökum á, tökum til.“ Við bjóðum
síðan fólki þjónustu við að fjarlægja
rusl sem það hefur tínt saman. Svo
munum við í sumar bjóða fólk vel-
komið til Selfoss með blómum sem
sett verða í hól við hringtorgið hjá
Hrísmýrarkletti.
Þjónustan hjá okkur byggist á því
að við viljum allt fyrir alla gera. Við
viljum leysa úr öllum þeim málum
sem upp koma í kringum umhverfið.
Við höfum náð góðu sambandi við
fólk enda er það lykilatriði til þess að
leysa málin,“ sagði Siggeir.
Megum ekkert aumt sjá
Hann er einnig þekktur fyrir störf
sín að félagsmálum og er mikill drift-
armaður því sviði. „Ég er yfir-
strandvörður Hrútavinafélagsins.
Við látum okkur allt varða, megum
ekkert aumt sjá, hvorki í pólitík né
annarstaðar,“ sagði Siggeir en
Hrútavinafélagið stóð að veglegu
þorrablóti Stokkseyri í samstarfi við
Skokkseyringafélagið í Reykjavík en
hann er formaður þess félags en í því
eru burtfluttir Stokkseyringar og
þar sem Siggeir bý á Eyrarbakka þá
telst hann burtfluttur. „Við fengum
250 manns á blótið. Ég fékk tvo at-
hafnamenn með mér, Björn Inga
Björnsson og Jón Jónsson, og við
kýldum á þetta. Það komu margir
brottfluttir Stokkseyringar og þetta
var feikilega gaman. Svo er ég í
SAMGUS sem eru samtök garð-
yrkju- og umhverfisstjóra.
Ég hef gaman af félagslífi og að
vera innan um fólk og með fólki.
Starfið gefur mér mikið í þessu efni.
Starfsfélagarnir eru góðir og mér
finnst gott fólk hér í sveitarfélaginu.
Það er alltaf að koma betur og betur
í ljós að sameiningin er að takast vel.
Það er góður andi hérna og hlutirnir
á réttri leið,“ sagði Siggeir Ingólfs-
son.
Mikilvægt að eiga góð samskipti
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Samskipti Siggeir Ingólfsson, yfirverkstjóri Sveitarfélagsins Árborgar, á
skrifstofu sinni. Hann á daglega samskipti við fjölda fólks.
Siggeir Ingólfsson er
yfirstrandvörður
Hrútavinafélagsins
Í HNOTSKURN
»Siggeir Ingólfsson erfæddur Stokkseyringur,
upp alinn þar en býr á Eyr-
arbakka og hefur aðalstarfs-
stöðina á Selfossi.
»Hann er trésmíðameistariað mennt, tók til starfa
sem yfirverkstjóri hjá Sveitar-
félaginu Árborg árið 2000.
»Hann fór þá í Garðyrkju-skólann og útskrifaðist af
skrúðgarðyrkjubraut árið
2004 frá Landbúnaðarháskól-
anum.
»Siggeir kemur víða við ífélagsmálum og er þekkt-
ur fyrir að drífa fólk með sér.
Tekur þátt í starfi Hrútavina-
félagsins sem hélt veglegt
þorrablót í vetur. Þá er hann
formaður Stokkseyringa-
félagsins í Reykjavík þótt
ótrúlegt kunni að virðast.
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
HVORKI fleiri né færri en sex listsýningar verða opnaðar
í Listagilinu í dag. Að auki verður áhugaverður fyrirlestur
í Minjasafninu.
Sýning á æskuverkum norðlenskra listamanna,
Bernskubrek, verður opnuð kl. 14.30 í Deiglunni. Þar sýna
allt að 30 norðlenskir listamenn verk frá æskuárunum.
Hlynur Hallsson opnar sýninguna Ljós – Licht – Light í
gallerí BOX kl. 16. Verkið samanstendur af borði og sæt-
um sem gerð eru úr froðuplastplötum og gæruskinni.
Karen Dúa opnar sýninguna „Draugurinn – ég“ á
Karólínu kl. 14.
Í Jónas Viðar gallerí opnar Guðmundur Ármann sýn-
inguna Náttúruspor kl. 14. Þar sýnir hann olíumálverk;
nokkrar myndir sem verða á sýningu í menningarmiðstöð
í Ronneby í Svíþjóð í sumar.
Í Ketilhúsinu verður opnuð handverkssýningin Trans
Forum kl. 14. Þar sýnir handverksfólk og hönnuðir frá
vestnorrænu löndunum, Færeyjum, Grænlandi og Íslandi,
handverk, listmuni og hönnun.
Sýning á ljósmyndaverkum fjórtán alþjóðlegra lista-
manna hefst í Listasafninu kl. 15. Fjallað er um sýninguna
á bls. 50.
Í tilefni 20 ára afmælis ljósmyndadeildar Minjasafnsins
mun Hörður Geirsson, safnvörður ljósmyndadeildarinnar,
veita gestum innsýn í þróun ljósmyndatækninnar allt frá
1840 fram til okkar daga. Samkoman hefst kl. 14.
Líflegt í dag í Listagilinu
FJÖLMENNI var við útför séra
Péturs Þórarinssonar í Akureyr-
arkirkju í gær, alls um 1.200
manns að mati kirkjuvarðar. Þétt
var setinn bekkurinn og fullt var
einnig í safnaðarheimilinu og kap-
ellunni, en sjónvarpað var þangað
frá athöfninni. Jarðsett var í Lauf-
ási, þar sem Pétur þjónaði frá
1991, og síðan var boðið til kaffi-
samsætis í íþróttahúsinu á Greni-
vík.
Börn Péturs og eiginkonu hans,
Ingibjargar Svöfu Siglaugsdóttur,
Þórarinn Ingi, Jón Helgi og Heiða
Björk, báru kistu föður síns úr
kirkjunni ásamt mökum sínum,
Hólmfríði Björnsdóttur, Írisi Þor-
steinsdóttur og Birni Magnúsi
Árnasyni, séra Jóni Helga Þór-
arinssyni bróður Péturs og Erni
Þórssyni æskuvini Péturs. Bisk-
upinn yfir Íslandi, herra Karl Sig-
urbjörnsson, jarðsöng og þjónaði
ásamt séra Hjálmari Jónssyni, séra
Kristjáni Val Ingólfssyni og séra
Pálma Matthíassyni en við athöfn-
ina í Laufási þjónuðu séra Jón Að-
alsteinn Baldvinsson vígslubiskup
á Hólum og séra Gylfi Jónsson.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
1.200 manns við útför séra Péturs
NOKKUR fjármálafyrirtæki skrif-
uðu í vikunni undir samning við Há-
skólann á Akureyri um að styðja við
uppbyggingu meistaranáms í við-
skiptafræði við skólann með fjárfram-
lögum. Leggja þau fram alls 15 millj-
ónir króna á næstu þremur árum.
„Við hlökkum til samstarfsins og
væntum mikils af því,“ sagði Þorvald-
ur Lúðvík Sigurjónsson, fram-
kvæmdastjóri Saga Capital við þetta
tækifæri, fyrir hönd þeirra fjármála-
fyrirtækja sem koma að uppbyggingu
meistaranáms í viðskiptafræði sem
hefst hjá Háskólanum á Akureyri
næsta haust.
Faglegt og fjárhagslegt
Í samstarfssamningnum felst bæði
faglegur og fjárhagslegan stuðningur
Saga Capital, Sparisjóðs Norðlend-
inga og fleiri sparisjóða, Glitnis og Ís-
lenskra verðbréfa.
Í samningnum kveður á um að fyr-
irtækin styðji fjárhagslega við upp-
byggingu mannauðs við deildina með
því að kosta heimsóknir gistikennara
og gestafyrirlesara. Jafnframt því
mynda fulltrúar frá fyrirtækjunum
fagráð sem verður til ráðgjafar um
uppbyggingu námsins.
„Samvinna þessara aðila er til
marks um síaukna þörf fyrir vel
menntað vinnuafl í því alþjóðlega um-
hverfi sem íslenskar fjármálastofnan-
ir, og íslensk fyrirtæki almennt,
starfa við í dag. Sífellt er þörf fyrir að
dýpka og bæta við þekkingu fyrir-
tækjanna og það verður ekki gert
nema með því að bjóða uppá afburða
góða menntun á þessu sviði á Íslandi.
Viðskipta- og raunvísindadeild Há-
skólans á Akureyri, í samvinnu við
ofangreind fyrirtæki, ætlar sér að
koma á fót afburða góðu námi fyrir
nemendur sem eru reiðubúnir að tak-
ast á við krefjandi nám þar sem
áhersla er lögð á hagnýta þekkingu til
jafns við fræðilegan undirbúning,“
segir í frétt frá skólanum.
Tvær leiðir
Boðið verður upp á tvær námsleið-
ir; annarsvegar í alþjóðafjármálum og
bankastarfsemi og hinsvegar í stjórn-
un í alþjóðlegu bankaumhverfi. Fyrri
umsóknarfrestur er til 15. mars nk.
fyrir nám sem hefst næsta haust.
Seinni umsóknarfrestur er til 15. apr-
íl. Takmarkaður fjöldi fær skólavist
og eiga þeir sem sækja um í fyrri um-
gangi meiri möguleika á skólavist.
Fjármálafyrir-
tæki styðja við
meistaranámið
Leggja fram 15 milljónir króna á
þremur árum auk faglegrar ráðgjafar
ÞORVALDUR Lúðvík Sigurjónsson
framkvæmdastjóri Saga Capital,
Örn Arnar Óskarsson sparisjóðs-
stjóri Sparisjóðs Norðlendinga,
Ingi Björnsson útibússtjóri Glitnis á
Akureyri og Sævar Helgason fram-
kvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa
skrifuðu undir samninginn við Há-
skólann. Þeir fengu allir litla „Ís-
landsklukku“ að gjöf.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Leggja fram fé