Morgunblaðið - 23.03.2007, Qupperneq 28
daglegt líf
28 FÖSTUDAGUR 23. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Kalifornísk vín hafa átt und-ir högg að sækja hér álandi undanfarin ár. Fyr-ir tíu árum eða svo voru
bandarísku vínin mjög áberandi:
Beringer, Kendall-Jackson, Mon-
davi, Sterling, Gallo og mun fleiri
framleiðendur áttu vín meðal þeirra
sem Íslendingar sóttust hvað mest
eftir.
En svo gerðist eitthvað og skyndi-
lega fjaraði hratt undan vinsældum
kalifornísku vínanna. Engin ein
skýring er á þessu og þessi þróun
virðist fyrst og fremst bundin við Ís-
land en er ekki dæmigerð fyrir vin-
sældir Kaliforníuvínanna almennt.
Að hluta til má rekja þessa þróun
til aðstæðna á markaði. Gengisþróun
var þessum vínum mjög óhagstæð
þegar dollarinn rauk upp úr öllu
valdi upp úr aldamótum og sömu-
leiðis hefur verðþróun bandarískra
vína almennt ekki verið jafnhagstæð
og t.d. verðþróun ástralskra vína og
Chilevína.
Bandaríski markaðurinn er sterk-
ur, vínneysla hefur vaxið ört og þar
fæst ágætt verð fyrir innlenda fram-
leiðslu. Vínfyrirtækin hafa því ekki
þurft að lækka verð niður úr öllu
valdi til að eiga möguleika á útflutn-
ingsmarkaði.
Að hluta til má rekja skýringuna
til þess að sum þeirra vínfyrirtækja,
sem voru leiðandi á mark-
aðnum hér, gengu í gegn-
um erfið tímabil og má
nefna t.d. Mondavi í því
sambandi. Gæðin voru
einfaldlega ekki lengur
það sem þau voru þegar
framleiðslan var aukin
verulega á vinsælum teg-
undum (sama vandamál
hefur einnig hrjáð ástr-
alska framleiðendur en þó
ekki valdið þeim sömu bú-
sifjum hér).
Sömuleiðis held ég að
skort hafi á að betri vín
frá Kaliforníu hafi sést
hér – hugsanlega vegna
þess hversu dýr þau eru.
Það vantaði því vín til að draga
vagninn, annars vegar ódýr vín sem
völtuðu yfir samkeppnina í gæðum
(líkt og Chile hefur gert) og hins
vegar toppvín sem sýna að vínin
geta keppt við bestu vín Evrópu (aft-
ur eru mun fleiri slík vín
frá t.d. Chile á mark-
aðnum).
Vissulega hafa nokkur
góð Kaliforníuvín á
ágætu verði ratað hingað
og má nefna J. Lohr og
Clay Station í því sam-
bandi. Kaliforníuvínin
sem hafa t.d. verið að
mala Bordeaux-vínin í
frægum smökkunum
hafa hins vegar ekki ver-
ið aðgengileg íslenskum
neytendum.
Það er þó ekki eins og
ekkert sé í boði og til
dæmis hafa vínin frá
Gallo verið hér á mark-
aðnum um árabil en Gallo er hvorki
meira né minna en stærsta vínfyr-
irtæki í heimi.
Á dögunum kom Cal Dennison, yf-
irvíngerðarmaður fyrirtækisins, í
heimsókn til Íslands og hélt hann
m.a. fyrirlestur og smökkun á Nor-
dica síðastliðinn föstudag. Dennison
fór vítt og breitt um sviðið og kom
m.a. inn á nokkra athyglisverða
punkta, m.a. þá gagnrýni sem Kali-
forníuvínin fá stundum á sig fyrir að
vera of áfeng. Ekki er óalgengt að
vín frá Kaliforníu séu 14–15% að
styrkleika (sama á raunar við um
fleiri ríki s.s. Ástralíu). Sumir telja
þetta vera tísku en Dennison rakti
hvernig veðurfar í Kaliforníu gerir
að verkum að oft haldist bragð-
þroski þrúgna í hendur við syk-
urmagn (sem ræður áfengismagni).
Víngerðarmaðurinn standi því
frammi fyrir því að til að fá rétta
bragðþroskann verði hann (og síðan
neytendur) að kyngja því áfengi sem
fylgir sykurmagninu.
Framleiðslulína Gallo er mjög
stór og á smökkuninni voru kynnt
nokkur ný vín sem hér munu bætast
við flóruna á næstunni. Meðal ann-
ars ágætur Sauvignon Blanc undir
heitinu Dancing Bull og vín í línu
sem kallast Napa Valley sem virðast
vera á mjög góðu verði miðað vín frá
þeim slóðum.
Sjálfur hef ég ætíð verið hrifn-
astur af Sonoma Valley vínum Gallo
og það var því gaman að endurnýja
kynnin við Frei Ranch og Barelli
Creek vínin sem ég hef ekki séð á
markaðnum um nokkurt skeið. Þau
munu nú komin hingað á nýjan leik
og var Barelli Creek Cabernet Sau-
vignon 2001 einstaklega vel heppnað
eintak.
Vonandi eigum við eftir að sjá
Kaliforníuvínin leika sóknarleik hér
á markaðnum á ný. Þau standa vel
undir því.
sts@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Gullnar veigar Ýmis áhugaverð ný vín bætast við flóruna á næstunni.
Víngerðarmaðurinn Cal Dennison kynnti ný vín á Nordica.
Fyrir nokkrum árum
hröpuðu kalifornísk vín
hratt í vinsældum hjá ís-
lenskum neytendum.
Steingrímur Sigurgeirs-
son telur að sú staða
kunni að breytast.
Kalifornía í sókn á nýjan leik?
Eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur
sith@mbl.is
Cheryl Redmond kallar ekkiallt ömmu sína þegar kem-ur að stórum verkefnum.Eða kannski kallar hún
einmitt allt ömmu sína, ef út í það er
farið, því hún stendur nú í ströngu
við að kortleggja ættboga sinn –
ömmur, afa og skyldfólk – á Íslandi
og í Norður-Ameríku. Cheryl, sem er
píanókennari í Pittsburgh, blæs til
ættarmóts hér á landi í sumar, þar
sem fræðilega gætu mætt 1.700
manns, en í það minnsta nokkurra
hundraða er vænst.
„Frá því ég var lítil stelpa vissi ég
að rætur mínar væru á Íslandi. Og
mér fannst ég af þeim sökum ein-
stök, því það voru fáir [Vestur]-
Íslendingar í bænum mínum. Það jók
á tilfinninguna að ég er mjög lík föð-
urfólkinu mínu í útliti,“ segir Cheryl,
en langamma hennar hét Kristín
Árnadóttir og var dóttir Árna Þor-
valdssonar, stórbónda á Innra-
Hólmi. Það eru afkomendur Árna
sem Cheryl færir nú til bókar og boð-
ar á ættarmót, og endurtekur þar
með leikinn frá árinu 1987 er hún gaf
út bókina Meiðastaðaætt, hátt í 300
blaðsíðna ættartré, og skipulagði
ættarmót í sögulegu blíðviðri í Ölveri
undir hlíðum Hafnarfjalls. Mótið nú
verður haldið 7. júlí í Íþróttahúsinu
við Vesturgötu á Akranesi, en rétt
utan við bæinn stendur einmitt
Innri-Hólmur. „Síðast spáðum við að
200 manns kæmu en þeir urðu 500,“
segir Cheryl, „þannig að nú er erfitt
að segja fyrir um fjöldann. Núlifandi
afkomendur Árna eru 86% fleiri en
þá!“
„Ég er enn að safna efni í bókina
og hef fengið ættingjana til þess að
yfirfara sínar greinar ættartrésins,
svo allt sé sem nákvæmast. Ég hef
þegið ómetanlega hjálp frá Íslenskri
erfðagreiningu, þeir létu mig hafa
lista yfir afkomendurna, og einnig
hjálpaði ORG ættfræðiþjónusta til,
en það sem ég held að sé sérstakt er
að í bókinni verða ættir og afdrif
Vestur-Íslendinganna líka rakin. Það
er held ég ekki vaninn í íslenskum
ættfræðigrunnum,“ segir Cheryl,
sem sjálf er ekki menntuð í ættfræði
en drifin áfram af óbilandi áhuga.
Sjálfsmynd kom í leitirnar
„Við pabbi töluðum alltaf um það,
þegar ég var lítil, að við myndum fara
til Íslands og leita uppi ættingja okk-
ar. Svo varð aldrei neitt úr því fyrr en
við systkinin gáfum foreldrum okkar
Íslandsferð í 40 ára brúðkaupsferð.
Þegar þau héldu af stað, árið 1984,
ákvað ég að slást í för.“
Allar götur síðan hefur íslenska
rótin verið eitt af áhugamálum Che-
ryl og Íslandsferðirnar eru orðnar 14
talsins. „Þegar ég kom til Íslands í
fyrsta sinn fann ég samstundis sterk
tengsl við fólkið sem ég hitti. Og það
kveikti óslökkvandi þorsta eftir frek-
ari vitneskju um lífið sem Kristín og
Stefán [eiginmaður hennar] yfirgáfu,
þegar þau fluttu vestur. Á Íslandi hef
ég í raun fundið sjálfsmynd mína og
mér finnst frábært þegar ég geng
þar niður götu og fólk tekur mig „í
misgripum“ fyrir Íslending, stoppar
og spyr mig einhvers á íslensku,“
segir Cheryl, en íslenska var ekki töl-
uð í uppvextinum og er henni því
ekki töm. „Ég er bæði af frönskum,
þýskum og íslenskum uppruna, en
hjarta mitt er samt 100% íslenskt.
Ég hef ekki fundið hjá mér sömu
þörf fyrir að leita uppruna míns ann-
ars staðar – og þó bjuggum við Jim
maðurinn minn í Þýskalandi í fjögur
ár.“
Sendið myndir, takk
Cheryl hvetur alla ættingja sína til
þess að láta sjá sig á ættarmótinu, en
ekki síst hefur hún áhuga á ljós-
myndum í bókina góðu. „Við ætlum
nefnilega að láta geisladisk fylgja, að
þessu sinni, og þar er alveg svaka-
lega mikið pláss fyrir myndefni –
miklu meira en í bókinni. Þess vegna
bið ég alla vinsamlegast að senda
mér fjölskyldumyndir og ekki hika
neitt, því plássið er rúmt. Bókin er
senn á leið í framleiðslu, svo fólk þarf
helst að hafa hraðar hendur.“ Bent
er á heimasíðuna cherylredmond-
.com, þar sem hægt er að komast í
samband við Cheryl og eiginmann
hennar Jim, sem er ritstjóri bók-
arinnar Meira um Meiðastaðaætt.
Hjartað er 100% íslenskt
Cheryl Redmond Hvetur alla ættingja sína til þess að láta sjá sig á ættarmótinu og hefur einnig áhuga á að fá frá
þeim ljósmyndir í bókina sem hún ætlar að gefa út um Meiðastaðaættina.
Við pabbi töluðum
alltaf um það, þegar ég
var lítil, að við myndum
fara til Íslands og leita
uppi ættingja okkar.
vín