Morgunblaðið - 23.03.2007, Page 48

Morgunblaðið - 23.03.2007, Page 48
Hver eru þau ÞEKKIR einhver fólkið á myndinni? Myndin er tekin við Stað í Grindavík. Sennilega milli 1960-70. Líklega á einhverri samkomu Staðhverfinga- félagsins. Allar upplýsingar vel þegnar. Elín Sigurðardóttir, sími: 552-3433 Sönn saga ÞESSI saga var mér undirrituðum sögð á bak við verbúð á hafnarsvæði smábátahafnar í Hafnarfirði. Hann ólst upp á sveitabæ á Suður- landi. Búið var lítið, með beljum og fáeinum sauðkindum. 15 ára gamall fór hann á vetrarvertíð til að auka fjárráð heimilis foreldranna sem voru þá komnir á miðjan aldur. Hann byrjaði sjómennsku sína í Vest- mannaeyjum. Síðan stundaði hann sjóinn á hverjum vetri, ýmist frá Sandgerði, Vestmannaeyjum eða Grindavík. Þetta gekk svona frá 1952–2001, seinustu árin á togurum. Eftir 3 ár á eldriborgaralaunum var hann búinn að fá nóg. Vegna bakmeiðsla á sjón- um varð hann að fara í land, kunni ekki og gat ekki hugsað sér önnur störf. En fyrir átta árum kviknaði sá draumur að eignast trillubát til að stunda sjóinn í ellinni. En hvað hafði gerst? forysta Framsóknar var búin að finna upp fiskveiðistjórnunarkerfi sem lokaði leiðinni til sjálfstæðrar at- vinnusköpunar. Framsóknarmenn eru búnir að nema úr gildi 75. grein stjórnarskrár lýðveldisins Íslands. Hann settist niður nú fyrir jólin með 5.000 krónur sem eftir voru af mán- aðarlaununum. Það rann fram í hug- ann dapurleg staðreynd. Hann var búinn að stunda sjóinn allt sitt líf frá 15 ára aldri. Hann var búinn að gefa Framsókn atkvæði sitt öll þessi ár af skyldurækni við foreldra sína sem voru framsóknarfólk allt sitt líf. Hann reiddist sjálfum sér og ákvað nú að taka sér blað og penna í hönd og skipuleggja og gera sér áramóta- heit. Hann spurði sjálfan sig. Hverju get ég sleppt í lífinu og hvað eru lífs- nauðsynjar? Ég læt loka símanum. Ég eyði þessum bensíndropum sem eftir eru á bílnum (18 ára Volvo) til að aka honum í bílapressuna. Ég tek sjónvarpið með í leiðinni, sömuleiðis útvarpið til öryggis, þar stefnir í einkarekstur og hvað þá? Ég horfði á Ísland í dag fyrir fá- einum dögum, sagði hann, þar komu þá Jón Sigurðsson og Magnús Stef- ánsson í viðtöl. Magnús vegna Byrg- ishneykslisins (Byrgið virðist hafa verið rekið í anda Framsóknar gegn- um árin) og Jón sem fram kom sem formaður flokksins með baráttu- hugsjón sína. „Ég vorkenndi einkum Jóni sem harðhnoðaði hendur sínar allt viðtalið líkt og afi gerði þegar hann var að þæfa sokka. Magnúsi sárvorkenndi ég fyrir það hvað hann tók út miklar sálarkvalir af skömm eins og hann hefði verið staðinn að einhverju ódæði. Þarna á meðan á viðtalinu stóð rann upp fyrir mér nýtt og sannara nafn á flokkinn. Flæmingjaflokkurinn skal hann heita framvegis í mínum huga. Þarna fóru þessir tveir menn undan í flæm- ingi í báðum þessum viðtölum. 75. grein stjórnarskrárinnar hljóðar svo: Öllum er frjálst að stunda þá vinnu sem þeir kjósa sér. Þessu má þó setja skorður krefjist almannahagsmunir þess. Getur það brotið í bága við al- mannahagsmuni að veiða fisk á smá- bát með handfærum og línu? Brýtur það ekki frekar í bága við almanna- hagsmuni að valda lífríki hafsbotns- ins varanlegum skemmdum? Garðar Björgvinsson. 48 FÖSTUDAGUR 23. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn GRETTIR, KONUR ERU RÁÐGÁTA... RÁÐGÁTA SEM ILMAR MJÖG VEL OG HVER HEFUR EKKI GAMAN AÐ ILMANDI RÁÐGÁTUM? FYRIRGEFÐU HVAÐ ÉG VARÐ REIÐ ÚT Í ÞIG Í GÆR ÚT AF ENGU... LÁRUS? HANN Á AFMÆLI Í DAG! TIL ÞESS AÐ SÝNA ÞÉR AÐ ÉG STEND MEÐ ÞÉR, ÞÁ ER ÉG KOMIN HINGAÐ TIL AÐ SYNGJA AFMÆLISSÖNGINN FYRIR BEETHOVEN... HANN Á AFMÆLI Í DAG... HANN Á AFMÆLI Í DAG.. HANN Á AFMÆLI HANN LÁRUS... NEI! EKKI KOMA OFAN Í! AF HVERJU EKKI? ÉG ER AÐ STIKNA! VEGNA ÞESS AÐ ÞÚ ÁTT EFTIR AÐ FYLLA LAUGINA AF HÁRUM HÆTTU ÞESSU! HEYRÐU! HÆTTU ÞESSU! HÉLSTU AÐ ÞÚ HEFÐIR UNNIÐ? ÉG ÆTLA EKKI EINU SINNI AÐ SEGJA ÞÉR HVAÐ ÉG GERÐI FANNST PABBA GAMAN AÐ FARA Í GOLF Í DAG? ÉG SPURÐI HANN EKKI. ÉG HEF ÞAÐ FYRIR REGLU AÐ ATHUGA KYLFURNAR ÁÐUR EN ÉG SPYR NÚ, AF HVERJU? EF AÐ ÞAÐ VANTAR EINHVERJA KYLFU EÐA EINHVER ÞEIRRA ER BROTIN ÞÁ SPYR ÉG HANN EKKI AÐ NEINU SKRÍTIÐ! ÞAÐ ER REIÐUR TRÚÐUR AÐ GANGA UPP INNKEYRSLUNA HJÁ OKKUR Æ NEI! ÞAÐ ER ÚTRÚLEGT AÐ GASFYRIRTÆKIÐ HAFI RÆST ÚT HELLING AF FÓLKI TIL ÞESS AÐ ATHUGA LYKT SEM REYNDIST VERA SKÍTUGUR KATTAKASSI BETRA AÐ VERA ÖRUGGUR OG NÚNA GETUM VIÐ FARIÐ AÐ SOFA ÁN ÞESS AÐ VERA HRÆDD UM AÐ HÚSIÐ SPRINGI OG SÍÐAN VIÐ ÞRIFUM KASSANN, ÞÁ HEFUR LYKTIN SKÁNAÐ TIL MUNA HÉRNA INNI MIKIÐ ER ÉG FEGIN KETTIRNIR ERU ÞAÐ LÍKA ANSANS! ÉG ER OF SEINN! LÆKNIRINN ER KOMINN TIL AÐ TAKA AÐRA BLÓÐPRUFU VAKNAÐU PETER EF HANN SÉR AÐ ÉG ER HORFINN ÞÁ TENGIR HANN MIG KANNSKI VIÐ SLOPPAMANNINN dagbók|velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is FerdinandAÐALFUNDUR félagsins Ísland – Palestína skorar á íslensk stjórn- völd að fara þegar í stað að for- dæmi norsku ríkisstjórnarinnar og viðurkenna palestínsku þjóðstjórn- ina tafarlaust. Það væri framlag til friðar og réttlætis fyrir botni Mið- jarðarhafs, segir í ályktun sem samþykkt var á aðalfundinum í Norræna húsinu 21. mars. Um afstöðu norsku ríkisstjórn- arinnar segir: „Hún hefur við- urkennt þjóðstjórnina. . ., rofið við- skiptabannið og bundið þar með enda á refsiaðgerðir af sinni hálfu gagnvart íbúum herteknu svæð- anna sem verið hafa við lýði í kjöl- far kosninganna í janúar 2006. Það er smánarblettur á Vest- urlöndum að hafa fylgt Ísr- aelsstjórn í því að refsa Palest- ínumönnum fyrir að hafa kosið öðruvísi en þessum stjórnvöldum líkar,“ segir í ályktun fundarins. Íslensk stjórnvöld fari að fordæmi Norðmanna Á FULLTRÚAFUNDI skógrækt- arfélaganna í Norræna húsinu 17. mars sl. var undirritaður víðtækur samstarfssamningur á milli Olís og Skógræktarfélags Íslands. Samningurinn lýtur að stuðningi við skógrækt og samvinnu vegna uppbyggingar á skógræktarsvæðum. Þá felur hann í sér útgáfu á Hópa- korti Olís, sem sent verður öllum fé- lagsmönnum skógræktarfélaganna. Kortið veitir þeim ýmiss konar af- slátt í verslunum Olís, m.a. verulegan afslátt af bensíni, en auk þess mun Olís greiða SÍ ákveðna prósentu af veltu félagsmanna. Magnús Jóhann- esson, formaður Skógræktarfélags Íslands, og Sigurður K. Pálsson, mark- aðsstjóri Olís, skrifuðu undir samninginn við upphaf fulltrúafundarins. Samstarfsamningur milli Skóg- ræktarfélags Íslands og Olís Sigurður K. Pálsson, markaðstjóri Olís (t.v.) og Magnús Jóhannesson, formaður Skógræktarfélags Íslands (t.h.) skrifa undir samninginn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.