Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 98. TBL. 95. ÁRG. FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is AFSLÁTTUR AF VÖLDUM VÖRUM Á NÁTTBUXUNUM ÞÆGILEG NÁTTFÖT Í SKÓLANUM NÝJASTA ÆÐIÐ HJÁ UNGLINGUNUM >> 26 PETER, BJÖRN & JOHN Á NASA Á HEILANUM SÆNSK SNILLD >> 53 FRÉTTASKÝRING Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is GERA má ráð fyrir því að fjögur þúsund starfsmenn fái vinnuaðstöðu í fyrirhuguðu atvinnuhúsnæði á lóð- um Glitnis við Kirkjusand og Borg- artún, nái hugmyndir höfundar verð- launatillögu um nýjar höfuðstöðvar Glitnis fram að ganga. Að auki gætu um 100 manns búið á þeim hluta svæðisins sem Reykjavíkurborg tók frá fyrir íbúðarhúsnæði, næst Laug- arnesvegi. Reykjavíkurborg seldi Glitni meg- inhlutann af lóð Strætisvagna Reykjavíkur við Borgartún og þar hyggst bankinn byggja nýjar höf- uðstöðvar. Tveggja hæða bílastæði verða undir öllu byggingarsvæðinu, einnig íbúðarhúsunum. Glitnir fær lóðina afhenta 1. sept- ember og undirbúningur fram- kvæmdanna stendur yfir. Kristín Baldursdóttir, forstöðumaður rekstrardeildar Glitnis, segir að framkvæmdir hefjist syðst á svæð- inu. Vonast hún til að það geti orðið í byrjun næsta árs. Gert er ráð fyrir að uppbyggingunni verði skipt í fjóra áfanga sem unnir verði á næstu tíu árum eða svo. Ákveðið verður á næstunni hvort fasteignafélagi bank- ans eða öðrum verður falið að annast uppbygginguna. Skyld starfsemi möguleg Kristín segir of snemmt að segja til um hvað bankinn sjálfur þurfi að nota mikið af fyrirhuguðu atvinnu- húsnæði. Bankinn sé í örum vexti og vilji ekki ráðstafa húsnæði til ann- arra fyrr en fyrir liggi hvað megi byggja og hverjar þarfir bankans sjálfs verði. Hún nefnir að skyld starfsemi komi helst til greina, svo sem tryggingarekstur, önnur fjár- málastarfsemi og jafnvel lögfræði- og endurskoðendastofur. Einnig komi til greina að skapa rými fyrir persónulega þjónustu við starfsfólk og íbúa á svæðinu, svo sem veitinga- hús, hársnyrtistofu, fatahreinsun og annað slíkt. Tillaga höfunda deiliskipulagsins hefur ekki verið lögð fyrir skipulags- ráð Reykjavíkurborgar. Að lokinni umfjöllun þess verður skipulagið auglýst með hefðbundnum hætti. Hanna Birna Kristjánsdóttir, for- maður ráðsins, hefur þó kynnt sér til- lögurnar og líst vel á. Hún telur við fyrstu athugun að þar sé margt vel leyst og að tillögurnar mæti vel kröf- um fyrirtækisins og borgarinnar. Við ströndina Nýju húsin við Sæbraut gætu litið svona út. 4.000 manns við vinnu Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is GERA þarf stórátak til þess að end- urheimta stöðugleika í hagstjórn á Íslandi. Útlit er fyrir að halli verði á ríkissjóði á næsta ári. Þetta kom fram í máli Jóns Sigurðssonar, fyrrv. ráðherra og seðlabankastjóra, á morgunverðarfundi Samfylkingar- innar í gær. Jón segir að sá bati sem orðið hefur hjá ríkissjóði byggist að- allega á umframtekjum af of- þenslunni og sölu ríkiseigna en síður á árangri við útgjaldastjórn. „Hætt- an er sú að Ísland missi trúverðug- leika á alþjóðlegum fjármálamörkuð- um, en þá væri voðinn vís með hækkandi vaxtaálagi, gengisfalli og verðbólgugusu.“ Jón gagnrýndi skort á samstillingu í stjórn ríkisfjármála og peninga- mála. Tímasetning skattalækkana orkaði tvímælis og rýmkun útlána- reglna Íbúðalánasjóðs hefði gengið þvert á yfirlýsingar stjórnvalda um aðhaldssemi. „Það er hringlandahátt- ur af þessu tagi sem grefur undan til- raunum til aðhalds […].“ Árni M. Mathiesen fjármálaráð- herra segir að gert sé ráð fyrir nei- kvæðri afkomu ríkissjóðs á árunum 2008 og 2009 vegna minnkandi um- svifa og hluta af söluandvirði Símans verði þá ráðstafað til að glæða efna- hagslífið. Markmið sem ríkisstjórnin setti sér í upphafi kjörtímabilsins um raunútgjaldaþróun hafi í öllum meg- inatriðum staðist. | Miðopna Gagnrýnir hringlanda og ósamstillta hagstjórn Í HNOTSKURN »Í riti Samfylkingarinnarum efnahagsmál segir að hagstjórnarvandi næstu rík- isstjórnar verði ærinn. »Ríkissjóður sé nú orðinnháður því að hafa tekjur af ofþenslunni til þess að mæta ört vaxandi ríkisútgjöldum. »Peningamálastjórn meðverðbólgumarkmiði, fljót- andi gengi og stýrivöxtum hefur ekki gefið góða raun að mati Jóns Sigurðssonar. Fjármálaráðherra segir markmiðum í öllum meginatriðum hafa verið náð Jón Sigurðsson Árni M. Mathiesen VLADIMÍR Ashkenazy, heið- ursstjórnandi Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands, er hér á landi og stjórnar tvennum tónleikum, í Háskólabíói í kvöld og í íþrótta- húsinu Torfunesi á Ísafirði á morgun. Tónleikarnir á Ísafirði verða þeir tólftu sem Sinfóníuhljóm- sveitin heldur í bænum. Hún kom þangað fyrst árið 1960 en síðast lék hún þar árið 1998. Á efnis- skrá eru verk eftir Felix Mend- elssohn, Robert Schumann og Hector Berlioz. Einleikari á tónleikunum er einn þekktasti píanóleikari Tyrk- lands, Gülsin Onay, en hún ber nafnbótina þjóðarlistamaður í heimalandi sínu. Þetta er í fyrsta sinn sem hún leikur sem einleikari á tónleikum sem Ashkenazy stjórnar. | 23Morgunblaðið/Ásdís Í Háskóla- bíói og Torfunesi BANN við notkun nagladekkja tekur gildi næstkomandi sunnudag, 15. apríl, en að sögn Ólafs H. Knútssonar, varðstjóra í umferðardeild lögreglunnar í Reykjavík, er venjan sú að veita ökutækjaeigendum nokkurra daga viðbótar- frest, sem taka mun mið af veðri og færð. „Strax eftir mánaðamótin má svo búast við að nagladekkjabanninu verði fylgt mjög strangt eftir og þá sleppur væntanlega enginn, þrátt fyrir að hafa af- sakanir á reiðum höndum,“ segir Ólafur. 5.000 kr. sekt fyrir hvert dekk Viðurlögin nema fimm þúsund króna sekt á hvert nagladekk, sem í notkun er, sem þýðir að „heildarpakkinn“ gæti lagt sig á 20 þúsund krónur, ef menn trassa dekkjaskiptin. Skiptar skoðanir eru um ágæti nagladekkjanna þó að notkun þeirra hafi ver- ið á undanhaldi og dregist saman um 15% á síðustu fimm árum. Nýjasta taln- ingin, sem gerð var viku af mars, leiddi í ljós 47% notkun nagladekkja.| 27 Engar afsakanir munu duga um mánaðamót
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.