Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is EIRÍKUR Tómasson, lagaprófess- or við Háskóla Íslands, telur að lík- lega hafi meirihluti hæstaréttar gengið fulllangt í dómi sínum 16. mars, í olíuforstjóramálinu svo- nefnda, þegar rétturinn komst að þeirri niðurstöðu að meðferð máls- ins hefði brotið gegn fyrirmælum Mannréttindadómstóls Evrópu og stjórnarskrárinnar um réttláta málsmeðferð fyrir dómi. Þessu við- horfi lýsti Eiríkur í málstofu laga- deildar HÍ í gær um dóm hæsta- réttar. Hann byggir gagnrýni sína á því hvernig Mannréttindadómstóll Evrópu hefur skýrt fyrirmæli Mannréttindasáttmála Evrópu sem felur í sér bann við því að sakborn- ingur sé beittur þvingunum til þess að fella sök á sjálfan sig. „Ég tel að í fyrsta lagi geti það varla talist ólögmæt þvingun í merkingu ákvæðis Mannréttinda- sáttmálans þótt ákærðu hafi ákveð- ið að ganga til samstarfs við sam- keppnisyfirvöld í því skyni að stjórnvaldssektir þeirra félaga sem þeir stýrðu yrðu ákveðnar lægri en þær hefðu ella orðið,“ segir hann. „Í því sambandi má benda á að í hverju einasta sakamáli kemur upp áþekk staða vegna þess að það á að koma ákærða til góða við ákvörðun refsingar ef hann stuðlar að því að upplýsa málið. Í öðru lagi lá fyrir í málinu yfirlýsing ákæruvaldsins þess efnis að það ætlaði ekki að byggja kröfu um sakfellingu á upp- lýsingum sem komnar væru frá ákærðu og væru til þess fallnar að fella á þá sök.“ Eiríkur telur að í stað þess að vísa málinu frá hefði það átt að fá efnismeðferð. Telur að rétturinn hafi gengið fulllangt Olíumálið hefði átt að fá efnismeðferð fyrir dómstólum Morgunblaðið/Ásdís Málstofa Meðal áheyrenda voru Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari sem sótti málið á sínum tíma. „ÞETTA eru geysilega mikil- vægar framkvæmdir sem ég tel að við verðum að hrinda af stað sem fyrst,“ segir Sturla Böðv- arsson samgönguráðherra en hann hefur falið Vegagerðinni að hefja undirbúning að útboði á tvö- földun Suðurlandsvegar og Vest- urlandsvegar út frá Reykjavík. Skipuð verður verkefnisstjórn til að vinna frumáætlun um fjár- mögnun og rekstrarfyrirkomulag og undirbúa samráð við viðkom- andi sveitarfélög. „Eins og við vitum er umferðin vaxandi á báð- um þessum brautum og mikilvægt að aðgreina akstursleiðir sem fyrst.“ Spurður segist Sturla ekki geta gefið nein fyrirheit um það hve- nær tvöföldun veganna verði lok- ið. Það fari annars vegar eftir því hversu hratt gangi að finna lausn, í samvinnu við sveitarfélög á við- komandi svæðum á skipulagsmál- unum vegna legu veganna og tengingu þeirra við nærliggjandi byggðasvæði. Hins vegar ráð- ist það af því hversu vel og hratt gangi að fjármagna fram- kvæmdirnar. Að sögn Sturlu er gert ráð fyrir sér- stakri fjáröflun vegna verksins í samræmi við þingsályktun um samgönguáætlun 2007 til 2010 en þar er þó ekki tekin afstaða til þess hvernig verkið skuli greitt. Bendir hann á að til greina komi nokkrar leiðir, svo sem einkaframkvæmd sem byggist á notendagjöldum, rík- isframlag eða framlag einkaaðila en einnig geti verið um að ræða hefðbundna fjáröflun sem væri ríkisframlag eða lántaka. Segist Sturla vilja nýta afl einka- framtaksins til þess að tvöföld- unin komist sem allra fyrst í framkvæmd og notkun. Hafnar verði fram- kvæmdir sem fyrst Sturla Böðvarsson Vegagerð falið að undirbúa útboð á tvöföldun Suður- og Vesturlandsvegar ALÞJÓÐLEGT mót á vegum Skák- sambands Íslands hófst í gær í Faxafeni 12. Er það tileinkað minningu skákfröm- uðarins Þráins Guðmundssonar sem lést fyrir skömmu. Sonur Þráins, Guð- mundur Ómar Þráinsson, leikur hér fyrsta leikinn fyrir Hjörvar Stein Grét- arsson í skák hans gegn hinni indversku Sabbaram Vijayalakshmi. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, forseti sambandsins, fylgist með. Markmið mótsins er að gefa ungum skákmönnum færi á að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli og afla sér dýrmætrar reynslu. Stefnir sambandið nú að því að halda alþjóðleg mót á hverju ári. Stigahæstur íslensku þátttakendanna er Héðinn Steingrímsson. Flestir erlendu keppendurnir tóku einnig þátt í Kaup- þingsmótinu. Vijayalakshmi mætti ásamt eiginmanni sínum en þess má geta að þau eru með jafnmörg stig! Í fyrstu umferðinni lagði Ingvar Þór Jóhannesson, sem náði fyrir skemmstu áfanga að alþjóðlegum meistaratitli, lettneska stórmeistarann Míkhaíl Ívanov. Alþjóðlegt mót í minningu Þráins Morgunblaðið/Ómar „ÉG vek athygli á því að gengi krón- unnar hefur styrkst frá áramótum, sem ætti að gefa svigrúm til lækk- unar. Þess vegna koma jafnmiklar hækkanir og þarna er tilkynnt um okkur verulega á óvart og eru til lít- illar gleði. Þarna er einfaldlega verið að taka ávinning neytenda af virð- isaukaskattslækkuninni í burtu á einu bretti, hvað varðar þær vörur sem þarna um ræðir,“ segir Jóhann- es Gunnarsson, formaður Neytenda- samtakanna, í tilefni af boðuðum hækkunum nokkurra birgja. Á vef Neytendasamtakanna var nýverið greint frá því að Gunnars Majones ætli að hækka verð á vörum sínum seinna í mánuðinum um 7% og nú hefur Danól, sem er stærsta inn- flutnings- og dreifingarfyrirtæki landsins í almennri matvöru, til- kynnt um 5,4–15,2% hækkun á nokkrum vörum sínum frá og með næstu mánaðamótum vegna er- lendra verðhækkana. Er þar um að ræða Ota-vörur, Quaker-kornvörur, og Merrild-kaffi. Samkvæmt upplýsingum frá Pétri Kristjáni Þorgrímssyni, markaðs- stjóra Danól, hafa ríflega 600 af þeim 700 vöruliðum sem fyrirtækið selur haldist óbreyttir frá síðla árs 2006. „Af um 700 vöruliðum sem fyrirtæk- ið selur í matvöruverslanir hafa 73 hækkað frá því í október 2006. Á sama tíma hafa 103 vöruliðir lækkað í verði um allt að 16%. Af þeim 27 vöruliðum sem áformað er að hækka hinn 1. maí nk. hækka fjórtán vöru- liðir um 6%, tólf vöruliðir hækka um 9% og einn vöruliður um 15%. Marg- ar erlendar verðhækkanir höfum við tekið á okkur ásamt því að á sl. 12 mánuðum hafa allir kostnaðarliðir innanlands hækkað, t.d. hefur launa- vísitalan hækkað um 9,5%, vísitala neysluverðs á sama tíma um 6,8% og flutningskostnaður innanlands um 13%. Þessum hækkunum höfum við mætt með ýmsum hagræðingarað- gerðum,“ segir í skriflegu svari Pét- urs. Í samtölum Morgunblaðsins við birgja undir lok síðasta mánaðar sögðu flestir helstu ástæðu verð- hækkana hérlendis annars vegar vera launahækkanir og hins vegar verðbreytingar á aðföngum frá út- löndum. Þegar þetta er borið undir Jóhannes bendir hann á að gengis- breytingar hafi verið nefndar af flestum sem ástæða hækkana um síðustu áramót. „Okkur hefur of oft fundist lítið samræmi í gerðum þess- ara fyrirtækja, þ.e.a.s. þegar krónan veikist eru fyrirtæki fljót að hækka en þegar hún hins vegar styrkist þá skilar það sér bæði seint og illa til neytenda.“ Ávinningur neytenda tekinn Markaðsstjóri Danól segir rúmlega 600 af 700 vöruliðum fyrirtækisins hafa haldist óbreytta frá í október 2006 Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is BJÖRN Bjarna- son, dóms- og kirkjumálaráð- herra, gekkst undir brjósthols- aðgerð á Land- spítala – háskóla- sjúkrahúsi í gærdag og sam- kvæmt upplýs- ingum úr ráðu- neytinu gekk aðgerðin vel og er líðan ráðherrans eftir atvikum góð. Björn fann fyrir mæði síðastliðinn mánudag og fór því í athugun á LSH. Kom í ljós að annað lunga hans hafði fallið saman og er það í annað skiptið á árinu sem ráðherrann leggst inn á sjúkrahús vegna þess. Óvíst er hversu lengi Björn verður að ná sér eftir aðgerðina. Brjósthols- aðgerðin gekk vel Björn Bjarnason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.