Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 51 ENVY of Nona hefur verið starf- rækt í um fjögur ár, en söngvarinn og gítarleikarinn, David Dunham, var áður í d.u.s.t. (restina af þeirri sveit skipar Kanora). Fyrsta plata sveitarinnar inniheldur þungarokk sem fer í hinar og þessar áttir. Fyrstu sveitirnar sem nefndar eru til sem áhrifavaldar á www.rokk.is eru enda Tool og Guns ’n Roses, afar ólíkar hljómsveitir og skauta Envy of Nona á milli þessara tveggja póla í tólf lögum sem eru mis-sannfær- andi. Tvö fyrstu lögin gefa fínar vís- bendingar um það sem í vændum er, „Dahmer“ er bráðgott, temmilega djúphugult og strax á eftir er það fínasti partíslagari, „Chainsaw“. Önnur lög eru einhvers staðar þarna á milli; hér eru ballöður, „beint af augum“ rokkarar og fram- sæknari smíðar í bland. Það sem dregur plötuna niður er slappur söngur, og þó að tilgang- urinn með plötunni hafi ekki verið að finna upp hjólið, er gæðunum í laga- smíðadeildinni ansi misskipt. Fyr- irtaks hljóðfæraleikur og auðheyr- anleg ástríða fyrir tónlistinni er það sem fleytir plötunni yfir meðallagið. Bæði heila- laust og hugsandi TÓNLIST Envy of Nona – Two Years Birth  Arnar Eggert Thoroddsen Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is STÚLKNASVEITIN Heimilistónar hefur náð samningi við Sögur ehf. um útgáfu á sinni fyrstu plötu, Herra ég get tjúttað. Samhliða því er einnig stefnt að útgáfu á DVD diski með heimildarmyndinni Heimilistónar í Ameríku sem sýnd var í Sjónvarpinu á páskadag. „Heimilistónar er heim- ilisleg hljómsveit sem samanstendur af fimm leikkonum, Elvu Ósk Ólafs- dóttur, Ólafíu Hrönn Jónsdóttur, Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur, Ragnhildi Gísladóttur, og svo mér,“ segir Vigdís Gunnarsdóttir, leikkona, trommari og fleira. „Við spilum nefnilega ekki bara á eitt hljóðfæri heldur róterum, við spilum til skiptis á hljóðfærin, auk þess sem við syngj- um til skiptis. Það er sem sagt mikið jafnræði hjá okkur.“ Aðspurð um nafn plötunnar segir Vigdís hana samnefnda einu af lög- um plötunnar. „Þetta er tónlist frá bæði sjöunda og áttunda áratugnum, í stíl við kjólana okkar. Við viljum auðvitað hafa ákveðinn stíl á þessu,“ segir Vigdís. Um er að ræða erlendar ábreiður frá umræddu tímabili, en þær stöllur þýddu texta allra lag- anna. „Við leggjum mikinn metnað í að hafa þýðingarnar mjög heið- arlegar.“ Upptökum á plötunni er lokið og ef allt gengur að óskum ætti hún að koma út eftir tvær til þrjár vikur. Í sumar stefna þær svo að því að fara í tónleikaferðalag um landið, sem Vig- dís telur að verði seinni partinn í júní. Samningurinn sem gerður var við Sögur ehf. nær yfir útgáfu á tveimur plötum og segir Vigdís að seinni plat- an verði jólaplata sem ætlunin sé að gefa út á aðventunni. „Við erum að safna að okkur textum, og ætlum reyndar að hafa meira okkar tónlist, það er að segja að semja eitthvað sjálfar,“ segir hún. Heimilislegir Heimilistónar Handsal Jóhann Friðrik Ragnarsson, framkvæmdarstjóri Sagna ehf., Elva Ósk, Vigdís, Ólafía Hrönn, Katla Margrét og Ragnhildur. SÍÐROKKSTRÍÓIÐ Fridge er lík- lega þekktast í dag sem útung- unarstöð Adems og Four Tet, tveir listamenn sem hafa verið áberandi í jaðarheimum tónlistarinnar en á alls ólíkum forsendum. Four Tet er þannig listamannsnafn Kieran Heb- den og tónlistin framsækin og víruð raftónlist (en einkennilega grípandi þó) en Adem heitir fullu nafni Adem Ilhan og ástundar ang- urværa, rafskotna tónlist; einhvers konar nútíma þjóðlagatónlist. Þegar Fridge starfaði lék Heb- den á gítar, Adem á bassa og Sam Jeffers á trommur. Allt eru þetta gamlir skólafélagar og Fridge var aldrei lögð niður formlega, þó að sólóferill bæði Adem og Hebden færi á flug (og heimsóttu þeir m.a. Ísland haustið 2004, þar sem þeir léku á Iceland Airwaves-hátíðinni). Nú hefur verið tilkynnt um nýja plötu frá Fridge og kemur hún út í júní næstkomandi. Er það fyrsta plata sveitarinnar síðan Happiness kom út árið 2001, en sú plata þykir mikið meistaraverk í síðrokks- fræðum. Platan nýja ber nafnið The Sun og varð til á síðasta sumri, er vinirnir þrír höfðu loks tíma til að hittast og vinna að tónlist saman. Það er mikill hugur í Hebden vegna plötunnar og vonast hann til að hægt verði að túra í kjölfarið, segir að á sínum tíma hafi verið lítið um slíkt, enda meðlimir ekki nema sex- tán ára þegar sveitin vakti fyrst at- hygli. Ný plata frá Fridge Four Tet Kieran Hebden.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.