Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VEÐUR
ÍMorgunblaðinu í gær birtist greineftir Birgi Dýrfjörð, Samfylking-
armann. Í grein þessari sakar Birg-
ir Morgunblaðið um „einsýni“.
Hver eru rökhans fyrir
því?
Hann vitnar tilReykjavík-
urbréfs Morg-
unblaðsins sl.
sunnudag og seg-
ir:
„Sökudólgurinn er að mati blaðs-
ins stóriðjuframkvæmdir á Austur-
landi, agaleysi í ríkisfjármálum og
ögrandi breytingar á lánaskil-
málum Íbúðalánasjóðs.“
Ef undan er skilin tilvísun til Aust-urlands er Birgir að vitna í orð
Gylfa Arnbjörnssonar, fram-
kvæmdastjóra ASÍ, sem birt voru
innan tilvitnunarmerkja í Reykja-
víkurbréfinu.
Og enn segir Birgir:„Morgunblaðið virðist ekki
sjá að á lánum Íbúðalánasjóðs var
16 milljón króna hámark.“
Hér eignar Birgir Dýrfjörð Morg-
unblaðinu aftur orð Gylfa Arn-
björnssonar, sem birt voru innan til-
vitnunarmerkja í Reykjavíkur-
bréfinu.
Það eru til þrjár hugsanlegarskýringar á þessari furðulegu
grein Birgis Dýrfjörð. Í fyrsta lagi
er hugsanlegt að hann hafi ekki tek-
ið eftir tilvitnunarmerkjunum. Sé
svo er honum fyrirgefið. Í öðru lagi
er hugsanlegt að hann hafi verið að
gera að gamni sínu og það er líka
hægt að fyrirgefa. En í þriðja lagi
má spyrja hvort hann er að ráðast á
Gylfa Arnbjörnsson með þeim sér-
kennilega hætti sem á dögum kalda
stríðsins var kennd við Albaníu.
Hver er skýringin, Birgir?!
STAKSTEINAR
Birgir Dýrfjörð
Albanía Birgis Dýrfjörð
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
!"
#
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
#
#
#
#
#
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
%
%
%
&" ' (
' '
&" ' (
#
#
!"
#
#
:
*$;<
*!
$$; *!
) * !
+
=2
=! =2
=! =2
)!* ' , ( - ."'
/
<
$
*
)
*' *
0 &"
%
12% ( 3 '
/
)
% - "' &
#0 / "
3
'
% "'
( 0
" 4 +
=7
45 (
*
0
$% - "' ' '
(' 0 &"
%
6 " . 0
6 6 ('
76''
88 '
4
"
, (
3'45 >4
>*=5? @A
*B./A=5? @A
,5C0B ).A 0
$
$
$
$
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Ósk Sigurðardóttir | 11. apríl 2007
90% lán
Sá auglýsingu áðan í
sjónvarpinu íslenska,
þar sem Glitnir auglýs-
ir 90 % húsnæðislán af
markaðsverði.
Ég spyr bara, hvern-
ig ætlar fólk að fara að
því að borga það lán? Og ef þú
ákveður að selja eftir nokkur ár,
þarftu að borga nokkrar millur með
þér!
Er í alvöru einhver sem tekur
þessi lán? My god, hvað ég er fegin
að hafa ekki selt íbúðina mína.
Meira: oskir.blog.is
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir | 10. apríl
Vantar gangbraut
Ef við hefðum valið að
fara Seljaveginn hefð-
um við líka lent í vand-
ræðum því við hefðum
þurft að fara alla leið
að Hamborgarabúll-
unni til að finna gang-
braut. Pirrelsið jókst náttúrulega
við að rembast við að labba um
Grandagarð með kerruna... ég læt
mér gangbraut duga í bili en biðla
hér með til formanns skipulagsráðs
að henda með gönguljósi með einni
grænni kellingu á.
Meira: bryndisisfold.blog.is
Jenný Anna Baldursdóttir |
11. apríl 2007
Bara fótur…
…en Richards glæsi-
legi og heimsins mesta
krúttibúlla hefur einu
sinni amk. dúndrað gít-
arnum í hausinn á
Wood.
En það var vegna
þess að Wood var enn í heróíni en
Richards var þá hættur í því dópi og
kominn yfir í kókaín og önnur heil-
brigðari efni. Honum var skiljanlega
misboðið að Wood væri enn í svona
„heavy“ dópi.
Meira: jenfo.blog.is
Óli Björn Kárason | 11. apríl 2007
Með pólitískan
björgunarhring?
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir virðist eiga um
þrjá kosti að velja, ef
úrslit kosninga verða
með þeim hætti sem
skoðanakannanir
benda til. Í fyrsta lagi
að segja af sér sem formaður Sam-
fylkingarinnar, í öðru lagi að hrekj-
ast úr embætti eins og algengt hefur
verið hjá formönnum Alþýðuflokks-
ins (þegar skipstjórinn fiskar ekki),
eða ná ríkisstjórnarsamstarfi óháð
kostnaði.
Formaður Samfylkingarinnar
horfir fram á að fylgi Samfylking-
arinnar verði svipað og fylgi Alþýðu-
flokksins var árið 1978 þegar flokk-
urinn vann glæstan kosningasigur
og fékk 22% atkvæða.
Pólitísk framtíð Ingibjargar Sól-
rúnar veltur á því hvort henni tekst
að tryggja flokknum aðild að rík-
isstjórn og að hún sjálf setjist í
valdamikið ráðherraembætti. Hér
verður því haldið fram að til þess að
þetta gangi eftir sé Ingibjörg Sólrún
tilbúin til að greiða nokkuð hátt
verð.
Fyrir Ingibjörgu Sólrúnu og fé-
laga hennar í Samfylkingunni verður
hins vegar erfitt að fara inn í rík-
isstjórn með vinstri grænum og nær
útilokað er að meirihluti vænt-
anlegra þingmanna Samfylkingar
samþykki Steingrím J. sem forsætis-
ráðherra.
Vinstri grænir hafa gert vonir
Samfylkingarinnar um að verða hinn
stóri flokkur jafnaðarstefnunnar að
engu og það eiga margir erfitt með
að fyrirgefa, hvað þá að sætta sig
hugsanlega við að Steingrímur J.
mæti til þings með fjölmennara lið.
Þess utan er harla ólíklegt að
Samfylking og vinstri grænir geti
myndað tveggja flokka stjórn. Þriðja
hjólið þarf undir vagninn, – fram-
sókn eða frjálslynda (eða Ómar).
Þriggja flokka stjórnir hafa ekki
reynst okkur Íslendingum gæfurík-
ar. Þetta veit Ingibjörg Sólrún og
því horfir hún til Sjálfstæðisflokks-
ins í þeirri von að Geir Haarde kasti
til hennar pólitískum björgunar-
hring.
Ekki er ólíklegt að Geir Haarde
telji rétt að stefna að ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar.
Meira: businessreport.blog.is
BLOG.IS
Svona, Katrín, berðu þig aumlega, grenjaðu svolítið.