Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Vegna mikils aðstreymis aðsendra greina í aðdraganda alþingiskosninganna verður formi þeirra greina, sem lúta að kosningunum, breytt. Er þetta gert svo efnið verði aðgengilegra fyrir lesendur og auka mögu- leika Morgunblaðsins á að koma greinunum á framfæri fyrir kosningar. Alþingiskosningar ÞJÓÐLENDUMÁL og eign- arréttur á landi hafa mikið verið til umræðu síðustu árin, enda um stórt og mikið hagsmunamál fyrir bændur og jarðeig- endur í landinu að ræða. Í aðdraganda málsins á 9. ára- tugnum var rætt um að eðlilegt væri að skýra mörk svo kallaðs einsk- insmannslands á hálendinu sem og í einhverjum tilvikum einnig eign- armörk afrétta. Kröfugerð fjár- málaráðuneytisins í þinglýstar eignir virðist því í algjörri and- stöðu við upphaflegan tilgang þessarar vegferðar og málsmeð- ferð sú sem viðhöfð er með öllu óásættanleg. Úr hófi keyrir kröfu- gerð ríkisvaldsins á Norðaust- urlandi, en þar er sums staðar gerð krafa um að land sé skil- greint sem þjóðlenda allt niður í sjó. Á opnum fundi um þjóðlend- umál og eignarrétt á landi, sem Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda hélt á Blönduósi fyrir nokkru, kom fram að gerð er krafa um að 75% af landi Grýtu- bakkahrepps verði skilgreind sem þjóðlenda í eigu ríkisins og dæmi eru um samskonar kröfur í allt að 90% jarða. Framganga ráðuneyt- isins er þannig hvorki í anda þess samstarfs sem bændur og rík- isvaldið áttu í aðdraganda málsins, né í samræmi við tilgang laganna sjálfra, sem er fyrst og fremst að tryggja eignamörk bújarða, þann- ig að hvergi leiki vafi á um eign- arrétt jarðeigenda. Það er einnig með ólíkindum að sönnunarbyrðin skuli í sumum tilvikum vera lögð á landeigendur, slík málsmeðferð er í fullu ósamræmi við almennan refsirétt, en þar er sönnunarbyrði sektar á höndum ákæruvaldsins en ekki öfugt. Þetta er eitt af þeim málum sem kljúfa þjóðina í tvennt og innan stjórnmálaflokkanna – bæði rík- isstjórnarflokkanna og þeirra sem skipa stjórnarandstöðu – ríkir ekki eining um hvernig mál þessi skuli til lykta leidd. Annars vegar er um að ræða landeigendur, eign- ir þeirra og réttindi og hins vegar er hópur fólks sem telur það til mikilla hagsbóta fyrir þá sem ekk- ert land eiga að ríkið slái eign sinni á sem mest land sem sé þá nokkurs konar þjóðareign. Ég held að allir hafi skilning á því að mikilvægt sé að skilgreina hálendi landsins – hið svo kallaða einsk- insmannsland – sem eign allra landsmanna, en sú framganga fjármálaráðuneytisins að virða ekki eignarhald á þinglýstum eignum er alvarleg og óásætt- anleg. Það er afar mikilvægt að skapa sátt um þjóðlendumál til framtíðar og þess vegna brýnt að ráðast í endurskoðun á þeim lögum sem gilda um þjóðlendur í því augna- miði að skýra betur forsendur, málsmeðferð og aðferðafræði. Á flokksþingi Framsóknarflokksins, sem haldinn var fyrir skömmu, var samþykkt ályktun um að fresta frekari framgangi þjóðlend- umála og taka lögin til endurskoð- unar, ásamt því að fjármálaráðu- neyti endurskoði kröfugerð sína þar sem mál standa yfir og leiti sem fyrst sátta við landeigendur. Þetta er í raun lágmarkskrafa og hlýtur að teljast eðlileg í ljósi þess að hér er um stórt og afar við- kvæmt mál að ræða. Um þjóðlendumál og eignarrétt á landi Eftir Herdísi Á. Sæmundardóttur Höfundur skipar 2. sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. FRAMBJÓÐANDI Frjálslynda flokksins í Reykjavík, Viðar Helgi Guðjohnsen, skrifaði nýverið grein þar sem hann telur útlendinga sem hér búa vera rótina að öllum þeim vanda sem við okkur blasir. Af lestri greinarinnar má klárlega álykta sem svo að útlendingar séu upp til hópa berklasjúkir eitur- lyfjasalar og skipulagðir nauðgarar sem halda laun- unum niðri og með öllu ómögulegt sé að kenna þeim ís- lensku. Magnús Þór Hafsteinsson varaformaður Frjáls- lyndaflokksins sá ekki ástæðu til þess að bera á móti þessu harkalega sjónarmiði Viðars í viðtali við Egil Helgason og fram hefur komið að formaðurinn Guðjón Arnar Kristjánsson segir ummæli Viðars ekki koma sér við. Um þessar mundir má heyra fréttir af vaxandi kynþáttahatri hér á landi þar sem m.a. er gróflega vegið að erlendum verkamönnum með slagorðum sem forysta Frjálslyndra notar, „Ísland fyrir Íslendinga“ auk teikninga af hakakrossi og manni sem hangir í snöru. Forysta Frjálslyndra er klárlega að koma því til leiðar með mál- flutningi sínum, ákafa og tortryggni í garð útlendinga að kynþátta- hatur og pirringur í garð útlendinga verði að vandamáli hér á landi. Ég hef því miður allt of oft lent í deilum við fólk sem er farið að pirra sig á þeim útlendingum sem það þarf að eiga samskipti við og iðulega er vitnað til Magnúsar Þórs og félaga hans í Frjálslynda flokknum til þess að rökstyðja það hversu skelfilegar manneskjur út- lendingar eru. Í einu tilviki bað ég viðmælanda minn, eftir að hafa fengið langa ræðu pirrings og ofstopa, að segja mér hvort það væri ekkert gott sem fylgdi þeim útlendingum sem hann ætti samskipti við. Hik kom á viðmælanda minn og átti hann erfitt með í útlendingapirringi sínum að viðurkenna að svo væri. Það er fyrst og fremst Frjálslyndi flokkurinn með upphrópunum sínum og ofstæki sem er að koma í veg fyrir að heilbrigt fjölmenning- arsamfélag þar sem allir fái notið virðingar þrífist hér á landi. Við höfum enn tækifæri til þess að byggja fjölbreytt samfélag og læra af reynslu annarra þjóða og koma í veg fyrir að mistök sem átt hafa sér stað erlendis verði okkar hlutskipti. Því miður er Frjálslyndi flokk- urinn langt kominn með að eyðileggja þann möguleika með því að sá fræjum tortryggni og ofstækis. Frjálslyndiflokkurinn sáir fræjum haturs og tortryggni Eftir Jóhann Björnsson Höfundur skipar fimmta sætið á framboðslista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmi suður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.