Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 39
✝ Þórir Þorláks-son fæddist í
Veiðileysu í
Strandasýslu 30 júní
1926. Hann lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 31. mars
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
hjónin Þorlákur
Guðbrandsson
bóndi í Veiðileysu, f.
16. apríl 1893, d. 15.
feb. 1977 og kona
hans Ólöf Sveins-
dóttir frá Kirkjubóli
í Staðardal, f. 20. maí 1892, d. 6.
apríl 1952. Systkini Þóris eru An-
nes Svavar, f. 19. sept. 1917, d. 5.
nóv. 2002, Guðlaug Una, f. 11. des.
1919, d. 29. maí 1991, Guðbrandur
Sveinn, f. 23. júní 1921, d. 16. maí
1992, Marteinn Guðberg, f. 24. jan.
ertsdóttir, f. 15. apríl 1958, maki
Helgi Helgason, f. 16. ágúst 1956
og Stefanía Eggertsdóttir, f. 16.
desember 1965, maki Garry Hurst,
f. 9. janúar 1959. Barnabörnin eru
16 og barnabarnabörnin eru 15.
Þórir bjó í Veiðileysu allt til árs-
ins 1960 þegar fjölskyldan flytur
til Djúpuvíkur þar sem þau bjuggu
til ársins 1966. Þórir fer síðan með
föður sínum og systkinum til
Hafnarfjarðar og býr þar til ársins
1971 eða þegar hann flytur til
Reykjavíkur þar sem hann bjó til
æviloka.
Þórir vinnur hin ýmsu störf eft-
ir að hann fluttist suður, m.a. á
vélaverkstæði Jóns Gíslasonar út-
gerðarmanns í Hafnarfirði og síð-
ar á vélaverkstæðinu í Dröfn. Þeg-
ar Þórir flytur til Reykjavíkur
vinnur hann hjá Stálveri í nokkur
ár og fer síðan til byggingafyr-
irtækisins Bústaða.
Útför Þóris verður gerð frá
Grafarvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
1923, d. 18. apríl
1984, Borghildur
Svanlaug, f. 28. júní
1924, Elínborg Þór-
dís, f. 22. maí 1929,
Kristján, f. 19. maí
1931, og Bjarni Mar-
ís, f. 22. feb.1937.
Sambýliskona Þór-
is er Þórunn Þor-
geirsdóttir frá Ár-
múla í Önundarfirði,
f. 10. febrúar 1930.
Foreldrar hennar
voru Þorgeir Eyjólfs-
son, f. 29. september
1884, d. 22. október 1979 og Hólm-
fríður Guðjónsdóttir, f. 21. sept-
ember 1894, d. 10. júní 1995. Þór-
unn á fjögur börn, þau eru; Bogi
Eggertsson, f. 3. desember 1954,
Guðmundur Eggertsson, f. 23.
febrúar 1957, Hólmfríður Egg-
Í dag kveðjum við stjúpföður okk-
ar, Þóri Þorláksson. Okkar fyrstu
kynni af Þóri voru fyrir 35 árum
þegar hann og móðir okkar hófu bú-
skap saman. Minningarnar eru afar
ljúfar þar sem Þórir var mjög góður
maður, hann var sérstaklega barn-
góður og bóngóður.
Þórir var mjög handlaginn og á
sínum yngri árum smíðaði hann
trillu sem var með eindæmum falleg
og veiddi afar vel.
Þórir var mjög félagslyndur og
þótti gaman að fara á mannamót og
ferðast. Hann fór í margar ferðir
með Strandamönnum bæði um Ís-
land og einnig til Grænlands og
Færeyja. Þegar við vorum yngri fór-
um við í nokkrar ferðir með honum á
hans æskuslóðir, Veiðileysu, sem
honum þótti afar vænt um.
Þórir var mikill bóndi og eftir að
hann flutti suður hélt hann áfram að
vera með kindur allt fram á síðasta
dag. Hann var mjög fjárglöggur og
gat bent okkur á kindurnar sínar þó
að við sæjum einungis litla depla í
fjarska. Einnig þótti okkur merki-
legt að í Veiðileysu þar sem voru 300
kindur þá gat hann nefnt þær allar
með nafni.
Þórir þótti gaman að dansa og fór
reglulega með móður okkar á gömlu
dansana.
Heilsu Þóris fór að hraka fyrir
rúmlega tveimur árum sem gerði
honum erfitt að stunda sín áhuga-
mál.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(Valdimar Briem.)
Blessuð sé minning hans.
Saknaðarkveðjur
Hólmfríður og Stefanía.
Hann nafni minn blessaður er lát-
inn, Það kom svo sem ekki á óvart
eftir það veikindastríð sem hann hef-
ur háð undanfarin ár. En alltaf
bregður manni samt illa við þegar
svona frétt kemur og sérlega var það
sárt þegar mér var sagt að Þórir
Þorláksson væri dáinn.
Þórir er fæddur og uppalinn í
Veiðileysu á Ströndum og átti þar
heima allar götur til 1960 þegar faðir
hans og systkini ákváðu að flytjast
til Djúpuvíkur og jörðin fór í eyði.
Hann varð fyrir því óláni í æsku
að veikjast af skarlatssótt og missti
þá heyrn sem háði honum allt hans
líf. Af þeim sökum varð hann nokkuð
útundan í lífinu og átti í erfiðleikum
með samskipti við annað fólk. Þetta
háði honum líka í barnaskólanum og
gerði það að verkum að hann varð
fyrir meira aðkasti bæði þar og svo
seinna er hann fór að stunda vinnu í
Djúpuvík og hér fyrir sunnan. En
hann starfaði frá unga aldri á búi
foreldra sinna og seinna föður síns
ásamt því að vera sjálfur með sérbú,
þar sem hann átti nokkrar kindur í
sínu eigin fjárhúsi. Þetta þýddi að
oft var hann að heyja á kvöldin fyrir
sig eftir langan vinnudag á fjöl-
skyldubúinu. Næstum hver bær í
hreppnum átti líka trillu til flutninga
og til að draga björg í bú úr sjó.
Þannig var líka í Veiðileysu en að
auki átti nafni minn sinn eigin bát
sem hann hafði smíðað sjálfur með
hjálp föður síns og góðra manna.
Þórir var nefnilega ótrúlega hagur
bæði á tré og járn. Þessa trillu sem
hét Björg notaði hann mikið til
handfæra- og grásleppuveiða og þá
var auðséð að þar fór stoltur maður.
Ég kom átta ára gamall í sveit í
Veiðileysu sumarið 1955 og var þá
ekki mikill bógur til sveitaverka,
enda alinn upp á mölinni. Það er mér
ofarlega í minni hvað nafni minn tók
vel á móti mér og var mér alltaf góð-
ur og hjálpsamur ef eitthvað var of
erfitt eða snúið fyrir 8 ára snáða úr
borginni. Oftast vorum við 4 til 5
börnin í sveit hjá Þorláki í Veiðileysu
á sumrin, bæði skyld og óskyld og öll
hændumst við mikið að Þóri sem
reyndist okkur svo vel. Fyrir vikið
stöndum við öll í mikilli þakkarskuld
við hann og raunar föður hans og
systkini líka. En það er eins með mig
og flesta aðra að það gleymist að tala
um það þar til fólkið er farið yfir
móðuna miklu en vonandi hefur
hann fundið þakklæti mitt án þess að
ég segði það upphátt.
En við krakkarnir sem vorum í
Veiðileysu á sumrin vorum mikið
með honum og snerumst fyrir hann
kringum skepnurnar og hjálpuðum
honum að raka og snúa og reiddum
heima með honum heyið, því allt var
þá flutt á hestum eða bátum því eng-
inn var bílvegurinn í þá daga. Ekki
þar með sagt að við höfum verið ein-
hverjir dugnaðarforkar nema síður
sé, því oft á tíðum var letin til þess
að hann þurfti að hasta á okkur.
Síðar þegar við strákarnir þóttum
nothæfir á sjó þá fórum við með Þóri
á handfæri á hans trillu. Það var oft
ótrúlega gaman þegar vel veiddist,
því þá naut hann sín vel og ljómaði af
stolti þegar hann stýrði sínum eigin
báti til lands. Sérlega er mér ofar-
lega í minni vorið 1965 þegar ég reri
með honum á grásleppuveiðum og
við komum dag eftir dag með hlað-
inn bát að landi. Þetta vor var haf-
ísinn inni á Húnaflóa og þá var gott
að vera með nafna sem laumaði trill-
unni sinni milli ísjakanna óskaddaðri
inn og út Reykjafjörðinn.
Árið 1966 flutti öll fjölskyldan suð-
ur og dreifðist í Reykjavík og Hafn-
arfjörð en samheldnin var svo mikil
að allir tóku sig til og héldu við hús-
inu í Veiðileysu, sem er núna notað
sem sumarbústaður ættarinnar. Síð-
an höfum við hjónin verið nokkrum
sinnum með Þóri í Veiðileysu og það
er ekki hægt að lýsa því með orðum
hvað hann yngdist og hressist við
það eitt að koma á æskustöðvar sín-
ar. Sumarið 2005 fórum við Stefán
bróðir og eiginkonur okkar helgar-
ferð norður með Þóri og betri þakkir
gat hann ekki sýnt okkur en hann
gerði þegar við kvöddumst að ferð
lokinni, því þá glitraði á tár í augum
hans. Blessuð sé minning hans.
Þórir Steingrímsson og
Margrét Sveinbjörnsdóttir.
Ég kynntist Þóri fyrir 9 árum
þegar ég keypti hesthús í Fjárborg.
Ég bað þann sem seldi mér húsið að
vísa mér á öruggan mann til að sjá
um morgungjafir fyrir mig. Það varð
úr að Þórir tók að sér að gefa, en
með því fororði að ekki væri víst að
hann gæti gefið allan veturinn.
Seinna komst ég að því að hann hafði
þennan fyrirvara því hann var ekk-
ert fyrir það að vera að gefa fyrir
fólk sem honum líkaði ekki. Ég var
svo heppinn að með okkur tókst vin-
átta og aðstoðaði hann mig svo lengi
sem hann hafði heilsu til. Hann að-
stoðaði mig við að taka upp fjárbú-
skap og var óspar á ráðleggingar.
Þórir var einn af frumbyggjunum í
Fjárborg og átti þar fjárhús frá
1970. Hann var alltaf einn af áhuga-
sömustu félögum Fjáreigendafé-
lagsins og hafði óbilandi áhuga á
sauðfjárhaldi í Reykjavík. Hann
fylgdist vel með í Fjárborg og pass-
aði að allt færi vel fram. Hann sá um
að féð væri bólusett, pantaði menn
til að rýja og margt fleira. Þórir
vann einnig ýmis störf fyrir félagið
meðan honum entist heilsa og sá
m.a. um félagsaðstöðuna, allt í sjálf-
boðavinnu. Þórir var alla tíð með fal-
legt fé. Því ber vitni öll verðlaunin
sem hann fékk á árlegri hrútasýn-
ingu félagsins og lagði hann metnað
sinn í að gera vel. Þegar Þórir vegna
heilsubrests ákvað að minnka við sig
ákváðum við félagar hans í Fjáreig-
endafélagi Reykjavíkur að heiðra
hann og samþykktum samhljóða að
gera Þóri að heiðursfélaga á aðal-
fundi 2006. Félagar Fjáreigendafé-
lags Reykjavíkur kveðja með sökn-
uði mætan félaga og vottum við
fjölskyldu hans og vinum innilega
samúð okkar.
Blessuð sé minning Þóris Þorláks-
sonar.
Árni Ingason.
Þórir Þorláksson
Fallegir legsteinar
á góðu verði
Englasteinar
Helluhrauni 10
Sími 565 2566 - www.englasteinar.is
Sendum
myndalista
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
BJARNI ÁSMUNDUR GÍSLASON,
Hvassaleiti 157,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu þriðjudaginn 3. apríl, verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 13. apríl
kl. 13:00.
Jónína Halldóra Einarsdóttir,
Rósamunda Gerður Bjarnadóttir, Skúli Skúlason,
Guðrún Hildur Bjarnadóttir,
Gísli Jón Bjarnason, Guðbjörg Aðalsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SOFFÍA JÓHANNSDÓTTIR
frá Skálum
á Langanesi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn
9. apríl.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn
16. apríl kl. 15:00.
Guðbjörg Nielsen, Kári Nielsen,
Fróði Indriðason, Leena Janus,
Kristján Indriðason,
Kristín María Indriðadóttir, Kristinn Óskarsson,
Guðmundur Hólm Indriðason,
Ragnar Indriðason, Aðalheiður Daníelsdóttir,
Birgir Indriðason,
Rut Indriðadóttir, Pétur Bolli Jóhannesson.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og systir,
GRÉTA SÆDÍS JÓHANNSDÓTTIR,
Vallarbraut 5,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn
9. apríl.
Hrólfur Ragnarsson,
Hildur Hrólfsdóttir, Ragnar Þór Emilsson,
Smári Hrólfsson, Elísabet Hrund Salvarsdóttir,
Sunna Rut Ragnarsdóttir,
Fannar Þór Ragnarsson
og systkini hinnar látnu.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SVANLAUG GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést á heimili sínu að kvöldi laugardagsins 7. apríl.
Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju laugardaginn
14. apríl kl. 14.00.
Aðalsteinn Steindórsson,
Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir,
Kristín Aðalsteinsdóttir,
Auður Aðalsteinsdóttir,
Þórkatla Aðalsteinsdóttir,
Sveinn Aðalsteinsson,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
EINAR J. SIGURÐSSON,
Torfufelli 19,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn
1. apríl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Minning þín er ljós í lífi okkar.
Sigurlaug Ottósdóttir,
Valg. Laufey Einarsdóttir, Þór Marteinsson,
Ottó Einarsson,
Einar Þór Einarsson, Eva Björk Sigurjónsdóttir,
Einar Jakob Þórsson,
Kolbrún Laufey Þórsdóttir,
Sigurlaug Alexandra Þórsdóttir,
Alexander Máni Einarsson,
Erlen Isabella Einarsdóttir.