Morgunblaðið - 12.04.2007, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
EMBÆTTI ríkislögreglustjóra hef-
ur á grundvelli samstarfssamnings
við Umferðarstofu falið tilteknum
lögregluembættum að hafa sam-
vinnu um sérstaklega aukið um-
ferðareftirlit. Að lokinni samein-
ingu og stækkun lögregluembætta
sem tók gildi 1. janúar sl. eru lög-
regluembætti mun betur í stakk bú-
in að framkvæma slíkt eftirlit.
Um páskahelgina höfðu lög-
reglumenn afskipti af mörg þúsund
ökumönnum þar sem m.a. var sér-
staklega tekið á ölvunar- og fíkni-
efnaakstri, hraðakstri og farið yfir
ástand ökutækja almennt. Helsta
markmið þessa stóraukna eftirlits
lögreglu með umferð er að fækka
verulega alvarlegum umferðar-
slysum og auka öryggi hins al-
menna borgara á vegum landsins.
Engin alvarleg umferðarslys áttu
sér stað um páskahelgina.
Umferðareftirliti lögreglu verð-
ur haldið áfram með markvissum
hætti á næstu mánuðum, að sögn
lögreglunnar.
Morgunblaðið/Júlíus
Öryggi Lögreglan ætlar að auka
eftirlit með umferðinni í ár.
Stórhert eftir-
lit lögreglu
VINSTRI græn meira en tvöfalda fylgi sitt í Norðvest-
urkjördæmi frá síðustu kosningum, samkvæmt könnun
sem Capacent Gallup hefur gert fyrir Útvarpið í kjör-
dæminu. Fylgi VG mælist nú 23% en var 10,6% .
Fylgi Sjálfstæðisflokksins var 29,6% í kosningunum en
mælist nú 30,1%. Fylgi Samfylkingar var 23,2% en
mælist nú 15,7%, fylgi Framsóknarflokks var 21,7% en
mælist nú 13,7% og fylgi Frjálslynda flokksins var 14,2%
en mælist nú 12,9%. Þá mælist fylgi Íslandshreyfing-
arinnar 4,4%. Kjördæmakjörnir þingmenn eru átta g fær
Sjálfstæðisflokkur 3 eins og í kosningunum, VG fær 2,
bætir við sig manni, Framsóknarflokkur fær 1 mann, tapar einum, Sam-
fylking fær 1 mann, tapar einum og Frjálslyndi flokkurinn fær 1 mann eins
og í kosningunum.
Könnunin var gerð dagana 21. mars til 9. apríl. Úrtakið var 970 manns
og var svarhlutfall 62,5%. 77% tóku afstöðu.
VG bæta verulega við sig
Jón Bjarnason
VERSLUNIN Bónus átti 18 ára af-
mæl á páskadag, 8. apríl. Fyrsta
Bónusverslunin var opnuð þann
dag árið 1989 en nú eru verslanir
fyrirtækisins orðnar 25 talsins, víðs
vegar um landið.
Í tilefni afmælisins ætlar versl-
unin að bjóða 25% afslátt af vörum
sem merktar eru Bónus. Vörum
merktum Bónus hefur farið fjölg-
andi og eru nú orðnar nær 300 tals-
ins. Tilboðið mun gilda dagana 11.
til 15. apríl.
Afmæli Bónuss
EINAR Mar Þórðarson flytur fyr-
irlestur á vegum RIKK í dag, 12.
apríl kl. 12,15 í stofu 132 í Öskju.
Hann skoðar hvernig kosninga-
hegðun kvenna og karla hefur
þróast undanfarna áratugi.
Kynjamunur
EINS og í fyrra verða Íslenskir
fjallaleiðsögumenn með gönguferð-
ir á Esju alla þriðjudaga kl. 18.30
frá og með 24. apríl. Reyndir leið-
sögumenn leiðbeina göngufólki.
Gengið á Esju
NÝLEGA auglýsti Seltjarnar-
nesbær eftir menningar- og
fræðslufulltrúa. Mikill áhugi var á
stöðunni og barst alls 91 umsókn.
Ráðið verður í stöðuna fljótlega.
Margir sækja um
LANDSBANKINN úthlutaði í gær
styrkjum úr Menningarsjóði sínum til
75 góðgerðarsamtaka og -félaga og
fékk hvert þeirra eina milljón króna.
Björgólfur Guðmundsson, formaður
bankaráðs Landsbankans og sjóðs-
ins, afhenti fulltrúum félaganna
styrkina á fjölmennum blaðamanna-
fundi í Iðnó.
Lista yfir styrkþega má finna í
Einkabanka og Fyrirtækjabanka
Landsbankans á netinu undir þjón-
ustu sem ber nafnið „Leggðu góðu
málefni lið,“ en þar geta viðskiptavin-
ir styrkt ýmis málefni fjárhagslega.
Björgólfur var glaður í bragði eftir
afhendinguna í gær og sagði að
ákveðið hefði verið í fyrra, á 120. af-
mælisári bankans, að stofna Menn-
ingarsjóðinn og taka upp styrktar-
þjónustu fyrir góðgerðarsamtök.
Einnig hefði verið ákveðið þá að veita
styrkina 75 og gefa út blað til að
kynna styrktarþjónustuna betur, en
því var dreift á öll heimili í landinu í
gær.
Viðskiptin skemmtilegri
fyrir vikið
„Það skiptir miklu máli að ekki sé
farið út í safnanir í nafni einhvers góð-
gerðarfélags, sem síðan skila sér ekki
til málefnisins nema að litlum hluta,“
segir Björgólfur.
Björgólfur segist spurður telja að
fjármálafyrirtæki hafi sýnt samfélag-
inu mikinn áhuga og skilji að einn
stærsti þátturinn í rekstri allra fyr-
irtækja sé að sinna umhverfinu sem
þau vinna í og taka þátt í því sem sé að
gerast í samfélaginu hverju sinni.
Hvort sem það sé góðgerðarstarf eða
annað. „Þó við séum fjármálastofnan-
ir þá höfum við hjarta. Við skynjum
að við eigum að gera meira en vera
bara í viðskiptum og það gerir við-
skiptin mikið skemmtilegri að geta
tekið þátt í svona verkefnum. Þá fyrst
er gaman að vera í viðskiptum,“ segir
Björgólfur.
Guðrún Margrét Pálsdóttir, for-
maður ABC barnahjálpar, og Þórunn
Helgadóttir, umsjónarmaður starfs
barnahjálparinnar í Kenýa, voru
hæstánægðar með styrkinn og sögðu
hann hafa komið á óvart. Þær hefðu
degi áður rætt um fjárskort til hjálp-
arstarfsins og því væri styrkurinn
sem himnasending. Milljónin rynni til
hjálparstarfs í Kenýa.
Morgunblaðið/Sverrir
Þröng á þingi Fulltrúar þeirra 75 félaga og samtaka sem styrkina hlutu stilltu sér upp fyrir myndatöku með
Björgólfi Guðmundssyni, að lokinni afhendingu styrkjanna í Iðnó í gær, og var þröng á þingi.
Banki með hjarta
Morgunblaðið/Sverrir
Góð málefni studd Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Lands-
bankans, sagði úthlutun úr Menningarsjóði þá stærstu til þessa.
EFTIRFARANDI félög og samtök
fengu úthlutað milljón hvert úr
Menningarsjóði Landsbankans í
gær við hátíðlega athöfn í Iðnó.
ABC barnahjálp, ADHD sam-
tökin, ADRA, Alnæmissamtökin á
Íslandi, Amnesty International,
Barnaheill, Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna – UNICEF.
Blátt áfram – forvarnir vegna
kynferðislegrar misnotkunar á
börnum. Blindrafélagið, Breið bros
– samtök aðstandenda barna með
skarð í vör eða góm. Daufblindra-
félag Íslands, Dropinn, styrkt-
arfélag barna með sykursýki,.
Einstök börn, Félag aðstandenda
Alzheimersjúklinga, Félag CP Ís-
landi, Félag einstæðra foreldra,
Félag heyrnarlausra.
Félag nýrnasjúkra, Foreldra- og
styrktarfélag heyrnardaufra. For-
eldrafélag barna með axlar-
klemmu, Forma – Samtök átrösk-
unarsjúklinga á Íslandi,.
Geðhjálp, Gigtarfélag Íslands,
Götusmiðjan, Heilaheill, Hetjurnar
– stuðningsfélag foreldra og að-
standenda langveikra barna á Ak-
ureyri, Hjartaheill, landssamtök
hjartasjúklinga, Hjartavernd.
Hjálparstarf kirkjunnar, Barna-
spítalasjóður Hringsins, Hugarafl,
Höndin.
Í hjartastað, Ísland Panorama
samtökin, Klúbburinn Geysir.
Krabbameinsfélag Íslands.
Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt
fólk sem greinst hefur með krabba-
mein og aðstandendur.
Kristniboðssambandið, Kærleiks-
sjóður Sogns, Landsamtök áhuga-
fólks um flogaveiki (LAUF), Lind –
félag um meðfædda ónæmisgalla,
Ljósið.
MND-félagið, MS-félagið, Neist-
inn, Parkinsonsamtökin á Íslandi,
PKU-félagið á Íslandi, félag um
arfgenga efnaskiptagalla.
Rauði krossinn. Regnbogabörn.
Samband íslenskra berkla- og
brjóstholssjúklinga.
Samtök endurhæfðra mænu-
skaddaðra.
Samtök lungnasjúklinga, Samtök
um kvennaathvarf, Samtök sykur-
sjúkra, Samtökin 78.
Sjálfsbjörg, landssamband fatl-
aðra, Sjónarhóll – ráðgjafar-
miðstöð fyrir fjölskyldur barna
með sérþarfir, SOS-barnaþorpin,
Spegillinn, SPES, Stígamót, Stóma-
samtök Íslands, Styrktar- og minn-
ingarsjóður skáta.
Styrktarfélag krabbameins-
sjúkra barna, Styrktarfélag lam-
aðra og fatlaðra, Styrktarfélag
vangefinna. Styrktarsjóður Sól-
heima.
Umhyggja, Umsjónarfélag ein-
hverfra. Unglingadeild SÁÁ á
Vogi.
UNIFEM, V-dagssamtökin,
Vímulaus æska, Vildarbörn og loks
Þroskahjálp.
Þessi félög og málefni má
styrkja í netbanka Landsbankans
og renna framlög þar beint til við-
komandi málefnis. Lesa má nánar
um verkefnið á www.gottmal-
efni.is.
75 fengu milljón króna í styrk
HAFÍS hefur nálgast norðvestan-
vert landið og líkur eru á því að ís-
inn færist enn nær landi næstu
daga því spáð er suðvestlægum átt-
um.
Að sögn Ingibjargar Jónsdóttur,
landfræðings og dósents, sem vinn-
ur að hafísrannsóknum við Jarðvís-
indastofnun Háskóla Íslands, er
ákveðin hætta á því að ísinn gæti
farið inn á siglingaleiðir við Horn
næstu daga.
Ingibjörg segir í samtali við
Fréttavef Morgunblaðsins að ólík-
legt sé að ísinn fari inn í firði líkt og
gerðist fyrr á þessu ári í Dýrafirði
svo dæmi sé tekið, en í lok janúar
fylltist fjörðurinn af ísdreifum þeg-
ar hafís rak að landi.
Hún segir að ísinn sem er næst
landi sé gisinn. „Þannig að það
gætu einhverjir jakar farið inn á
siglingaleiðir við Horn,“ segir Ingi-
björg og bætir því við að ráðlegt sé
að fylgjast vel með þróun mála
næstu daga.
Úr lofti Gervihnattamynd af Vestfjarðakjálkanum, sem tekin var í vikunni,
sýnir vel hvernig ísinn hefur verið að nálgast landið undanfarna daga.
Hafís rekur að landinu