Morgunblaðið - 12.04.2007, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR ÚR VERINU
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
„VIÐ erum að kaupa þetta í bjart-
sýniskasti vegna mjög góðrar veiði
og hás verðs á mörkuðum. Við erum
búnir að kaupa milli 700 og 800 tonn í
stóra kerfinu, langmest þorsk og tvo
góða báta. Þetta er bara viðbót hjá
okkur, því engin breyting er hjá okk-
ur í litla kerfinu. Við erum að fara að
þeim reglum og lögum, sem eru í
gildi og vonumst eðlilega til að fá
starfsfrið í framtíðinni. Þetta eru
miklir peningar, slagar í tvo millj-
arða svo það er mikið í húfi,“ segir
Hermann Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Stakkavíkur í Grindavík.
Stakkavík hefur keypt netabátinn
Ársæl Sigurðsson frá Hafnarfirði í
samvinnu við Rúnar Björgvinsson og
hefur báturinn þegar fengið nýtt
nafn, Grindavíkin. Í kaupunum
fylgdu 50 tonn af þorski og 10 tonn af
ýsu. Þá hefur Stakkavík keypt Egil
Halldórsson frá Kambi á Flateyri
með 277 tonna kvóta. Það er „pakki“
upp á ríflega 700 milljónir króna.
Harðir pakkar
„Já, þetta eru harðir pakkar. Með
þessu er aukning á öllu hjá okkur,
bæði í veiðum og vinnslu. Það er
aukning bæði í söltun og í flugfisk-
inum og við erum því bjartsýnir. Það
er mikil fiskigengd núna og hefur
verið. Menn muna varla annað eins.
Bátarnir eru að mokfiska þótt þeir
séu með handónýt net frá því fyrir
áramót. Það hlýtur að vera kominn
tími á að auka kvótann,“ sagði Her-
mann Ólafsson í gær, þegar hann var
að landa úr bátunum sínum.
Ýmis verð í gangi
Það var Skipamiðlun báta og
kvóta ehf. sem sá um söluna á Agli
Halldórssyni. Eggert Sk. Jóhann-
esson og Jóhannes Eggertsson
segja að segja megi að kíló af var-
anlegum heimildum í þorski í stóra
kerfinu sé komið í um 3.000 krónur.
Það séu hins vegar ýmis verð í
gangi. Það fari eftir því hvernig söl-
unni sé háttað. Hvort verið sé að
selja hreinar heimildir, hvort sé ver-
ið að selja báta og kvóta eða hluta-
félag. Mjög misjafnt sé hvernig fast-
eignir og skip séu reiknuð inn, en
ljóst að stálið sé nú orðið á yfirverði.
Skýringin á þessu háa verði á afla-
heimildum sé fyrst og fremst hátt af-
urðaverð erlendis og mikil hækkun á
verði á innlendum fiskmörkuðum.
Þetta hjálpist allt að. Þeir benda
ennfremur á að munurinn á verði í
stóra og litla kerfinu sé alltaf að
minnka og sé nú kominn niður í 10 til
20%, en hann var um 50% fyrir ekki
svo ýkja löngu.
Erum að kaupa þetta
í bjartsýniskasti
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Bátar Egill Halldórsson er búinn til veiða með dragnót og net. Veiðiheim-
ildir hans á þessu ári hafa verið fiskaðar upp, en þær eru 277 þíg.-tonn.
Í HNOTSKURN
»Verð á varanlegum aflaheimildum íþorski er nálægt 3.000 krónum kíló-
ið og hefur hækkað mikið að undan-
förnu.
»Skýringin á háu verði aflaheimildaliggur í miklum verðhækkunum á
fiski heima og erlendis.
»Bátarnir eru að mokfiska þótt þeirséu með handónýt net frá því fyrir
áramót. Það hlýtur að vera kominn tími
á að auka kvótann.
Stakkavík kaupir 700 til 800 þorskígildistonn í stóra kerfinu
Útvegur Hermann Ólafs-
son er ánægður með gang
mála og er stöðugt að auka
umsvifin í fyrirtækinu.
ÞRJÁ fyrstu mánuði ársins voru
seld tæp 32.115 tonn á innlendu fisk-
mörkuðunum, sem er 1.082 tonnum
minna en í fyrra eða 3,26%. Árið
1996 voru seld 44.203 tonn sem er
það mesta selst hefur á þessu tíma-
bili. Ef loðna er ekki tekin með þá
var selt mest fyrstu þrjá mánuði árs-
ins 1999 eða 33.588 tonn.
Verðmætið 40% meira
en á sama tíma í fyrra
Verðmæti aflans á þessum þremur
mánuðum var 5.543 milljónir sem er
það langmesta frá upphafi. Það er
40% meira en í fyrra, en þá var selt
fyrir 3.959 milljónir. Meðalverðið
þessa þrjá mánuði var 172,61 sem er
33% hærra en í fyrra.
Meðalverð á fiski seldum á fisk-
mörkuðunum í marz er það hæsta
sem sést hefur í þeim mánuði,
175,79. Í janúar 2002 var meðalverð-
ið 195,69 og hefur aldrei sést hærra
í einum mánuði. Í febrúar 2002 var
það 186,94 sem er það næsthæsta og
þar á eftir er það marz síðastliðinn.
Þetta er hækkun frá mars í fyrra
um 48%, en þá var meðalverðið
118,79.
Næstmesta aflaverðmæti
í einum mánuði
Seld voru 12.677 tonn í marz í ár,
sem er 7,38% minna en í fyrra,
13.686 tonn. Mikil ótíð var um miðj-
an marz og þrátt fyrir góða veiði í
lok mánaðarins dugði það ekki til.
Verðmæti aflans í marz var rúm-
ar 2.228 milljónir sem er næstmesta
verðmæti sem sést hefur í einum
mánuði frá upphafi. Í marzmánuði
2001 var selt fyrir 2.309 milljónir. Í
marz 2006 var selt fyrir tæpar 1.626
milljónir. Þetta er hækkun milli ára
um 37%.
Fiskverð í hámarki
það sem af er vetri
Langhæsta aflaverðmæti frá upphafi 3 fyrstu mánuði ársins
SAMÞYKKT hefur verið á stjórnar-
fundi Útvegsmannafélags Vest-
fjarða að kannaðar verði ástæður
óvenju góðra aflabragða að undan-
förnu.
„Óvenjulega góð aflabrögð í
þorskveiðum að undanförnu vekja
spurningar um hvaða fiskur er hér á
ferð og hvaðan hann kemur og hvort
um Grænlandsgöngu kunni að vera
að ræða. Ennfremur vaknar sú
spurning hvort þessi fiskur sé talinn
með í mati Hafrannsóknastofnunar-
innar á stærð þorskstofnsins. Út-
vegsmannafélag Vestfjarða hvetur
Hafrannsóknastofnunina til að beita
öllum tiltækum ráðum til að leita
svara við þessum spurningum áður
en ný fiskveiðiráðgjöf verður birt í
vor,“ segir í samþykkt Vestfirðing-
anna.
Vilja skýringar á góðum aflabrögðum
„VIÐ erum að ná einum besta ár-
angri í meðhöndlun hjartasjúkdóma
á heimsvísu og hlutfall hjartaað-
gerða hér á landi er með því hæsta í
Evrópu. Þannig
að við erum með
mjög öfluga
þjónustu á þessu
sviði. Bráðatilvik
bíða aldrei. Þau
fá alltaf for-
gang.“
Þetta segir Siv
Friðleifsdóttir
heilbrigðisráð-
herra, spurð
hvort biðlisti 200–250 manna eftir
hjartaþræðingu á Landspítalanum
sé ásættanlegur. Í Morgunblaðinu í
gær kom fram að bið eftir slíkum
rannsóknum gæti verið allt að 5–6
mánuðir.
„Við höfum verið að auka þjón-
ustuna á þessu sviði og vegna þessa
eru ævilíkur háar á Íslandi, t.d. eru
ævilíkur íslenskra karlmanna best-
ar í heimi og það er rakið m.a. til
góðs árangurs við meðhöndlun
kransæðasjúkdóma.“
Siv bendir á að með aukinni ævi-
lengd fjölgi þeim sem eru með
kransæðasjúkdóma. „Við höfum
verið að stórauka þjónustuna vegna
þessa,“ segir Siv. Í nýjustu starf-
semisupplýsingum Landspítalans
komi fram að hjartaþræðingum hafi
fjölgað um tæp 28% í janúar og
febrúar í ár miðað við sömu mánuði í
fyrra. Á sama tímabili fjölgaði
kransæðavíkkunum um tæplega
36%. Engin bið er að sögn Sivjar
eftir slíkum aðgerðum.
Spurð hvort hún telji að gera
þurfi sérstakt átak til að fækka fólki
á biðlistum eftir hjartaþræðingum
svarar Siv: „Það er auðvitað alltaf
verið að vinna á listunum. Það sem
bæst hefur við er að boðið er nú upp
á tölvusneiðmyndir af kransæðum
og þær rannsóknir virðast auka
þörfina á hjartaþræðingum.“
Árið 2004 voru 239 tölvusneið-
myndir teknar af kransæðum en í
fyrra voru þær 1.275. Við slíka
myndatöku geta fundist kalkanir
sem kalla á frekari rannsóknir, m.a.
hjartaþræðingar. „Af þessu sést að
það er verið að stórauka rannsókn-
ir,“ segir Siv. „En það er líka hætta
á því að menn fari út í ofrannsóknir
og það þarf að hafa í huga, þó ég sé
ekki að segja að svo sé í þessu til-
felli. Við sjáum það að eftir að þess-
ar rannsóknir voru teknar upp
eykst þrýstingurinn á að kanna mál-
ið til fulls með hjartaþræðingu. Á
móti kemur að líklega finnast ein-
hverjir kvillar sem ekki hefðu fund-
ist ella. Þannig að það er alltaf þessi
gullni meðalvegur sem læknar þurfa
að fara, hvenær á að rannsaka meir
og hvenær ekki.“
„Alltaf verið að
vinna á listunum“
Siv Friðleifsdóttir
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
farbannsúrskurð héraðsdóms
Reykjavíkur yfir tveimur Litháum
sem eru grunaðir um aðild að fjölda
þjófnaðarmála undanfarinn mánuð.
Ákæra hefur verið gefin út á hendur
þeim og skulu þeir sæta farbanni þar
til dómur gengur í máli þeirra, en þó
eigi lengur en til 2. maí nk.
Í greinargerð lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu kemur fram að
mennirnir hafi verið handteknir 29.
mars sl. á Kjalarnesi í stolinni bif-
reið. Þeir voru grunaðir um að hafa
stolið fartölvu í verslun á Akranesi
og fannst tölvan í bifreiðinni. Annar
þeirra viðurkenndi við yfirheyrslu að
hafa stolið tölvunni og kvaðst hafa
verið einn að verki. Fleiri mál liggja
á borði lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu því 26. mars sl. var tilkynnt
um þjófnað á tveimur fartölvum úr
verslun í Kringlunni. Á upptöku eft-
irlitsmyndavélar sést annar mann-
anna taka tölvu úr hillu verslunar-
innar á meðan vitorðsmaður hefur
gætur á starfsfólki. Við yfirheyrslu
játaði maðurinn þjófnaðinn og sagð-
ist hafa verið einn að verki.
Mennirnir hafa báðir hlotið þjófn-
aðardóma erlendis, annar þeirra í
Noregi en hinn í Litháen. Þeir komu
báðir hingað til lands í síðasta mán-
uði, eiga ekki ættingja hér og virðist
eini tilgangur ferðar þeirra til lands-
ins hafa verið að fremja afbrot. Við
rannsókn málsins kom einnig fram
að mennirnir hafa ekki fastan dval-
arstað. Þótti lögreglu því nauðsyn-
legt að mennirnir sættu gæsluvarð-
haldi en til vara farbanni, þar sem
hætta er á því að þeir reyni að fara
úr landi til að komast hjá málaferlum
og fullnustu refsingar.
Tveir Litháar í farbanni
vegna þjófnaðarbrota
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á allra síðustu sætunum í helgar-
ferð til Barcelona 3. maí. Barcelona er einstök perla sem íslendin-
gar hafa tekið ástfóstri við. Borgin býður frábært mannlíf og óen-
danlega fjölbreytni í menningu og afþreyingu að ógleymdu öllu því
úrvali fjölbreyttra verslana sem eru í borginni. Gríptu þetta frábæra
tækifæri - örfá sæti laus!
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Barcelona
3. maí
frá kr. 49.990
Frábær helgarferð - Síðustu sætin
Frá kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á
Hotel Catalonia Atenas *** í 4 nætur með
morgunverði. Kr. 8.000 aukalega m.v. gistin-
gu í tvíbýli á Hotel Catalonia Plaza ****
Munið Mastercard
ferðaávísunina