Morgunblaðið - 12.04.2007, Side 23

Morgunblaðið - 12.04.2007, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 23 Áefnisskrá eru þrjú verk, „Melúsína hin fagra eftir FelixMendelssohn, „Píanókonsert ía-moll eftir Robert Schumann og „Symphony Fantastique“ eftir Hector Berlioz. Ashkenazy segir athyglisvert að verk eftir tónskáldin þrjú séu flutt á ein- um tónleikum. „Þeir höfðu allir sterka persónuleika, en merkilegt er að Schu- mann var ekki aðeins mikið tónskáld, heldur einnig tónlistargagnrýnandi, og skrifaði talsvert um tónlist síns tíma. Ein- hverntíma bar hann saman Mendelssohn og Berlioz, svo það er skemmtileg tilviljun að á þessum tónleikum séu verk eftir þá alla þrjá.“ Mikilvægt að ferðast með tónlistina Tónleikarnir á morgun verða þeir tólftu sem Sinfóníuhljómsveitin heldur á Ísa- firði, en síðast lék hún í bænum árið 1998. Ashkenazy hefur áður komið til Ísafjarð- ar. „Við lékum hér fyrir mörgum árum í afar litlum sal, svo ekki var pláss fyrir alla hljómsveitina. Ég man ekki hvað við lék- um, en hljómurinn var undarlegur í ör- smáu rými, nú leikum við í íþróttasal og það er gott, við komum allri hljómsveit- inni fyrir. Það er afar mikilvægt að fara á þessa staði, þar sem fólk hefur lítil tæki- færi til að sjá sinfóníuhljómsveitir.“ Tónlistarhúsið bylting Tónlistarmaðurinn kveðst hlakka til að stjórna Sinfóníuhljómsveitinni í nýja tón- listar- og ráðstefnuhúsinu, sem nú er ver- ið að reisa. „Tónlistarhöllin mun gjörbylta tónleikalífinu í landinu, algjörlega, og á fyrsta árinu munum við vonandi, með hjálp vissra aðila, flytja hingað nokkrar af bestu hljómsveitum Evrópu, og hugs- anlega eina ameríska líka. Það verður af- ar mikilvægt fyrir þjóðina að komast í samband við fulltrúa bestu flytjendanna. Gott fyrir almenning og Sinfóníu- hljómsveitina, að sjá hvað við getum af- rekað, hljómsveitin er auðvitað mjög góð, en það er líka gott að sjá aðra.“ Ashken- azy segir útilokað að hann muni sakna Háskólabíós. „Nei, aldrei, við erum þakk- lát fyrir að hafa fengið að vera hér, en sal- urinn var ekki byggður fyrir tónlistar- flutning.“ Líður vel í návist Ashkenazys Einleikari á tónleikunum er Gülsin Onay, einn þekktasti píanóleikari Tyrk- lands. Hún segir að þau Ashkenazy hafi þekkt hvort til annars fyrir Íslandsferð- ina og hún verið aðdáandi hans til margra ára. Þetta er í fyrsta skipti sem hún er einleikari á tónleikum sem hann stjórnar. Hún segist vissulega hafa gengið með hnút í maganum, enda Ashkenazy slíkur píanósnillingur að annað hlyti að vera óeðlilegt; einkum hjá píanóleikara! En svo hafi hnúturinn leyst upp þegar á svið Háskólabíós var komið, því henni falli af- skaplega vel hvernig Ashkenazy stjórni. „Ég skil svo vel, hvað hann er að fara og hann sýnir ekkert annað af sér en skiln- ing og stuðning. Nú líður mér bara vel í návist hans.“ Á árinu verður Ashkenazy sjötugur, hann kemur ekki lengur fram á tónleikum, en segist æfa sig á hverjum degi á píanóið. „Ég get ekki gert allt, það er ómögulegt, þannig að ég hljóðrita og æfi mig, en kem ekki lengur fram. Hann segir þó enga viðburði skipulagða vegna afmælisins. „Nei, ekki neitt, hvað er sjö- tugt, hverjum er ekki sama.“ Lítill söknuður í Háskólabíói Morgunblaðið/Ásdís Reynsla Vladimír Ashkenazy á æfingu í Háskólabíói í gær. Hljómsveitarstjórinn og píanóleikarinn Vladimír Ashkenazy er hér á landi og mun stjórna tvennum tónleikum, í Háskólabíói í kvöld, og í Íþróttahúsinu Torfunesi á Ísafirði á morgun. Gísli Árnason ræddi við Ashkenazy. gisliar@mbl.is EF að líkum lætur kom þýzka Hyperion-tríóið fram í fyrsta sinn á Íslandi á sunnudag við tæpa miðlungsaðsókn. Sem oftar vaknaði spurningin um hvort nútímaflyglar séu ekki of hljómmiklir fyrir þessa háklassísku áhöfn, því ekki aðeins sellóið heldur líka fiðl- an náðu oft ekki fullu sam- vægi við slaghörpuna þrátt fyrir annars dýnamískan og fágaðan hópleik. Úrslitaneistann vantaði í E-dúr Tríói Mozarts K542, tileinkuðu langlunduðum lán- ardrottni hans Puchberg, er birtist án stórtíðinda sem vel smurð vél. Öllu innblásnari var hins vegar úttekt þre- menninganna á gustmiklu „Erkihertoga“-tríói Beethov- ens í B Op. 97 (1814) í sann- kallaðri „con amore“ stjörnu- túlkun. Á milli gat að heyra einarða túlkun á Tríói Atla Heimis Sveinssonar nr. 2 frá 2005 til- einkuðu Thor Vilhjálmssyni. Þrátt fyrir nokkur fjölstíla- tilþrif líktist þriðjungi of langt verkið [40’] mest mód- ernisma 8. áratugar og náði stundum flugi, þótt restin reyndi meir á þolrif hlust- enda. Beethoven con amore TÓNLIST Salurinn Píanótríó eftir Mozart, Atla Heimi Sveinsson og Beethoven. Hyper- ion-tríóið (Oliver Kipp fiðla, Katharina Troe selló og Hagen Schwarzrock píanó). Sunnudag- inn 1. apríl kl. 20.  Kammertónleikar Ríkarður Ö. Pálsson HIN æruverðuga Söngsveit Fílharmónía, er vantar tvennt í fimmtugt og Ís- landsfrumflutti fjölda klass- ískra stórverka fyrstu árin í samstarfi við SÍ undir stjórn Róberts A. Ottóssonar, stóð fyrir forvitnilegum tón- leikum á þriðjudag. Fyrst voru tvær stuttar a cappella- mótettur (að vísu aðeins tek- inn 1. þáttur af 4 hinnar seinni) – Richte mich, O Gott (1843) eftir Mendels- sohn og Warum ist das Licht gegeben (1875?) eftir Brahms. Kórsöngurinn var framan af svolítið daufur, einkum í upphafi Brahms, en sótti í sig veðrið og varð víða glæsilegur í Schubert, þó þýzkuframburðurinn væri linur og fámennur tenórinn í varnarstöðu. 30 ár ku liðin síðan eitt viðamesta kórverk Schu- berts heyrðist fyrst hér á landi. Þótt styttri sé en h- moll messa Bachs og Missa Solemnis Beethovens er hin ægifagra og kraftmikla As- dúr messa (1819–26) í svip- uðum „konsert“-flokki og spannar allt frá Haydn að Wagner. Dýnamísk stjórn Magnúsar Ragnarssonar tryggði dramatíska vídd í jafnt 30 manna hljómsveit sem 54 manna kór, og sólist- arnir reyndust einvalalið í hópsöng þó einsöngs- tækifærin gæfust aðeins ör- fá og stutt. Þýzk kórrómantík TÓNLIST Langholtskirkja Mótettur eftir Mendelssohn og Brahms. Schubert: Messa í As D678. Söngsveitin Fílharmónía, Hulda Björk Garðarsdóttir S, Nanna María Cortes A, Jónas Guðmundsson T og Alex Ash- worth B ásamt hljómsveit. Stj.: Magnús Ragnarsson. Þriðjudag- inn 3. apríl kl. 20.  Kórtónleikar Ríkarður Ö. Pálsson Leggðu góðu málefni lið Leggðu góðu málefni lið er heiti á þjónustu í Einkabanka og Fyrirtækjabanka Landsbankans sem auðveldar þér að hefja mánaðarlegan stuðning við góð málefni. Það þekkja það flestir að greiða mánaðarlega af húsinu og bílnum og fyrir rafmagn og hita. Nú er auðvelt að bæta góðum málefnum við þann lista og gerast áskrifandi að þeim. Þú getur styrkt eitthvert af 75 góðgerðarmálefnum; velur einfaldlega styrkupphæðina og hversu lengi þú vilt styrkja. Hver króna skilar sér til góðgerðar- félaganna og notendur bera engan kostnað við stuðning sinn. Með einfaldri aðgerð er svo hægt að hætta stuðningi. Landsbankinn hefur boðið þessa þjónustu síðan 1. júlí sl. og síðan þá hafa hundruð Íslendinga gerst áskrifendur að góðu málefni. Það er auðvelt að skipta máli gottmalefni.is ÍS L E N S K A S IA .I S L B I 35 18 2 04 /0 7

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.