Morgunblaðið - 12.04.2007, Side 26
daglegtlíf
Göreme-þjóðgarðurinn er
undrafagurt landsvæði í Tyrk-
landi sem sumir telja vel varð-
veitt leyndarmál. » 28
tyrkland
Tívolíið í Kaupmannahöfn verð-
ur opnað á morgun eftir vetrar-
lokun og að vanda verður margt
til skemmtunar. » 29
tívolí
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Þau renna eins og straumur umgangana í Hagaskóla, krakk-arnir sem koma út úr
kennslustofunum og slaka á í fyrstu
frímínútum dagsins. Þetta er glað-
vær æska og fjölbreyttir ein-
staklingar þar sem meira ber á sum-
um en öðrum, eins og gengur. Flest
þeirra fá sér eitthvað í svanginn,
kókómjólk í hendi og biti í munni og
mikið er spjallað og skeggrætt.
Sumir ræða alvarleg mál og stekkur
ekki bros, á meðan aðrir gantast og
eru með mátulega mikinn fíflagang.
Og svo eru alltaf einhverjir sem
halda sig til hlés, segja fátt en fylgj-
ast þeim mun betur með því sem
fram fer.
Fatavalið hjá þessum fjölmenna
hóp er blessunarlega ekki einsleitt,
þó margir séu í gallabuxum þá eru
einhverjar stelpurnar í pilsum og
leggings í fjölbreyttum litum prýða
suma fótleggina. Hettupeysur virð-
ast vera þó nokkuð vinsælar hjá báð-
um kynjum og sumir mæta í nátt-
buxum í skólann, en það hefur
aukist mjög undanfarið að unglingar
noti náttbuxur sem hversdags-
klæðnað. Gangavörður segir óvenju
fáa nemendur vera í náttbuxum
þennan daginn og þar sé kannski
helst því um að kenna að kalt er í
veðri.
Guðrún Elín Sindradóttir er í tí-
unda bekk og hefur ekki látið kuld-
ann á sig fá, hún klæðist bleikum
náttbuxum þennan dag en segist
annars ekki koma mjög oft í nátt-
buxum í skólann, þó hún eigi hvorki
meira né minna en tíu slíkar.
„Ég kem í þeim í skólann fyrst og
fremst vegna þess að það er svo
rosalega þægilegt að vera í þeim,
þær eru svo mjúkar og góðar,“ segir
Guðrún Elín sem finnst gott að vera
í buxum sem þrengja hvergi að
henni. Hún hefur troðið buxna-
skálmunum ofan í sokkana, en það
virðist vera málið hjá krökkum sem
ganga í náttbuxum hversdags. Það
þykir flottara og eflaust kemur það
líka til af því að buxurnar eyðileggj-
ast fljótt ef gengið er á skálmunum
utandyra. Guðrún Elín segir mun al-
gengara að stelpur gangi í nátt-
buxum en strákar, þó dæmi séu um
að þeir fari í slíkum klæðum út á
meðal fólks. Vinkona hennar Soffía
Sigurðardóttir sem er líka í tíunda
bekk, er í gráum bómullarbuxum og
segir að þægindin ráði slíku fatavali,
rétt eins og þegar farið er í leggings
eða náttbuxur.
Hver getur kastað lengra?
Krakkarnir í Hagaskóla eru mis-
jafnlega háværir, rétt eins og annað
fólk, en gríðarleg hróp og köll berast
frá tveimur strákum og einna líkast
því að æsispennandi kappleikur fari
þar fram. Þar eru komnir félagarnir
þeir Daði Björnsson og Fannar
Sveinsson sem keppast um að vinna
eftirsóknarverð spil af hvor öðrum.
Þeir eru hvor með sinn spila-
bunkann og kasta hvor einu spili í
einu inn eftir ganginum. Fagn-
aðarlætin berast úr barka þess sem
nær að kasta lengra hverju sinni og
það er vissulega undrunarefni
hversu langt þeim tekst að kasta svo
fisléttum spilum. Ekki er síður aðdá-
unarvert hversu mikið er hægt að
skemmta sér yfir einföldum hlutum.
„Sá sem hendir lengra fær bæði
spilin. Þetta eru kínversk spil sem
heita Duel Masters og við erum ný-
búnir að kaupa þau í Europris en við
kunnum ekkert á stigin eða neitt
svoleiðis, okkur finnst bara sumir
karlarnir flottari en aðrir og reynum
að stefna saman spennandi ein-
staklingum. Markmiðið er nátt-
úrulega að vinna sem flesta flotta
karla.“
Morgunblaðið/G. Rúnar
Þægilegt er málið Þær stöllur Guðrún Elín og Soffía létu fara vel um sig í frímínútunum og voru sammála um að mjúkar buxur væru bestar.
Sveifla Daði fer mikinn í því að kasta Duel Masters-spili sem allra lengst og hafa þannig spilið af Fannari.
Náttbuxur
og Kínaspil
Á göngum Hagaskóla
Litli vélræni
hænuunginn
HANN er óneitanlega nokkuð raunverulegur
á að líta hann Yume Hiyoko, eða draumaung-
inn eins og vélræni hænuunginn frá japanska
leiktækjaframleiðandanum Sega nefnist.
Yume Hiyoko tístir og baðar út vængjunum
þegar mannshöndin snertir hann, en hann er
ekki einungis hannaður sem barnaleikfang
heldur er honum einnig ætlað það læknandi
hlutverk sem snerting getur haft. Hér er
draumaunganum stillt upp við hlið eins lif-
andi og er ekki annað að sjá en að þeir kunni
vel við sig í félagsskap hvor annars.
Reuters
Orlando Homes For Sale
If you have ever considered buying a home in Florida,
Now is the time!
Don't miss the opportunity to purchase a home in this great buyer's
market... it won't last forever! If you are visiting Orlando this spring,
call or email Meredith Mahn for an appointment to see some of these
outstanding resort communities.
Now through May 31, 2007, receive 1% cash back
on all new home purchases!
For more information, visit us at:
www.LIVINFL.com
Domus Pro Inc. Vacation Home Sales Division
001-321-438-5566