Morgunblaðið - 12.04.2007, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 12.04.2007, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 41 ✝ Benedikt IngiÁrmannsson fæddist í Reykjavík 27. apríl 1978. Hann lést sunnudaginn 1. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans eru Ármann Haukur Benediktsson, f. 9.2. 1952 og Elín Ebba Gunnarsdóttir, f. 24.9. 1953. Systur Benedikts Inga eru Erna Karen Stef- ánsdóttir, unnusti Jón Óskar Þórhalls- son og Dóra Steinunn Ármanns- dóttir, unnusti Magnús Birgisson. Bróðir Benedikts Inga er Ármann Ingvi Ármannsson. Unnusta Bene- dikts Inga er Ást- hildur Erlingsdóttir. Dóttir hans úr fyrra sambandi er Ísabella Ronja Benedikts- dóttir, f. 27.9. 2003. Benedikt Ingi verður jarðsunginn frá Langholtskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Elsku Benni frændi, ég segi be- nedískar skálar fyrir þér og græt að við fórum aldrei saman í pool eins og við ætluðum alltaf, bara við tvö full- orðnu krakkarnir. Alveg er það típ- ískt að þeir sem skína skærast upp- lifa líka mesta myrkrið. Það er erfitt að vera svona galopinn og þeysa um víðan völl. Tíminn var búinn og þannig er það bara. Takk fyrir þann tíma sem þú gafst mér. Takk fyrir fallegu minningarnar. Svífðu hátt, fljúgðu langt, finndu ró í alheims ólgusjó. Friður og ham- ingja veri með þér að eilífu. Þín vin- kona, Drífa. Elsku Benni. Það er svo ólýsanlega sárt að þú sért farinn og að elsku litla dóttir okkar sé búin að missa pabbann sinn. Þó að við höfum átt okkar erfiðu stundir, er ég þakklát fyrir allar minningarnar um góðu tímana okk- ar og ég minnist þín með sárum söknuði. Ég minnist þess hvað við gátum hlegið saman, grátið saman, spjallað og skemmt okkur saman, þegar allt lék í lyndi. Ég minnist vin- áttunnar, ótrúlegra uppátækja þinna, fyndninnar, allra matarboð- anna, ferðalaganna, tónlistarinnar, fjörsins og ljúfu stundanna. Takk fyrir að leyfa mér að kynn- ast þér og þekkja þig alla leið inn að hjartanu þínu. Takk fyrir síðasta skiptið sem við heyrðumst og hittumst, það var svo gott að geta aftur átt hversdagslegt og vinalegt spjall við þig. Þakka þér líka fyrir að fara þá með Ronju í sund, eins og þú gerðir svo oft, því það var eitt af því skemmtilegasta sem hún gerði með þér. Hennar missir er svo mikill og þó hann verði alltaf sár, hugsum við vel um hvor aðra, eins og þú minntir okkur svo oft á, og reynum í sameiningu að finna leiðir til að hún geti lifað með honum. Ronja talar um að þú sért hérna hjá okkur og að þú passir hana, og það er gott að hugsa til þess. Hún sagði mér líka að þegar við verðum gamlar, verðum við engl- ar eins og þú og förum að hitta þig og þurfum þá ekki að vera leiðar lengur. Eins og þú veist hef ég alltaf og mun alltaf tala fallega um þig við elsku Ronju okkar og ég mun hjálpa henni eins og ég get að muna eftir þér. Við syngjum saman „Dvel ég í draumahöll“, skoðum myndir og myndbönd af þér og hlustum á tón- listina þína. Ég vona af öllu hjarta, að nú sértu búinn að finna friðinn og að þér líði betur, hvar sem þú ert. Mér þykir alltaf vænt um þig. Sofðu rótt, elsku vinur. Ástbjörg Rut (Adda Rut). Eins og svo margir aðrir vissi ég hver Benni var löngu áður en ég kynntist honum. Sögur af uppátækj- um hans fóru enda víða. Maður hafði því fyrirfram myndað sér ákveðna skoðun á Benna og það kom manni ekkert sérstaklega á óvart hversu brellinn hann var. Þegar við síðan kynntumst, á menntaskólaárunum, komst ég fljótt að því að það voru aðrir eiginleikar sem voru ríkari í honum. Hann var ótrúlega frjór í hugsun, mælskur og skapandi. Hann hafði einstaka hæfileika til að leita uppi alls kyns ævintýri og ef þau létu ekki á sér kræla bjó hann þau bara til. Þannig var hægt að treysta því að þeir dagar sem maður hitti Benna yrðu engir venjulegir dagar. Þetta breytti því þó ekki að ef eitthvað bjátaði á gat maður stólað á óskipta athygli hans og skilyrðislausa vin- áttu. Þannig man ég vin minn Benna. Fjölskyldu og vinum votta ég mína innilegustu samúð. Ólafur Hrafnkell Baldursson. Þær voru ekki raunverulegar fréttirnar sem bárust um Voga- hverfið í upphafi síðustu viku, en, jú, þetta var rétt, hann Benni skóla- bróðir okkar hefur kvatt okkur að sinni. Það var margt sem við bekkurinn brölluðum saman og ávallt var Benni með fremstur í flokki, brosandi að vanda. Það voru ófáar skemmtanirn- ar sem við héldum, partíin og ekki má gleyma útilegunum sem við fór- um í. Grunnskólaárin í Vogaskóla voru yndisleg og eigum við Benna mikið að þakka hversu líflegur og skemmtilegur bekkurinn okkar var. Ávalt var Benni til í eitthvert glens og var hann mjög virkur í félagslíf- inu. Hann hafði mikinn áhuga á leik- list og var alltaf með í leiklistarhópn- um. Við minnumst Benna sem lífsglaðs, brosandi og skemmtilegs félaga. Kæri vinur um leið og við kveðjum þig með söknuði og hlýhug, þökkum við fyrir þann ynndislega tíma sem þú áttir með okkur. Megi Guð veita dóttur þinni og fjölskyldu styrk á þessum erfiðu tímum. Árgangur 1978 úr Vogaskóla. Okkur langar til að minnast Benna, bekkjarfélaga og vinar okkar úr Menntaskólanum við Sund. Það voru sárar fréttirnar sem okkur bár- ust í síðustu viku og erfitt að trúa að komið sé að kveðjustund. Ef við ættum að nefna eitt orð til að lýsa Benna væri það orðið stuð. Benni var litríkur persónuleiki og alltaf hrókur alls fagnaðar. Þegar við horfum til baka er eins og að hann hafi komið nálægt öllu því skemmti- lega sem gerðist í MS, hvort sem um er að ræða leiksýningar, hæfileika- keppnir eða listgjörninga, enda hafði hann hæfileika á hinum ýmsu svið- um. Benni var einn af þeim sem stuðl- uðu að hinum frábæra anda sem ríkti í C-bekknum á menntaskólaár- unum og stundum var erfitt að sjá hvort það var kennarinn eða Benni sem hafði völdin í bekknum. Við sjáum Benna fyrir okkur, með breiða brosið sitt og hlýja faðmlagið, í gallasmekkbuxunum sínum og hvíta afabolnum. Þannig munum við minnast hans. Við sendum foreldrum Benna, systkinum, dóttur, unnustu og öllum þeim sem þótti vænt um hann okkar innilegustu samúðarkveðjur. Berglind E., Birna, Fanney, Guðný og Lillý. Okkur fannst heimurinn ögn fá- tækari og lífið litlausara þegar sú fregn barst að Benni vinur okkar væri látinn. Benni var ævintýramað- ur. Samverustundir með honum voru sannkölluð ævintýri þar sem allt gat gerst. Hann var einn af þeim sem hugsa út fyrir hinn hefðbundna ramma, kom alltaf á óvart og var óforbetranlegur listamaður og skemmtikraftur. Maður hafði alltaf á tilfinningunni að Benni myndi ná langt í lífinu, vekja athygli og fá við- urkenningu fyrir hæfileika sína. Það er sárt að sjá slíkan hæfi- leikapilt, með óþrjótandi hugmyndir og endalausan kraft, falla frá í blóma lífsins. Sá sem einhvern tím- ann hefur hitt Benna gleymir hon- um seint. Þannig eignaðist hann marga vini og enn fleiri kunningja. Hann naut sín vel í góðra vina hópi og var alltaf hrókur alls fagnaðar, svo vægt sé til orða tekið. Þrátt fyrir lífskraftinn og fjörið sem umlék Benna var hann einnig skilningsríkur, hjálpsamur og raun- góður vinur. Fórnfús og alltaf til staðar. Benni gat oft sýnt á sér ein- lægar hliðar og það gerði hann að sönnum, traustum vini. Við vottum dóttur hans, Ísabellu Ronju, fjölskyldu og vinum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Takk fyrir allt, elsku vinur. Hólmfríður Anna og Freyr Eyjólfsson. Ungur maður hefur kvatt þetta jarðlíf aðeins 27 ára gamall. Að- standendur sitja eftir í sorg. Bene- dikt Ingi var einhver ljúfasti dreng- ur sem ég ömmubróðir hans hef kynnst. Alltaf um jól og í afmælum var hann allra manna hugljúfi og maður skynjaði að tónlistin var hans líf. En jól og afmæli eru ekki allt líf- ið, því miður, og Benedikt Ingi reyndi sennilega litróf lífsins til fulls. Þessi yndislegi drengur kom heldur hryssingslega inn í atvinnulíf mitt, fyrir 11 árum þegar pabbi hans hringdi og kvartaði yfir að hann fengi ekki útborgað. Þá hafði verið ákveðið að hann kæmi til okkar fyr- irtækis til að þræla í byggingar- vinnu, en hann hafði ekki verið spurður álits og í stað þess að mæta hafði hann í sinni uppreisn ákveðið að betra væri að lúra í kjallaranum heima heldur en fara til vinnu. Auð- vitað komst þetta allt upp þegar stimpilklukkan hafði ekki stimplað hann inn og úr varð mikið uppi- stand. Mín fyrstu viðbrögð við þess- ari framkomu voru hneykslun, en við nánari umhugsun fékk ég virð- ingu fyrir þessum unga dreng sem lét ekki bjóða sér það sem hann ekki vildi. Benedikt kaus ætíð sínar leiðir í lífinu. Hann hafði mikla hæfileika bæði á tónlistar- og leiklistarsviði og hann var að byrja að fóta sig í lífinu, en þá er allt búið. Nokkur undanfarin ár hef ég allt- af haft spurnir af honum. Fyrir nokkrum árum virtist hann hafa fundið sköpunarþrá sinni viðspyrnu í London, síðan vissi ég að hann var í yndislegri sambúð með konu og átti barn en á einhvern hátt var því svo lokið en ég vissi að hann saknaði barns síns mikið; síðan frétti ég að hann var að semja góða tónlist sem hafði möguleika á að fara víða. En almættið ákvað hingað og ekki lengra. Hann ólst upp við ástríki foreldra og systkina að því er ég veit, eins og best verður á kosið. Ég veit að litli bróðir hans sem ber nafn okkar fjöl- skyldu, Ármann Ingvi, var hans besti vinur og hann var einnig náinn sinni elskulegu systur Dóru Stein- unni. Tónlist var allt um kring í þeirra lífi og tónlistin er það besta tungumál og fegursta sem við eig- um. Hvers vegna einstaklingur sem er svo margt gefið getur ekki lifað lengur er mér um megn að skilja, en Guð skilur allt, fyrirgefur allt og gefur þeim sem þurfa ást. Mínar dýpstu samúðarkveðjur sendi ég foreldrum, systkinum, hálfsystur hans Ernu Karen og öðrum að- standendum. Ármann Örn Ármannsson. Benedikt Ingi Ármannsson  Fleiri minningargreinar um Benedikt Inga Ármannsson bíða birtingar og munu birtast næstu daga. ✝ Elskulegur sonur okkar, bróðir og mágur, ÞORVARÐUR STEFÁN EIRÍKSSON, Hörgsholti 9, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju föstudaginn 13. apríl kl. 15.00. Eiríkur Rúnar Þorvarðarson, Svanhildur Ladda Þorvarðarson, Gunnar Kiatkla Eiríksson, Ásgerður Ólína Jónasdóttir, Ingimundur Vigfús Eiríksson. ✝ Innilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs sonar míns, bróður okkar, mágs og frænda, ELFARS BALDURS HALLDÓRSSONAR, Glaðheimum 20, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Halldór Gunnþórsson, Gunnþór Halldórsson, Lára Gunnarsdóttir, Charlotta Halldórsdóttir, Valur Andrésson, Hilmar Halldórsson, Gunnar Gunnþórsson, Anna Dóra Gunnþórsdóttir, Magnús Helgi Valsson. ✝ Elskulegur sonur minn, bróðir, mágur og frændi, HALLDÓR GUNNAR HRINGSSON, Reykjavíkurvegi 72, Hafnarfirði, er lést laugardaginn 24. mars verður jarðsunginn frá Neskirkju mánudaginn 16. apríl kl. 13.00. Sigrún Halldórsdóttir, Gunnjóna Sigrún Hringsdóttir, Jónas Sigurðsson, Guðbjörg Hringsdóttir, Páll Guðmundsson, Hjörleifur Hringsson, Elín Baldursdóttir, Sigrún Edda Hringsdóttir, Hafsteinn Jónsson, Hinrik Hringsson, Ingibjörg Þráinsdóttir og frændsystkini. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN ÁRNASON, Austurströnd 12, Seltjarnarnesi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 1. apríl. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 13. apríl kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrk, samtök krabbameinssjúklinga. Steinunn Friðriksdóttir, Friðrik Helgi Jónsson, Guðný Ágústa Steinsdóttir, Elín Guðrún Jónsdóttir, Thomas R. Lansdown, Árni Frímann Jónsson, Guðný Ragna Jónsdóttir, Ástríður Sigurrós Jónsd., Hjörtur Nielsen, Jón Steinar Jónsson, Sólveig Erla Ragnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær sonur minn, bróðir og mágur, PÁLL GUÐFINNUR ELÍASSON frá Grundarfirði, síðast til heimilis í Asparfelli 12, Reykjavík, lést laugardaginn 7. apríl. Jarðarförin fer fram frá Grundarfjarðarkirkju laugar- daginn 14. apríl kl. 14.00. Þeir sem vilja minnast hans láti Geðhjálp njóta þess, sími 570 1700. Petrea Guðný Pálsdóttir, Steinbjörg Elíasdóttir, Árni Eiríksson, Guðný Elíasdóttir, Ólafur Ægir Jónsson, Margrét Elíasdóttir, Þorkell Pétur Ólafsson, Elín Katla Elíasdóttir, Steinar Helgason, Finnbogi Elíasson, Sigurlaug Jóhanna Björnsdóttir, Kjartan Elíasson, Svanhvít Guðmundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.