Morgunblaðið - 12.04.2007, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 55
Leiksýningin Woyzeck heldur
áfram ferð sinni um Evrópu en á
miðvikudaginn 18. apríl verður
hún frumsýnd í óperuleikhúsinu
Het Muziektheater í Amsterdam.
Þar stendur til að sýna verkið
fjórum sinnum í sal sem tekur
1.600 manns.
Woyzeck er samstarfsverkefni
Borgarleikhúss og Vesturports og
er það unnið samvinnu við Barbic-
an Center í London og Het Mu-
ziektheater í Amsterdam.
Sýningin var upphaflega frum-
sýnd Barbican Center og var þar
sýnd í tíu skipti fyrir fullu húsi.
Hlaut sýningin lof gagnrýnenda
og var meðal annars útnefnd ein
af bestu sýningum ársins af tíma-
ritinu TIME OUT. Eftir sýningar
hér á landi var svo sýningin aftur
flutt til London, hálfu ári eftir
frumsýninguna þar, og var hún þá
sýnd í önnur tíu skipti.
Tæknilegt leikhús
Salurinn í Het Muziektheater í
Amsterdam verður sá stærsti sem
hýst hefur sýninguna til þessa.
Að sögn Þorsteins S. Ásmunds-
sonar framkvæmdarstjóra Borg-
arleikhússins er leikhúsið afar
tæknilega fullkomið. Leikmyndin
er til að mynda geymd uppi á hlið-
arsviði og er svo keyrð inn í heilu
lagi.
„Við erum með verkið í eins
konar farandssýningu,“ segir Þor-
steinn. „Hún er einfaldlega geymd
í gámi þegar ekki er verið að
sýna.“
Hann nefnir sömuleiðis að ýms-
ar hugmyndir séu á lofti um að
fara með verkið víðar. Þá er þeg-
ar frágengið að sýna verkið í Sa-
lamanca í Spáni þann 1. júní
næstkomandi.
Leikstjóri Woyzeck er Gísli Örn
Garðarsson en tónlist eftir þá
Nick Cave og Warren Ellis. Leik-
mynd er eftir Börk Jónsson, bún-
inga hannaði Filippía Elísdóttir
og Lárus Björnsson lýsingu. Leik-
arar eru Ingvar E. Sigurðsson,
Björn Hlynur Haraldsson, Nína
Dögg Filippusdóttir, Víkingur
Kristjánsson, Ólafur Egill Eg-
ilsson, Harpa Arnardóttir, Ólafur
Darri Ólafsson, Árni Pétursson,
Erlendur Eiríksson og Jóhannes
Niels Sigurðsson, en auk þess
tekur átta manna kór karlaradda
þátt í sýningunni.
Woyzeck í
Amsterdam
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Drama Woyzeck og María: Ingvar Sigurðsson og Nína Dögg Filippusdóttir.
Flott Leiksýningin Woyzeck verður frumsýnd í óperuleikhúsinu Het Muziektheater í Amsterdam á miðvikudag.
Frum-
útgáfa
í kilju
„Grípandi
fjölskyldusaga …
óvenjuleg og
svalandi lesning.“
The Guardian
„Dásamlegt,
margbrotið verk.“
Publishers Weekly