Morgunblaðið - 17.04.2007, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
MUSEO Alameda, stærsta safn
Bandaríkjanna helgað rómanskri
list og menningu í Ameríku, opnaði í
gær í borginni San Antonio í Texas-
ríki. Safnið er skærbleikt á litinn
með litskrúðugum ljósum, í róm-
önskum stíl.
Innflytjendur af rómönskum ætt-
um eru afar margir í San Antonio
miðað við íbúatölu og því þótti við
hæfi að safnið yrði þar. Safngripir
verða þó ekki eingöngu rómanskir
heldur einnig frá Ameríku.
Búist er við því að 400.000 manns
sæki safnið á ári hverju.
Bleikt
safn
Rómönsk list
og menning
DAGBLAÐIÐ
Wall Street
Journal hlaut
tvenn Pulitzer-
verðlaun í gær
fyrir blaða-
mennsku, þar af
önnur í flokki al-
mannaþjónustu
fyrir fréttaflutn-
ing af forkaupsrétti
að hlutabréfum í bandarískum fyr-
irtækjum í fyrra. Hin verðlaunin fékk
blaðið fyrir umfjöllun um fram-
kvæmd kapítalismans í Kína.
Blaðið var eini fjölmiðillinn sem
hlaut fleiri en ein verðlaun. Associat-
ed Press fréttastofan var verðlaunuð
fyrir ljósmynd af konu af gyð-
ingaættum að verjast öryggis-
lögreglumönnum á Vesturbakkanum
í Ísrael, sem sést hér að ofan.
Í flokki skáldsagna hlaut Cormac
McCarthy verðlaunin fyrir bókina
The Road og David Lindsay-Abaire
fyrir leikverkið Rabbit Hole. Í flokki
sagnfræðirita hlutu Gene Roberts og
Hank Klibanoff verðlaun fyrir The
Race Beat og Debby Applegate verð-
laun í flokki ævisagna fyrir The Most
Famous Man in America.
Í flokki ljóðabóka var höfundur
bókarinnar Native Guard, Natasha
Trethewey, verðlaunuð. Í flokki bóka
almenns eðlis, þ.e. ekki skáldsagna,
hlaut Lawrence Wright verðlaunin
fyrir The Looming Tower.
Tónlistarverðlaunin hlaut Ornette
Coleman fyrir Sound Grammar.
Sigurvegarar í hverjum flokki, að
undanskildum skrifum í almanna-
þjónustu, fá 10.000 dollara verðlaun
og viðurkenningarskjal. Verðlaunum
fyrir skrif í almannaþjónustu fylgir
gullpeningur.
Columbia háskólinn veitir verð-
launin samkvæmt vali 18 manna Pul-
itzer-verðlaunanefndar ár hvert. Pul-
itzer-verðlaunin eru nefnd í höfuðið á
blaðaútgefandanum Joseph Pulitzer.
Pulitzer-
verðlaunin
veitt
AP
ANNA Sigríður Helgadóttir,
söngkona og tónlistarstjóri, og
Jónas Þórir píanóleikari, halda
tónleika og verða með opið hús
annað kvöld, síðasta vetrardag,
í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30.
Efnisskráin verður aðallega
samansett af tónlist sem þau
hafa flutt við ýmsar athafnir í
kirkjunni.
Í andyrinu verður söfn-
unarbaukur og það sem safnast í hann verður sent
til félags Krabbameinssjúkra barna. Fólk er hvatt
til að mæta, njóta fagurra tóna og leggja góðu
málefni lið um leið.
Tónleikar
Tónleikar í
Fríkirkjunni
Anna Sigríður
Helgadóttir
SIGRÍÐUR Aðalsteinsdóttir,
mezzósópran, og Helga Bryn-
dís Magnúsdóttir, píanóleikari,
flytja þýsk og frönsk ljóð á síð-
ustu hádegistónleikum vetr-
arins í Íslensku óperunni í dag
kl. 12:15. Á efnisskránni eru
ljóð eftir Brahms, Fauré og Sa-
int-Saëns.
Tónleikarnir standa yfir í
um það bil 40 mínútur og er til-
valið fyrir þá sem starfa eða
búa í miðbænum að taka sér örstutt frí frá dagsins
önnum og líta inn í Óperuna í hádeginu og hlýða á
ljúfa tóna. Samlokur og drykkir eru til sölu í and-
dyri Óperunnar. Miðaverð er 1000 kr.
Tónleikar
Þýsk og frönsk
ljóð í hádeginu
Sigríður
Aðalsteinsdóttir
SÝNING á úrvali textílverka
eftir nemendur í 6. bekk Rima-
skóla verður opnuð í Kaffi
Bergi í Gerðubergi í dag kl.
13:30.
Kennarar í textílmennt og
íslensku við Rimaskóla fengu
börnunum það verkefni að
semja ljóð og síðan áttu þau að
gera mynd úr þæfri ull út frá
inntaki ljóðsins. Útkoman er
glæsileg og óhætt að fullyrða
að val verka á sýninguna reyndist mjög erfitt.
Sýningin stendur til 6. maí n.k. og er opin á opn-
unartíma Kaffi Bergs, mánudaga - föstudaga frá
kl. 9-16 og á laugardögum frá kl. 13-16.
Sýning
Textílverk nem-
enda í Rimaskóla
Textílverk í
Gerðubergi.
„ÞETTA er alvöru leikrit og alvöru
leikarar,“ segir Edda Heiðrún Back-
man, sem leikstýrir verkinu Hjóna-
bandsglæpum, sem frumsýnt verður
í Kassanum á miðvikudaginn. „Og al-
vöru leikstjóri,“ segja leikararnir
Elva Ósk Ólafsdóttir og Hilmir Snær
Guðnason. Hjónabandsglæpir er eft-
ir Eric-Emmanauel Schmitt, þann
sama og samdi leikritin Abel Snorko
býr einn og Gesturinn, sem sýnd hafa
verið á íslenzku sviði. Í þessu nýja
verki „tekst höfundur á óvæginn og
óvæntan hátt á við ástina, hjóna-
bandið og samskipti kynjanna. Í
verkinu blasa innviðir hjónabandsins
við okkur og ýmsar skuggahliðar
þess koma í ljós, en jafnframt tekst
höfundurinn á áhugaverðan hátt við
löngun mannsins til að láta ástarsam-
band vara“. Elva Ósk Ólafsdóttir og
Hilmir Snær Guðnason fara með
hlutverk Elísabetar og Róberts. Þau
hafa búið saman í fimmtán ár og þeg-
ar leikritið hefst glíma þau við minn-
isleysi. Í þeirri baráttu verða átök
um sannleikann í hjónabandinu.
Auðvelda leiðin var ekki í boði
„Æjá, það er þetta með blessað
hjónabandið,“ segir Edda Heiðrún
heimspekilega. „Það er nú orðið eins
og gömul gólftuska, enginn nennir að
skúra og enginn þolir fýluna.
Ég vildi svo gjarnan að þetta leik-
rit hristi upp í hlutunum og framkall-
aði nýja og ferska umræðu um hjóna-
bandið. Til þess höfum við unnið
þetta af mikilli einlægni, kafað dýpra
í málin og velt þeim fyrir okkur.“
Elva Ósk: „Þetta hefur verið
óvenju djúpt ferðalag, enda kallar
höfundurinn verkið sálfræðidrama.“
Hilmir Snær: „Þetta leikrit er svo
vel skrifað. Það er mikill bogi í báð-
um rullunum, margar hliðar sem við
þurfum að fást við og það reynir á.“
Elva Ósk: „Þetta eru draumarull-
ur sem fá mann til þess að halda
áfram, en staðna ekki í einhverri
skúffu, þær hvetja mann til að kafa
dýpra og bæta við sig.“
Hilmir Snær: „Það er svo sem allt-
af hægt að fara auðveldu leiðina, en
Edda Heiðrún leyfði okkur það ekki.
Við viljum líka láta sparka okkur
áfram og fram af brúninni.“
Edda Heiðrún: „Þessi vinna hefur
nú einhvern veginn verið átakalítil.
Við höfum leyft okkur að gráta yfir
verkinu …“
Elva Ósk: „… Og við höfum prófað
svo margar leiðir.“
Hilmir Snær: „Það skemmtilega
við þessa vinnu er að við gáfum okk-
ur tíma til þess að rannsaka hlutina.
Það gefur mikið, þegar upp er stað-
ið.“
Elva Ósk: „Það er ekkert í þessu
verki sem fólk þekkir ekki, það snýst
um sársaukann, þegar fólk nær ekki
að tala út um hlutina.“
Edda Heiðrún: „Þennan sársauka,
þegar fólk gerir samning og stendur
ekki við hann. Þegar fólk vill bara
vera ástfangið en neitar að elska.“
Hilmir Snær: „Hvort fólk lítur á
hjónabandið sem fyrirtæki fremur en
vina- og ástarsamband.“
Edda Heiðrún: „Og svo elskar fólk
heitt, en tekst ekki að standa við
gerðan samning, heldur gerir eitt-
hvað sem það hefði betur látið
ógert.“
Allur skalinn allur pakkinn
Elva Ósk: „Ef fólk talaði meira
saman, þá værum við ekki í þessum
sporum á leiksviðinu. Reyndar gæti
ég alveg eins leikið Róbert og Hilmir
Snær Elísabetu. Þetta snýst um fólk
en ekki kyn.“
Hilmir Snær: „Leikritið hristir svo
sannarlega upp í okkur. Það leysir
ekki lífsgátuna í eitt skipti fyrir öll,
en það snertir alla og getur skapað
umræður.“
Edda Heiðrún: „Það er svo margt
sem við þurfum að vinna með í okkur
sjálfum. Við þyrftum að sortera rusl-
ið í okkur. Það er ekki nauðsynlegt
að demba öllu yfir aðra. Það er ekki
nauðsynlegt að koma öllu í orð.
Það er umhugsunarvert að í öðrum
menningarsamfélögum er fólk und-
irbúið fyrir hjónabandið, því eru
kennd ýms undirstöðuatriði. Við Ís-
lendingar hins vegar lærum af mis-
tökum, dettum í það og önum áfram
án ráðs og rænu.“
Hilmir Snær: „Reyndar vekur
þetta leikrit fleiri spurningar en svör.
Það er styrkur þess, hvað það fer
víða og hvað höfundurinn er vog-
aður.“
Elva Ósk: „Þetta snýst fyrst og
fremst um manneskjuna.“
Edda Heiðrún: „Um fólk sem elsk-
ar og þykir vænt hvoru um annað.“
Hilmir Snær: „Þetta er allur pakk-
inn. Allur skalinn.“
Edda Heiðrún: „Kannski lausnin
felist eftir allt saman í ást og kær-
leika eins og Jesús vinur okkar sagði
fyrir tvö þúsund árum.
Höfundurinn deilir lífinu með okk-
ur, bæði í blíðu og stríðu. Það verður
þó að segjast eins og er að þetta leik-
rit er meira í stríðari kantinum.“
Að vera ástfanginn en vilja ekki elska
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Glaðbeitt Hilmir Snær, Edda Heiðrún og Elva Ósk eru tilbúin að færa okkur Hjónabandsglæpi á sviði.
Eftir Freystein Jóhannsson
freysteinn@mbl.is
MYNDLISTAMAÐURINN Stein-
grímur Eyfjörð verður fulltrúi Ís-
lands á Feneyjatvíæringnum sem
verður opnaður þann 10. júní næst-
komandi. Framlag Steingríms til
hátíðarinnar nefnist Lóan er komin
en þar fléttir listamaðurinn saman
þjóðlegum minnum og samtíma
með tilvísunum í vestræna heims-
mynd, menningu og alþjóðavæð-
ingu. Hluta verksins smíðaði Stein-
grímur eftir leiðbeiningum
huldumanns sem hann komst í
samband við í gegnum miðil. Verk-
ið lýsir svo ferðalagi Steingríms til
heimkynna huldumannsins í þeim
tilgangi að kaupa af honum kind.
„Huldufólk er hluti af íslenskri
þjóðarsál,“ segir Steingrímur.
„Tröll, álfar og huldufólk. Allt eru
þetta ákveðin lífsgæði sem Íslend-
ingar búa við.“
Feneyjatvíæringurinn er ein
elsta alþjóðlega myndlistarhátíð
heims en Íslendingar hófu þar
formlega þátttöku árið 1984. Gabrí-
ella Friðriksdóttir var fulltrúi Ís-
lands á hátíðinni fyrir tveimur ár-
um. Verk hennar vakti þar sérlega
mikla athygli en það er óhætt að
segja að þátttaka í tvíæringnum í
Feneyjum sé einn mesti heiður sem
myndlistarmanni getur hlotnast í
hinum alþjóðlega myndlistarheimi.
„Þetta skiptir mjög miklu máli
fyrir mig,“ segir Steingrímur um
þátttöku sína í tvíæringnum.
Á síðustu árum hafa orðið um-
talsverðar breytingar á fram-
kvæmd sýningarinnar af hálfu Ís-
lendinga en í ár sér hin nýstofnaða
Kynningarmiðstöð íslenskrar
myndlistar um framkvæmd ís-
lenska hlutans í fyrsta sinn. Hanna
Styrmisdóttir er sýningastjóri ís-
lenska skálans í Feneyjum.
„Ef vel tekst til er sýningin gríð-
arlega mikilvægur vettvangur fyrir
íslenska myndlistamenn og ís-
lenska samtímalist almennt,“ segir
Hanna.
Huldufólk og íslensk þjóðar-
sál á Feneyjatvíæringi
Morgunblaðið/ÞÖK
Myndlist Hanna Styrmisdóttir, sýningarstjóri íslenska skálans, Stein-
grímur Eyfjörð og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra.
♦♦♦
Höfundur: Eric-Emmanuel
Schmitt.
Þýðing: Kristján Þórður Hrafnsson.
Leikstjórn: Edda Heiðrún Back-
man.
Leikmynd og búningar: Jón Axel
Björnsson.
Lýsing: Lárus Björnsson.
Leikarar: Elva Ósk Ólafsdóttir og
Hilmir Snær Guðnason.
Hjónabandsglæpir