Morgunblaðið - 30.04.2007, Side 1
STOFNAÐ 1913 116. TBL. 95. ÁRG. MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
BÆTUM KJÖRIN – BURT MEÐ FÁTÆKT
kynntu þér málið á www.vg.is
SUMAR- OG SÓDÓMU-
BRAGUR Á KRÚTTLANDI
FLUGA Á FERÐ
Á HEITUM SUMARDEGI >> 32
FRÉTTASKÝRING
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
DULIN hótunin um ofbeldi nægir yfir-
leitt til að þolandinn velur að láta undan
nauðgara. En nútíminn gefur glæpamönn-
um færi á að beita nýjum aðferðum: slæva
fórnarlambið tímabundið með lyfjum. Mörg
dæmi munu vera um það hérlendis að kon-
um hafi verið gefið svefnlyfið Rohypnol eða
svipuð lyf en sönnunarbyrðin er erfið.
Svefnlyfið Rohypnol virkar róandi, er oft
notað sem svonefnt „kæruleysislyf“ og enn
er vísað á það hérlendis með ákveðnum
skilyrðum Landlæknisembættisins um svo-
nefnda eftirritun.
Sé liðinn sólarhringur er yfirleitt of seint
að mæla, svo hratt eyðast lyfin í líkaman-
um. Þeim er gjarnan laumað í drykk hjá
fórnarlambinu, auðvelt er að koma því við
ef áfengi er haft um hönd og fólk ekki á
varðbergi. Rohypnol og svipuð lyf hafa þau
áhrif að fólk verður sljótt og ófært um að
verjast. Og þegar áhrifin eru horfin er sú
eða sá sem nauðgað var yfirleitt ekki fær
um að rifja upp atburðarásina, lyfið þurrk-
ar að mestu út minnið meðan það virkar.
Að sögn Guðrúnar Jónsdóttur hjá Stíga-
mótum sögðust 11 konur sem leituðu til
samtakanna í fyrra telja að þeim hefði verið
nauðgað eftir að hafa verið byrlað lyf af ein-
hverju tagi. Lymskufullt ofbeldi af þessu
tagi setur þolandann í skelfilega stöðu.
Margar konur berjast í kjölfarið við óvissu
og sjálfsásakanir sem geta valdið skaða ef
þær leita sér ekki meðferðar.
Koma flestar of seint
Á hverju ári koma að jafnaði fimm til sjö
konur á Landspítalann vegna gruns um að
þeim hafi verið byrluð einhver ólyfjan, seg-
ir Eyrún Jónsdóttir, deildarstjóri Neyðar-
móttöku vegna nauðgunar. Þá eru ávallt
tekin blóð- og þvagsýni, jafnvel þótt tveir
eða þrír sólarhringar séu liðnir frá meintu
broti. „Því miður koma þær flestar of seint
til þess að mögulegt sé að finna leifar af lyf-
inu,“ segir Eyrún. Greining af þessu tagi
kostar tugi þúsunda og jafnvel yfir 100 þús-
und krónur ef gerð er umfangsmikil leit að
efnunum. Heimildarmenn segja kostnaðinn
eiga sinn þátt í að starfsfólk neyðarmóttök-
unnar sendi ekki sýnin í slíka rannsókn
nema mjög öflugar vísbendingar séu um að
brot hafi verið framið.
Lymsku-
vopn
nauðgara
Svefnlyfi laumað í drykk
til að slæva fórnarlambið
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
MOKFISKIRÍ hefur verið við Þorláks-
höfn undanfarna daga. Hvanney SF frá
Hornafirði fékk þar um 170 tonn af góðum
þorski í netin á aðeins fjórum dögum. „Við
komum á miðin við Hafnarnesið klukkan
sex að morgni til og lögðum 11 trossur. Við
byrjuðum að draga eftir tæpa fjóra tíma
og fengum 50 tonn. Svo lögðum við tross-
urnar allar aftur og drógum daginn eftir.
Eftir átta trossur vorum við búnir að fylla
bátinn og urðum að draga þrjár trossur
seinna um daginn og alls fengum við þá 75
tonn,“ sagði Þorsteinn Guðmundsson
skipstjóri þegar Morgunblaðið náði tali af
honum á hafnarvoginni í Þorlákshöfn.
„Það er óhætt að segja að þetta hafi ver-
ið mjög gott hjá okkur. Með því kröftugra
sem maður hefur séð. Við vorum að koma
úr netaralli og þar sem páskastoppið fyrir
austan er seinna en hér vestur frá
ákváðum við að fara hingað til að gera eitt-
hvað. Ég hef aldrei verið með net hér áð-
ur, svo þetta kemur skemmtilega á óvart.
Við drógum sjö trossur í dag og vorum
með 19 tonn af slægðum fiski, svo það er
heldur að minnka. Þetta er fínasti fiskur,
sjö til átta kíló að meðaltali, svo það eru
bara um 120 fiskar í tonninu og við höfum
því fengið 1.200 til 1.300 fiska í trossu.“
Hvanneyin, sem hét áður Happasæll, er
kannski þekktari fyrir humarveiðar en
þorskveiðar í net, en Þorsteinn segir að það
hafi verið ágætis veiði fyrir austan í vetur.
„Við erum venjulega byrjaðir á humri á
þessum árstíma. Útgerðin, Skinney-Þinga-
nes, er með þrjá aðra báta á humrinum og
þeir hafa mokfiskað svo það hefur ekki ver-
ið þörf fyrir okkur ennþá. Það er vinnslan
sem takmarkar aflann hjá þeim og þeir
hafa ekki þurft að hafa mikið fyrir því að
sjá henni fyrir verkum. Ég geri svo ráð fyr-
ir því að við förum á humarinn fljótlega.“
Stór „Þetta er fín-
asti fiskur, 7–8
kíló að meðaltali.“
170 tonn á fjórum dögum
STARFSFÓLK Gallerís Foldar
með offset-þrykk Andys Warhols,
Liz, frá 1965, sem seldist á 750 þús-
und krónur á uppboði listmunasöl-
unnar í Súlnasal Sögu í gærkvöldi.
Hæsta verðið fékkst fyrir olíu-
málverkið Blómauppstillingu eftir
Jón Stefánsson, 3,9 milljónir, en
vel á annan tug verka fór á milljón
krónur eða meira. Boðnir voru upp
150 listmunir alls og um 300 manns
mættu á staðinn. | 2
Morgunblaðið/ÞÖK
Meira en tugur verka á yfir milljón
HÉR VANTAR ALVEG TRÉ OG ÞAÐ ER FULL-
HVASST, SEGJA ROBERT OG TOM >> 15
VÆNTINGARNAR