Morgunblaðið - 30.04.2007, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 30.04.2007, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2007 9 FRÉTTIR • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 Nýjar hörskyrtur Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862 Stærðir 40-52 Vor - Sumar 07 kynningardagar 26. apríl-5. maí          Þú þværð hárið, þurrkar, berð froðuna í, greiðir og hárið nær sínum eðlilega lit á ný, þykknar og fær frískari blæ. Grecian 2000 hárfroðan fæst hjá: Lyfju Lágmúla, Lyfju Smáralind, Árbæjar Apóteki, Lyfjavali, Apótekinu Mjódd, Hársnyrtistofunni Hár - Hjallahrauni 13 Hfj., Rakarastofu Gríms, Rakarastofu Ágústar og Garðars, Rakarastofunni Klapparstíg, Rakarastofu Ragnars - Akureyri, Torfa Geirmunds, Hverfisgötu 117 og Hagkaupum. Árni Scheving slf. - Heildverslun, sími 897 7030 Flottar hörbuxur frá Margir litir - st. 42-56 Skeifan 11d • 108 Reykjavík • sími 517 6460 Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15 www.belladonna.is KLIKKAÐ kaffi og bilaður bakstur var meðal þess sem boðið var uppá á Geðveiku kaffihúsi í Pósthús- stræti síðastliðinn laugardag. Kaffihúsinu var komið á fót af Hugarafli í tengslum við List án landamæra. „Þetta er í annað sinn sem við stöndum fyrir þessu en List án landamæra gengur út á að allir vinni saman án aðgreiningar,“ seg- ir Auður Axelsdóttir hjá Hugar- afli. Auk kaffis og bakkelsis var boð- ið upp á geðgreiningu, tónlist og ljóðalestur á kaffihúsinu. Að sögn Auðar var viðburðurinn vel sóttur. „Það var fullt út úr dyrum allan tímann.“ Morgunblaðið/ÞÖK Geðveikt kaffihús UNDIRRITAÐUR var samstarfs- samningur biskups Íslands og guð- fræðideildar Háskóla Íslands, varð- andi kennslu í litúrgíu, starfsþjálfun og símenntun, á nýafstaðinni presta- stefnu á Húsavík. Skv. samningnum tekur guð- fræðideild að sér verkefni varðandi kennslu í helgisiðafræðum (litúrgískum fræðum), starfsþjálfun prestsefna og símenntun fyrir presta og djákna. Er þetta metið sem 75% lektorsstaða við guðfræði- deild. Samningurinn gildir í þrjú ár. Í samningnum er m.a. kveðið á um eftirfarandi verkefni: Kennslu í litúrgískum fræðum, starfsþjálfun prestsefna, skv. starfs- reglum Kirkjuþings um starfs- þjálfun prestsefna og símenntun fyr- ir presta og djákna. Fyrir ofangreind verkefni greiðir biskup Íslands guðfræðideild árlega fjárhæð sem samsvarar 75% stöðu lektors við Háskóla Íslands alls. Miðað er við að 25% af stöðuheimild lektors við guðfræðideild sé ráð- stafað til hvers verkefnis. Sam- starfssamningurinn gildir í þrjú ár eða til ársloka 2009. Er hann með fyrirvara um fjárveitingu frá Kirkju- ráði þjóðkirkjunnar fyrir hvert ár. Dr. Hjalti Hugason, forseti guð- fræðideildar, og Karl Sigurbjörns- son, biskup Íslands, undirrituðu samninginn. Undirritun Karl Sigurbjörnsson biskup, Hjalti Hugason deildarforseti og Einar Sigurbjörnsson, formaður stjórnar Guðfræðistofnunar. Samstarf um kennslu í litúrgíu, starfsþjálfun og símenntun GEIR H. Haarde forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, ásamt forseta bæjarstjórnar, Soffíu Lárusdóttur, og Eiríki Bj. Björgvinssyni, bæjar- stjóra Fljótsdalshéraðs, undirrituðu samninga um stofnun Þekkingarset- urs á Egilsstöðum ehf. á laugardag. Með samningunum skuldbindur ríkisvaldið sig til að leggja núver- andi húsnæði Þekkingarsetursins á Vonarlandi á Egilsstöðum sem hlutafjáreign, að verðmæti 125 millj- ónir króna, í einkahlutafélagið Þekk- ingarsetur á Egilsstöðum ehf. Mark- miðið er jafnframt að Fljótsdals- hérað og tengdir aðilar leggi félag- inu til sömu upphæð á næstu tíu árum. Starfsemi félagsins verður hagnaðarlaus með almenningsheill að markmiði. Þróa þekkingarsamfélagið á Austurlandi Í húsnæði þekkingarsetursins verða undir einu þaki helstu rann- sóknar- og þjónustustofnanir á Egilsstöðum og víðar, alls á annan tug stofnana, auk þess sem stefnt er að því að þar byggist upp staðbundið háskólanám. Megintilgangurinn er því að efla vísinda- og rannsóknar- starfsemi á svæðinu og vera miðstöð sérfræðiþjónustu af ýmsu tagi, stuðla að aukinni nýsköpunarstarf- semi í atvinnulífinu og skapa skilyrði fyrir frekari þróun þekkingarsam- félags á Austurlandi. Á þessu ári verður hafist handa við byggingu 1.800 fermetra húsnæðis undir starf- semina, en alls verður húsnæðið um 3.000 fermetrar þegar núverandi húsnæði á Vonarlandi er talið með. Stofnun þekkingarsetursins er jafn- framt liður í stefnu Fljótsdalshéraðs sem hefur að markmiði að þróa áfram sveitarfélagið sem þekkingar- samfélag. Gengið var frá samkomulagi um stofnun Þekkingarseturs á Egilsstöðum Efla vísindi og rannsóknarstarf Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Hátíðleg stund Fjölmenni fylgdist með þegar stofnsamningurinn um Þekkingarsetur var undirritaður. Fréttir á SMS „Í ÞESSU tilviki á ekki að taka seinkun til greina,“ segir Einar H. Guðmundsson, stjórnarmeðlimur í Baráttusamtökum eldri borgara og öryrkja, um þá ákvörðun landskjör- stjórnar í gær að vísa frá kæru framboðsins á þeim úrskurði yfir- kjörstjórna Reykjavíkurkjördæma suðurs og norðurs og Suður- kjördæmis að það gæti ekki boðið fram í fimm kjördæmum þar eð framboðslistar hefðu borist of seint. „Það er verið að reyna að bola okkur í burtu og koma í veg fyrir að við getum boðið fram, með öllum ráðum sem hægt er. Mér finnst illa að okkur vegið að leyfa okkur ekki að bjóða fram í þessum kjördæmum því við höfum verið með yfirdrifinn meðmælalista.“ Spurður um ástæður þess að ekki tókst að skila inn listum á réttum tíma segir Einar veikindi hafa hrjáð formann framboðsins, Arndísi H. Björnsdóttur, auk þess sem tölva hennar hafi „slegið út“, en það megi rekja til bilana hjá Vodafone. Framboðið hafði sólarhringsfrest til að kæra úrskurðinn og var kær- unni hafnað á fimmta tímanum í gær. Það mun bjóða fram í Norð- austurkjördæmi í kosningunum. „Reynt að bola okkur í burtu“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.