Morgunblaðið - 30.04.2007, Blaðsíða 32
Ein af fáum snjöllum
hugmyndum höfund-
arins er að láta hina norrænu
villimenn tala íslensku, ef ís-
lensku skyldi kalla.… 35
»
reykjavíkreykjavík
Sólskin og hiti var á Krúttlandinu okk-ar góða um helgina og fluga fleygðihamslaus af gleði af sér hamnum,eftir langa biðröðina ofan í Laug-
ardalslaugina, og skríkti af gleði í djúpsteik-
ingunni í heita pottinum þegar hún sá fær-
eyska folann og X-Factor stjörnuna Jógvan
Hansen stinga sér til sunds. Veitingamenn
borgarinnar kepptust við að rífa út borð og
stóla svo fólk gæti notið blíðu og bjórs. Allra
fínustu dömurnar dreyptu kvenlega á hvítvíni
og rembdust við að halda hárgreiðslunum í
skefjum í verstu vindhviðunum og sjónvarps-
maðurinn Egill Helgasson var einn útikaffi-
húsagesta á Thorvaldsen. Hann lét auðvitað
sólargeislana leika við fagurrauða hárlokk-
ana. Í skjóli myrkurs setti fluga svo upp hul-
iðsskikkjuna sína og tókst að komast inn á
leynilegan bar sem annars krefst ,,invitation
only“. Siðprúðum, kirkjuræknum borg-
arbúum er eflaust fáum kunnugt um þennan
leikvöll lastanna en staðurinn þjónar karl-
kyns gestum sem hneigjast til sama kyns. Í
kvöldlegu tali kallast hann víst MSC. Stað-
setningin er í næsta nágrenni við Næsta bar.
Fluga var eina kvenkyns lífveran þar innan
dyra og skoðaði heilluð unga, hálfklædda
menn en leður og latex voru ráðandi í þeim
litlu efnisbútum sem strekktust yfir bera
holdið. Pínkulítill bar sá um tilhlýðilegar veit-
ingar og daðurslegir dansarar sveifluðu
mjöðmum í búrum sem héngu ofan úr loft-
inu. Sýndist líka glitta í eins konar ,,fullorð-
insrólu“ ... sannur Sódómubragur. Legg ekki
á ykkur að nafngreina gesti á hinum nautna-
lega leyninæturklúbb. Skemmtilegt að Ing-
ólfsstrætið sé svona frjálslegt í fasi, öfugt við
íbúa Njálsgötu sem þjást af nöturlegum ná-
granna-njálg; ósáttir við að aðrir en smá-
borgarar dvelji í kumböldunum þar.
Getur verið að Baugsmálið verði gert upp í
eitt skipti fyrir öll í veislu aldarinnar? Svarið
var að finna í Bókabúð Máls & Menningar
um helgina sem var með afmælisveisluívaf í
tilefni þess að hinn ungi, eiturhressi Óttar M.
Norðfjörð veitti gestum og gangandi eig-
inhandáritun á teiknimyndasögu sína: Jón
Ásgeir og afmælisveislan. Virtist selja
grimmt en hógvær og ósköp nördalegur á
svip í röndóttri peysu. Nokkurra fermetra af-
mælisterta gladdi viðstadda sem hámuðu
skammlaust í sig sneiðar með þeyttum
rjóma. Kristinn G. Harðarson opnaði sýn-
ingu í Anima galleríi í Ingólfstræti á föstu-
dagseftirmiðdag með yfirskriftinni Könnun
umhverfis en listamaðurinn hefur málað
,,upp úr“ dagbókum sínum það sem ber fyrir
augu og eyru og vekur athygli í hversdeg-
inum eins og samtöl fólks, ýmsa staði og at-
burði og fréttaefni fjölmiðla. Algjörlega eins
og málað úr fluguhjartanu forvitna. Best að
fara að undirbúa kosningarnar. Fluga gefur
ekki upp hvað hún kýs; hún er reyndar
hvorki ljósmóðir né frá Lómatjörn en hún er
jú ljóska, og það segir ykkur kannski eitt-
hvað? | flugan@mbl.is
Eyvindur Karlsson og Þórhallur Þórhallsson.Guðfinna Gunnarsdóttir, Kristjana Stef-
ánsdóttir og Dýrleif Jónsdóttir.
Bergþór Smári, Ómar Guðjónsson og Einar
Scheving.
Arobi Zartarian, Daníel Pollock og Svavar
Knútur Kristinsson.
Morgunblaðið/Eggert
Vilhelm Anton Jónsson og Tómas R. Einarsson.
Morgunblaðið/Golli
Harpa S. Björnsdóttir og Ágúst Guðmunds-
son .
Eyjólfur Kolbeins, Kristín Eyjólfsdóttir og
Ari Agnarsson
Ingunn Birta Hinriksdóttir, Sæþór Helgi
Jensson og Magnús Korntop.
Margrét Nordal, Arngrímur Dagur, Þórhild-
ur Garðarsdóttir og Valgerður Unnarsdóttir.
Haraldur Haraldsson og Ágústa Jó-
hannsdóttir.
Bjarni Daníelsson og Kristín Ragna Gunn-
arsdóttir.
Sumar- og sódómu-
bragur á Krúttlandi
. . . hún er reyndar hvorki ljósmóðir né
frá Lómatjörn en hún er jú ljóska . . .
» Í Loftkast-alanum voru
tónleikar til
styrktar Café
Rosenberg.
» Sýningin List án landamæra 2007 var opnuð í RáðhúsiReykjavíkur.
»Hin ný-stofnaða
barokksveit
Camerata
Dramatica
hélt sína
fyrstu tón-
leika í Ís-
lensku óp-
erunni. Morgunblaðið/EggertHanna Rún Eiríksdóttir og Stella Sig-
urgeirsdóttir.
Heidi Strand, Matthías Kristiansen og
Ólafur Eyjólfsson.
flugan