Morgunblaðið - 30.04.2007, Blaðsíða 36
36 MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
NEXT kl. 6 - 8 - 10 B.i. 14 ára
BLADES OF GLORY kl. 6 - 8:10 - 10:20 B.i. 12 ára
BREACH kl. 8 B.i. 12 ára
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ DIGITAL 3D
300 kl. 10:20 B.i. 16 ára DIGITAL
/ KRINGLUNNI
BLADES OF GLORY kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i.12.ára
BLADES OF GLORY VIP kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10
SHOOTER kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16.ára
BREACH kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i.12.ára
THE GOOD SHEPERD kl. 10:10 B.i.12.ára
THE MESSENGERS kl. 10:10 B.i.16.ára
MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 4 - 6 - 8 LEYFÐ
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
WILD HOGS kl. 8 B.i.7.ára
BECAUSE I SAID SO kl. 6 LEYFÐ
/ ÁLFABAKKA
NICOLAS CAGE - JULIANNE MOORE - JESSICA BIEL
SÁ SEM SÉR FRAMTÍÐINA GETUR BJARGAÐ HENNI
EFTIR HÖFUND MINORITY REPORT OG BLADE RUNNER
eee
H.J. Börn sjá meira en
fullorðnir gera sér
grein fyrir!
STRANGLEGA BÖNNUÐ BÖRNUM
BE
SPRENG-
HLÆGILEG
MYND FRÁ
BEN STILLER
Fór beint á
toppin í USA
SJALDAN EÐA ALDREI HAFA
TVEIR KARLMENN DANSAÐ JAFN VEL SAMAN!
eee
V.J.V. TOPP5.IS
Þjóðskáldið, náttúrubarnið ogbyltingarmaðurinn Jóhannesúr Kötlum er setztur að á
skáldasetri á vefnum. Vefsíða um
skáldið varð fyrst til vegna ald-
arafmælis þess 1999 og má enn
nálgast hana gegnum vefbókasafn-
ið. Það skáldasetur sem hér er gert
að umtalsefni hafa afkomendur Jó-
hannesar byggt honum á léninu jo-
hannes.is þar sem finna má ýmsan
fastan fróðleik um skáldið og verk
hans, en einnig er jarðnæðið stöð-
ugt aukið með fróðleik af ýmsu tagi.
Það er skemmtilegt að heimsækja
vefsetur Jóhannesar úr Kötlum. Ég
hitti hann aldrei persónulega, en
hef lengi dáð ljóð hans og komst
nær honum á lífsleiðinni í gegnum
manneskjur sem elskuðu hann og
nutu elsku hans. Sú hlýja mynd sem
þær gáfu mér af skáldinu liggur dá-
lítið fjarri hörku byltingarmanns-
ins, en eins og í lífinu svo átti hann
ólíka strengi í ljóðhörpu sinni.
Það er auðratað um skáldasetur
Jóhannesar úr Kötlum. Þar er hægt
að kalla upp æviferil og ritaskrár og
í fréttum er það helzt að fleiri lausa-
vísur Jóhannesar rata inn á vefinn.
Lausavísunum er helgaður sér-
stakur bás, þar sem sonur skáldsins,
Svanur, kallar eftir lausavísum um
og eftir föður sinn (en auðvelt er að
„hafa samband“) og birtir þær sem
berast; sumar hafa birzt annars
staðar en stöðugt bætast nýjar í
sarpinn. Mynd mánaðarins er birt
og líka ljóð; ljóð marzmánaðar valdi
Ármann Jakobsson, Fjöll úr Sjö-
dægru, og aprílljóðið er Ljóð um
hamingjuna, sem Eysteinn Þor-
valdsson valdi. Þeir eru líka höf-
undar greina um Jóhannes, sem
birtust í blöðum og tímaritum 1999
þegar skáldið hefði orðið 100 ára,
en aðrar greinar af sama toga eru
eftir Jón Sigurðsson, Matthías Jo-
hannessen, Silju Aðalsteinsdóttur
og Skafta Þ. Halldórsson. Loks skal
nefnt að frá skáldasetrinu er hægt
að kalla upp heildarskrá skjala-
safns, sem afhent var Lands-
bókasafni Íslands – Háskóla-
bókasafni 4. nóvember 1999.
Á lausavísnabás skáldasetursinsnefnir Svanur Jóhannesson
m.a. til vináttu föður síns og Eyjólfs
Jónassonar bónda í Sólheimum,
Laxárdal, og vitnar til heimasíðu
Sólheima í Laxárdal, sem m.a.
geymir margt af kveðskap Eyjólfs
og líka vísur og ljóð Jóhannesar til
vinar síns, en þeim fór margt þess
háttar í milli.
Einhverju sinni upp á fjalli sagð-
ist Eyjólfur hafa verið að hugleiða
kunningsskap þeirra Jóhannesar og
hvern mann Jóhannes hefði að
geyma. Sagði hann skáldið Jóhann-
es mann ágætan og sérlega hjarta-
hreinan og geta hrifið alla upp úr
skónum með snilli sinni, en hann
væri þannig gerður að hann fyndi til
með öllum og bæri sorgir og þján-
ingu heimsins með sér og yrði því
ekki sæll fyrr en í gröfinni. Aftur á
móti þótti Eyjólfi Jóhannes hafa ein-
kennilega mikla tiltrú á sér og
kvaðst hafa verið eins og skraut-
stytta uppi á hillu hjá Jóhannesi alla
tíð, en nú væri því lokið. Út frá þess-
um hugleiðingum gerði hann eft-
irfarandi vísu á heimleiðinni ofan úr
Fellum.
Jóhannes hefur jafna lund.
Jagar hann til sín indæl sprund.
Postulíns eitt sinn átti hann hund.
Alsæll fyrst á dauðastund.
Eyjólfur bætti svo um betur, þeg-
ar von var á Jóhannesi í Sólheima:
Jóhannes hefur jafna lund – ölvaður.
Jagar hann til sín indæl sprund – bölvaður.
Postulíns eitt sinn átti hann hund – mölvaður.
Alsæll fyrst á dauðastund – fölvaður.
Sumarið 1975 komu Svanur Jó-hannesson og Ragnheiður kona
hans að Sólheimum. Þá fór Eyjólfur
með þessar vísur og kenndi þeim.
Haustið 2006 voru þau hjón enn á
ferðalagi vestur í Dölum og áskotn-
aðist þá ljósrit af bréfi Jóhannesar
til Eyjólfs. Það er dagsett 18. sept.
1965:
„Kæri frændi minn:
Það var mér dýrðleg sálubót að
hitta þig þessa stuttu stund í gær-
kveldi og finna gamla og góða
strauma líða um mína aumu sál.
Ég var að velta fyrir mér perlunni
þinni eftir að ég kom heim í nótt og
vil gera á henni smávegis breyt-
ingar henni til enn meiri fullkomn-
unar, því aldrei er góð vísa of lengi
fáguð. Ég sendi þér því tillögur mín-
ar nú þegar, áður en þetta maka-
lausa afkvæmi þitt flýgur út um all-
ar trissur.
Ég vil þá hafa vísuna svona:
Jóhannes minn er jafn í lund – ölvaður,
jagar hann til sín herleg sprund – bölvaður,
postulíns áttı́ ann eitt sinn hund – mölvaður,
alsæll mun verða á dauðastund – fölvaður.
Eins og þú munt strax sjá lengjast
allar ljóðlínurnar til samræmis við
þá þriðju, betur hittir í mark að
skipta um viðlagið í fyrstu og annari
línu, ,,herleg“ fer betur en ,,indæl“
við sögnina að ,,jaga“ og ,,mun
verða“ kemur í staðinn fyrir ,,fyrst“
vegna atkvæðafjöldans og er ekki
verra, því f-in í fyrst og fölvaður
nálgast of mikið stuðlun.
Sem sagt: meiningin breytist ekk-
ert og er ,,god nok“ eftir sem áður,
en hrynjandin verður heilli og
ísmeygilegri. Ef þú fellst á þetta fer
það ekki annara á milli, heldur segj-
um við þeim sem þegar kunna að
hafa heyrt vísuna eða lært að þú
hafir hnikað henni þannig til við
nánari athugun. Og mun ég nú
keppast við að kenna öllum hana í
þessari mynd...
Þinn einl.
Jóhannes úr Kötlum.“
Svanur lýkur frásögninni í lausa-vísnabás skáldasetursins svo:
„Á þessu bréfi sést að Eyjólfur hef-
ur ekki tekið tilboði pabba um
breytingu á vísunni, því 10 árum
seinna fer hann með upphaflegu
gerðina fyrir okkur Rögnu. Eða þá
að hann hefur ekkert viljað breyta
henni og talið best að hafa hana eins
og hún var frá honum komin og
hallast ég helst að því. En menn vita
þá ástæðuna ef báðar gerðir vís-
unnar eru í gangi.“
» Sagði hann skáldiðJóhannes mann
ágætan og sérlega
hjartahreinan og geta
hrifið alla upp úr skón-
um með snilli sinni, en
hann væri þannig gerð-
ur að hann fyndi til með
öllum og bæri sorgir og
þjáningu heimsins með
sér og yrði því ekki sæll
fyrr en í gröfinni
Sálubót Vinafund Eyjólfs Jónassonar í Sólheimum og Jóhannesar úr Kötl-
um kallaði Jóhannes dýrðlega sálubót.
freysteinn@mbl.is
AF LISTUM
Freysteinn Jóhannsson
Postulíns eitt sinn átti hann hund
FERILL Ara Baldurssonar í tón-
listinni er langur, þó að hljómskíf-
urnar hafi verið fáar. Ari er Dal-
víkingur en býr nú í Árgerði í
Svarfaðardal þar sem hann rekur
gistiheimili auk þess að gera út
eins manns ballsveit en hann á að
baki áratuga reynslu með hinum
ýmsu dansleikjasveitum. Þá lék
hann um hríð með kántrísveit í
Danmörku og þau áhrif slæddust
inn á disk dúettsins Jóns forseta,
Öldin er liðin (2001) sem Ari skip-
aði ásamt Þresti Harðarsyni. Nú
lítur hins vegar dagsins ljós plata
þar sem ýmsir söngvarar og hljóð-
færaleikarar túlka lög Ara, og eru
þar á meðal Kristján Edelstein,
Pálmi Gunnarsson, Kristjana Arn-
grímsdóttir og Álftagerðisbróð-
irinn Óskar Pétursson.
Lögin eru velflest í rólegum
takti, einslags ballöður, og afar
misjöfn að gæðum. Flest þeirra
eru reyndar ansi sérkennalaus –
minna á hundruð annara dæg-
urlaga og skilja því lítið eftir sig.
Fljóta framhjá manni án þess að
hræra neitt í vitunum. Ekki bætir
þá úr skák að söngur er iðulega
flatur og óspennandi. Ari syngur
meirihlutann sjálfur og myndi
seint teljast raddsterkur maður,
helst að Óskar sýni einhver tilþrif.
Hrósa ber þó sérstaklega hljómi,
sem er þýður og mjúkur. En laga-
smíðarnar sem slíkar eru fæstar
að gera sig.
Tilþrifalítið
TÓNLIST
Ari Baldursson – Helst af öllu
Arnar Eggert Thoroddsen
BANDARÍSKA dagblaðið The New
York Times birti í gær ítarlegt viðtal
við söngkonuna Björk Guðmunds-
dóttur í tilefni nýútkominnar plötu
hennar Volta.
Greinarhöfundur ræðir við Björk
um plötuna, sem er sú fyrsta sem hún
sendir frá sér í þrjú ár.
Í viðtalinu er einnig farið yfir feril
Bjarkar og minnst er á svanakjólinn
fræga.
Björk mun halda þrenna tónleika í
New York á næstunni. Á miðvikudag-
inn mun hún leika í Radio City Music
Hall. Á laugardag mun hún halda tón-
leika í United Palace Theater og
þriðjudaginn þar á eftir verður hún
með tónleika í Apollo Theater.
Björk í New York
Morgunblaðið/Ómar