Morgunblaðið - 16.05.2007, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2007 39
Skipulagsauglýsing,
Borgarbyggð
Tillaga á breytingu á aðalskipulagi
Borgarbyggðar 1997-2017, Borgarnesi og
tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir
skólpdælustöð við Digranesgötu,
Borgarnesi.
A: Tillaga að breytingu á aðalskipulagi
Borgarbyggðar 1997-2017, Borgarnesi
- breytt landnotkun.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar auglýsir hér með
tillögu að breytingum á aðalskipulagi Borgar-
byggðar 1997-2017 samkvæmt 1. mgr. 21. gr.
skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Í
breytingartillögunni felst að afmarka lóð fyrir
skólpdælustöð við enda Digranesgötu. Stöðin
leysir af hólmi skolpdælustöð sem var við
Digranesgötu 4a. Landnotkun breytist frá því
að vera svæði undir verslun, þjónustu, stofn-
anir og íbúðabyggð í iðnaðarsvæði á fleti sem
nemur stærð lóðarinnar eða 480 m².
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi verður til
sýnis á skrifstofu Borgarbyggðar frá 16. maí ´07
til 14. júní ´07. Frestur til að skila inn athuga-
semdum rennur út 29. júní ´07.
Athugasemdum skal skila inn á Ráðhús Borgar-
byggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi. Hver
sá sem eigi gerir athugasemd við breytingar-
tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur
henni.
B: Tillaga að breyttu deiliskipulagi fyrir
skólpdælustöð við Digranesgötu, Borgar-
nesi, Borgarbyggð.
Í samræmi við 26. gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997 m.s.br. er hér með lýst eftir at-
hugasemdum við ofangreinda skipulagstillögu.
Um er að ræða breytt deiliskipulag nýrrar lóðar
undir skólpdælustöð við enda Digranesgötu í
Borgarnesi. Stöðin leysir af hólmi eldri skólp-
dælustöð er stóð við Digranesgötu 4a.
Tillaga að deiliskipulagsbreytingu verður til
sýnis á skrifstofu Borgarbyggðar frá 16. maí ´07
til 14. júní ´07. Frestur til að skila inn athuga-
semdum rennur út 29. júní ´07.
Athugasemdir við skipulagið skulu vera skrif-
legar og berast til skrifstofu Borgarbyggðar,
Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við breyt-
ingatillöguna fyrir tiltekinn frest til athuga-
semda telst samþykkur þeim.
Borgarnesi, 9. maí ‘07.
Forstöðumaður
framkvæmdasviðs Borgarbyggðar.
Skipulagsauglýsing,
Borgarbyggð
Tillaga á breytingu á aðalskipulagi
Borgarbyggðar 1997-2017, Borgarnesi og
tillaga að deiliskipulagslagi fyrir
skólpdælustöð í Garðavík, Borgarnesi.
A: Tillaga að breytingu á aðalskipulagi
Borgarbyggðar 1997-2017, Borgarnesi
- breytt landnotkun.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar auglýsir hér með
tillögu að breytingum á aðalskipulagi Borgar-
byggðar 1997-2017 samkvæmt 1. mgr. 21. gr.
skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Í
breytingartillögunni felst að afmarka lóð fyrir
skólpdælustöð við enda götunnar Garðavík og
breyta landnotkun frá því að vera almennt
útivistarsvæði í iðnaðarsvæði á fleti sem nem-
ur stærð lóðarinnar eða 291 m².
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi verður til
sýnis á skrifstofu Borgarbyggðar frá 16. maí ´07
til 14. júní ´07. Frestur til að skila inn athuga-
semdum rennur út 29. júní ´07.
Athugasemdum skal skila inn á Ráðhús Borgar-
byggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi. Hver
sá sem eigi gerir athugasemd við breytingar-
tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur
henni.
B: Tillaga að deiliskipulagi fyrir skólp-
dælustöð í Garðavík, Borgarnesi, Borgar-
byggð.
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997 m.s.br. er hér með lýst eftir at-
hugasemdum við ofangreinda skipulagstillögu.
Um er að ræða deiliskipulag lóðar undir skólp-
dælustöð við enda götunnar Garðavík í Borgar-
nesi.
Tillaga að deiliskipulagi verður til sýnis á skrif-
stofu Borgarbyggðar frá 16. maí ´07 til 14. júní
´07. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur
út 29. júní ´07.
Athugasemdir við skipulagið skulu vera skrif-
legar og berast til skrifstofu Borgarbyggðar,
Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við breyt-
ingatillöguna fyrir tiltekinn frest til athuga-
semda telst samþykkur þeim.
Borgarnesi, 9. maí.
Forstöðumaður
framkvæmdasviðs Borgarbyggðar.
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi
Sveitarfélagsins Garðs 1998-2018 fyrir
syðsta hluta sveitarfélagsins að Helguvík
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs auglýsir hér
með kynningu á tillögu að breytingu á Aðal-
skipulagi Sveitarfélagsins Garðs 1998–2018,
samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997 m.s.br.
Breytingin á aðalskipulagi nær til 958 ha
svæðis. Í breytingunni felst að stór hluti svæðis
sem áður féll undir varnarsvæði og Aðalskipu-
lag Keflavíkurflugvallar 2005-2025 verður að
svæði í Sveitarfélaginu Garði. Skilgreint er
iðnaðarsvæði, afmarkað er þynningarsvæði
vegna starfsemi álvers, gerð grein fyrir orku-
öflun og afmörkuð lega raflína og skilgreindar
takmarkanir á landnýtingu vegna ofangreindra
breytinga.
Tillagan ásamt umhverfisskýrslu liggur frammi
á bæjarskrifstofum Sveitarfélagsins Garðs,
Melbraut 3, frá 16. maí 2007 til og með 27. júní
2007. Hún er einnig aðgengileg á heimasíðu
Garðs, www.svgardur.is. Þeim sem telja sig
eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að
gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að
skila inn athugasemdum rennur út miðviku-
daginn 27. júní. Skila skal athugasemdum á
bæjarskrifstofur Sveitarfélagsins Garðs og
skulu þær vera skriflegar og undirritaðar. Þeir
sem eigi gera athugasemdir við tillöguna innan
tilskilins frests teljast samþykkir henni.
Samhliða eru auglýstar breytingar á Aðal-
skipulagi Reykjanesbæjar 1995-2015 og Aðal-
skipulagi Keflavíkurflugvallar 2005-2025.
Bæjarstjóri.
Félagsstarf
Skyggnilýsingarfundur með
Þórhalli Guðmundssyni verður
haldinn í Góðtemplarahúsinu
fimmtudaginn 17. maí og
hefst hann kl. 20.30.
Aðgöngumiðar verða seldir í
anddyri Góðtemplarahússins
fyrir fundinn frá kl. 19.30-20.30 á
meðan húsrúm leyfir. Miðaverð
er 1.200 kr. fyrir félagsmenn en
1.500 kr. fyrir aðra.
Stjórn Sálarrannsóknar-
félagsins í Hafnarfirði.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Raðauglýsingar 569 1100
Raðauglýsingar
sími
569 1100
Eldri borgarar Hafnarfirði
Föstudaginn 11 maí var spilað á
13 borðum.
Meðalskor var 312. Úrslit urðu
þessi.
N/S
Rafn Kristjánss. – Oliver Kristóferss. 397
Ragnar Björnsson – Gísli Víglundsson 388
Jóhann Benediktss.– Pétur Antonsson 344
Oddur Jóhannss. – Eyjólfur Ólafsson 328
A/V
Anton Jónsson – Ingimundur Jónss. 360
Jens Karlsson – Steinmóður Einarss. 358
Sverrir Gunnarss. – Einar Markússon 358
Ingólfur Þórarinss. – Sigfús Jóhannss. 345
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði Stangarhyl mánud. 14. maí
Spilað var á 10 borðum.
Árangur N-S.
Magnús Oddss. - Sæmundur Björnsson 260
Ólafur Ingvarsson - Skarphéðinn Lýðss. 249
Alda Hansen - Jón Lárusson 236
A/V:
Albert Þorsteinss. - Bragi Björnsson 248
Siguróli Jóhannss. - Sigurður Jóhannss. 240
Guðbjörn Axelsson - Gunnar Jónsson 232
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði Stangarhyl fimmtud. 10. maí
Spilað var á 11 borðum.
Árangur N-S.
Magnús Oddsson – Sæmundur Björnss. 264
Jóhannes Guðmanns. – Unnar Guðmss. 249
Jóhann Lútherss. – Þorsteinn Sveinss. 239
Árangur A-V.
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 267
Helgi Hallgrímss. – Jón Hallgrímss. 241
Bjarni Ásmundss. – Þröstur Sveinsson 237
Meðalskor 216 stig.
Gullsmárabrids komið
í sumarfrí
Bridsdeild FEBK í Gullsmára
spilaði tvímenning á 11 borðum
fimmtudaginn 14. maí. Miðlungur
220.
Efst NS
Eysteinn Einarss. – Jón Stefánsson 299
Sigtr. Ellertss. – Þorsteinn Laufdal 257
Leifur Kr. Jóhanness. – Guðm. Magnúss.242
Guðrún Gestsd. – Bragi V. Björnsson 236
Efst AV
Páll Ólason – Sigurður Njálsson 273
Ármann Lárusson – Óli Gíslason 248
Stefanía Pálsdóttir – Sverrir Lúthersson
245
Karl Gunnarss. – Gunnar Sigurbjss. 240
Þetta var síðasti spiladagur deild-
arinnar á þessu vori. Deildin hefur
starfsemi að nýju með haustinu.
Bridsfólk hefur þó aðstöðu til að
taka í spil alla virka daga í félags-
heimilinu í Gullsmára 13.
Skráning í Bikarkeppni
Briddssambandsins hafin
Bikarkeppni Briddssambandsins
fer að venju fram í sumar og skrán-
ing er þegar hafin. Upplagt að skrá
sig á vefsíðu BSÍ eða í síma 587-
9360. Keppnisgjald er 4.000 krónur á
umferð. Dregið í fyrstu umferðina á
Kjördæmamótinu á Ísafirði helgina
19.–20. maí. Skráningarfrestur er til
klukkan 17:00 fimmtudaginn 17.
maí.
Frestur til að ljúka umferðum er
þannig:
1. umferð 23. júní
2. umferð 21. júlí
3. umferð 18. ágúst
4. umferð 16. september
Undanúrslit og úrslit verða svo
spiluð 22.–23. september.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
ODDASTEFNA, árleg ráðstefna
Oddafélagsins, samtaka áhuga-
manna um endurreisn fræðaseturs
að Odda á Rangárvöllum, verður
að þessu sinni haldin í nýstofnuðu
Heklusetri að Leirubakka í Land-
sveit, Rangárþingi, laugardaginn
19. maí, kl. 13 – 17. Ráðstefnu-
stjóri Oddastefnu í ár verður sr.
Guðbjörg Arnardóttir í Odda, rit-
ari Oddafélagsins.
Fyrirlestrar hefjast klukkan 13.
Árni Daníel Júlíusson sagnfræð-
ingur fjallar um líklega útbreiðsla
skóga á Íslandi á tímabilinu frá 12.
öld til 15. aldar, Hreinn Óskarsson
skógfræðingur greinir frá Heklu-
skógaverkefninu, erindi Þórs Jak-
obssonar veðurfræðings nefnist
Mörk á Landi, blómatími, eyðing
og vísir að endurreisn.
Klukkan 14.30 segir Valgerður
Kr. Brynjólfsdóttir á Leirubakka,
íslenskufræðingur, forstöðumaður
Hekluseturs, frá nýstofnuðu
Heklusetri. Eftir kaffiveitingar og
skoðun á Heklusetri les Guðrún S.
Gísladóttir leikkona upp að eigin
vali.
Klukkan 16 flytur Eiríkur Þor-
móðsson cand.mag. fyrirlesturinn
„Tveir annálar kenndir við Odda“
og fyrirlestur Sigurðar Sigurðar-
sonar dýralæknis nefnist „Er fjár-
kláðinn úr sögunni? Sögulegt yf-
irlit.“ Ráðstefnuslit eru áætluð um
kl. 17. Að Oddastefnu lokinni verð-
ur Oddastefnugestum boðið í
heimleiðinni að leggja leið sína
slóðina upp Baðsheiði og heim-
sækja sér til fróðleiks Mörk á
Landi.
Oddastefna að
Leirubakka
FRÉTTIR