Morgunblaðið - 16.05.2007, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 16.05.2007, Blaðsíða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÉG HELD AÐ ÉG BYRJI AÐ SKRIFA JÓLAKORTIN SNEMMA Í ÁR ÉG TRÚÐI MÉR EKKI HELDUR VILTU KOMA Í KAPP AÐ SÓFANUM? ÞAÐ ER GOTT AÐ LÍÐA VEL ÞEGAR MAÐUR VAKNAR Á MORGNANA DAUÐA- DÆMDUR AÐ VITA AÐ ÞRÁTT FYRIR AÐ ÞAÐ SÉ SNJÓR Á JÖRÐINNI OG FREKAR KALT ÚTI ÞÁ ER LÍFIÐ GOTT OG MAÐUR SJÁLFUR ER ... ÞAÐ LÍTUR ÚT FYRIR AÐ HANN HAFI FENGIÐ PESTINA SEM ER AÐ GANGA... EKKERT ALVARLEGT HAFÐU BARA AUGA MEÐ HONUM OG LÁTTU MIG VITA EF HANN ER EKKI ORÐINN BETRI EFTIR NOKKRA DAGA ÉG GERI ÞAÐ BLESS KALVIN! ÞÚ VARST GÓÐUR SJÚKLINGUR Í DAG MM SMÁ HITI SKRÚFAR ALLTAF NIÐUR Í KRÖKKUM ÉG VIL SAMT FREKAR HAFA HANN Á FULLU Í SKÓLANUM ÞETTA ER EINI TÍMI ÁRSINS SEM MIG LANGAR TIL ÞESS AÐ VERA Í „NÍU TIL FIMM VINNU“ NÚ? ÉG FÆ ALDREI AÐ FARA JÓLAGLÖGG MEÐ VINNUNNI VIÐ ÆTTUM EKKERT AÐ VERA AÐ FIKTA Í SJÓRNTÆKJUNUM... VIÐ GÆTUM SPRUNGIÐ VIÐ FLUGTAK! HVAÐA TÆKJUM? ÞAÐ EINA SEM ÉG ÞARF AÐ SEGJA ER, ÁFRAM RÚDÓLF! LALLI, HVAÐ Á ÉG AÐ GEFA ÞÉR Á LJÓSA- HÁTÍÐINNI ADDA... ÉG HEF VERIÐ AÐ SPÁ... ÉG VEIT AÐ VIÐ GEFUM KRÖKKUNUM GJAFIR, EN ÞURFUM VIÐ VIRKILEGA AÐ GEFA HVORU ÖÐRU EITTHVAÐ? SVARIÐ ER „JÁ“? HVERNIG SPURN- ING VAR ÞETTA? ÉG HELD AÐ ÞESSI MAÐUR HAFI TEKIÐ TÖSKUNA MÍNA NEI, ÞARNA ER TASKAN MÍN ÞAÐ LÍTA ALLAR TÖSKUR ÚT EINS ÞESSA DAGANA ÞAÐ ER RÉTT PETER! dagbók|velvakandi Láglaunabærinn Akureyri ÞAÐ er gott að búa á Akureyri, fyr- ir alla, eða hvað? Jú, ef þú sættir þig við að þurfa sennilega að fara þegar námi er lokið. Sama sem engin störf er að fá svo leita verður annað. Þeg- ar launin eru rædd þá er svar við því: „Þú verður að athuga að þú býrð á láglaunasvæði, hærri laun eru bara annars staðar.“ Mér virðist svo vera að flóttinn frá bænum stafi af algjöru metnaðarleysi. Það getur verið vegna launa eða lítils fram- boðs af störfum. Ég vil sjá fleiri og stærri verslanir byggðar, gott væri að nota Akureyrarvöllinn í það. Hann er besti grasvöllur landsins og eitt fallegasta vallarsvæðið að margra mati. Þegar liðin spiluðu í efstu deild fannst aðkomuliðunum þau vera komin á teppið. Þeim fannst völlurinn sem sagt mjög góð- ur, sá besti. Akureyrarkirkja, Menntaskólinn, Hlíðarfjall og íþróttavöllurinn hafa verið að- alsmerki Akureyrar í mörg ár, að ógleymdu ÚA (sem reyndar er búið að selja), og síðan bættist Háskólinn við. Ég vil sjá fleiri skóla í bænum, það yrði best fyrir uppbyggingu bæjarins. KEA, þegar það var og hét, hélt öllu og öllum í láglauna- stefnu. Það var því gott að Sam- bandið fór, þá var von um að eitt- hvað breyttist. En ekkert gerðist í þá átt að launin hækkuðu. Svo eru allir hissa að það sé ekkert líf í mið- bænum, á Glerártorgi, eða ann- arsstaðar. Matsölusölustaðir blómstra þó. Ekki er það vegna íbúa Akureyrar, heldur vegna utanbæj- arfólksins sem hefur efni á að koma til Akureyrar og njóta þess sem bærinn hefur upp á að bjóða. Flestir Akureyringar eru bara heima, vegna þess að þeir hafa ekki efni á þeim munaði að fara út að borða og njóta þess sem til er í bænum. Einn- ig vegna þreytu eftir þá löngu vinnuviku sem þeir þurfa að vinna til að hafa í sig og á. Hvað er til ráða? Hærri laun, meiri metnaður hjá fyrirtækjunum; að þau sjái sér hag í að borga starfsmönnum hærri laun. Einnig að segja að Akureyri sé góður bær á öllum sviðum. Hvetjum fyrirtæki, háskólalærða sem og ófaglærða, til að rísa upp saman og gera bæinn áhugaverðari og hvetj- andi til að búa í fyrir alla. Agnea Tryggvadóttir, Frostafold 75, Reykjavík. Járnskúlptúr tapaðist ÞESSI járnskúlptúr, 35 cm í þver- mál, merktur höfundi, hvarf þar sem hann hékk á vegg í fjölbýlishúsi í Breiðholti sl. föstudag. Þeir sem kunna að hafa rekist á verk þetta góðfúslega hafi samband í síma 587 1820 eða 861 1820. Gári í óskilum LJÓSBLÁR gári flaug upp á sval- irnar hjá okkur á Reynimel. Honum líður vel, en ef einhver kannast við hann væri gott ef eigandinn hefði samband við okkur í síma 562 8339 eða 899 0875. Gallajakki fannst BARNAGALLAJAKKI fannst í Mjósundi í Hafnafirði í síðustu viku. Eigandi hafi samband við Ernu í síma 690 1553. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is STJÓRN RARIK ohf. hefur ákveð- ið að leggja 20 milljónir króna í fyr- irtækið Orkuvörð ehf. sem nýtast á til stofnunar orkuskóla á Akureyri. Er þátttakan í tilefni af 60 ára af- mæli RARIK og er stærsta sam- félagslega verkefni sem RARIK hefur tekið þátt í. Orkuvörður ehf. hefur það eina hlutverk að stofna og reka sérhæfð- an háskóla á sviði endurnýjanlegra orkugjafa, School for Renewable Energy. Mikil þekking er nú þegar fyrir hendi á sviði endurnýjanlegra orkugjafa á Íslandi og með stofnun orkuskólans er tryggt að landið verði áfram í forystuhlutverki í heiminum á sviði endurnýjanlegrar orku. Undirbúningur að stofnun orku- skóla á Akureyri hefur staðið frá árinu 2004. Stefnt er að því að bjóða upp á B.Sc.-nám í orkufræðum ásamt eins árs meistaranámi. Gert er ráð fyrir að skólinn hefji starf- semi haustið 2007. Styrkur Tryggvi Þór Haraldsson, forstj. RARIK, afhendir Benedikt Sig- urðarsyni skjal sem staðfestir 20 m. kr. framlag RARIK til Orkuvarðar hf. RARIK tekur þátt í stofnun orkuskóla TILVALIÐ er að hjóla í og úr vinnu þegar veðrið er gott. Þessar konur hjól- uðu strandlengjuna á Seltjarnarnesi, sér til skemmtunar og heilsubótar. Hjólað í blíðunni Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.