Morgunblaðið - 18.05.2007, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
TA KTU STJÓRNINA
Í ÞÍNAR HENDUR!
ÞÚ B ERÐ ÁBYRGÐ Á EI GI N LÍFI !
Listin að stjórna eigin lífi fjallar um
sjálfsstjórn í verki og byggir meðal
annars á fjölbreyttri þekkingu á
tilfinningagreind, þ.e. hæfileikanum til
að bera kennsl á, skilja, bregðast við og
stýra tilfinningum sínum með það fyrir
augum að nýta þær til að skapa það líf
sem maður vill lifa.
BÓKIN HJÁLPAR ÞÉR AÐ:
KYNNAST SJÁLFUM ÞÉR BETUR OG
UPPGÖTVA STYRKLEIKA ÞÍNA
SKILGREINA OG YFIRSTÍGA HINDRANIR
BÆTA SAMSKIPTAHÆFNI ÞÍNA OG
LEIÐTOGAHÆFILEIKA
HVETJA SJÁLFAN ÞIG
OG AÐRA ÁFRAM
TAKAST Á VIÐ
STREITU OG
ÖÐLAST
SÁLARRÓ
Eftir Gunnar Báll Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
ELDUR braust út í haug af dekkj-
um og ýmiss konar rusli á geymslu-
svæði Hringrásar við Krossanes á
Akureyri í gær. Þykkur reykur barst
frá haugnum en engum varð meint af
sökum hagstæðrar vindáttar.
Eldsins varð vart laust upp úr
klukkan þrjú í gær og var allt tiltækt
lið Slökkviliðsins á Akureyri sent á
staðinn. Hafði því tekist að ná tökum
á eldinum um klukkustund eftir að
tilkynningar hófu að berast. Að sögn
Þorbjörns Haraldssonar slökkviliðs-
stjóra þurfti að dæla vatni úr sjó hátt
í kílómetra leið til að ráða niðurlög-
um eldsins. „Okkur tókst tiltölulega
fljótt að stöðva útbreiðsluna og halda
þessu afmörkuðu,“ sagði Þorbjörn í
samtali við Morgunblaðið í gær. Um
35 slökkviliðsmenn unnuað slökkvi-
starfinu en starfsmenn Hringrásar
voru þeim til aðstoðar. Segir Þor-
björn að eldurinn hafi blossað upp
öðru hverju en ljóst var í gær að
slökkvistarf myndi dragast fram eft-
ir nóttu. Í gærkvöldi voru starfs-
menn Hringrásar í óðaönn við að
færa brennandi dekkin úr haugnum
til að slökkviliðsmenn ættu auðveld-
ara með að athafna sig og til að
minnka hauginn.
Þykkan svartan reyk lagði af
haugnum en hagstæð vindátt gerði
það að verkum að hann stóð hátt upp
og út Eyjafjörðinn í stað þess að
leggjast yfir bæinn. Enginn varð fyr-
ir eitrun sökum reyksins en slökkvi-
liðið hafði gætur á vindáttinni.
„Reykurinn lagðist yfir örfáa bæi í
nágrenninu en var þá orðinn það út-
þynntur að það var innan hættu-
marka.“ Eiginlegt tjón er talið lítið
þar sem eldsmaturinn var einungis
rusl.
Síðar um daginn gáfu þrír ungir
piltar sig fram við lögreglu og við-
urkenndu að hafa verið að fikta með
eld og þannig valdið brunanum.
Ljósmynd/Einar Guðmann
Reykmökkur Þykkan reyk lagði upp af dekkjahaugnum en engum varð meint af þar sem vindátt var hagstæð.
Eldur á geymslusvæði
Hringrásar á Akureyri
Þykkan reyk lagði frá dekkjahaugnum í átt frá bænum
Í HNOTSKURN
» Eldsins varð vart laustupp úr klukkan þrjú í gær.
» Slökkvilið hafði náð tök-um á eldinum um klukku-
stund síðar þótt gert væri ráð
fyrir að slökkvistarf drægist
fram eftir nóttu.
» Sökum hagstæðrar vind-áttar bar eitraðan reykinn
út fjörðinn í stað þess að leggj-
ast yfir byggð.
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
MIÐSTJÓRN Alþýðusambands Ís-
lands (ASÍ) hefur samþykkt nýja at-
vinnustefnu sem verið hefur í mótun
í nokkur ár. Framkvæmdastjóri ASÍ
segir mikilvægt
að Ísland bæti
samkeppnisstöðu
sína á alþjóða-
vettvangi.
Gylfi Arn-
björnsson, fram-
kvæmdastjóri
ASÍ, segir að at-
vinnustefnan taki
á málum eins og
hvernig skynsam-
legt sé að nýta náttúruauðlindir,
jafnt í sjávarútvegi, landbúnaði og
orkufrekum iðnaði. „Einnig er þar
fjallað um mikilvægi nýsköpunar í
þekkingariðnaði. Í raun má segja að
forsenda alls þessa sé jafnvægi á
hagkerfinu og það kemur því í raun
ekki á óvart að skynsamleg hag-
stjórn er stór hluti stefnu og kröfu
ASÍ.“ Miklu skipti fyrir launafólk að
Ísland haldi samkeppnisstöðu meðal
ríkja heims en hún hafi dalað upp á
síðkastið. „Á undanförnum misser-
um höfum við verið að draga fram
ýmsa þætti sem við teljum að séu
veikleikar íslenska hagkerfisins. Þar
er jafnvægis- og stöðugleikaleysið
grundvallaratriði.“ Hann bendir á að
hverfull gjaldmiðill sé einnig áhrifa-
þáttur í því að erlendir fjárfestir hafi
minni áhuga á að koma hingað en
þeir innlendu hugsi sér til hreyfings.
Spurður hvort ASÍ leggist gegn
frekari uppbyggingu stóriðju segir
Gylfi svo ekki vera. „ASÍ hefur alltaf
verið þeirrar skoðunar að auðlindir
eigi að nýta en það eigi að gera út frá
langtímaáætlunum. Við höfum alltaf
sagt að það sé mikilvægt að tíma-
setja stóriðjuverkefni þannig að þau
eyðileggi ekki stöðugleika hagkerf-
isins. Við vöruðum við því að Kára-
hnjúkavirkjun gæti endað með
ósköpum og við teljum að hér sé
komið í mikið óefni í efnahagsmálum
enda hefur samkeppnishæfi landsins
minnkað.“
Gylfi bendir jafnframt á að ASÍ
hafi haft þá stefnu að semja með
ábyrgum hætti við vinnuveitendur
og sú stefna sé til lítils ef efnahags-
stefna stjórnvalda sé ekki ábyrg.
Stöðugleiki sé forsenda þess að sam-
keppnishæfi landsins haldist.
„Ef okkur tekst að koma á ábyrgri
efnahagsstjórnun þá getum við
fóstrað nýsköpunina og komið fleiri
tækifærum að. Atvinnustefna okkar
gengur því út frá stöðugleika sem
forsendu.“
ASÍ mótar nýja
atvinnustefnu
Telur samkeppnishæfi landsins afar
mikilvægt fyrir almenna launþega
Gylfi Arnbjörnsson
Í HNOTSKURN
» Miðstjórn ASÍ hefur sam-þykkt nýja atvinnustefnu
sem rædd hefur verið undan-
farið.
» Framkvæmdastjóri ASÍ seg-ir óstöðugleika í efnahags-
málum skemma samkeppnis-
stöðu Íslands.
» Mikilvægt sé að efla almennamenntun og nýsköpun.
» ASÍ sé ekki á móti nýtingunáttúruauðlinda til stóriðju
en slík nýting þurfi að byggjast á
langtímaáætlunum.
HILMAR Konráðsson, forstjóri
verktakafyrirtækisins Magna, segir
dapurlegt að óánægja fólks í Mos-
fellsbæ komi fram í skemmdarverk-
um á eigum fyrirtækisins og segir að
menn hjá því hafi engan áhuga á því
að eiga í stríði við íbúa Álafosskvos-
arinnar. Hilmar segir að þær fram-
kvæmdir sem nú standi yfir í kvos-
inni tengist ekki sjálfri tengibraut-
inni heldur séu nauðsynlegar svo
hægt sé að hefja uppbyggingu á nýju
hverfi.
Varmársamtökin sendu í dag frá
sér tilkynningu þar sem sagði að
verktakinn hefði í gærmorgun byrj-
að að leggja veg fyrir aftan gamla
verksmiðjuhúsið meðfram Varmá í
átt að Álafossi. Segja samtökin að
virðingarleysi gagnvart íbúum og
umhverfi virðist sér engin takmörk
eiga. Engin tilkynning hafi borist frá
bæjaryfirvöldum um þessar fyrir-
ætlanir til íbúa. Háværar vinnuvélar
hljómi nú á frídegi í eyrum lang-
þreyttra íbúa.
Hilmar segir að þótt hætt yrði við
tengibrautina umdeildu breyti það
ekki því að leggja verði holræsi, raf-
magn, vatn og annað og engin önnur
leið sé fær en að leggja lagnirnar um
kvosina. Þá segir hann að m.a. sé
verið að endurnýja skólplagnir í Ála-
fosskvosinni.
Sást til mannaferða
Hilmar segir ekki rétt að verið sé
að leggja veg en óumflýjanlegt sé að
leggja slóða við framkvæmdirnar til
að koma efni að og frá. Venjan sé svo
að verksummerki séu fjarlægð með
því að taka efni og fylla yfir með
mold og sá svo grasi.
Um skemmdarverkin sem unnin
voru á vinnuvélum fyrirtækisins að-
faranótt miðvikudag segir Hilmar að
íbúar í Brekkulandi hafi séð til
mannaferða um klukkan fjögur um-
ræddan morgun. Hefur fyrirtækið
heitið 200.000 krónum þeim sem
veitt getur upplýsingar um þá sem
frömdu skemmdarverkin.
Morgunblaðið/RAX
Skemmdir Verktakafyrirtækið varð fyrir verulegu fjárhagslegu tjóni.
Hafa ekki áhuga
á stríði við íbúa