Morgunblaðið - 18.05.2007, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
AMERÍSKI saxófónleikarinn
og rapparinn Luther Thomas
og íslenski saxófónleikarinn
Matthías V. Baldursson halda
tónleika á Domo bar, Þing-
holtsstræti 5, í kvöld, föstu-
dagskvöldið 18. maí, kl. 23.
Með þeim félögum spila:
Eddi Lár á gítar, Egill Ant-
onsson á hljómborð, Ingólfur
Magnússon á bassa og Jón
Óskar Jónsson á trommur.
Fönk, dans og stuð er þema kvöldsins og því um
að gera að skella sér á Domo og fá sér snúning.
MySpace síða Matthíasar er: www.myspace.-
com/mattisax.
Tónleikar
Fönk, dans og stuð
er þema kvöldsins
Leikið verður á
saxófón.
EGILL Árni Pálsson ten-
órsöngvari og Kristinn Örn
Kristinsson píanóleikari halda
einsöngstónleika í Langholts-
kirkju í Reykjavík í kvöld kl.
20. Egill Árni er söngnemandi
við Söngskólann í Reykjavík og
eru tónleikarnir þáttur í út-
skrift hans.
Á efnisskránni eru m.a. aríur
frá árdögum ítalskar óperu, ís-
lenskir tenórsöngvar eftir Sig-
valda Kaldalóns og Sigurð Þórðarson, ljóða-
söngvar eftir Wilhelm Peterson-Berger og
Richard Strauss og aríur úr óperum og óperettum
eftir Verdi, Puccini og Lehár. Aðgangur ókeypis.
Tónleikar
Aríur frá árdögum
ítalskrar óperu
Kristinn Örn
Kristinsson
ÁRLEGIR vortónleikar
Skátakórsins fara að þessu
sinni fram í Grensáskirkju á
morgun, laugardaginn 19. maí,
og hefjast kl. 16.
Tónleikadagskráin sam-
anstendur af íslenskum þjóð-
og ættjarðarlögum, ensku létt-
meti og íslenskum skátalög-
um. Auk tónleikadagskrár
Skátakórsins, undir stjórn
Margrétar Sigurðardóttur, verða gestir hvattir
til þátttöku í fjöldasöng við gítarundirleik og
skátar úr Kópum í Kópavogi munu flytja
skemmtiatriði.
Miðaverð er 1.000 kr.
Tónleikar
Vortónleikar Skáta-
kórsins á morgun
Hluti Skátakórsins.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
ÞAÐ ER til leikhópur sem leikur á
bullmáli, hann er kominn hingað til
lands og verður með sýningar í
Borgarleikhúsinu um helgina. Leik-
hópurinn nefnist Jo Strömgren
Kompani og hefur það að markmiði
að sameina leikhús og dans.
„Þetta er sýning sem er á milli
dans, leikhúss og ég veit ekki hvers.
Það er erfitt að skilgreina verk okk-
ar, við ferðumst mikið og þegar fólk
hrífst af þessu hvert sem við förum
finn ég ekki þörf til að skilgreina
það sem við gerum,“ segir Jo Ström-
gren, stofnandi leikhópsins, og einn
þekktasti dansleikhúshöfundur
Norðurlanda.
Strömgren segir sérstöðu hópsins
vera abstrakt tungumál sem talað er
í hverri sýningu. Hann byrjaði að
nota málið í sýningarnar því honum
fannst svo erfitt að ferðast með leik-
hússýningar milli landa vegna
tungumálaörðugleika. „Ég fór að
nota tungumál eins og við notum í
dansinum þar sem við túlkum til-
finningar með hreyfingunum og það
hefur opnað fleiri dyr fyrir okkur en
lokað. Það er hljómfallið í bullmál-
inu og hreyfingarnar sem fylgja sem
segja meira en mörg orð ef svo má
segja,“ segir Strömgren og hlær.
Verkið sem leikhópurinn sýnir
hér á landi heitir Spítalinn og fjallar
um þrjár hjúkrunarkonur sem bíða
eftir að sjúklingur birtist á spít-
alanum, en þar eru sjúklingar sjald-
séðir.
Leikhópurinn notar íslensku sem
fyrirmynd í Spítalanum og er tónlist
eftir Hauk Morthens notuð í sýning-
unni.
„Í hverri sýningu notum við alvö-
rutungumál sem grunninn að bull-
málinu og alltaf nýtt mál í hvert
skipti. Við höfum sett upp um fimm-
tán sýningar á þennan hátt hingað
til og nú í Spítalanum notum við ís-
lensku sem grunninn. Við höfum
ferðast með verkið til sautján landa
og erum nú stressuð yfir því að
koma til Íslands þaðan sem tungu-
málið kemur, erum hrædd við við-
brögðin um leið og við hlökkum til,“
segir Strömgren og flissar um leið.
Spítalinn verður sýndur 18., 19.
og 20. maí í Borgarleikhúsinu.
Jo Strömgren Kompani með þrjár sýningar í Borgarleikhúsinu um helgina
Íslenska grunnur
að bullmáli
Í HNOTSKURN
» Jo Strömgren Kompani varstofnað í Noregi árið 1998 og
var markmiðið sett á að sameina
leikhús og dans.
» Strömgren hefur starfaðmeð Íslenska dansflokknum
við verkið Kraak og er aftur von
á honum til landsins í haust til
starfa hjá Borgarleikhúsinu.
» Spítalinn og var saminn 1995í Ríga.
» www.jskompani.no.
VERKIÐ Spítalinn, sem Jo Strömgren Kompani sýnir hér um helgina, fjallar
um þrjár hjúkrunarkonur sem bíða eftir að sjúklingur birtist á spítalanum.
Íslenskt tungumál er grunnurinn að bullmálinu sem talað er í þessu leik-
verki sem er blanda af dansi og leikhúsi. Tónlist eftir Hauk Morthens er einn-
ig leikin í verkinu og segir Strömgren hann vera í miklu uppáhaldi.
Beðið eftir sjúklingi
MÁLVERKIÐ Grænt bílslys, eftir
listamanninn Andy Warhol seldist á
71,7 milljónir Bandaríkjadala, eða
rúma 4,5 milljarða íslenskra króna
hjá uppboðshaldaranum Christies í
New York, og hefur verk eftir lista-
manninn aldrei selst áður fyrir svo
háa upphæð.
Málverkið sýnir logandi bíl á
hvolfi en Warhol málaði það árið
1963.
Önnur mynd eftir Warhol, Le-
mon Marilyn, eða ,,sítrónu Marilyn,
seldist á 28 milljónir dala, eða sem
svarar 1,7 milljörðum króna.
Met var einnig sett hjá sjálfum
uppboðshaldaranum, en verk fyrir
385 milljónir dala seldust á uppboð-
inu þar sem verk eftir m.a. Damien
Hirst, Jasper Johns, Gerhard Richt-
er og Donald Judd voru boðin upp.
Grænt
bílslys á
metupphæð
Verk Andy Warhol fór
á 4,5 milljarða kr.
Sítróna Verkið Lemon Marilyn eft-
ir Andy Warhol.
Menningarvitinn vill rifja upp og árétta eftir-farandi. Menning samtímans er margsag(n)a. Engin einn sannleikur er ráðandi og
orðræðan er flæðandi. Hnattvæðingin hefur ýtt und-
ir og raunar upphafið samræðu ólíkra sjónarhorna,
bæði þjóða, þjóðarbrota og einstakra hópa og ein-
staklinga á öllum sviðum mannlífsins. Margir telja
að þetta sé lykillinn að umburðarlyndi og skilningi
en aðrir sakna hinna skýru lína og telja ástandið ein-
kennast af botnlausri fjölhyggju sem leiði til ringul-
reiðar og róttækrar afstæðishyggju.
Í listum hefur þessi áhersla á samræðu birst meðýmsum hætti. Kannski eru augljósustu áhrifin í
endurnýjuðum og auknum áhuga á jaðarsvæðum
listheimsins. Íslendingar hafa notið góðs af þessu
ekki síður en önnur svæði sem hingað til hafa verið
nánast afskipt í vestrænni og hingað til einrænni
miðjunni.
En samræðan birtist einnig með skýrum hætti ífagurfræði. Í stað afmarkandi skilgreininga á
list, formi hennar og efni, er komið fjölrása kerfi þar
sem allt er leyfilegt eins og klisjan segir. Ein af meg-
inbreytingunum er þó kannski sú að hið alltumlykj-
andi sjálf listamannsins, sem þótti merkingarmiðja
hvers verks, hefur vikið. Listin gerist nú ekki síður
innra með áhorfandanum. Um leið hafa margar áður
stíflaðar flóðgáttir verið opnaðar. Viðfangsefni list-
arinnar er þannig ekki endilega efni og form heldur
samspil eða samræða verks við umhverfi sitt í víðum
skilningi. Og í stað þess að verkið segi eina sögu,
einsögu, þá er það hlutur, eða ekki hlutur, sem skap-
ar óteljandi möguleika, sagnaflóð; hvert verk er
margsaga um stað og stund.
Í samræðumenningu samtímans felst viðurkenningá því að sérhver texti, sérhvert hugtak hefur orð-
ið til í samspili við aðra texta, önnur hugtök. Til þess
að skapa nýjan texta og nýja þekkingu verður sam-
ræðan að halda áfram. Um það fjallar Listahátíð í
Reykjavík kannski umfram allt.
Um hvað fjallar hátíðin?
MENNINGARVITINN
Þröstur Helgason
vitinn.blog.is
„ÉG sá Cymbeline eftir William
Shakespeare í flutningi leikhópsins
Cheek by Jowl og fannst það frá-
bært. Það er æðislega gaman að fá
svona sýningu hingað til lands. Mér
fannst mjög heillandi að sjá þeirra
efnistök og tækni og hvernig hóp-
urinn nálgast þetta gamla leikverk
eftir Shakespeare, svo ég hafði
gaman af,“ segir Tinna Gunnlaugs-
dóttir Þjóðleikhússtjóri um það sem
hún hefur séð á Listahátíð í Reykja-
vík.
„Ég er líka búin að sjá frönsku
trúðasýninguna Les Kunzt. Þannig
að annars vegar hef ég séð
skemmtileg trúðslæti og svo hins-
vegar hárnákvæma og fína leik-
húsvinnu hjá þessum Bretum í
Cheek by Jowl,“ segir Tinna og
bætir við að svo auðvitað hafi hún
kíkt á Risessunna og föður hennar
Risann.
Hvernig var?
Tinna Gunnlaugsdóttir Þjóðleikhús-
stjóri sá Cymbeline eftir Shakespeare
Tinna Gunnlaugsdóttir
♦♦♦
Dagskráin í dag
Viröld fláa – ópera eftir Haf-
liða Hallgrímsson í flutningi Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands. Hljóm-
sveitarstjóri: André de Ridder. Í
Háskólabíói kl. 19.30.
San Francisco-ballettinn
3. sýning í Borgarleikhúsi kl. 20.
Cymbeline eftir William
Shakespeare. 4. sýning Cheek by
Jowl í Þjóðleikhúsinu kl. 20.
Gyðjan í vélinni – viðburður
í varðskipi. 4. sýning í varðskipinu
Óðni kl. 20.
Listahátíð í Reykjavík
TENGLAR
................................
listir.blog.is
www.listahatid.is