Morgunblaðið - 18.05.2007, Blaðsíða 44
Ég kann vel við Grob-
an. Mér er sama hvort
hann er að leika þetta eða
ekki, bros hans og fas allt
orkar vel á mig … 47
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„ÞAÐ ER í raun fáránlegt til þess að
hugsa að slíkt gallerí hafi ekki verið
hérlendis áður,“ segir Ragnar Ax-
elsson um ljósmyndagalleríið Fótóg-
rafí sem verður opnað á morgun.
„Reyndar er staða ljósmyndunar
sem listgreinar á Íslandi ekki sér-
lega góð, hún er á miklu hærra plani
alls staðar annars staðar í heim-
inum. Viðhorfið til ljósmyndunar hér
er furðulegt og hefur verið í gegnum
tíðina og kannski er það okkur ljós-
myndurum líka að kenna að hafa
ekki breytt því, en ég finn fyrir við-
horfsbreytingu í dag og ég spái því
að innan ekki margra ára verði dýr-
asta myndverk Íslendinga ljós-
mynd,“ segir Ragnar sem vill ekki
spá um það hvort það verði hans eig-
in mynd.
Nokkuð er síðan Ragnar hélt sein-
ast sýningu hér á landi en seinast
sýndi hann í Þýskalandi. „Ég er
núna að vinna hægt og rólega að
risasýningu sem ég ætla að halda er-
lendis einhvern tímann í nánustu
framtíð. Ég hef ekki getað fylgt
þeirri athygli sem ég hef fengið að
utan nægilega eftir svo nú er kominn
tími til þess.“
Sýningin sem Ragnar ríður á vað-
ið með í hinu nýja galleríi nefnist
Kuldi en þar mun hann sýna tólf litl-
ar vetrarmyndir.
„Þetta eru myndir héðan og þaðan
af kulda og snjó. Ég hugsaði nú út í
það að það væri kannski furðulegt að
sýna vetrarmyndir þegar sumarið er
á næsta leiti en fannst það síðan
bara fyndið, það er að koma sumar
en ég sýni bara kulda og leiðindi. Ég
er líka að vísa til þess að nú þegar
hitastig fer hækkandi vegna gróður-
húsaáhrifanna verði þessi kuldi ekki
alltaf til staðar, ég er að hugsa langt
fram í tímann með því að safna
heimildum um veturinn,“ segir
Ragnar.
Í Fótógrafí verða myndir til sölu í
takmörkuðu upplagi eftir rúmlega
tuttugu af færustu ljósmyndurum
landsins. Einnig verða til sölu nýjar
og gamlar ljósmyndabækur sem og
ýmisleg hönnunarvara sem byggist
á ljósmyndinni. Í sérstökum sýning-
arsal verður svo opnuð ný einkasýn-
ing í hverjum mánuði og eins og áð-
ur segir er það Ragnar sem ríður á
vaðið en eftir honum er von á sýn-
ingum frá ekki minni mönnum en
Páli Stefánssyni og Árna Sæberg.
„Ari kom til tals við mig og bauð
mér að opna galleríið og ég greip
það fegins hendi enda fagna ég
þessu framtaki hans innilega.“
Spurður hvort hann telji nóg af ljós-
myndurum á Íslandi til að halda úti
slíku galleríi þar sem skipt er um
sýningu á mánaðar fresti stendur
ekki á svari hjá Ragnari. „Já já, það
eru margir mjög góðir og það er
mikill áhugi á ljósmyndun alls staðar
og þá sérstaklega hjá ungu fólki, ég
finn fyrir því þegar ég ferðast um
landið og á fyrirspurnum sem ég
fæ.“
Morgunblaðið/ÞÖK
Kuldi Hinn kunni ljósmyndari Ragnar Axelsson, sem er oft betur þekktur undir nafninu Raxi, sýnir vetrarmyndir í Fótógrafíu, nýju ljósmyndagalleríi á Skólavörðustígnum.
Tekur á móti sumri með kulda
Einn þekktasti ljós-
myndari þjóðarinnar
Ragnar Axelsson, Raxi,
opnar sýningu á nokkr-
um köldum ljósmynd-
um í nýju ljósmynda-
galleríi á Skólavörðu-
stíg 4a á morgun. Ari
Sigvaldason rekur gall-
eríið sem er hið fyrsta
sinnar tegundar hér.
Fótógrafí verður opið alla daga
vikunnar. Frá 12 til 18 á virkum
dögum og frá 10 til 16 um helgar.
ÚRSLIT í Töku 2007, kvikmyndasamkeppni
grunnskólanna í Reykjavík, voru tilkynnt í
Tjarnarbíói á miðvikudaginn um leið og verð-
launamyndirnar voru sýndar. Alls bárust sex-
tíu myndir í keppnina en hátt í þrjú hundruð
nemendur í sautján grunnskólum skiluðu
myndum, þar af 26 leiknum stuttmyndum, og
hafa aldrei fleiri myndir keppt til verðlauna á
þessari hátíð.
Dómnefnd valdi bestu myndirnar í þremur
flokkum og fengu höfundar þeirra Klapptréð
til eignar. Verðlaun voru veitt í tveimur ald-
ursflokkum, 12 ára og yngri og 13 ára og
eldri og einnig fengu bestu leikarar í karl- og
kvenhlutverkum verðlaun.
Í flokki leikinna stuttmynda vann Voga-
skóli í eldri flokki með Chocolate Au Lait og í
yngri flokki Hlíðaskóli með myndina Ég er að
verða brjáluð. Bestu leikarar voru valdir:
Jörundur Jörundsson, Eva Brá Axelsdóttir,
Bjarni Þ. Sivertsen og leikhópurinn í heild
sinni frá Hlíðaskóla.
Sigurður S. Sigurgeirsson, nemandi í
Borgaskóla sigraði eldri flokk hreyfimynda
með teiknimyndinni Leynilöggan en nem-
endur í Suðurhlíðarskóla sigruðu yngri
flokkinn með Space Wars.
Í flokki heimildamynda sigraði myndin
Þingvallavatn eftir nemendur í Laugarnes-
skóla.
Grunnskólanemar
keppast um klapptréð
Ljósmynd/Marteinn Sigurgeirsson
Sigur Vinningshafar á Kvikmyndahátíð grunnskólanna í Reykjavík samankomnir á sviði
Tjarnarbíós þar sem sigurmyndirnar voru sýndar á miðvikudaginn við góðar undirtektir.