Morgunblaðið - 18.05.2007, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 18.05.2007, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2007 51 Sunlight T58 kr 5.790.000. Sunlight T63 kr 5.990.000 Langbestu verðin á landinu, takmarkað magn. Seljum sýnishorn með afslætti Með loftkælingu, Rafdrifnar rúður og speglar, CD spilari, Stöðuleikatjakkar, Toppgrind og stigi, skriðstillir, Þýsk gæða vara Nýjung Sunlight Húsbílar Nýjung Hobbyhúsið opnunartími Dugguvogi 12 mán-föst 10.00-18.00 104 Reykjavík laugard 13.00-17.00 S: 517 7040 sunnud 13.00-16.00 Verð frá 4.990.000. www.hobbyhusid.is. . opið í dag frá 13.00-16.00 f . . . V r fr 4.990.000.. . . SAVE THE DOG (Sjónvarpið kl. 20.10) Stúlka grípur til allra hugsanlegra ráða til að öngla saman fyrir lífs- nauðsynlegri aðgerð fyrir hann voffa sinn. Fjölskylduvæn Disney-mynd frá 9. áratugnum með Randall og sjónvarpsstjörnunni Williams í góðu formi og góðum skilningi á vin- áttuböndum manns og hunds.  SWEET NOVEMBER (Sjónvarpið kl. 23.20) Afleit og óraunsæ vella um hroka- gikk og dauðvona fegurðardís sem gerir úr honum mann. Leikstjórinn O’Connor hefur ekki séð til sólar frá því hann lauk við hina minnisstæðu Cal.  LOVE DON’T COST A THING (Stöð 2 kl. 22.00) Ástir í gaggó. Endurgerð Can’t Buy Me Love, sem var hvorki fugl né fisk- ur, sannfærir ekki áhorfandann að hún eigi framhaldslíf skilið. BEYOND BORDERS (Stöð 2 kl. 23.40) Myndin á að lýsa þjáningum fórn- arlamba styrjalda sem eru oftar en ekki þau sem síst skyldi: börn, gam- almenni og almennir borgarar. Það veitir sannarlega ekki af slíkum ábendingum en umfjöllunin er með ótrúverðugum hollívúddblæ.  THE EDGE (Stöð 2 kl. 01.45) Milljónamæringur og tískuljósmynd- ari lenda í flugslysi í Alaska og beita sameiginlega ráðum til að ná aftur til byggða. Berjast við óblíð veður, hrikalega náttúru og, að lokum, hvor annan. Vanmetin mynd, vel leikin, með forvitnilegri hliðarsögu.  THE BIG BOUNCE (Stöð 2 bíó kl. 18.00) Tveir auðnuleysingjar, smákrimmi og brimbrettakjói, standa frammi fyrir gamalkunnri siðfræðispurn- ingu. Fátt um svör. THE GIRL NEXT DOOR (Stöð 2 bíó kl. 20.00) Fyrirmyndarnemandi sem stefnir á forsetaembættið fellur fyrir nýja ná- grannanum sem reynist klámmynda- stjarna. Óvenjuleg efnislega, fyndin og fyndin ekki. FÖSTUDAGSBÍÓ Sæbjörn Valdimarsson MEN IN BLACK (Sjónvarpið kl. 21.45) Ógeðslegar geimverur eru að leggja undir sig jörðina, eina von mannkyns er svartklæddu leynilöggurnar, Jones og Smith. Skrýtin en nokkuð skemmtileg vísindaskáld- sögusatíra. Nokkur atriði drep- fyndin, það besta með vágestinn D’Onofrio við matarborðið: „Sjáðu mig núna …!“  HÓTELERFINGINN Paris Hilton mun aðeins afplána helminginn af 45 daga fangelsisvistinni sem hún var dæmd til. Hilton, sem var dæmd fyrir að keyra án ökuleyfis, mun ekki verða innan um almenna fanga. Hún mun sitja inni í a.m.k. 23 daga, í sér- stakri álmu. „Parísi mun vegna vel ef hún fylgir reglunum. Sá möguleiki að hún geti valsað inn og út úr fangels- inu er ekki inn í myndinni. Hún mun sitja inni þann tíma sem hún er dæmd til, mínus 22 daga vegna góðrar hegðunar. En við munum koma fram við hana eins og hvern annan fanga,“ sagði lögreglukona sem að málinu vinnur. Í álmunni sem París mun dvelja í eru tólf tveggja manna klefar fyrir hærra sett fólk í þjóðfélaginu. Hún mun þurfa að eyða einum klukku- tíma á dag utan klefans til að fara í sturtu, hringja eða horfa á sjón- varp. París á að mæta í afplánun 5. júní næstkomandi. Móðir Parísar kom fram í sjón- varpi nýlega þar sem hún sagðist vona að ungt fólk lærði af þessum mistökum dóttur sinnar. Reuters París afplánar helminginn Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „ÞAÐ VAR leitað til okkar og við beðnir um að gera tónlistarverk í kringum My Market,“ segir Darri Lorenzen myndlistarmaður sem gaf nýlega út mynddisk með átta klukkustunda samfelldu tónlistar- efni ásamt félaga sínum Yngve Ho- len. Darri býr í Berlín og það var International Festival, sem er hópur myndlistarfólks, sem stóð að úti- markaðnum My Market síðastliðinn laugardag þar í borg. „Ég og Yngve kölluðum verkefnið Big 8. Við ákváðum að þema disksins sem og titill hans ætti að vera In Love With the Supermarket og fengum síðan allskonar tónlist- armenn og plötusnúða, um tuttugu talsins, til að gera mix með þetta þema í huga. Við tókum síðan öll mixin og gerðum úr þeim eina heild, þannig að diskurinn er ein átta klukkustundar runa,“ segir Darri en bætir síðan við eftir smáumhugsun að diskurinn sé í rauninni níu og hálf klukkustund. „Þetta áttu að vera átta tímar, þess vegna heitum við Big 8, en við vorum komnir með svo mikið efni að við gátum ekki skorið það meira niður,“ segir hann og hlær en hann og Yngve hafa í hyggju að gefa út fleiri svipaða mynddiska í framtíðinni undir nafninu Big 8. Darri og Yngve fengu síðan Guð- finnu Mjöll Magnúsdóttur til að hanna útlit disksins. Aðeins fimm hundruð eintök voru gerð og verður eitthvað af þeim til sölu í völdum plötubúðum hérlendis. „Á markaðnum á laugardaginn var síðan útgáfupartí In Love With the Supermarket um leið og hann hljómaði sem bakgrunnstónlist markaðsins. Þetta gekk vel hjá okk- ur en það versta var að veðrið var brjálað, alveg hellirigning, svo það var hætt fyrr en áætlað var og við náðum ekki að spila allan diskinn,“ segir Darri og hljómar æðrulaus yfir þessu öllu saman. Darri og Yngve eru Big 8 Ást á stórmarkaði www.international-festival.org www.myspace.com/mymarket www.darrilorenzen.net Diskurinn Umslagið af In Love With The Supermarket. HLJÓMSVEITIN Á móti sól með Magna Rock Star-stjörnu í far- arbroddi ætlar að trylla gesti Gauks á Stöng í kvöld, föstudags- kvöld. Drengirnir lofa víst þrus- ustuði þar sem gömlu lögin fá að heyrast sem og rokk og ról enda Gaukur á Stöng kominn með eitt öflugasta hljóðkerfi landsins. Gaukur á Stöng verður opnaður nýr og endurbættur og staðnum til hróss er hann reyklaus. Á móti sól á Gauk á Stöng Morgunblaðið/Eggert Töff Magni verður örugglega flott- ur á sviði Gauksins. GYÐJAN í vélinni hefur verið sýnd við frábærar viðtökur í Varðskipinu Óðni, frumsýnt var hinn 10. maí í tengslum við Listahátíð í Reykjavík. Ekki voru margar sýningar áætlaðar, en nú eru aðeins 2 sýningar eftir; í kvöld, föstudaginn 18. maí, og allra síðasta sýning er áætluð á morgun, laug- ardaginn 19. maí. Allar sýningarnar hefjast kl. 20. Miðasala fer fram hjá Listahátíð í síma 561 2444 og á vef listahátíðar, www.listahatid.is. Þetta er einstakur listviðburður sem vert er að sjá. Tvær sýningar eftir Morgunblaðið/ÞÖK Gjörningur Gyðjan í vélinni er sýnt í varðskipinu Óðni. Fáðu sms-fréttir í símann þinn af mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.