Morgunblaðið - 18.05.2007, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 18.05.2007, Blaðsíða 52
FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 138. DAGUR ÁRSINS 2007 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Ný ríkisstjórn  Geir H. Haarde mun biðjast lausnar fyrir ráðuneyti sitt í dag jafnframt því að óska eftir áfram- haldandi umboði til viðræðna við Samfylkingu. » Forsíða Gangsetningu seinkar  Þar sem tafir verða á afhendingu rafmagns frá Kárahnjúkavirkjun mun Alcoa Fjarðaál seinka gang- setningu álversins við Reyðarfjörð. Hugsanlegt er að raforka verði til mótvægis afhent hraðar. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvort fjárhags- tjón verður vegna tafanna. » Baksíða Eldur á Akureyri  Allt tiltækt slökkvilið á Akureyri var kallað að geymslusvæði Hring- rásar þar sem eldur logaði í dekkj- um og ýmiss konar rusli. Þrír ungir drengir hafa viðurkennt að vera valdir að brunanum. » 8 Atvinnustefna ASÍ  Ný atvinnustefna ASÍ tekur m.a. á því hvernig skynsamlegt er að nýta náttúruauðlindir. Forsenda stefnunnar er stöðugleiki í efnahags- málum. » 8 SKOÐANIR» Ljósvaki: Ástralskur markvörður Staksteinar: Framsókn utan stjórnar Forystugrein: Opin staða UMRÆÐAN» Söfnin og menningararfurinn Stórhuga bruni? Ósk um spámennsku Raunhæf og vistvæn lausn 200 hestöfl á lítra Haldið upp á 100 ára afmæli Innri hjöruliður í framhásingu Mótorhjólajálkar í ralli BÍLAR » Heitast 12 °C | Kaldast 3 °C NA 8-13 m/s en sums staðar heldur hvassari. Bjartviðri fyrir sunnan og vestan, annars skýjað. » 10 Birta Björnsdóttir sá myndina Zodiac. Stjörnurnar svöruðu spurningum á blaða- mannafundi eftir sýninguna. » 48 KVIKMYNDIR» Stjörnurnar í Cannes HREYFIMYNDIR» Sigurður Skúli er aðals- maður vikunnar. » 49 Ragnar Axelsson fagnar sumarkomu með opnun sýningar á köldum ljósmynd- um í Fótografíu á Skólavörðustíg. » 44 LJÓSMYNDIR» RAX í Fótógrafíu TÓNLEIKAR» Josh Groban snart Arnar Eggert Thoroddsen. » 47 TÓNLIST» Darri og Yngve hafa ást á stórmarkaði. » 51 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Stelpurnar í Nylon slá alla út 2. Ekki grundvöllur … 3. Lögregla lýsir eftir konu 4. Ingibjörg Sólrún: VG vildi ekki … SÝNING San Francisco-ball- ettsins á verkum Helga Tómasson- ar, listræns stjórnanda flokksins, stóð fyllilega undir væntingum að mati Margrétar J. Gísladóttur, dansgagnrýnanda Morgunblaðsins. „Í heildina hafa dansverk Helga hreinan dansstíl og fágaðar hreyf- ingar. Hann notar einfaldar hreyf- ingar á móti flóknum, hægt á móti hröðu, þannig að ávallt er um and- stæður að ræða. Samvinna dansar- anna í tvídönsum er unun á að horfa,“ segir Margrét m.a. í dómn- um. Hún segir sýningu kvöldsins hafa sýnt afburðahæfa dansara, dansara sem hafa ástríðu fyrir því að dansa. Enn eru eftir þrjár sýningar San Francisco-ballettsins hérlendis. | 17 Frábær ballett- sýning Ástríða í San Franc- isco-ballettinum Helgi Tómasson „HÉRNA, prófaðu aðgerðarhnífinn,“ gæti hinn vask- legi veiðimaður með hattinn hafa sagt við félaga sinn, rétt eftir að þeir komu í höfn í Vestmannaeyjum. Sjóstangaveiði nýtur sívaxandi vinsælda enda gefst í henni tækifæri til útiveru og hóflegrar hreyfingar. Herramennirnir stóðu fagmannlega að verki þó að sumir virtust hálfskelkaðir við tilhugsunina um að hafa hönd á slorinu. Ljósmynd/Sigurgeir Jónasson Ekki er sopið kálið … Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is ALCOA Fjarðaál mun seinka gangsetningu ál- versins á Reyðarfirði vegna tafa á afhendingu raf- orku frá Kárahnjúkavirkjun. Að sögn Sigurðar Arnalds, upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar vegna Kárahnjúkavirkjunar, er talið að afhending geti hafist í ágúst eða þremur mánuðum á eftir áætlun. Stefnt er að því að gagnsetningu álversins ljúki um næstu áramót, að sögn Tómasar Más Sig- urðssonar, forstjóra Alcoa Fjarðaáls. „Þetta seinkar öllu hjá okkur,“ sagði Tómas. „Við höfum átt góða samvinnu við Landsvirkjun og fylgst vel með framgangi mála hjá þeim. Þetta þýðir að við seinkum hráefnisförmum og einnig örlítið mannaráðningum og framkvæmdahraða, en ekki mikið, svo áætlanir okkar falli að þeirri raforku sem þeir geta afhent.“ Seinkun á manna- ráðningum snertir aðeins fáar stöður, að sögn Tómasar. Alcoa Fjarðaál fær nú allt að 100 MW raforku frá Landsvirkjun um Byggðalínu. Með þeirri orku er hægt að reka allt að 40 ker en þessi orka er ekki tryggð nema yfir sumarið, að sögn Tómasar. „Við þurfum að tryggja að við þurfum ekki að slökkva á kerum þegar þessi orka fer að minnka í haust,“ sagði Tómas. Nú eru starfrækt átta ker á Reyðar- firði. Prófunum á þeim verður haldið áfram enn um skeið við lágmarksálag. Stefnt er að gangsetn- ingu fleiri kera á næstunni. Það eru einkum tafir við göngin sem valda því að ekki er hægt að hleypa vatni á vélar virkjunar- innar. Tómas sagði erfitt að segja, að svo stöddu, hver heildaráhrif seinkunar á afhendingu raforku yrðu á gangsetningu álversins. Á móti seinkuninni kemur að hugsanlega verður raforkan afhent hraðar en gert var ráð fyrir þegar á ferlið líður. Það gerir hugsanlega kleift að auka gangsetning- arhraðann á síðari stigum. Tómas sagði þetta vera nú til skoðunar. Hann vildi ekki tjá sig um hvort seinkunin ylli fyrirtækinu fjárhagslegu tjóni. Seinka gangsetningu Ljóst er orðið að gangsetning Kárahnjúkavirkjunar tefst um a.m.k. þrjá mánuði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.