Morgunblaðið - 18.05.2007, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.05.2007, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN VITLEYSAN ríður ekki við ein- teyming þegar stjórnvöld vilja leysa umferðarvanda Reykjavíkur. Mesta umfjöllun fær núna sú hug- mynd að grafa vandann alveg eða setja sumar götur í stokk en gleyma snjó og skafrenningi. Þá vilja menn leggja mislæg gatna- mót ofanjarðar og neðan sem flytur bara umferðatappana á nýjan stað og allt þetta skapar afar slæmar slysagildrur neðanjarðar. Þessi aðferð dregur úr há- vaða en eyðir alls ekki svifryki, tjöru, sóti, koldíoxíði og köfnunarefnisoxíðum. Þetta er uppsafnað fyrirhyggjuleysi margra áratuga og þessi lausn er heimskulegri en svo að nokkru tali taki og kostar auk þess morð fjár í það óendanlega. Tvær einfaldar leiðir má nefna til lausnar á umferðarvanda Reykjavíkur. Íhugum fyrst hug- mynd, sem er að vísu byggð á slitnu slagorði í borgarmálunum, en skoðum hugmyndina samt fræðilega. Það er „þétting byggð- ar“ þ.e. að reisa ný stórhýsi fram- an við byggð sem komin er. Tök- um nú skrefið til fulls og leysum í einu stökki umferðarvandann, mengunarmálið og bílastæðaþörf- ina, án þess að loka á útsýni fyrir öðrum. Frank Lloyd Wright teiknaði fyrir 50 árum mílu háan turn fyrir Chicagóborg en hann var að vísu ekki reistur. Hugsum okkur samt slíkan turn reistan á Lækjartorgi fyrir svo sem 50 þúsund íbúa. Öll lóðavandamál hverfa, allir sem vilja geta búið í „miðborginni“, þurfa ekki bíl og njóta stórkostlegs út- sýnis. Rafdrifnar lyft- ur skjótast upp og niður innan turnsins. Á strætum borg- arinnar verður iðandi mannlíf, pöbbar og götukaffistaðir. Raunhæf og vist- væn lausn á umferð- arvandanum er hins vegar allt önnur. Við leggjum ein- faldlega Frank–Lloyd–Wright– turninn á hliðina, lengjum hann líkt og skugga kvöldsólarinnar. Turninn nær þá vítt um Reykjavík þannig að hann er næstum kominn heim til fólks. Lyftuopin verða að láréttum göngum, ýmist neð- anjarðar eða yfirbyggð, og lyft- urnar mætti nefna rafdrifnar létt- brautir á spori auk þess sem hraðinn er aukinn. Hæðum turnsins verður fækkað verulega og nefnast núna braut- arstöðvar. Þeim verður dreift m.t.t. stærstu vinnustaða og íbúð- arsvæða eftir aðstæðum, skutlu- bússar tengja brautarstöðvarnar við næsta nágrenni. Ferðatíðni léttbrautanna ætti að vera 5-10 mínútur að degi til. Við þessar aðstæður býr fólk bara heima hjá sér í vist- vænu umhverfi með görðum eða opnum svæðum og getur átt sína bíla. Til lengri innanbæjarferða bjóðast tveir nýir kostir. Taka skutluna að og frá brautarstöð eða aka þangað og geta lagt í bíla- stæði, enda gengur enginn fulltíða maður lengur. Bílastæðum verður þannig dreift um borgina. Strætisvagnar sem um þessar mundir aka saman í hópum milli fjarlægra borgarhluta verða óþarf- ir en núna aka um 10 vagnar í halarófu á leiðinni Lækjartorg- Grensás og um 6 á leiðinni Grens- ás-Ártún. Allt það kerfi má ein- falda verulega. Hvað svo um kostnað og fjár- mögnun? Lausleg kostnaðar- og rekstraráætlun sem tekur mið af áður fyrirhugaðri Keflavíkurlest sýnir að þetta er raunhæf fram- kvæmd. Eðlilegt væri að ríkið, Vegagerðin, stæði að þessu máli ásamt borginni á sama hátt og þessir aðilar sjá um vegakerfið. Til þess að draga úr mengandi umferð og hvetja fólk til þess að endurskoða ferðamáta sinn mætti íhuga að taka upp vegatoll á Miklubraut og öðrum götum þar sem umferð er orðin óeðlilega þung enda væri nú kominn annar kostur. Þetta skapar einnig tekju- stofn og er m.a. gert í London með sjálfvirku kerfi. Þeir sem spara vilja tollinn geta átt þess kost að aka aðrar leiðir. Á strætum miðborgarinnar út frá brautarstöðinni á Lækjartorgi verður núna iðandi mannlíf, pöbb- ar og götukaffistaðir. Þessum hugmyndum, sem ýmsir hafa tæpt á áður, fylgir hvorki krafa um höfundarétt né vinnu við útfærslu eins og tíðkast hjá ýms- um aðilum sem hafa kynnt stór- kostlegar hugmyndir um mann- virkjagerð eða kostnaðarsamar landfyllingar fyrir strandbyggð. Núna er einfaldlega kominn tími til raunhæfra og vistvænna að- gerða í umferðamálunum. Að síðustu verður ekki hjá því komist að nefna í þessu samhengi hugmyndina um varnargarð í mynni Skerjafjarðar og þurrkun hans, 2.300 ha, sem er mjög ódýr framkvæmd *. Með því skapast ýmsir möguleikar til að rýma fyrir umferð til suðurs frá miðborginni, ný útivistarsvæði opnast, auk þess að öll sveitarfélög við Skerjafjörð verða varin fyrir flóðahættu. * http://brunnur.rt.is/bk Raunhæf og vistvæn lausn á umferðarvanda Reykjavíkur Björn Kristinsson leysir hér umferðarvandann í höfuðborginni » Tökum nú skrefið tilfulls og leysum í einu stökki umferð- arvandann, meng- unarmálið og bílastæða- þörfina, án þess að loka á útsýni fyrir öðrum. Björn Kristinsson Höfundur var prófessor í verkfræði. HVAÐA hugmyndir skulu ráða þegar byggt verður upp í Austur- stræti? Þetta var sú spurning sem velt var upp á vel heppnuðu íbúaþingi sem borgarstjóri efndi til síðastliðinn miðviku- dag. Þar fluttu fimm frummælendur ræður og viðruðu skoðanir sínar með glöggum og skýrum hætti. Þó end- urómaði útvarp og Moggi nær eingöngu orð Björgólfs Guð- mundssonar daginn eftir eins og hann hafi staðið þar á eintali með stóra sannleik málsins á vörunum. Því fór fjarri og fyrir því eru einfaldar ástæður. Á reitnum standa fáein hús öll einstök og sögu- leg með sínu móti og sum þeirra friðuð. Þar er fyrsti skrúðgarður á Íslandi enn til staðar. Aðeins eitt þessara húsa skaðaðist verulega í eldinum það var sögusvið Jörundar hunda- dagakonungs, Austurstræti 22. Reit- urinn er því engan veginn laus til ný- bygginga nema ofan á eldinn bætist niðurrif friðaðra húsa. Hér er því á ferðinni einstakt tækifæri til að gera sögu Reykjavíkur og bygginga- arfleifð þau skil sem þessi reitur í hjarta borgarinnar hefur fyrir löngu átt skilið. Með því móti að hann geti orðið umgjörð um lifandi og eft- irsóknarvert mannlíf. Tækifærin sem Björgólfur vill með réttu koma að í borginni standa hon- um og öðrum athafnamönnum opin og hafa staðið alveg frá 1970 þegar byrjað var að ryðja lóðirnar sem næstar eru verðandi höfuðstöðvum Landsbankans. Þessar lóðir hafa staðið auðar í áratugi hátt í 40 ár þær elstu. Íslensk byggingararfleifð er ekki og hefur aldrei verið þröskuldur í uppbyggingu borgarinnar. En hug- myndarskortur um hvernig fara megi með hefur helst verið vanda- málið. Við þurfum ekki að velja milli nútímabyggingarlistar og sögunnar. Eins og Björgólfur veit best sjálfur er ímynd fyrirtækis þess dýrasta eign. Sögulegar byggingar eru mikið verðmæti fyrir ímynd Reykjavíkur og stór hluti af sjálfsmynd borg- arbúa. Gildi sögulegra bygginga í þessu samhengi má sjá til dæmis á því að Björgólfur Thors var til í að greiða 600 milljónir fyrir hús sem Seðlabankinn ætlaði einu sinni að rífa. Hvernig borg hefði Reykjavík orðið án Frí- kirkjuvegar 11? Hvern- ig borg hefði Reykjavík orðið án Höfða? Báðum þessum húsum forðaði borgin frá niðurrifi. Get- ur einhver slegið tölu á verðgildi þeirrar ímyndasköpunar sem þessi hús hafa boðið Reykjavík upp á. Vegna arðbærrar sölu ýmissa eldri bygg- inga síðustu misseri svo sem Fríkirkjuvegar 11 og Tjarnargötu – sem og lóðar við Laugaveg ætti fasteignasjóður borgarinnar að vera í stakk búinn til að takast á við það verk sem nú stendur fyrir dyrum við Austurstræti. En Ís- lenskir fjárfestar mættu einnig sýna sína betri hlið. Með erindi Björgólfs voru vaktir upp gamlir draugar frá skipulaginu 1962. Það er merkilegt að í umræðu um gömul hús og upp- byggingu þá virðast orðin stórhugur og dirfska helst tengjast orðunum að rífa og brjóta. Að rýma fyrir nýju sem svo er alveg undir hælinn lagt hvort nokkurn tíma komi. Við Regent street í London standa fjárfestar að uppbyggingu þessi misserin og verja til þess 500 millj- ónum punda (63 milljarðar ísl. kr.) Sá stórhugur snýst um að gera Regent street að einstakri verslunargötu. Viðskiptahugmyndin snýst um að nýta einstaka ímynd og sögu göt- unnar með því að gera upp gömlu húsin, halda utan um það sem ekki finnst annars staðar og endurnýja annað. Má vera að þetta sé sú viðskipta- hugsun sem fjárfestar og kaupmenn í Reykjavík eru nú að missa af. Þeir hafa í raun hugsað of stutt og of smátt. Mun fólk frekar sækja í mið- borgina ef það finnur þar sömu „moll- stemninguna“ og annars staðar í borginni. Á meðan Björgólfur styður niðurrif glæsilegustu timburhúsanna við Laugaveginn (Vínberið og ná- grenni) á Landsbankinn risa stóra lóð, auða, að baki Landsbankanum að Laugavegi 77. Er það með þessum hætti sem við- skipti og menning haldast hönd í hönd? Samanburður við útlönd getur bæði verið villandi og óþarfur. En þau dæmi sem tekin voru á umræddu þingi frá Þrándheimi af Einari B. Malmqvist og sú arkitektúr-teoría sem þeim fylgdi um nútíma timb- urbyggingar eiga við menningar- forsendur í Noregi. Þar brunnu aldamótahús af þeirri gerð sem til eru í þúsunda vís þar úti. Þetta er ágæt kenning svo langt sem hún nær en er sett fram á röngum stað og röngum tíma. Alveg eins mætti nefna dæmi frá Berlín og Dresden þar sem nú eru rifnar bygg- ingar frá 1960-70 til að rýma fyrir endurreisn þeirra sögulegu bygginga sem þar stóðu áður. Eða Potstam þar sem alveg sambærileg hús innrétt- ingar hollenskra iðnaðarmanna taka sambærilegt horn við aðalgötu bæj- arins þar sem önnur hús eru mun stærri. Við þurfum ekki að biðja neinn afsökunar á því að láta okkur þykja vænt um hjarta borgarinnar. Það sama gerir gott fólk í öllum góð- um borgum um allan okkar litla heim. Það sýndi KK svo glöggt með loka- orðum þingsins og söng er hann af- henti Vilhjálmi borgarstjóra eitt þús- und undirskriftir borgarbúa. Stórhuga bruni? Sögulegar byggingar eru mikið verðmæti fyrir ímynd Reykjavíkur segir Snorri F. Hilmarsson Snorri F. Hilmarsson »Hvernigborg hefði Reykjavík orðið án Fríkirkju- vegar 11? Höfundur er formaður Torfusamtakanna. Á NÝLIÐINNI prestastefnu var felld tillaga um hjónavígslu samkyn- hneigðra. Ég er þjóðkirkjuprestur á þeirri skoðun að hugtakið ,,hjón“ feli í sér samband tveggja einstaklinga óháð kyni viðkomandi einstaklinga og því varð ég fyrir von- brigðum með ofan- greinda niðurstöðu. Samt finnst mér fólk vera of neikvætt í garð þjóðkirkjunnar og jafnvel mistúlka nið- urstöðu prestastefn- unnar. Mig langar að skýra málið aðeins nánar. Eitt af aðal- dagskrárefnum prest- aráðstefnunnar var álit kenningarnefndar um þjóðkirkjuna og staðfesta samvist, þ.á.m. drög að formi um blessun staðfestrar samvistar sem voru sam- þykkt. Nýja tillagan sem var felld snérist um ,,hjónavígslu“ pars af sama kyni. Þetta hefur, að mínu mati, ekki verið rætt nægilega innan prestastéttar enn. Og má benda á þá staðreynd að hjúskaparlög, sem sameina hefðbundna merkingu hug- takanna ,,hjónaband“ og ,,staðfesta samvist“ samkynhneigðra í hugtakið ,,hjón“, eru enn ekki mörg í heim- inum. Við höfum dæmi í borg- arlegum lögum frá Hollandi, Spáni og nokkrum fleirum en þá er það upptalið. Mér finnst þess vegna við- brögð, t.d. fjölmiðla, vera dálítið ósanngjörn. Mig langar því til þess að koma sjónarmiðum þjóðkirkj- unnar, og sérstaklega þeirra presta sem hafa unnið að því að þessar breytingar verði að veruleika í ís- lensku kirkjunni, á framfæri. Það sem ég vil er að nálgast málið á dálítið annan hátt. Mér finnst skorta á ,,spámennsku" í þjóðkirkjunni, þ.e. framtíðarsýn hjá for- ystumönnum hennar, eins og t.d. biskupum, próföstum og annars fólks sem er valda- og áhrifamikið innan kirkjunnar. Einu sinni var spá- maður sem hét Móses. Guð lét honum í té það sérverkefni að leiða fólk Ísraels, sem var kúgað í Egyptalandi, þaðan til lands af Kan- an. Móses og konungurinn hittust nokkrum sinnum að máli en Móses beið ekki þar til þeir höfðu komist að fullum sáttum. Móses þorði að fram- kvæma, hann hafði framtíðarsýn og leiddi fólks Ísraels út úr Egypta- landi. Hann verndaði fólkið og bjó til vegi þar sem áður voru engir. Hann komst ekki sjálfur í landið af Kanan en sannarlega leiddi hann fólkið í land þar sem það gat notið frelsis og jafnréttis í ríkara mæli en áður. Þess vegna er Móses kallaður leiðtogi og ómetanlegur spámaður. Er slík spámennska til staðar á meðal leiðtoga íslensku þjóðkirkj- unnar í dag? Ég vil trúa að hún sé til, en hún er almenningi ekki alltaf aug- ljós. Í umræðunni um mál samkyn- hneigðra heyrist oft orðalag eins og ,,skoðanakönnun“, ,,málamiðlun“, ,,eining kirkjunnar“ eða ,,samræmi við aðrar kirkjur í heiminum“, en sjaldnast heyrum við orð leiðtoga eins og: ,,það er köllun kirkjunnar okkar að leiða fólk út úr alls konar kúgun, mismunun eða þrældómi. Nú leggjum við af stað til frelsis. Allir, komið með okkur!“ Ég held að kjarni málsins, sem varðar samkynhneigð, sé ekki tilvist andstæðinga gegn samkynhneigð eða erfiðleika í guðfræðilegri túlkun á Biblíunni, heldur er kjarninn hvort kirkjan vill vera spámaður nútímans eða ekki. Það er spurning um hvort kirkjan er tilbúin í að bjóða samfélaginu í ferð yfir sjó og eyði- merkur eins og Móses fólki Ísraels í þeim tilgangi að leiða það til frelsis í merkingu sem er í samræmi við samfélagsþróunina. Í tilefni af um- ræðu um hjónavígslu samkyn- hneigðra para eigum við í kirkjunni ekki að velta því fyrir okkur hvort við séum búin að týna einhverju mikilvægu sem Guð fól okkur með nafni samfélags Jesú Krists? Einmitt það, að fólk skynjar ekki í hvaða átt þjóðkirkjan stefnir, veldur svo oft misskilningi í garð kirkj- unnar í samfélaginu. Fólk veit ekki hvort kirkjan stefnir til framtíðar eða hvort hún er að hverfa á vit for- tíðar, hvort hún ætlar sér að vera brautryðjandi eða fylgja í kjölfar annarra kirkna í heiminum. Hvert vill þjóðkirkjan okkar stefna? Mér finnst mikilvægara að skýra þetta atriði frekar en önnur ,,tæknileg“ at- riði sem fylgja grunnstefnu. Árið 2005 var hugtakið um hjón sem eru óháð kynjasamsetningu hjónaefna lögfest á Spáni. Það skipti fjölda fólks miklu máli eins og svo oft þegar breytingar verða á lögum eða ný verða til. ,,Við erum ekki að búa til lög fyrir ókunnugt fólk sem býr fjarri okkur. Við búum til lög fyrir nágrannra okkar, vini, sam- starfsfólk og fjölskyldumeðlimi svo þau eigi þess kost að lifa ham- ingjusömu lífi“ sagði Zapatero, for- sætisráðherra Spánar af þessu til- efni. Er það bara ég sem óskar eftir að heyra orð eins og þessi einhvern tímann frá leiðtogum íslensku þjóð- kirkjunnar? Ósk um spámennsku í þjóðkirkjunni Toshiki Toma skrifar um hjónabönd samkynhneigðra »Einmitt það, að fólkskynjar ekki í hvaða átt þjóðkirkjan stefnir, veldur svo oft misskiln- ingi í garð kirkjunnar í samfélaginu. Toshiki Toma Höfundur er prestur innflytjenda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.