Morgunblaðið - 18.05.2007, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 18.05.2007, Blaðsíða 42
42 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR! FRÁ: JÓNI, GRETTI OG ODDA GLEÐILEG JÓL OG FÍNT KOMANDI ÁR! FRÁ JÓNI GLEÐILEG JÓL! FRÁ MÉR HANN ÆTTI AÐ TAKA SÉR PÁSU MIG LANGAR AÐ HLAUPA UNDAN GRÝLU- KERTINU... ÉG ÆTTI AÐ HOPPA ÚT OG HLAUPA EINS OG ÉG GET? EÐA ÆTTI ÉG KANNSKI BARA AÐ BÍÐA HÉRNA ÞAÐ ER ERFITT AÐ VERA FASTUR! MIG LANGAR Í MEIRA RISTAÐ BRAUÐ HERBERGISÞJÓNUSTA! MIKIÐ VARST ÞÚ FLJÓT UPP STIGANN! ÞÚ FERÐ Í SKÓLANN Á MORGUN HANN BYRJAÐI Á ÞVÍ AÐ FÁ SÉR KEX MILLI MÁLA... SÍÐAN FÓR HANN AÐ FÁ SÉR SAMLOKUR MILLI MÁLA... NÚNA FÆR HANN SÉR MÁLTÍÐIR MILLI MÁLA! GRÍMUR, VIÐ ERUM AÐ FLJÚGA OF LÁGT! FARÐU MEÐ SLEÐANN OFAR! ÉG? ER ÉG AÐ FLJÚGA? HVAÐ VAR ÞETTA? ÉG ER EKKI ALVEG VISS... EN ÉG HELD AÐ ÞETTA HAFI VERIÐ TALANDI PÁFUGL Á GREIN ÉG TRÚI ÞVÍ EKKI AÐ ÞÚ VILJIR EKKI AÐ VIÐ GEFUM HVORU ÖÐRU GJAFIR Í ÁR! ÞAÐ ER ALLTAF SVO ERFITT FYRIR MIG AÐ VERSLA ÉG EYÐI MIKLUM TÍMA Í AÐ REYNA AÐ FINNA GJÖF HANDA ÞÉR OG Á ENDANUM SKIPTIR ÞÚ HENNI BARA EN ÞAÐ ER EKKI MÁLIÐ MEIRA AÐ SEGJA ÞÓ AÐ ÉG SKIPTI GJÖFINNI ÞÁ VEIT ÉG AÐ ÞÚ VARST AÐ HUGSA UM MIG ÞEGAR ÞÚ KEYPTIR HANA ÞANNIG AÐ ÉG GET EKKI GEFIÐ ÞÉR GJAFABRÉF Í ÁR? ÞAÐ ER EKKI ÞAÐ SAMA ÞETTA ER EKKI NÓGU GOTT ÞETTA ER EKKI TASKAN MÍN! ÞAÐ HEFUR EINHVER TEKIÐ TÖSKUNA MÍNA Í MISGRIPUM ÞETTA ER ALLTAF AÐ GERAST... ÉG VONA AÐ ÞÚ FINNIR TÖSKUNA ÞÍNA ÉG LÍKA ! SÉRSTAKLEGA FYRST BÚNINGURINN VAR Í HENNI dagbók|velvakandi Gallað tryggingakerfi TRYGGINGAKERFIÐ okkar er al- veg ótrúlegt. Ég vil taka dæmi: Ég greindist með Parkinsonsveiki 2002 og varð að hætta að vinna. Fékk ég þá 17.754 kr. og borgaði fulla skatta af því. Ég fékk seinna bréf þar sem sagt var að ég skuldaði 358.627 kr. og þá voru teknar af mér 20.000 kr. á mánuði. Þar með voru aftur teknir skattar af því sem var búið að taka skatta af fyrir. Þetta er glórulaust. Mér finnst ég eitthvað svo lítilsmegnuð og þetta rýrir sjálfsálitið, sem ég má ekki við. Ekki langar mig að vera þurfalingur karlsins míns. Auk þess finnst mér óþolandi að skattarnir séu tekju- tengdir manninum mínum. Parkisonssjúklingur. Ósáttir Evróvisjónaðdáendur VIÐ erum tvær systur og erum mjög ósáttar með útsendingu Evró- visjón. Þegar u.þ.b. 10-15 mínútur voru eftir af keppninni var skipt yfir á kosningavökuna og fengum við því ekki að sjá lok Evróvisjón kosning- arinnar og þar af leiðandi ekki vinn- ingslagið. Við héldum að kosninga- vakan yrði aðeins sýnd í auglýsing- um og svo myndi keppnin halda áfram. Svo fannst okkur auglýsing- arnar vera allt of langar. Okkur datt í hug að kveikja á útvarpinu og við stilltum á Rás 2 og þá heyrðist bara fólk að fagna og svo byrjaði konan frá Serbíu að syngja lagið sitt og við fengum ekki einu sinni að sjá atriðið eða lokastöðuna. Þetta er fyrir neð- an allar hellur, að RÚV skyldi ekki sýna lokin þó að Ísland hafi ekki ver- ið með. Það er fullt af fólki sem horf- ir á Evróvisjón þó að Ísland sé ekki með. Við erum skyldug til að borga fyrir að vera með RÚV og þeir eru því einnig skyldugir til að sýna söngvakeppnina. Einnig er fáránlegt að þeir skyldu sýna nýjustu tölur í kosningunum í staðinn fyrir endann á Evróvisjón því að þetta voru ekki einu sinni lokatölur og þeir sem hafa áhuga á kosningunum hefðu alveg geta beðið í korter eftir þessum fyrstu tölum. Við erum mjög ósáttar við þetta og skiljum ekki af hverju þessu var hagað svona því að RÚV hefur sýnt þessa keppni alveg frá því að hún byrjaði. Einnig erum við mjög ósáttar við niðurstöður úr söngvakeppninni því að Ísland átti svo skilið að komast áfram. Við vorum með mjög gott lag og atriði. Nokkur af lögunum sem komust áfram áttu það alls ekki skil- ið. Keppnin er bara byrjuð að snúast um austantjaldsþjóðirnar og skoðun okkar er sú að keppninni ætti að skipta í tvennt. Norður- og Mið- Evrópa verði saman í einni keppni og Austur-Evrópa í annarri keppni. Ef þetta verður ekki gert á Ísland aldrei möguleika á því að komast upp úr undankeppninni, hvað þá að vinna. Systurnar Arna og Heba. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is HÓPUR barna gekk fram hjá Hallgrímskirkju í skólaferð. Ekki var laust við að sumarfiðringur væri kominn í hópinn. Morgunblaðið/G.Rúnar Kátína FRÉTTIR HJARTAHEILL, landssamtök hjarta- sjúklinga, og Lyfja undirrituðu samstarfs- samning nýlega. Samningurinn veitir félagsmönnum Hjarta- heilla sérkjör á öllum lyfseðilsskyldum lyfj- um auk afsláttar af hjartamagnyli í öllum Lyfju-apótekum ásamt því að þeir verða með- limir í Heilsuklúbbi Lyfju. Gefin verða út sér- stök heilsukort Lyfju til félagsmanna Hjartaheilla sem jafn- framt gilda sem fé- lagsskírteini Hjarta- heilla Samningurinn felur einnig í sér að Lyfja mun sjá til þess að söfnunarbaukar Hjartaheilla verða ávallt staðsettir við alla afgreiðslukassa apó- tekanna ásamt því að fræðslubæklingar sem Hjartaheill gefur út verða aðgengilegir í apótekunum. Nú í maí verða sendir greiðslu- seðlar til félagsmanna Hjartaheilla og munu þeir sem greiða árgjaldið fá sent Heilsukort Lyfju (félagsskír- teini Hjartaheilla) 3–5 dögum síðar. Hægt er að gerast félagsmaður í Hjartaheill með því að senda tölvu- póst á netfangið hjartaheill@hjarta- heill.is eða hringja í síma 552-5744. Samningur Aðalheiður Pálmadóttir, forstöðu- maður verslunar- og markaðssviðs Lyfju, og Ás- geir Þór Árnason, framkvæmdastjóri Hjarta- heilla, landssamtaka hjartasjúklinga. Hjartaheill og Lyfja gera samstarfssamning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.