Morgunblaðið - 18.05.2007, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 18.05.2007, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2007 41 Félagsstarf Árskógar 4 | Kl. 8.15-16 baðþjónusta. Kl. 9-12 opin handavinnustofa. Kl. 9-16.30 opin smíðastofa. Ekki bingó í dag. Næst verður bingó 25. maí (2. og 4. föstudag í mán). Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, almenn handavinna, fótaaðgerð, morgunkaffi/dagblöð, há- degisverður, frjálst að spila í sal, kaffi. Upplýsingar í síma 535 2760. FEBÁ, Álftanesi | Litlakot, föstudaginn 18. maí kl. 13-16. Súpudagur. Setjum upp handverkssýn- inguna sem verður á morgun, laugardag. Fólk beðið að koma með muni til sýningar, einu gildir hvort þeir hafa verið unnir í Litlakoti eða annars staðar. Akstur annast Auður og Lindi, sími 565 0952. Félagsheimilið Gjábakki | Jóga kl. 10.50. Félags- heimilið opið kl. 9-17. Heitt á könnunni. Félagsvist kl. 20.30. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9 vefnaður, kl. 9.30 jóga, kl. 10 ganga, kl. 10.30 leikfimi, kl. 11.40 hádegisverður, kl. 14 bingó FEBK. Aðgangur að göngubretti. Kaffi á könnunni. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatns- leikfimi í Mýri kl. 13. Opið í Garðabergi til kl. 16.30. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9-16.30 vinnustofur opnar. Kl. 10 „Bragakaffi“. Kl. 10.30 létt ganga um nágrennið. Frá hádegi spilasalur opinn. Kóræfing fellur niður í Gerðubergi, mæting í Fella- og Hóla- kirkju kl. 15.30. Uppl. á staðnum og s. 575 7720. Strætisvagnar S4, 12 og 17. Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 9, aðst. við böð- un. Kl. 13.30 verður sýnt myndband um söng og mannlíf í Skagafirði. Kaffiveitingar kl. 15. Allir vel- komnir. Hraunbær 105 | Kl. 9-12.30 handavinna. Kl. 9 bað- þjónusta. Kl. 12-12.30 hádegismatur. Kl. 14.45 bókabíllinn. Kl. 15 kaffi. Ekkert bingó í dag. Hand- verkssýning um helgina, allir velkomnir. Hraunsel | Engin dagskrá í húsinu vegna uppsetn- ingar á handverksýningu og munum skilað fyrir hádegi. Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl. 9-12, postulínsmálning. Jóga kl. 9-11, Björg F. Hársnyrt- ing. Hæðargarður 31 | Listasmiðja, framsögn, trésmíð- ar, leikfimi, myndlist, skapandi skrif, félagsvist, bók- menntahópur, tölvuleiðbeiningar, gönguferðir, ljóða- lestur, ljóðagerð, söngur, bútasaumur, morgun- andakt og hugmyndabankinn alltaf opinn. Til hvers langar þig? Kíktu við. S. 568 3132. asdis.skuladott- ir@reykjavik.is. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9.15-14.30 handavinna. Kl. 11.45-12.45 hádegis- verður. Kl. 13.30-14.30 sungið v/flygilinn. Kl. 14.30- 15.45 kaffiveitingar. Kl. 14.30-16 dansað í Aðalsal. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9, leirmótun kl. 9, morgunstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10. Bingó kl. 13.30-14.30 allir velkomnir. Félagsmiðstöðin er opin fyrir alla og engin aldurstakmörk. Uppl. í síma 411 9450. Kirkjustarf Breiðholtskirkja | Fjölskyldumorgunn kl. 10-12. Kaffi, djús og ávextir í boði. Allir velkomnir. dagbók Í dag er föstudagur 18. maí, 138. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Guð sé oss náðugur og blessi oss, hann láti ásjónu sína lýsa meðal vor. (Sálm. 67, 2.) Trausti Valsson, prófessor ískipulagsfræðum við HáskólaÍslands, flytur á morgun,laugardag, fyrirlesturinn Áhrif loftslagsbreytinga á skipulag. Fyrirlesturinn er haldinn í stofu 130 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskólans, og hefst kl. 15. „Fyrirlesturinn byggir á bók sem ég gaf út fyrir síðustu jól sem bar titilinn How the World Will Change – with Global Warming, (Hvernig heimurinn mun breytast með hnattrænni hlýn- un),“ segir Trausti sem heldur fyr- irlesturinn í tilefni af komu hóps hol- lenskra skipulags- og arkitektúrsér- fræðinga hingað til lands undir leið- sögn Jóns Kristinssonar prófessors. „Því er nú spáð að vænta megi tölu- verðra loftslagsbreytinga. Takist ekki að snúa þróuninni við má vænta mikilla breytinga á hvaða svæði í heiminum verða byggileg og hver ekki.“ Athuganir sínar byggir Trausti á rannsóknum veðurfræðinga og nátt- úrufræðinga: „Í stuttu máli sagt verða þau svæði sem nú eru mjög köld, s.s. Ísland, Síbería og N-Kanada byggi- legri en aftur á móti verða suðrænni lönd þar sem þegar er mjög heitt enn heitari og mun samspil hita og skorts á úrkomu gera stór svæði óbyggileg. Þegar má sjá áhrif þessarar þróunar á hjarð- og landbúnaðarsamfélög t.d. við jaðar Saharaeyðimerkurinnar, sem vegna þverrandi landgæða eru að færa bústofna sína annað. Að sama skapi mun t.d. ræktun á maís og hrísgrjónum færast til vatnsríkari svæða,“ segir Trausti. „Ekki verður aðeins um að ræða breytingar á högum þeirra sem byggja lífsviðurværi sitt á náttúrunni heldur má líka gera ráð fyrir að fólk í borgum sæki frekar norður á bóginn, á svalari slóðir. Vitaskuld er um að ræða þróun sem gerist á mjög löngum tíma, en þó má finna vísinn að þessari breyt- ingu í því hvert fólk kýs að ferðast í dag. Þannig voru sumarferðalög í Evrópu áður oft með þeim hætti að fólk í norðurhluta álfunnar ferðaðist suður í hlýjuna, en æ oftar leita íbúar suður- hlutans nú í svalann í norðri þegar sumarhitarnir eru hvað mestir.“ Auk þess að vænta breytinga á bú- setu á hnattrænan mælikvarða spáir Trausti breytingum á skipulagi borga: „Nú þegar er leitast við að gera borgir sem vistvænstar. Einkum er reynt að lágmarka brennslu á kolefnaeldsneyti, þétta byggð og auka notkun vistvænn- ar orku,“ segir Trausti. „Fræðimenn á borð við Jón Kristinsson hafa þegar náð merkilegum árangri í vistvænni borgarbyggingu og sýna stjórnmála- menn núna ríkan áhuga á slíkum verk- efnum. Hefur t.d. Gordon Brown ný- lega lofað að gera fimm borgir vist- vænar í sinni stjórnartíð.“ Fyrirlestur Trausta er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Finna má nánari upplýsingar á www.howtheworldwill- change.com. Skipulagsmál | Fyrirlestur á laugardag um áhrif hnattrænnar hlýnunar Loftslagsbreytingar og skipulag  Trausti Valsson fæddist 1946. Hann lauk Dipl. Ing.-gráðu frá TU í V-Berlín 1972 og doktorsgráðu í skipulagsfræði frá Kaliforníuháskóla Berkeley 1987. Trausti hefur starfað við skipulagsmál, rannsóknir og kennslu. Hann hefur ritað fjölda greina og bóka um skipulagsmál. Hann er prófessor við Háskóla Íslands og á tvær dætur og tvo dætrasyni, Kristófer og Brimar. Dans Básinn | Hið árlega og sívinsæla Vorball verður í Básnum, Ölfusi, laugardaginn 19. maí nk. kl. 22. Harmonikufélag Selfoss. Fyrirlestrar og fundir Amnesty International | Íslands- deild Amnesty International held- ur námskeið laugardaginn 19. maí í húsnæði Símenntunarstöðvar Eyjafjarðar við Þórsstíg 4 á Akur- eyri. Á námskeiðinu verður fjallað um sögu, herferðir og mannrétt- indaáherslur samtakanna. Skrán- ing í síma 511 7900 og á ie@am- nesty.is. GESTIR í Vallarta Adventure-garðinum í Nuevo Vallarta í Mexíkó horfa á Fernando Miranda synda með Pascual sem er mán- aðargamall munaðarlaus höfrungur, í gær. Pascual fannst þegar hann var aðeins dagsgamall. Hann strandaði um 100 km norður af Nuevo Vallarta og var færður í garðinn til að einhver sæi um hann. Eig- andi garðsins vonast til að geta sent Pas- cual í stóran sædýragarð þar sem hann yrði í félagsskap annarra höfrunga. Munaðarlaus höfrungur Reuters FÉLAGIÐ Matur – saga – menning gengst fyrir kvöldgöngu mið- vikudaginn 23. maí að Hafnabergi. Tilgangurinn er að minnast gamalla matarhefða og ekki síður að njóta útivistar í skemmti- legum félagsskap. Hafnaberg er lítið strandberg sunnan við Hafnir á Reykjanesskaga og var fyrrum nýtt til eggja- og fuglatöku. Urmull sjófugla verpir í bjarginu og iðar bjargið af lífi á þessum árstíma. Þátttakendur í göngunni munu hittast kl. 19.30 á bílastæðinu fyr- ir ofan bjargið en þaðan er rúmlega hálftíma gangur að bjarginu. Í fréttatilkynningu eru göngumenn hvattir til þess að klæða sig í samræmi við árstíma og aðstæður en áætlað er að ferðin taki um tvær og hálfa klukkustund. Til stendur að gjóa augum á bjargbúa og því við hæfi að taka með sér sjónauka og myndavélar. Leiðsögumaður í ferðinni verður Helgi Guðmundsson. Kvöldganga að Hafnabergi ÁÐUR auglýst dagskrá Karlakórsins Heimis, sem flytja átti í Saln- um í Kópavogi í kvöld, fellur niður vegna óviðráðanlegra forfalla. Dagskráin hefur verið flutt nokkrum sinnum við góðar undirtektir, bæði heima í Skagafirði og í Salnum í Kópavogi. Aðdáendum kórsins er þó bent á að Heimismenn verða með tón- leika í Digraneskirkju föstudaginn 1. júní nk. kl. 20.30 og í Ara- tungu, félagsheimilinu í Biskupstungum, laugardaginn 2. júní kl. 20.30. Bólu-Hjálmar fellur niður í Salnum STEINAR Björgvinsson garðyrkjufræðingur og fuglaáhugamaður verður með fræðslu í Grasagarðinum í Laugardal um fugla og gróður á sunnudaginn kl. 11. Hann fjallar um samspil fugla, skor- dýra og gróðurs og segir frá því hvernig hægt er að laða fugla að görðum með réttu plöntuvali. Í Grasagarðinum hafa verið settir upp nokkrir varpkassar og fuglaböð. Mæting er í lystihúsinu. Gott er að hafa meðferðis fuglahandbók og sjónauka. Eftir gönguna er boðið upp á piparmyntute úr laufum piparmyntu sem ræktuð er í Grasagarðinum. Ókeypis fræðsla og skemmtun, allir velkomnir. Ræðir samspil fugla og gróðurs JÓHANNA Harðardóttir kjalnesingagoði heldur árlegt vorblót að Mógilsá laugardaginn 19. maí. Þar á að blóta Frey og fleiri goð og góða vætti og gleðjast yfir nýju lífi og sprettu. Gestir mæta við Aronsbústað í landi Skógræktarinnar við Mó- gilsá. Vorblót á Mógilsá FRÉTTIR HÁTÍÐARSAMKOMA verður í hátíðarsal aðalbyggingar Há- skóla Íslands í tilefni af 70 ára afmæli Odds Benediktssonar, prófessors í tölvunarfræði við Háskóla Íslands, laugardaginn 19. maí kl. 14. Oddur hefur gegnt lykilhlut- verki í tölvuvæðingu hér á landi allt frá því að hann kom heim frá námi og hóf störf við ný- stofnaða Reiknistofnun Háskól- ans 1964. Hann var skipaður dósent við Háskóla Íslands 1973 og hófst þá strax handa við að koma á háskólamenntun í tölvunarfræði og varð fyrstur Íslendinga til að vera skipaður prófessor í tölvunarfræði 1982. Á síðustu árum hefur hann auk þess unnið að uppbyggingu náms í hugbúnaðarverkfræði. Hátíðarsamkoman verður tvíþætt. Fyrst munu tveir er- lendir gestafyrirlesarar flytja yfirlitserindi á sviði hugbún- aðarverkfræði. Rory O’Connor við Dublin City University, Ír- landi, mun flytja fyrirlestur sem hann nefnir Hugbún- aðarkerfi, toppurinn á ísjak- anum, og fjallar um mikilvægi þess að huga vel að þeim þætti hug- búnaðarkerfa sem ekki er sýnilegur notandanum. Síðan mun Darren Dalc- her við Middlesex University, Englandi, flytja fyrirlestur sem hann nefnir Hugleiðingar um þroskastig hugbúnaðarþróunar og fjallar um hvernig þroska- stigshugtakið hefur þróast síð- ustu tvo áratugi. Í síðari hluta samkomunnar munu fulltrúar ýmissa aðila sem tengjast tölvuvæðingu og menntun tölvunarfræðinga hér á landi flytja stutt hátíðar- ávörp, en að þeim loknum um kl. 17 verður boðið upp á léttar veitingar. Að samkomunni standa verk- fræðideild og tölvunarfræði- skor Háskóla Íslands, Félag tölvunarfræðinga og Ský (Skýrslutæknifélag Íslands) og er samkoman öllum opin. Hátíðarsamkoma fyrir Odd Benediktsson Oddur Benediktsson MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynn-ingar um afmæli, brúð- kaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðar- lausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudags- blað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/ eða nafn ábyrgð- armanns og símanúmer. Hægt er að hringja í síma 569-1100, senda tilkynningu og mynd á netfangið rit- stjorn@mbl.is, eða senda til- kynn-ingu og mynd í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is, og velja liðinn Senda inn efni". Einnig er hægt að senda vélritaða til- kynningu og mynd í pósti. Bréfið skal stíla á Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. smáauglýsingar mbl.is Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.