Morgunblaðið - 18.05.2007, Page 14
FRAMKVÆMDASTJÓRI Kommúnistaflokksins í Kína,
Liu Qi, sagði á þingi hans í gær, að til þess að tryggja
árangursríka Ólympíuleika í Peking á næsta ári verði
að leggja höfuðáherslu á öryggi í borginni. Kínverjar
ætla að nota leikana til að hefja Peking til aukinnar
virðingar og sagði Qi, sem einnig er formaður skipu-
lagsnefndar, að taka yrði á afbrotum og spillingu til að
ná settu marki. Mikil mengun er í Peking og haft var
eftir talsmanni ólympíuliðs Breta í sundi að hópurinn
myndi draga það eins lengi og mögulegt væri að koma
til borgarinnar, en heimamenn eru sannfærðir um að
loftið verði gott í Ólympíuleikvanginum „hreiðrinu“.
Reuters
Öryggið á oddinn í Peking
14 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Lagadeild
Umsóknarfrestur er til 5. júní. www.lagadeild.hi.is.
Skrásetningargjald allt skólaárið aðeins kr. 45.000.-
Laganám í Háskóla Íslands:
Reynsla, metnaður og gæði
JÁRNBRAUTARLESTIR frá Norð-
ur- og Suður-Kóreu fóru yfir landa-
mæri ríkjanna í gær og var um
sögulegan viðburð að ræða því lest
hafði ekki farið yfir landamærin í
um 56 ár eða frá því snemma í Kór-
eustríðinu sem stóð yfir frá 1950 til
1953.
Lestirnar lögðu af stað á svip-
uðum tíma, önnur frá Suður-Kóreu
og hin frá Norður-Kóreu. 150 far-
þegar voru í hvorri lest og var þeim
vel fagnað á ákvörðunarstað.
Lee Jae-Joung ráðherra, sem fer
með samskipti ríkjanna í stjórn
Suður-Kóreu, sagði að nýr kafli í
friðarviðræðum þeirra væri hafinn.
Ferðirnar gerðu gæfumuninn í því
að komast yfir kalda stríðið. Að-
skilnaðarveggur hefði verið brot-
inn og við tæki tímabil friðar og
sameiningar.
Starfsbróðir hans í Norður-
Kóreu, Kwon Ho-Ung, sagði að er-
lend yfirvöld hefðu þröngvað að-
skilnaðinum upp á ríkin og vísaði til
Bandaríkjanna í því efni. Hann
sagði að fulltrúar ríkjanna myndu
vinna að því að tryggja að „samein-
ingarlestin“ héldi áfram á tein-
unum í átt til friðar og einingar.
Lestarferðirnar tóku skamman
tíma enda stutt ferðalag, önnur
lestin fór 25 km og hin 27 km. Kim
Yong-Sam, ráðherra með stjórn
járnbrauta í Norður-Kóreu á sinni
könnu, sagði að það hefði tekið
meira en hálfa öld að komast þessa
stuttu vegalengd en nú væri aðal-
atriðið að halda leiðinni opinni.
Reuters
Í gegnum hliðið Hermenn frá Suður-Kóreu stóðu vörð við landamæragirð-
inguna í Paju norður af Seoul þegar lestin fór þar í gegn í gær.
Sögulegar lestarferðir
Kabul. AFP. | Anders Fogh Rasm-
ussen, forsætisráðherra Danmerk-
ur, afhenti í gær Hamid Karzai, for-
seta Afganistan, litla forna styttu af
ljóni. Hann sagði við það tækifæri
að þetta væri fyrsti afganski grip-
urinn af 4.000 sem reynt hefði verið
að flytja til Danmerkur með ólög-
legum hætti fyrir nokkrum árum
og Danir ætluðu að skila aftur.
Danir eru með 400 hermenn í
Afganistan. Rasmussen sagði að
fjölgað yrði í liðinu og fjárhags-
legur stuðningur Dana yrði aukinn
um meira en 30%, yrði meira en 40
milljónir dollara innan fárra ára.
Reuters
Leiðtogar Hamid Karzai og Anders
Fogh Rasmussen í Kabul í gær.
Danir skila
verðmætum
PAUL Wolfowitz tilkynnti í gær-
kvöldi að hann hætti sem forstjóri
Alþjóðabankans 30. júní. Wolfowitz
sagði að hann segði upp með hags-
muni bankans í huga. Í yfirlýsingu
frá Hvíta húsinu kom fram að
bandarísk stjórnvöld hefðu kosið að
Wolfowitz yrði áfram í embætti.
Wolfowitz hættir
ALI Mohamed Gedi, forsætisráð-
herra Sómalíu, slapp með skrekk-
inn, þegar bifreið, sem hann var í,
var ekið yfir jarðsprengju í Mogad-
ishu í gær. Mikill reykur gaus upp
en sprengjan stóð á sér og sprakk
ekki. Þetta er í þriðja sinn sem
reynt er að ráða Gedi af dögum.
Slapp ómeiddur
KÓLUMBÍSKUM lögreglumanni
hefur tekist að sleppa úr haldi
skæruliðahreyfingarinnar FARC
eftir átta ára prísund. Bandaríska
sjónvarpsstöðin CNN segir að
manninum hafi tekist að sleppa 28.
apríl en hann var í 17 daga að kom-
ast gegnum frumskóga á Amazon-
svæðinu þar til hann hitti lög-
reglusveit. Lögreglumaðurinn
segir að í fangavistinni hafi hann
borið hlekki um hálsinn nánast all-
an tímann.
Slapp úr haldi
GORDON Brown, fjármálaráðherra
og verðandi leiðtogi breska Verka-
mannaflokksins og forsætisráherra,
sagði í gær, eftir að staðfest hafði
verið að hann væri sjálfkjörinn eft-
irmaður Tony Blairs, að hann færi
fyrir nýrri ríkisstjórn með nýrri
forgangsröð.
Brown tekur við formennsku í
Verkamannaflokknum á aukalands-
fundi 24. júní og forsætisráðuneyt-
inu 27. júní, þegar Blair lætur af
embætti. Brown fékk 313 tilnefn-
ingar af 352 og því náði enginn ann-
ar lágmarkinu sem var 45 tilnefn-
ingar.
Á sama tíma staðfestu Blair og
George Bush, forseti Bandaríkj-
anna, sterk tengsl ríkja sinna á
fundi sínum í Washington. Brown
tók í sama streng og sagði að sam-
band forseta Bandaríkjanna og for-
sætisráðherra Bretlands ætti að
vera sterkt.
Brown boðar breytingar
Nýr leiðtogi Gordon Brown verður
kjörinn án mótstöðu eftir mánuð.
Kveðja Tony Blair og George W.
Bush í Hvíta húsinu í gær.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
FERÐAMENN utan Norður-Amer-
íku sneiða í auknum mæli hjá Banda-
ríkjunum en engu að síður stendur
ferðamennskan vel í landinu og varð
methagnaður af henni í fyrra, 12
þúsund milljarðar dollarar.
26 milljónir erlendra ferðamanna
utan Kanada og Mexíkó sóttu
Bandaríkin heim árið 2000 en 21,7
milljónir manna í fyrra. Talsmenn
ferðamála er bjartsýnir, segja að
fjöldi ferðamanna sé mjög nálægt
fjöldanum fyrir árásina á Bandaríkin
11. september 2001 og gera megi því
skóna að fyrri tala náist fljótlega.
Flestir frá Kanada og Mexíkó
Bandaríkjamenn eru duglegir að
ferðast innanlands og Kanadamenn
og Mexíkóar eru tíðir gestir. Roger
Dow, forseti Samtaka ferðamála,
segir að meira en 51 milljón ferða-
manna heimsæki Bandaríkin árlega
og þar af komi 29 milljónir frá Kan-
ada og Mexíkó. Kanadískum ferða-
mönnum hefur fjölgað um 10% frá
2000 en ferðamönnum frá Mexíkó
hefur fjölgað um 26% á sama tíma.
Ferðamönnum frá öðrum löndum
fækkaði um 17% frá 2000 til 2006 og
Dow bendir á að jafnvel sterk staða
evrunnar gagnvart dollar hafi ekki
ýtt undir Evrópubúa að ferðast til
Bandaríkjanna.
Ferðamönnum frá Þýskalandi
fækkaði um 22% frá 2000 til 2006 og
ferðuðust 1,7 milljónir Þjóðverja til
Bandaríkjanna í fyrra. 790.000
Frakkar heimsóttu Bandaríkin 2006
og er það 28% fækkun frá 2000. 4,2
milljónir Breta komu til Bandaríkj-
anna í fyrra og er það 11% fækkun
frá 2000. Japönskum ferðamönnum í
Bandaríkjunum fækkaði um 27% og
voru þeir 3,7 milljónir í fyrra.
Strangar reglur fæla frá
Borgarar 27 ríkja þurfa ekki árit-
un til Bandaríkjanna. Dow segir að
strangar reglur og eftirlit við komu
fæli fólk frá. Í því sambandi segir
hann að það taki Brasilíumenn
a.m.k. tvo mánuði að fá áritun til
Bandaríkjanna og því sæki þeir frek-
ar til Evrópu og Asíu.
Færri ferðamenn
frá Asíu og Evrópu
París. AFP. | Nicolas Sarkozy tók við
embætti forseta Frakklands í fyrra-
dag og í gær útnefndi hann François
Fillon, fyrrverandi félagsmálaráð-
herra, sem forsætisráðherra lands-
ins.
Fillon er 53 ára. Hann hefur verið
náinn samstarfsmaður nýkjörins
forseta og skipulagði meðal annars
kosningabaráttu hans. Þegar Fillon
tók við forsætisráðherraembættinu
sagði hann að Frakkar hefðu kosið
nýja stefnu í stjórnmálum og það
væri skylda sín að starfa samkvæmt
því.
Reuters
Ráðamenn Francois Fillon og
Nicolas Sarkozy í Elysee-höll í gær.
Ný stefna
með Fillon