Morgunblaðið - 18.05.2007, Page 17

Morgunblaðið - 18.05.2007, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2007 17 MENNING Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is MYNSTUR sem áður var ósýnilegt manns- auganu teygir sig fjóra metra á listaverkum í sal félagsins Íslenskrar grafíkur á Tryggva- götu 17. Norska listakonan Ellen Karin Mæhlum hefur unnið að röð stórra listaverka sem hún nefnir Geoþrykk og eru þau byggð á ferð hennar með rannsóknarleiðöngrum vísinda- manna til Svalbarða árin 2003 og 2004. Mæhlum vinnur með PGP, þverfaglegri stofnun við Háskólann í Ósló sem stuðlar að dýpri skilningi á mynstrum og ferlum á jörð- inni og mikilvægi þess fyrir samfélag manna og gerir það með samvinnu við listamenn. Ógreinanleg mynstur Mæhlum hefur stundað nám við Listahá- skólann í Bergen og í Ósló en einnig varið nokkrum sumrum á Svalbarða. Það lá því beint við að leita til hennar þegar PGP vildi fá listamann með í rannsóknarleiðangur líf- fræðinga og jarðfræðinga þangað til að skoða mynstur í náttúrunni. „Ég fékk fullkomið frelsi til að fylgjast með störfum vísindamannanna, tók ljósmyndir, gerði skissur og nýtti mér einnig færanlega stafræna smásjá til að greina mynstur sem annars hefðu verið ógreinanleg.“ Þetta er í fyrsta skipti sem Mæhlum fer í slíkan leiðangur. „Þetta var ný reynsla fyrir mér og spennandi að fylgjast með störfum þeirra. Það var mikill lærdómur fyrir mig. Staðurinn var líka stórbrotinn, þar er eld- virkni og ómögulegt að komast þangað nema á eigin báti. Það var einstakt að fá tækifæri til að skoða náttúruna í kringum heita hveri, sem þarna eru, með smásjá, því þá kom margt í ljóst sem annars hefði verið mér hul- ið. En ég vann líka með það sem ég sá með berum augum.“ Mæhlum hefur unnið að þessu verkefni í þrjú til fjögur ár og næst tekur annað eins við því hún fór nýlega á eldvirkt svæði í Suður- Afríku með sömu vísindamönnum. „Ég er ekki byrjuð að vinna að því verkefni, en sé fram á að halda þessu starfi áfram í þrjú ár.“ – Ertu ekki í raun orðin vísindamaður? „Nei, alls ekki. Ég hef þvert á móti upp- lifað hversu lítið ég veit um þessa hluti. Þann- ig að það er þveröfugt. En ég er heppin að hafa fengið tækifæri til að kynnast nýjum hlutum.“ – Fær listin kannski tryggari fótfestu í landi vísindanna? „Kannski,“ svarar hún hugsi. „Þá get ég valið úr fleiri möguleikum til að vinna með. En það gefur mér ekkert sérstakt forskot í heimi listarinnar.“ Stefnir á hálendið – En þú færð ákveðinn ramma til að vinna með? „Já, ramma fyrir myndirnar mínar. Þetta er virkilega stórt verkefni og ég hef breytt um stefnu síðan ég hófst fyrst handa. Ég vinn núna með stærri myndir, þar sem ég teygi nálarauga smásjárinnar allt upp í fjóra metra. Það gerist óhjákvæmilega eitthvað spennandi þegar formi og skala er breytt þannig.“ – Hugsarðu ef til vill á ólíkan hátt um jörð- ina undir fótum þér, til dæmis núna á Íslandi? „Já, ég held það. Ég fór til dæmis um Snæ- fellsnes á föstudag, en norskur málari að nafni Patrick Huse mælti með því við mig. Ég hafði séð myndir hans áður og nú veit ég hvaðan hann fékk innblásturinn að þeim. En ég vil sækja Ísland aftur heim og fara þá upp á hálendið.“ – Áttu ef til vill eftir að sækja innblástur til Íslands? „Já.“ Þar sem list og vísindi mætast Morgunblaðið/Ómar Norsk Ellen Karin Mæhlum hefur unnið að röð stórra listaverka sem hún nefnir Geoþrykk. Í HNOTSKURN » Ellen Karin Mæhlum er svart-listamaður og er með vinnustofu í Ósló. » Verk hennar eru stór og tilkomu-mikil og unnin með djúpþrykks- aðferðum sem gefa kost á „fjölbreyttri teikningu og ríku tónaspili“. » Nánar má fræðast um listamanninná www.ellenkarin.no, þar sem meðal annars eru myndir af verkum hennar og ljósmyndir frá Svalbarða. MIKIL eftirvænting var í Borgarleikhúsinu fyrir sýningu San Francisco-ballettsins á verk- um Helga Tómassonar, listræns stjórnanda flokksins. Það var eins og beðið væri eftir lang- þráða syninum sem kæmi heim og sýndi okkur hvað hann hefði lært og gert á ferðum sínum um heiminn. Óhætt er að segja að það sem okk- ur var sýnt á stóra sviði Borgarleikhússins hafi staðið undir væntingum. Helga Tómasson þarf vart að kynna, en eftir langan og glæstan feril sem dansari tók hann við stöðu listræns stjórnanda San Francisco- ballettsins 1985. Fyrir dansflokkinn hefur Helgi samið fjölda verka og á efnisskrá þess- arar sýninga eru fjögur dansverk sem hann hefur samið á árunum 2003-2006. San Francisco-ballettinn heimsótti síðast Ís- land á Listahátíð árið 2000 með sýningu á Svanavatninu, í útfærslu Helga. Fyrir þessa heimsókn hafði Helgi verið beðinn um að velja eigin dansverk til sýninga og ber sýningin ein- faldlega heitið „Helgi“. Blue Rose Fyrsta dansverk kvöldsins var Blue Rose, dansað af þremur pörum við lifandi tónlist. Aft- ast á sviðinu voru hljóðfæraleikararnir Guðný Guðmundsdóttir á fiðlu og Natalýa Feygina á píanó, í svörtum kjólum og léku tónlist Elenu Kats-Chernin af mikilli snilld. Tónlistin ber keim af balkneskum áhrifum auk þess kemur fram ragtime, vals og tangó. Verkinu er skipt í 10 atriði sem hvert hefur sín einkenni. Allt frá tilfinningaþrungnum tvídansi, sem var dans- aður af Loren Feijoo og Pierre-François Vil- anoba, upp í léttan leik dúettsins þeirra Va- nessu Zahorian og Davit Karapetyan eða glettnislegur dans þeirra Kristinu Long og Pascals Molat. Búningar voru mjög fallegir, kvendans- ararnir í fallegum kjólum með víðu pilsi. Lýs- ingin var einnig mjög falleg. Dansararnir virkuðu svolítið óöruggir í byrj- un, en þegar leið á verkið tók dansgleðin völdin og dansararnir dönsuðu af hinni mestu snilld. Dansverkið var stílhreint og áferðarfallegt. 7 for Eight Dansverkið 7 for Eight er samið fyrir átta dansara og er í nýklassískum stíl þar sem dans- inn verður einungis að tærum hreyfingum, hreyfingum sem fléttast saman við tónlistina. Tónlist Bachs er sem þýður undirtónn við sam- setningu sporanna. Samsetningarnar eru ekki auðveldar, en í meðförum dansaranna varð dansinn flæðandi og loftkenndur. Öll form eru hrein, full af orku og ástríðu sem unun var á að horfa. Samspil dansara í tvídönsum er óaðfinn- anlegt, dansarar krækja saman höndum og fót- um og mynda ýmis form, verða að einu og svo losnar takið og aftur eru þau orðin tvö. Dansverkið er skipt í sjö þætti, sem tengjast óbeint saman. Dansararnir koma og fara, inn og út af sviði; leikur með skugga og ljós. Bún- ingarnir voru einstaklega fallegir, kvendans- arnir í fallegum svörtum blúndukjólum og karldansarnir í svörtum buxum og bolum. Verkið var ákaflega vel dansað og vel samið og átti lýsing og búningar stóran þátt í að skapa umgjörðina um verkið. Þetta var heillandi verk sem vert er að sjá aftur. Concerto Grosso Concerto Grosso er í nýklassískum stíl þar sem áhersla er lögð á dansinn en ekki að segja sögu. Helgi samdi þetta verk fyrir 70 ára af- mæli dansflokksins og vildi vekja athygli á hve góðir karldansararnir væru, og þeir vöktu at- hygli. Concerto Grosso er dansverk samið fyrir fimm karldansara, þar sem þeir fá tækifæri til að sýna getu sína, styrk og tækni, jafnframt að sýna mýkt og blíðu. Hreyfingarnar eru oft ein- faldar, endurteknar, og gerðar í „canon“, þann- ig að þær virkuðu eins og öldur. Í broddi fylkingar var Pascal Molat sem sýndi hve megnugur dansari hann er. Stökk hans, bæði stór og smá eru hljóðlaus og stíl- hrein. Af hinum fjórum karldönsurum vöktu dansararnir Jamie Garcia Castilla og Hansuke Yamamoto athygli mína fyrir frammistöðu sína. Hver dansari fékk tækifæri til að sýna hæfni sína á sinn hátt, en saman mynduðu þeir heild- steypt verk sem aðdáunarvert var að horfa á. The Fifth Season Dansverkið The Fifth Season sýndi aðeins dekkri mynd en hin þrjú verkin, sem voru skemmtileg og þróttmikil. Hér smellur allt saman, tónlist Karls Jenkins, búningar, ljós, dansspor og dansarar. Verkið undirstrikaði enn aftur hvað dansararnir eru tæknilega góðir en samt með sterka útgeislun. Í tvídönsunum var einsog dansararnir sameinuðust í einn líkama. Þetta var án efa flóknasta verk kvöldsins sem sannaði enn og aftur hversu frábærum döns- urum flokkurinn hefur á að skipa. Fallegir bún- ingar og góðir dansarar, sérstaklega Katita Waldo, Yan Yyan Tan og Sarah Van Patten, að hinum ólöstuðum. Í heildina hafa dansverk Helga hreinan dans- stíl og fágaðar hreyfingar. Hann notar bæði einfaldar hreyfingar á móti flóknum, hægt á móti hröðu, þannig að ávallt er um andstæður að ræða. Samvinna dansaranna í tvídönsum er unun á að horfa. Ekkert fum eða fát, heldur unnið saman af öryggi og alúð. Danssporin fléttast saman við tónlistina sem hreiðrar svo um sig á sviðinu, böðuðu í fallegum ljósum og búningum sem hæfa, svo að úr verði stórkost- leg sýning. Sýning kvöldsins sýndi afburðahæfa dans- ara, dansara sem hafa ástríðu fyrir því að dansa. Þess má geta að í forsal Borgarleikhússins er yfirlitssýning um feril Helga Tómassonar. Myndir frá því að hann steig sín fyrstu spor á sviði Þjóðleikhússins sem ungur drengur og þar til síðastliðinn mánudag er forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, veitti Helga æðstu orðu Íslands, stórkross fálkaorðunnar. Dansað af ástríðu Listdans Borgarleikhúsið, 16. maí 2007 Fern dansverk eftir Helga Tómasson. Blue Rose, frumsýnt 14. febrúar 2006. Tónlist: Elena Kats-Chernin. Búningar: Judanna Lynn. Ljós: Lisa J. Pinkham. Dansarar: Kristin Long, Lorena Feijoo, Vanessa Zahorian, Pascal Molat, Pierre-François Vilanoba og Davit Karapetyan 7 for Eight, frumsýnt 26. febrúar 2004. Tónlist: Jo- hann Sebastian Bach. Búningar: Sandra Woodall. Ljós: David Finn, Dansarar: Rachel Viselli, Tilt Heli- mets, Vanessa Zahorian, Gonzalo Carcia, Elizabeth Miner, Frances Chung, Garrett Anderson og Nicolas Blanc. Concerto Grosso, frumsýnt 29. janúar 2003. Tónlist: Fransesco Geminiani. Búningar: Sandra Woodall. Ljós: David Finn. Dansarar: Pascal Molat, Garrett Anderson, Jaime Garcia Castilla, Rory Hohenstein og Hansuke Yamamoto. The Fifth Season, frumsýnt 28. mars 2006. Tónlist: Karl Jenkins. Búningar: Sandra Woodall. Ljós: Mich- ael Mazzola. Sviðsmynd: I. Weiss. Dansarar: Katita Waldo, Conzalo Garcia, Yuan Yuan Tan, Sara Van Patten, Damian Smith, Pierre-François Vilanoba, Do- res Andre, Dana Genshaft, Shannon Roberts Dani- elle Santos, Martyn Garside, Garen Scribner, Ben- jamin Stewart og Matthew Stewart. Frábær „Í heildina hafa dansverk Helga hreinan dansstíl og fágaðar hreyfingar,“ segir m.a í dómnum um San Francisco ballettinn. Margrét J. Gísladóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.