Morgunblaðið - 18.05.2007, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2007 19
SUÐURNES
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Gjafir jarðar Ingólfsstræti 2,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Maður Lifandi Hæðarsmára 6,
Lyfja, heilsuvörudeild, Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16 og Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Krónan Mosfellsbæ
Nóatún Hafnarfirði
Í dagsins önn
Náttúrulegt B-vítamín ásamt magnesíum
og C-vítamíni í jurtabelgjum
GLÆSILEGASTI
JAKKI LANDSINS
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
76
96
0
5
/0
7
Það er ótrúlegt hvað þau eru tilbúin
að ganga langt til að fanga athygli ykkar.
Ekki láta þau ganga lengra
KYNNTU ÞÉR KOSTI
VILDARKLÚBBS ICELANDAIR.
Þú safnar Vildarpunktum í viðskiptum við Icelandair, Flugfélag Íslands,
hjá Icelandair hótelunum og öðrum samstarfsaðilum Vildarklúbbs Icelandair.
• Þú notar Vildarpunktana þína til þess að fara út í heim í áætlunarflugi
Icelandair – börn að 16 ára aldri fljúga á helmingspunktum.
• Þú notar Vildarpunktana til greiðslu fyrir gistingu á yfir
100 hótelum víðs vegar um heim og fyrir bílaleigubíla.
• Félagar í Vildarklúbbi Icelandair safna að meðaltali á hverju ári
Vildarpunktum sem samsvara greiðslu fyrir flugfari til Evrópu
með Icelandair.
• Þú getur notað Vildarpunktana þína sem greiðslu að hluta
fyrir flugfar og greitt afganginn með peningum.
‘07 70ÁR Á FLUGI
Vildarklúbbur
Reykjanesbær | Haldið var mikið
skákmót í Heiðarskóla í Keflavík
á dögunum. Fjölmargir nem-
endur, alls 62 úr þriðja til tí-
unda bekk, skráðu sig til keppni.
Salur Heiðarskóla var þétt
setinn þegar mótið hófst. Í lok
mótsins var svo krýndur skák-
meistari Heiðarskóla sem í ár
var Sigurður Vignir Guðmunds-
son, nemandi í 9. bekk MJ. Hann
fær nafn sitt letrað á bikar sem
geymdur verður í skólanum og
fær annan bikar til eignar. Fyr-
irtækið Milli himins og jarðar
gaf bikarana, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá
Heiðarskóla.
Í öðru sæti varð Unnar Már
Unnarsson í 7. bekk EE. Jöfn í 3.
til 8. sæti voru Hlynur Almar
Sölvason, 4. HT, Grétar Þór Sig-
urðsson í 8. IS, Jón Ágúst Guð-
mundsson í 6. ÞG, Bjarni Reyr
Guðmundsson í 10. RR, Evalín
Hlynsdóttir í 7. EE og Kristinn
Ásgeir Gylfason, nemandi í 10.
bekk SN.
Skákmeistari
Heiðarskóla krýndur
Helguvík | Niðurstöðu frummats-
skýrslu HRV um áhrif fyrirhugaðs ál-
vers við Helguvík er fagnað í sameig-
inlegri yfirlýsingu bæjarstjóranna í
Garði og Reykjanesbæ. Skýrslan hef-
ur verið auglýst og er birt á vefsíð-
unni www.hrv.is og reykjanesbaer.is.
„Frummatsskýrslan sýnir svo ekki
verður um villst að komið hefur verið
til móts við mikilvægustu skilyrði og
kröfur okkar,“ segir í yfirlýsingunni.
Í fyrsta lagi er nefnt að sú tillaga
sem lögð er fram um þynningarsvæði
ekki áhrif á landnotkun eða framtíð-
arstefnu sveitarfélaganna Garðs og
Reykjanesbæjar. Því sé útlit fyrir að
skipulag á iðnaðarsvæðinu geti orðið
til fyrirmyndar.
Í öðru lagi verður flutningur á raf-
orku til iðnaðarsvæðisins um jarð-
strengi frá Fitjum að Helguvík.
Í þriðja lagi kemur fram að komið
hafi verið til móts við óskir fulltrúa
heimamanna um útlit og hönnun ál-
versins, manir í kringum það og gróð-
ur, þannig að hvergi á Suðurnesjum
verði sérstök sjónlýti af völdum vers-
ins.
Í fjórða lagi hafa Norðurál, Hita-
veita Suðurnesja, Orkuveita Reykja-
víkur og Háskóli Íslands hafið sam-
starf um vísindaverkefni um
kolefnisbindingu sem er spennandi
framlag til grundvallarrannsókna á
þessu sviði á heimsvísu, segir í yfirlýs-
ingunni. Í frummatsskýrslunni kem-
ur fram að álverið falli undir íslenska
ákvæði Kyoto-bókunarinnar og sam-
ræmist stefnu íslenskra stjórnvalda
um útstreymi gróðurhúsaloftteg-
unda. Áhrif á aðra umhverfisþætti
séu í flestum tilvikum óveruleg, nema
á afmörkuðum svæðum sem fari und-
ir mannvirki.
Jákvætt fyrir byggðarlögin
„Við hvetjum fólk á Suðurnesjum
til að kynna sér skýrsluna. Skýrslan
og tillögur að breytingum á gildandi
aðalskipulagsáætlunum Reykjanes-
bæjar, Garðs og Keflavíkurflugvallar
verða kynntar almenningi á opnum
fundum í samráði við Skipulagsstofn-
un í byrjun júní. Ýmis atriði þarf að
ræða frekar og velta vöngum yfir eins
og t.d. mengunarvörnum, svo og þeim
möguleika að förgun kerbrota geti
orðið til þess að sporna gegn land-
broti sem ógnar golfbrautum á
Hólmsvelli í Leiru.
Við tökum heilshugar undir þá nið-
urstöðu frummatsskýrslunnar að
heildaráhrif byggingar og reksturs
álvers við Helguvík verði jákvæð fyrir
byggðarlögin hér og landið í heild,
enda er gert ráð fyrir að það verði
byggt í áföngum og af innlendum að-
ilum eins og kostur er. Áhrif á at-
vinnu- og félagslíf munu verða mikil
og góð og styðja við aðra atvinnuþró-
un á svæðinu,“ segja bæjarstjórarnir.
Ánægð
með mats-
skýrslu