Morgunblaðið - 18.05.2007, Síða 21
Vandað 4 stjörnu hótel í nágrenni við Vatikanið. Hótelið er nýuppgert og
vel búið með góðu sundlaugasvæði, fallegum herbergjum og skemmtilegri
sameiginlegri aðstöðu.
Hotel Ergife Palace
Sól og borg í frábærum pakka!
1 vika: 26. júní –3. júlí
Frá 69.577,-
Verð á mann m.v. 2 fullorðna
Duke er sérstaklega fallegt og vandað hótel á frábærum stað í miðborg Rómar.
Herbergin eru stór og það er framúrskarandi þjónusta á þessu gæðahóteli.
Duke Hotel Roma
Glæsihótel í hjarta Rómar
1 vika: 7.–14. ágúst
Frá 77.900,-
Verð á mann m.v. 2 fullorðna
VIKA Í MIÐBORG RÓMAR
Á ÓTRÚLEGU VERÐI
Ótal veitingastaðir, fjörugt næturlíf og ein skemmtilegasta verslunarborg heims!
Innifalið: Flug, gisting, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn. Verð miðast við að bókað sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis er bókunargjald 2.500,- fyrir hvern farþega.
Sumarferðir Laugavegi 26 (gengið inn Grettisgötumegin)
Farðu inná www.sumarferdir.is
eða hringdu í síma 575 1515.
Innifalið: Flug, gisting, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn. Verð miðast við að bókað sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis er bókunargjald 2.500,- fyrir hvern farþega.
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2007 21
Englaraddir frá Noregi
Enginn norðan heiða ætti að missa af Drengjakór Niðarósdómkirkju, sem verður
með tónleika í Akureyrarkirkju á sunnudag kl. 17. Kórinn er frá Þrándheimi þar sem Ís-
lendingurinn Kjartan Ólafsson vann sér það til frægðar að kaffæra Ólaf Tryggvason
Noregskonung í ánni Nið fyrir margt löngu. Kórinn er elsti drengjakór Noregs og á
rætur sínar að rekja 900 ár aftur í tímann en stjórnandi hans frá árinu 1973 er Björn
Moe.
Unglingar styrkja bágstödd börn
Unglingar í Garðabæ vinna hörðum höndum þessa dagana að því að safna fé til að
leysa indversk þrælabörn úr skuldaánauð. Í því skyni efna hljómsveitirnar Exodus,
Magnyl, Cliff Clavin og Royal Fanclub til styrktartónleika í Vídalínskirkju á sunnudag
kl. 13 samhliða því sem kirkjan fagnar vori. Gott tækifæri til að njóta gróskumikillar
tónlistar og styrkja gott málefni um leið.
Eitthvað fyrir augað
Listahátíð stendur sem hæst þessa dagana og því ekki úr vegi að nota tækifærið og
fara á myndlistarsýningar á heimsmælikvarða. Í Listasafni Íslands stendur yfir sýn-
ingin Cobra Reykjavík en 60 ár eru liðin frá því að alþjóðlegi listamannahópurinn Cobra
var stofnaður sem var mikilvægur vettvangur fyrir abstraktlistina. Í Listasafni Reykja-
víkur stendur yfir yfirlitssýning á verkum Roni Horn og í Galleríi i8 stendur yfir sýning
á verkum bandaríska listamannsins Spencer Tunicks. Þá má benda á ljósmyndasýningu
Ragnars Axelssonar í glænýrri ljósmyndavöruverslun sem ber nafni Fótógrafí og er við
Skólavörðustíg.
Ilmur af vori
Nú þegar sumarið er að vakna er ekki úr vegi að fara í góðan göngutúr þar sem hægt
er að finna lyktina af gróðrinum. Góðir staðir til þess eru til að mynda Heiðmörk, Elliða-
árdalurinn eða Grasagarðurinn í Laugardal. Og jafnvel þótt hann rigni á ekki að láta
það stoppa sig. Vorið ilmar aldrei betur en í skúraveðri.
Handverk aldraðra í Breiðholti
Heimilismenn í Seljahlíð verða um helgina með sýningu á handverki sem þeir hafa
unnið að í vetur og vor. Sýningin er öllum opin milli kl. 13.30 og 17 og verða kaffiveit-
ingar í boði fyrir gesti. Þetta er frábært tækifæri til að sjá afrakstur sköpunargleði
reyndasta fólksins í samfélaginu.
Rólegheit
Svo jafnast ekkert á við góða bók uppi í sófa!
mælt með …
Morgunblaðið/Golli
Hér á eftir fer listi yfir svokölluð viðskiptaferðahótel
sem kosin hafa verið í tíu efstu sæti slíkra hótela.
Listi þessi birtist á vefmiðli breska dagblaðsins Gu-
ardian en þar segir að hótel sem gera sérstaklega út
á fólk í viðskiptaferðum, sem staldrar stutt við, þurfi
alls ekki að vera óaðlaðandi. Nú eru í boði hótel fyrir
fólk í viðskiptaferðum þar sem ekki er aðeins gert
ráð fyrir að viðskiptavinurinn sofi og sendi tölvu-
pósta. Heldur er líka gert ráð fyrir að hann vilji hafa
það notalegt, og umhverfið sé þannig að hægt sé að
bjóða vinum eða viðskiptakollegum inn til sín og hafa
það huggulegt, borða saman og drekka saman í nota-
legu umhverfi. Því eru húsgögnin sérhönnuð og mik-
ið lagt upp úr notalegheitum og að fólki líði eins og
það sé heima hjá sér.
1. The Mercer Hotel, New York
Frábær húsgögn og stór herbergi, stórkostlegur
matur og fullkomin þjónusta.
2. Park Hyatt, Tokyo
Fullkominn staður til að slaka á eftir vinnudag í
Tókýó. Unaðsleg sundlaug og spa. Bóksafnið er líka
kostur.
3. Widder Hotel, Zürich
Fimm ár tók að fullkomna þetta hótel sem sam-
anstendur af átta gömlum húsum sem voru gerð upp
á mjög smekklegan hátt, þar sem hið upprunalega
hefur verið látið halda sér en nýjungar og hátækni
einnig innleidd.
4. Sukhothai, Bangkok
Dásamlegt athvarf frá brjálæðinu á götum Bang-
kok, hvort sem legið er á laugarbakkanum eða dúll-
ast uppi í íbúð.
5. Murano Urban Resort, Paris
Besta „bisnesshótelið“ í París, engin spurning, en
þau eru mörg góð þar. Veitingastaður hótelsins er
einstakur og svítan er með eigin sundlaug.
6. Taj Mahal Palace & Tower, Mumbai
Þetta hótel hefur verið rómað af viðskiptafólki í
áratugi. Hér er allt í hágæðaflokki, hvort sem það er
indverski maturinn á veitingastaðnum, sundlaugin
eða klúbburinn.
7. Grand Hyatt, Shanghai
Þetta hæsta hótel í heimi er einnig eitt af þeim
bestu. Frægt fyrir ótrúlega góða herbergisþjónustu
og unaðslega kokkteila.
8. The Setai, Miami
Svalt, en þó afslappað. Fullkominn staður til gista
á með vinum eða fjölskyldu í stuttu fríi.
9. Hempel Hotel, London / Dylan Hotel, Amst-
erdam
Goðsagnakennd hótel, frábær staðsetning, æð-
islegar innréttingar og heimilislegt.
10. Chateau Marmont, Los Angeles
Fagurt og notalegt í alla staði. Eitt af þessum
gömlu góðu. Byggt árið 1929. Hótel stjarnanna, ein-
stök saga. John Belushi dó á þessu hóteli. Lúxus Góð þjónusta er aðalsmerki Grand Hyatt.
Bestu hótelin fyrir
viðskiptaferðir
Stórt Grand Hyatt er hæsta hótel í heimi.