Morgunblaðið - 18.05.2007, Page 23

Morgunblaðið - 18.05.2007, Page 23
tíska MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2007 23  Fljúgandi fegurð Dior tekur flugið í sumar og sendir frá sér kinnalit, augnskugga og varalit í glæsilegum, hvítum kassa sem er líka flottur fylgihlutur. Þetta er flugsett nr. 001 Peachy Adventure.  Tvískiptur Krem- kinnalitir eru vinsæl- ir í sumar. Þennan frá Make up Store, sem ber heitið Or- ange, má nota bæði á kinnar, augu og varir. Hann er hann er með pínulitlum gljáa sem er sumarlegt. Sumar konur dá það, aðrar forðastþað en allar höfum við reynt það:,,Fegurð er fyrirhöfn! Það hafanær allar konur á einhverju and- artaki í lífi sínu brosað í gegnum tárin, bitið saman tönnunum og sagt það æðru- laust – á engilsaxnesku: ,,Beauty is pain! Sumar hafa verið sannfærðar um að án fegurðar komist þær ekkert áfram í líf- inu, aðrar vissar um að fegurðin ein sé þeim til trafala og svo er auðvitað milli- rófið sem sveiflast fram og til baka í skoðunum sínum á þessari skepnu sem nefnd er tíska. En í förðun er einmitt eitt milliverk sem skipt getur sköpum, jafnvel þótt enginn sjái það. Og einmitt þess vegna er það svo skemmtilegt. Kinnarnar. Þessi líkamshluti sem aldrei fær neina sérstaka athygli nema í ástarsögum, þar sem þeim er annaðhvort lýst á drama- tískan hátt hjá konum sem rjóðum og sællegum eða fölum og nábleikum – og eiga þá að gefa til kynna líðan konu og sálarástand. Þessar elskur, kinnarnar, koma svo sem stundum vandræðalega upp um það síðarnefnda, svona eins og þegar þær að því er virðist sjálfkrafa roðna og fölna á víxl, einmitt á augnablik- unum sem mikilvægt er að þær haldi sín- um náttúrlega lit. En hvað sem því líður, þá er ekki nokk- ur vandi fyrir nútímakonur að verða eins rjóðar í vöngum og þær lystir. Til þess eru kinnalitirnir, þessi himneska uppfinn- ing einhvers hugulsams. Með þá í takinu og réttu taktíkina verður fegurðin ekki nokkur einasta fyrirhöfn í sumar, þegar kinnarnar eiga að vera dálítið bleikar – en á sem náttúrlegastan hátt, auðvitað … Morgunblaðið/ÞÖK Frískleg Kinnaliturinn á ekki að vera áberandi heldur eins og náttúrulegur roði í kinnum.  Bleikar kinnar Hinn undurfagri bleiki tónn er í há- tísku í kinnalitum í sumar. Shiseido slær rétta tóninn með púðurkinna- litnum Playful Pink. Rjóðar í kinnum  Náttúrulegur roði Estée Lauder kemur skemmtilega á óvart með gamla, góða kin- nalitastaukinn en að vitaskuld í nýrri út- færslu og klikkar ekki. Ekkert er auð- veldara en að smyrja smávegis á kinnarnar og dreifa því síðan úr með fingrunum þar til roðinn lítur út fyrir að vera náttúrulegur. uhj@mbl.is Eins og í öllum almennilegum fræðum eru nokkrar grunnreglur sem best er að fara eft- ir til þess að ekki fari nú illa og fegurðin verði jafnvel ekki falleg.  Regla númer eitt: Veldu rétta litinn fyrir þína húðtegund. Jú, bleikur er í tísku í sumar en ef sá litur fer þér engan veginn, hikaðu þá ekki við velja eitthvað sem fer þér betur, eins og vínrauða tóna, appels- ínugula eða gyllta.  Regla númer tvö: Gleymdu aldrei hver er tilgangurinn með því að nota kinnalit. Roðinn í kinnunum á að líta út fyrir að vera sem eðlilegastur, eins og eftir úti- veru eða létta líkamsrækt. Mikki mús er ekki málið hér, því rauðara því verra.  Regla númer þrjú: Það er munur á nóttu og degi. Á daginn eru eplakinnar svolítið sætar, sérstaklega á sumrin en á kvöldin má leyfa sér örlítið meiri dramatík og strjúka litnum upp eftir kinnbeininu. Að- alatriðið er kinnaliturinn sé í samræmi við augnförðun og varir. Minna er yfirleitt betra en meira. Ekki nota kinnalit eins og Mikki mús

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.