Morgunblaðið - 18.05.2007, Page 24
matur
24 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
Þ
etta er matarmikil súpa sem gott er
að taka með sér í ferðalög þar sem
hluta hennar má laga fyrirfram,“
segir matgæðingurinn Jón Víðir
Hauksson um ilmandi kjúklinga-
súpuna í pottinum á eldavélarhellunni.
Jón Víðir starfar sem kvikmyndatökumaður
hjá Ríkissjónvarpinu og matreiðsluáhugann
hefur hann haft lengi. „Við öll systkinin höfum
gaman af mat. Áhugi minn hefur svo aukist enn
frekar í tengslum við vinnuna, en ég hef komið
töluvert að gerð matreiðslu- og ferðaþátta sem
teknir hafa verið víðsvegar um heim og það er
góður grunnur fyrir alþjóðlega matargerð. Þess
utan þá erum við karlmennirnir í fjölskyldunni
mikið fyrir að fara á veiðar og mér finnst algjört
frumskilyrði að veiðimaður geti hanterað sína
eigin bráð, hvort sem um er að ræða sjófugl,
gæs, hreindýr eða fisk.“
Með áhuga á norrænni matargerð
Þó að villibráðin teljist oft meiri veislumatur,
stendur Jón Víðir ekki verr að vígi er kemur að
hversdagseldamennskunni. „Ég sé að mestu um
matseldina á mínu heimili,“ segir Jón Víðir.
„Það eru þó nokkrir réttir sem konan mín,
Brynhildur Barðadóttir, gerir betur en ég, til að
mynda lasagna og svo matreiðir hún frábæran
humar. Restina sé ég um, svo framarlega sem
ég er ekki að vinna.“
Og matreiðsluáhuginn nær yfir marga ólíka
matreiðslustrauma.
„Það er tvennt sem er á náttborðinu hjá mér,
matreiðslubækur og veiðitímarit,“ segir Jón
Víðir sem leitar víða fanga.
„Ég hef mikinn áhuga á norrænni matargerð
og er til dæmis mikill áhugamaður um síld og
matreiðslu hennar, sem og aðrar matarhefðir á
Norðurlöndunum.“ Fimm ára dvöl í Svíþjóð
kynnti hann fyrir sænskri matargerð, auk þess
sem gott norrænt hráefni á sinn þátt á áhug-
anum. „Við Norðurlandabúar eigum virkilega
gott hráefni, bæði fisk, osta og sveppi og svo
kemur villibráðin náttúrlega sterk inn,“ segir
Jón Víðir sem sjálfur fer jafnan og tínir bæði
sveppi og ber hér heima á haustin.
„Ég hef svo einnig mikinn áhuga á alþjóðlegri
matargerð og geri til að mynda töluvert af því
að elda indverska, ítalska og austurlenska
rétti.“
Súpa sem klikkar ekki
Er kemur að réttum sem eru í sérstöku uppá-
haldi eru Jón Víðir og Brynhildur hins vegar
ekki alveg á sama máli. „Við erum dálítið ólík
hjónin þegar kemur að uppáhaldsréttunum.
Þegar ég elda eitthvað sérstaklega fyrir hana
þá er það yfirleitt ítalskt eða indverskt, en vilji
ég gera vel við mig vel ég frekar góðan saltfisk-
rétt eða lambaskanka í rauðvíni.“
Kjúklingasúpan sem Jón Víðir gefur okkur
uppskriftina að er hins vegar í miklum metum
hjá allri fjölskyldunni, en uppskriftina þróaði
Jón Víðir sjálfur út frá ítölskum minestrone-
súpum. „Það má segja að austrið mæti vestrinu
í þessari súpu því í henni má finna bæði ítölsk og
austurlensk áhrif. Hún er matarmikil, en ekki
þung og hægt að leika sér með magn og teg-
undir grænmetis og bæta jafnvel baunum sam-
an við ef vill. Við hjónin bjóðum oft upp á þessa
súpu þegar við förum með einhverju vinafólki
okkar í veiðiferðir á sumrin, enda er hún frábær
sem nestiskostur í ferðalögum – klikkar ekki!“
Kjarnmikil kjúklingasúpa
fyrir 6-8
Þennan hluta má gera fyrirfram og taka t.d.
með sér í bústaðaferð eða útilegu þar sem seinni
hluta uppskriftarinnar er bætt við.
1 heill kjúklingur
1 laukur
1 stilkur sellerí
1 gulrót
2 lárviðarlauf
10 piparkorn
Kjúklingurinn er soðinn í vatni ásamt græn-
meti og kryddi við vægan hita í um þrjú korter.
Kjúklingurinn er því næst tekinn upp úr og
kældur. Soðið er þá síað og sett til hliðar. Þegar
kjúklingurinn er síðan orðin kaldur er kjötið
reytt af. Kjúklingur og soð er svo geymt í sitt-
hvoru ílátinu.
Seinni hluti:
Á áfangastað er síðan seinni hluti súpunnar
gerður, en í hann fara:
2 sellerístilkar
brokkólí, lítill haus
8 rif hvítlaukur
2 rauð chilli
2 gulrætur
1 laukur, grófsaxaður
4 beikonsneiðar
2-3 kvistar rósmarín
2 tómatar, saxaðir og fræhreinsaðir
1 poki tortellini (t.d. Barilla með ostafyllingu)
fersk basilíka
ferskt kóríandar
safi úr sítrónu
grænt pestó
parmesanostur, ef vill
Grænmetið grófsaxað, nema chilli sem er fín-
saxað. Þeir sem vilja hafa súpuna bragðminni
fræhreinsa chillibelgina. Beikonið er skorið í
litlar sneiðar. Rósmarínnálar fjarlægðar af
stönglunum og fínsaxaðar. Ólífuolía sett í pott
og grænmetið, utan tómata, er steikt ásamt
beikoni og rósmarín.
Kjúklingasoðinu er því næst bætt saman við
og suðan látin koma upp, súpan er svo styrkt
með kjúklingakrafti. Tortellini og kjúklinga-
kjötinu er því næst bætt saman við og súpan
soðin þar til pastað er soðið. Bragðbætið með
salti, pipar og sítrónusafa. Söxuðu kóríander og
basiliku bætt út í í lokinn ásamt söxuðum, fræ-
hreinsuðum tómötum.
Súpan er framreidd með teskeið af pestói á
hvern disk og parmesanostur rifinn yfir.
Borin fram með nýju og góðu brauði.
Matreiðslubækur
og veiðiblöð á náttborðinu
Morgunblaðið/ÞÖK
Matgæðingurinn Jón Víðir Hauksson hefur haft gaman af mat og matargerð frá unga aldri.
Ilmandi Hún lofar óneitanlega góðu, kjúklingasúpan í pottinum. Kjúklingasúpan Kjarnmikil og góð og hentar því vel í veiðiferðina.Hráefnið Breyta má grænmetinu í súpuna eftir smekk.