Morgunblaðið - 18.05.2007, Qupperneq 46
46 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
- Kauptu bíómiðann á netinu
Sími - 462 3500 Sími - 551 9000Sími - 564 0000
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann
Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
ÍSLEN
SKT
TAL
STURLAÐ STÓRVELDI
NÝJASTA ÞREKVIRKIÐ FRÁ MEISTARA DAVID LYNCH.
eeee
„Marglaga listaverk...
Laura Dern er mögnuð!“
K.H.H, FBL
eeee
„Knýjandi og
áhrifaríkt verk!”
H.J., MBL
eeee
L.I.B., TOPP5.IS
GOÐSÖGNIN UM ÍSLENSKU VÍKINGANA LIFIR GÓÐU
LÍFI Í ÞESSARI KYNGIMÖGNUÐU HASARMYND!
Í KJÖLFAR 300 KEMUR PATHFINDER
TVEIR HEIMAR
EITT STRÍÐ
LOKAORUSTAN
ER HAFIN!
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
eee
L.I.B, Topp5.is
eee
FGG - FBL
eee
T.V. - kvikmyndir.is
Frábær gamanmynd um strák og stelpu og stelpu og strák!
Með Samaire Armstrong úr O.C. og Kevin Zegers úr Dawn of the Dead
Hann reynir að kom-
ast úr nærbuxunum
hennar... ekki í þær!
kevin
zegres
samaire
armstong
sharon
osbourne
Fracture kl. 8 - 10.10 B.i. 14 ára
It’s a Boy Girl Thing kl. 6
Spider Man 3 kl. 8 - 10.40 B.i. 10 ára
25.000 MANNS
Á AÐEINS 10 DÖGUM!
Fracture kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára
It’s a Boy Girl Thing kl. 3.45 - 5.50 - 8 -10.10
Spider Man 3 kl. 5 - 8 - 10.50 B.i. 10 ára
Spider Man 3 LÚXUS kl. 5 - 8 - 10.50
Pathfinder kl. 8 - 10.15 B.i. 16 ára
TMNT kl. 4 - 6 B.i. 7 ára
Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 3.45 * Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
Painted Veil kl. 5.30 - 8 - 10.30
It’s a Boy Girl Thing kl. 5.50 - 8 - 10.10
Spider Man 3 kl. 6 - 9 B.i. 10 ára
Inland Empier kl. 5.45 - 9 B.i. 16 ára
FRUMSÝNING
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
MAGNAÐUR SÁLFRÆÐITRYLLIR
Ef þú rýnir
nógu djúpt
sérðu að
allir hafa
veikan blett
Þau skipta óvart um líkama og nota
tækifærið til að hefna sín á hvort öðru!
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Aldamótin 1900 verða Eyr-bekkingum og Stokkseyr-ingum hugleikin um kom-andi helgi þegar
vorhátíðin Vorskipið kemur! verður
haldin í þorpunum tveimur. Þema
hátíðarinnar er árin í kringum þar-
seinustu aldamót og má sjá áhrif
frá þeim í skemmtun, leik og söng,
sýningum og uppákomum.
„Okkur fannst tilvalið að minnast
síðustu gullaldarþorpanna þegar
vorskipin komu upp að landinu með
nýjar vörur, fréttir utan úr heimi
og menningarstrauma,“ segir Frið-
rik Erlingsson, rithöfundur og íbúi
á Eyrarbakka, um hátíðina sem
hann kom ásamt öðrum á koppinn.
Friðrik segir almennt mikið
menningarlíf í þorpunum við
ströndina. „Hingað sækir fólk til að
vinna og hafa vinnustofur. Á
Stokkseyri er t.d. Hólmarast-
arhúsið sneisafullt af handverks- og
myndlistarfólki. Svona hátíð er líka
til þess að draga þetta fólk fram í
dagsljósið og gefa því tækifæri á að
sýna hvað það hefur gert.“
Athygli vekur að Eyrbekkingar
og Stokkseyringar eru saman í liði
með þessa hátíð og spurður hvort
enginn rígur sé enn á milli þorp-
anna segir Friðrik það auðvitað
vera.
„Við erum mjög ákveðnir í að
halda hrepparígnum, enda er hann
partur af menningarsögu þorpanna,
en við gerum það nú með menning-
arlegum og siðmenntuðum hætti.“
Íslensk glíma og markaður
Vorskipið kemur! verður sett í
kvöld kl. 20 með tónleikum Djass-
bands Suðurlands og kvennakórsins
Ljósbráar úr Rangárþingi í sam-
komuhúsinu Stað á Eyrarbakka.
„Það verður mikið um að vera
hjá okkur enda vildu allir vera með.
Meðal annars verða félagar í
Leikfélagi Selfoss með spuna-
dagskrá í gervi bændafólks í kaup-
stað alla helgina, en Leikfélagið
sýnir einnig einþáttunginn Bón-
orðið eftir Chekov í Húsinu á Eyr-
arbakka á sunnudeginum. Byggða-
safnið opnar sýningu á myndum og
munum frá Konungskomunni 1907,
markaður verður opnaður í Ísfold,
Lúðrasveit Selfoss leikur, sýnd
verður íslensk glíma, Elvar Guðni
listmálari opnar sýningu í Hólm-
arastarhúsinu, í Sundlaug Stokks-
eyrar verða á floti stuttar skemmti-
sögur og gátur og í Óðinshúsinu
verður opnuð ljósmyndastofan Eyr-
arbakki 1900 en þar standa fjórar
ljósmyndir af aldamótafólki í fullri
líkamsstærð og geta gestir sett
andlitið í þar til gerð op og látið
smella af sér mynd,“ segir Friðrik
og bætir við að það megi ekki
gleyma Álfa- og tröllsafninu,
Draugasetrinu, Törfagarðinum og
Veiðisafninu.
„Ef fólk á þjóðbúning, upphlut
eða skárri föt sem gætu talist vera
frá þessum áratugum í kringum
aldamótin 1900 væri nú gaman ef
það myndi klæða sig aðeins upp og
koma í heimsókn um helgina,“ segir
Friðrik sem ætlar sjálfur að taka á
móti gestum í bresku tvídi og hné-
buxum.
Menningarlíf
í þorpunum við
ströndina
Nánari dagskrá vorhátíðarinnar
Vorskipið kemur! má sjá á:
www.eyrarbakki.is eða
www.stokkseyri.isSjómenn Friðrik Erlingsson og Sverrir Geirmundsson í Óðinshúsi máta
sig við sjómannafötin á ljósmyndastofunni Eyrarbakki 1900.