Morgunblaðið - 18.05.2007, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2007 49
THE REAPING kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
GOAL 2 kl. 6 - 8 B.i. 7 ára
BLADES OF GLORY kl. 10:10 B.i. 12 ára
MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 6 LEYFÐ
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
SPIDER MAN 3 kl. 5 - 8 B.i. 10 ára
BECAUSE I SAID SO kl. 8 LEYFÐ
BLADES OF GLORY kl. 6 LEYFÐ
THE MESSENGERS kl. 10:10 B.i. 16 ára
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Á SAMbio.is
WWW.SAMBIO.IS
eee
L.I.B, Topp5.is
eee
FGG - FBL
eee
T.V. - kvikmyndir.is
STÓRSTJÖRNUR ÚR
Hraðskreiðir bílar, súpermódel og partý...
Þarf ekki eitthvað meira til að sanna að þú sért frábær leikmaður?
REAL MADRID... 25.000 MANNS
Á AÐEINS 10 DÖGUM!
eee
S.V. - MBL
A.F.B - Blaðið
eeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
S.V.
FORSALA HAFIN - TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Í TÍMA !
Lýstu eigin útliti.
Hávaxinn og íþróttamannslegur.
Hvort ætlarðu að koma 18. eða 19. maí á sýninguna
Gyðjan í vélinni? (Spurt af síðasta aðalsmanni, Guðlaugu
Elísabetu Ólafsdóttur leikkonu)
Ef hún verður sýnd á Norðfirði.
Hvað er það furðulegasta sem þú hefur reynt?
Ég söng án undirleiks fyrir framan alla unglingadeildina
frumsamið lag í söngvakeppni.
Hvaða auglýsingar þolirðu ekki?
Kosningaauglýsingar.
Uppáhaldsmaturinn?
Lambakótilettur að hætti pabba.
Hvenær lastu bók síðast?
Fyrir 3 vikum.
Hvaða plötu ertu að hlusta á?
1 eftir Bítlanna.
Hvað uppgötvaðir þú síðast um sjálfa þig?
Ég get gert teiknimyndir.
Hver er átrúnaðargoðið?
Michael Jordan.
Hefurðu lesið sjálfshjálparbók?
Nei.
Hefurðu reynt að hætta að drekka gos?
Nei.
Hefurðu þóst vera veikur til að sleppa við að mæta í
vinnu eða skóla?
Aldrei.
Geturðu farið með ljóð?
Auðveldlega.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stærri?
Eitthvað sem tengist náttúruvísindum.
Teiknimyndir eða leiknar myndir?
Hvorttveggja.
Hvaða kvikmynd eða sjónvarpsefni hefur haft mest áhrif
á þig?
Boston Legal.
Hvers viltu spyrja næsta viðmælanda?
Hefurðu farið á söngleikinn Leg í Þjóðleikhúsinu?
SIGURÐUR SKÚLI
AÐALSMAÐUR VIKUNNUR VANN Í FLOKKI
HREYFIMYNDA Á TÖKU 2007, KVIKMYNDAHÁ-
TÍÐ GRUNNSKÓLANNA Í REYKJAVÍK, MEÐ
TEIKNIMYNDINA LEYNILÖGGAN. SIGURÐUR
SKÚLI SIGURGEIRSSON ER NEMANDI Í 9. BEKK
BORGASKÓLA Í GRAFARVOGI OG ÞRÁTT FYRIR
VELGENGNI Á KVIKMYNDASVIÐINU ÆTLAR
HANN AÐ STARFA VIÐ EITTHVAÐ TENGT NÁTT-
ÚRUVÍSINDUM Í FRAMTÍÐINNI.
Aðall Sigurður Skúli Sigurgeirsson.
Morgunblaðið/Golli
TÓNLISTARHÁTÍÐIN Vorblót
hófst í gærkvöldi þegar hin mala-
víska Oumou Sangare söng sig inn í
hjörtu Íslendinga á Nasa. Í kvöld
mun svo hin skoska sveit Salsa Cel-
tica og hin íslenska Stórsveit Sam-
úels Jóns Samúelssonar leika á
Nasa. Salsa Celtica lék á eft-
irminnilegum tónleikum Vorblótsins
í fyrra og er mætt aftur til leiks í ár
með sína einstöku blöndu af fun-
heitri salsa tónlist, kúbönskum char-
anga töktum og keltneskri sveiflu.
Vorblóti lýkur annað kvöld með
tónleikum Goran Bregovic & Wedd-
ing and Funeral Band í Laugardals-
höll í samvinnu við Listahátíð í
Reykjavík. Bregovic kemur fram
með strengjasveit, karlakór og
hljómsveit sína. Tónleikar hans
þykja engum líkir, en hann hefur
m.a. unnið sér það til frægðar að
semja tónlist fyrir kvikmyndir Emir
Kusturica og fyrir jafn ólíka tónlist-
armenn og Iggy Pop og Cesaria
Evora.
Eitthvað er til enn af miðum á við-
burði hátíðarinnar. Miðasala fer
fram í verslunum Skífunnar, BT Eg-
ilsstöðum, Selfossi og Akureyri og á
www.midi.is. Einnig verða seldir
miðar við inngang NASA þegar hús-
ið verður opnað í kvöld kl. 20. Tón-
leikarnir hefjast kl. 21 öll kvöld há-
tíðarinnar. Miðaverð er 3.500 kr. á
tónleika Salsa Celtica og Samúels
Jóns Samúelssonar, en 4.900/5.900
kr. á tónleika Goran Bregovic.
Stuðband Salsa Celtica leikur á Nasa í kvöld.
Salsa Celtica á
Vorblóti í kvöld
www.vorblot.is