Morgunblaðið - 21.05.2007, Side 2

Morgunblaðið - 21.05.2007, Side 2
2 MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragn- arsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is GEIR H. Haarde og Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir, formenn Sjálfstæð- isflokks og Samfylkingar, funduðu í gær á Þingvöllum um mögulegt stjórnarsamstarf flokkanna. Hvor- ugt hefur viljað gefa nokkuð upp um efnislegt innihald viðræðnanna nema að unnið sé að orðalagi í stjórnarsáttmála. Formennirnir gerðu hlé á viðræðum sínum til að ræða við fréttamenn í gær og sögðu þá bæði að viðræður gengju vel. Ásamt formönnunum hafa Andri Óttarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformað- ur flokksins, setið fundina fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins og Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, Skúli Helga- son, framkvæmdastjóri flokksins og Össur Skarphéðinsson, þing- flokksformaður, hans fyrir hönd Samfylkingarinnar. Formennirnir hafa sagt að nú sé fyrst og fremst verið að vinna að orðalagi stjórnarsáttmála. Aðspurð um hvort farið væri að ræða ráð- herraskiptingu sögðu þau Geir og Ingibjörg að viðræðurnar væru ekki komnar á það stig en rætt væri um mögulegt samstarf á víð- um grunni, allt lægi undir. Jafnframt hafa þau ekki gefið upp hvenær niðurstaða fæst í við- ræðurnar. Þingflokkar flokkanna verði kallaðir saman þegar niður- staða fáist. Bæði hafi þau fullt um- boð sinna flokka til viðræðnanna. Viðræðurnar hafa nú staðið yfir í þrjá daga eða frá því á föstudag. Áfram fundað á Þingvöllum Morgunblaðið/Ómar Unnið að orðalagi málefnasamnings TENNISHÖLLIN í Kópavogi var formlega opnuð í gær en byggingaframkvæmdir við þetta þriggja valla hús hófust í júlí í fyrra. Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, gaf upp fyrsta boltann í höllinni og Soffía Sóley Jónasdóttir, fjögurra ára, tók á móti honum með spaða sínum og átti þar með fyrsta tennisskotið. Jónas Páll Björnsson, framkvæmdastjóri hall- arinnar, segir að hún uppfylli ströngustu kröfur og sé lögleg fyrir alþjóðamót. Lögð sé áhersla á að taka á móti öllum sem áhuga hafi á íþróttinni og í því sam- bandi bendir hann á að boðið sé upp á byrjenda- námskeið fyrir alla aldurshópa og tennis- og leikja- skóla fyrir börn á sumrin. „Tennis er íþrótt fyrir alla aldurshópa og tennishöllin er opin fyrir alla sem vilja læra eða spila tennis,“ segir hann. Tennishöllin er í Smáranum og er Tennisfélag Kópa- vogs með þrjá útivelli við hliðina en reksturinn er sam- eiginlegur. Höllin er 2.250 fermetrar að stærð og í eigu hlutafélags tennisáhugamanna. Húsið er opið alla virka daga frá klukkan 7.30 til 22 og frá kl. 09 til 17 um helg- ar en auk þess getur fólk fengið afnot að húsinu á öðr- um tímum. Morgunblaðið/Árni Torfason Tennishöllin í Kópavogi tilbúin Fjögurra ára stúlka átti fyrsta skotið UNDIRBÚNINGUR að álveri Norðuráls í Helguvík er kominn vel á veg. Gert er ráð fyrir að fram- kvæmdir hefjist fyrir áramót og fyrstu ker verði tekin í gagnið 2010. Ragnar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri viðskiptaþróunar og fjármálasviðs Norðuráls, segir verk- efnið vera í lögformlegum farvegi og almenn sátt ríki um verkefnið á svæðinu. Í nýframlagðri frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum kemur fram að álverið falli undir íslenska ákvæði Kyoto-bókunarinnar og sam- ræmist stefnu ís- lenskra stjórn- valda um útstreymi gróð- urhúsaloftteg- unda. Áhrif á aðra umhverf- isþætti eru í flest- um tilvikum talin óveruleg nema á afmörkuðum svæðum sem fara undir mannvirki. „Við höfum farið eftir þeim ferlum sem Alþingi hefur sett um fram- kvæmdir sem þessar og höfum unnið að undirbúningi í góðu samstarfi við Skipulagsstofnun og aðra aðila sem málið varðar. Verkefnið er í réttum lögformlegum farvegi,“ segir Ragn- ar. Mun reiða sig á orku frá jarðvarmavirkjunum Fyrir liggur orkusamningur við Hitaveitu Suðurnesja og samningur við Orkuveitu Reykjavíkur er á loka- stigum. Er fyrirtækið því ekki háð orku frá Landsvirkjun. „Það hefur verið almenn sátt um jarð- varmavirkjanir, eins og þær sem við munum fá orkuna frá. Einnig erum við að tala um áfangaskipt verkefni sem dreifist yfir nokkuð langan tíma.“ Ragnar bendir á að verkefn- inu hafi verið vel tekið meðal sveit- arstjórna á svæðinu og jafnframt hafi þingmenn kjördæmisins verið almennt jákvæðir í garð þess. Þá hafi skoðanakannanir sýnt af- gerandi stuðning við verkefnið með- al íbúa á svæðinu. Gert er ráð fyrir að fyrstu framkvæmdir vegna ál- versins í Helguvík geti hafist fyrir áramót.  Undirbúningur að álveri í Helguvík er kominn vel á veg  Norðurál metur stuðning við verkefnið mikinn á svæðinu og meðal þingmanna kjördæmisins Fyrstu ker í gagnið 2010 Ragnar Guðmundsson STURLA Böðv- arsson, 1. þing- maður Norðvest- urkjördæmis, hefur orðið við beiðni Jóns Bjarnasonar, þingmanns Vinstri hreyfing- arinnar – græns framboðs, um að kalla saman þingmenn kjördæmisins til að funda um hina alvarlegu stöðu sem komin er upp á Flateyri með sölu á veiðiheimildum og lokun fisk- vinnslufyrirtækisins Kambs, aðal- fyrirtækisins á staðnum. Í bréfi sínu til Sturlu þar sem beð- ið er um að fundurinn verði boðaður, segir Jón að stjórnvöldum beri skylda til að grípa þegar í stað til að- gerða sem duga til að koma í veg fyr- ir fjöldaatvinnuleysi og brotthvarf fyrirtækja frá Flateyri. Gagnrýnir hann viðbrögð einstakra stjórnar- þingmanna og ráðherra sem láta at- burðina koma sér á óvart. „En allur almenningur á Vestfjörðum sér hvað er að gerast,“ segir Jón í samtali við Morgunblaðið. „Þegar ráðamenn þjóðarinnar segjast ekki vita hvaðan á þá stendur veðrið, þá ber það vitni um veruleikafirringu þeirra,“ segir Jón. Segir ráða- menn veru- leikafirrta Jón Bjarnason MARGT var um manninn á opnum degi á svæði gömlu varnar- stöðvarinnar á Miðnesheiði í gær. Keilir, mið- stöð vísinda, fræða og atvinnu- lífs, Þróunarfélag Keflavíkurflug- vallar og Reykja- nesbær stóðu fyrir deginum en þess- ir aðilar vinna nú hörðum höndum að uppbyggingu háskólasamfélags á Keflavíkurflugvelli. Flestir þeirra sem lögðu leið sína á varnarsvæðið skoðuðu námsframboðið í skólanum en á næstunni verða um 1.000 gaml- ar varnarliðsíbúðir boðnar háskóla- nemum til leigu. Hjálmar Árnason, forstöðumaður fagskóla Keilis, var hæstánægður með daginn. „Það var algjör sprenging hjá okkur. Þrátt fyrir slagviðri um tíma komu um 15- 17 þúsund manns, langt umfram okkar væntingar og það segir sitt um þann áhuga sem við sem stöndum að þessu höfum orðið vör við.“ „Algjör sprenging hjá okkur“ Hjálmar Árnason 15-17 þúsund heim- sóttu varnarsvæðið LANDSKJÖRSTJÓRN hefur stað- fest að þeir Árni Johnsen, nýkjörinn þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, og Björn Bjarna- son, dóms- og kirkjumálaráðherra og þingmaður í Reykjavíkurkjördæmi suður, færast niður um eitt sæti á þingmannalista. Árni færist úr öðru sæti í það þriðja á listanum í Suður- kjördæmi, niður fyrir Kjartan Þ. Ólafsson. Björn færist úr öðru sæti listans í Reykjavíkurkjördæmi suður í það þriðja, en í hans stað kemur Ill- ugi Gunnarsson í annað sætið. Landskjörstjórn kom saman í gær og úthlutaði þingmannasætum á grundvelli skýrslna yfirkjörstjórna um kosningaúrslit í kjördæmum eftir alþingiskosningarnar sem fram fóru 12. maí s.l. Þá gaf stjórnin út kjör- bréf til þeirra frambjóðenda sem náðu kjöri og til jafnmargra vara- manna. Árni og Björn niður um sæti ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.