Morgunblaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN VILDAR KLÚBBUR GLITNIS SVONA SAFNAR ÞÚ GLITNISPUNKTUM • Kreditkortanotkun • Viðskiptavinir í Vildarþjónustu • Bílalán hjá Glitni Fjármögnun • Viðbótarlífeyrissparnaður • Eignastýring • Einkabankaþjónusta • Tryggingar hjá Sjóvá og margt fleira SKRÁÐU ÞIG NÚNA! Þeir sem skrá sig fyrir 17. júní fá 10.000 Glitnispunkta strax! H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 8 1 3 1 Í LEIÐARA Morgunblaðsins á laugardag var fjallað um frammi- stöðu VG í nýafstöðnum kosningum og þá sérstaklega formanns flokks- ins, Steingríms J. Sigfússonar. Um- ræða um kosningabaráttuna, kosn- ingaúrslitin og það sem gerðist í kjölfarið er góðra gjalda verð. Slík greining hefur að sumu leyti verið ágætlega gerð á síðum Morg- unblaðsins. Það á þó ekki við um umræddan leiðara. Morgunblaðið verður eins og aðrir að gæta sann- girni og láta menn njóta sannmælis. Það er ekki gert í umræddum leið- ara. Leiðarahöfundur setur gagnrýni sína fram í fimm liðum. Í fyrsta lið segir að VG hafi tapað atkvæðum því flokkurinn hafi hætt að berjast og farið að trúa á skoðanakann- anir. Þetta er rangt. VG hætti ekki að berj- ast og fór aldrei að trúa á skoðanakann- anir. Það gerðu hins vegar andstæðingar okkar, þar á meðal Morgunblaðið, sem margeflt hóf upp and- róður gegn flokknum, m.a. með hræðslu- áróðri. Í öðru lagi segir Morgunblaðið að VG hafi útilokað Framsókn frá hugsanlegu stjórn- arsamstarfi. Þetta gerðum við aldr- ei. Tal leiðarahöfundar í þá veru að með því að vekja athygli á ósvífnum auglýsingum Framsóknar hafi verið svo að þeim flokki vegið að þar með hafi stjórnarsamstarf verið útilokað! Er þetta svaravert? Það sem hins vegar hefði gert stjórn- armyndunarviðræður flokkanna erfiða er gerólík stefna þessara flokka í atvinnu- og umhverfismálum. Þá á það að hafa gert illmögulegt að mynda stjórn með aðild VG og Framsóknar að VG skyldi hafa dirfst að bjóða Framsókn upp á að styðja minni- hlutastjórn. Þetta er fráleitt í ljósi þess að forsvarsfólk Framsókn- arflokksins hafði sjálft lýst því yfir að flokkurinn myndi standa utan ríkisstjórnar ef hann byði afhroð í kosningunum. Sú varð raunin. Í fjórða lagi er það sérstakur málsliður hjá leiðarhöfundi Morg- unblaðsins að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafi metið það svo að hún hafi ekki talið möguleika á vinstri- stjórn vegna afstöðu Steingríms J. Sigfússonar til Framsóknarflokks- ins. Þetta var rangt mat hjá ISG. Í fimmta lagi segir leiðarahöf- undur að sér sýnist að Steingrímur J. Sigfússon hafi ekki áttað sig á að umtalsverður stuðningur var innan Sjálfstæðisflokksins við samstjórn með Vinstri grænum. Hann hafi gert litla sem enga tilraun til að nýta þá möguleika. Hvað á leiðarahöf- undur við? Það kom margoft fram af hálfu Steingríms J. Sigfússonar að samstjórn VG með Sjálfstæðisflokki væri ekki útilokuð nema síður væri. Er Morgunblaðið að segja að SJS hefði átt að krefjast fundar með Geir H. Haarde á meðan sá síðarnefndi sagði að svo liti út að framhald yrði á núverandi stjórnarsamstarfi? Var það ekki Geirs H. Haarde að sýna slíkt frumkvæði? Hefði ekki verið heiðarlegast af honum að skila stjórnarmyndunarumboði sínu inn til forseta Íslands þegar hann hafði gert upp við sig að ekki yrði fram- hald á stjórnarsamstarfi Sjálfstæð- isflokks og Framsóknarflokks? Undir lok leiðarans sýnir höf- undur hans hvað raunverulega fyrir honum vakir, nefnilega að grafa undan formanni VG. Hann spyr því í fimmta lagi hvort ekki sé kominn tími á formanninn og nýtt fólk verði sett í brúna. Auðvitað kemur ein- hvern tímann að þessu en er ástæða til að refsa sérstaklega þeim for- ystumanni sem leitt hefur flokk sinn til meiri kosningasigurs en nokkur annar í þessum kosningum? Fram- sókn beið afhroð, Samfylking tapaði Furðuskrif Morgunblaðsins Ögmundur Jónasson svarar leiðara Morgunblaðsins »Morgunblaðið verð-ur eins og aðrir að gæta sanngirni og láta menn njóta sannmælis. Það er ekki gert í um- ræddum leiðara. Ögmundur Jónasson AÐ undanförnu hafa birst all- margar fréttir um stafræna höfund- arréttarvörn eða DRM (e. Digital Rights Management). Þrátt fyrir þessa miklu umfjöllun hefur lítið verið gert af því að útskýra ná- kvæmlega hvað þetta fyrirbæri er. Skilningur á hugtakinu er að sjálf- sögðu einkar mikilvægur til þess að geta metið og gagnrýnt DRM og fréttaflutning af því. Höfundaréttur er skilgreindur í lögum til þess að verja höfundarverk gegn stuldi og annarri óeðlilegri notkun. Slíkar reglur eru almennt taldar siðferðislega réttar og eru virtar í samfélaginu. Að jafnaði gild- ir þó að sérstök höfundaréttarvörn er ónauðsynleg og ekki hagnýt. Enginn býst til að mynda við slíkri vörn á bók eða málverki, vörn sem myndi til dæmis krefja notanda um fingrafar áður en hann gæti opnað bókina eða skoðað málverkið. Þessi vörn er óþörf vegna þess að mjög erfitt er að afrita bók eða málverk og því tiltölulega öruggt að um frumrit er að ræða. Stafræn verk eru af öðrum toga þar sem auðvelt er að afrita stafræn gögn. Ef til vill af þeim sökum virð- ist fólk síður virða höfundarrétt þeg- ar kemur að stafrænum verkum. Á móti kemur að auðvelt er að útfæra forrit sem stjórnar að- gangi og notkun á stafrænum gögnum. Þrátt fyrir þennan mun gilda nokkurn veginn sömu reglur um notkun stafrænna verka og veraldlegri verka. DRM er hugtak sem lýsir forritum sem verja stafræn verk fyrir þjófnaði eða annars konar mis- notkun á frumriti sem lög kveða á um. Þessi forrit beita ýmsum aðferðum, yfirleitt dulritun, til þess að koma í veg fyrir ólöglega afritun. Dulritun er hins vegar ekki fullkomin vörn þar sem hægt er að brjóta hana og komast að frumrit- inu, en það er ólöglegt. Tilgangur DRM er að koma í veg fyrir ólöglega notkun efnis. Ýmis tæknileg at- riði koma hins vegar í veg fyrir að það mark- mið náist fullkomlega. Það er nóg að einn aðili brjóti dulritunarvörnina til þess að það verði eins og að hún hafi aldrei verið til; sá hinn sami getur dreift gögnunum án dulritunarinnar, eða upplýsingum um hvern- ig á að sniðganga hana, til allra sem vilja. Frægt er þegar Jon Lech Johansen, þá 15 ára, gaf frá sér forrit sem sniðgekk gagnavörnina á mynddiskum eða DVD. Forritið gerði það að verkum að hægt var að taka fullkomið afrit af diskunum. Lítið mál er þó að afrita DVD-disk löglega með því einfaldlega að afrita gagnastrauminn eftir að búið er að afkóða myndina. Slíkt afrit er hins vegar ekki í sömu gæðum og frum- ritið. Þess háttar afritun er lögleg upp að vissu marki eins og tilgreint er í íslenskum lögum; hún má ein- ungis vera til einkanota og greiða skal gjald til handhafa höfund- arréttar fyrir hverja slíka afritun. Það gjald er þó búið að greiða þegar keyptur er búnaður til afrit- Hvað er DRM? Björn Leví Gunnarsson lýsir DRM sem hann segir hugtak sem lýsi forritum » Skilningur á DRM,kostum og göllum er mjög mikilvægur til þess að geta gagnrýnt þá þróun sem er á meðhöndlun stafrænna verka. Björn Leví Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.