Morgunblaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2007 13 ERLENT Greining burðarvirkja Mannvirkjahönnun Vatna- og straumfræði Umhverfisverkfræði Jarðtækni og grundun Skipulag og samgöngur Framkvæmdafræði Náttúruvá VERKFRÆÐIDEILD www.hi.is UMHVERFIS- OG BYGGINGAR- VERKFRÆÐI Umsóknarfrestur er til 6. júní Nánari upplýsingar á www.verk.hi.is Lagadeild Umsóknarfrestur er til 5. júní. www.lagadeild.hi.is. Skrásetningargjald allt skólaárið aðeins kr. 45.000.- Laganám í Háskóla Íslands: Reynsla, metnaður og gæði STJÓRNVÖLD á Spáni hafa sent rúmlega 750 flóttamenn frá Afríku aftur til síns heima. Í hópnum voru meira en 30 börn. Fólkið er flest frá Senegal en það náðist í liðinni viku er það reyndi að komast í land á Kanaríeyjum. Stjórnvöld á Spáni hafa látið þau boð út ganga að allir ólöglegir innflytjendur verði sendir úr landi. Talið er að um 30.000 ólöglegir innflytjendur hafi verið stöðvaðir á Kanaríeyjum í fyrra. Flestir koma þeir frá vesturhluta Afríku. Afríkubúar sendir heim TUGIR manna féllu í hörðum bar- dögum hermanna og íslamskra bókstafstrúarmanna í Trípólí í Líb- anon í gær. Þetta eru hörðustu átök sem blossað hafa upp í landinu á síðustu árum. Talsmenn hersins sögðu 23hermenn hafa fallið í bar- dögunum. og 15 félagar í Fatah-al- Islam-samtökunum hefðu verið drepnir. Samtökin munu vera tengd Al-Qaeda-hryðjuverkanet- inu. Tugir drepnir í Líbanon SJÖ bandarískir hermenn og túlkur þeirra féllu í tveimur árásum í Írak í gær. Sex menn létust í árás víga- manna í vesturhluta Bagdad, og einn til viðbótar fórst þegar vegs- prengja sprakk við bíl í Diwanya um 130 km suður af höfuðborginni. Alls hafa 76 bandarískir hermenn fallið í Írak það sem af er maí- mánuði. Sjö hermenn falla í Írak YFIRGNÆFANDI meirihluti kjós- enda í Rúmeníu felldi í þjóðarat- kvæðagreiðslu um helgina tillögu um að höfðað yrði mál til embætt- ismissis gegn Traian Basescu, for- seta landsins. Þegar 92% atkvæða höfðu verið talin höfðu 74% kjósenda hafnað til- lögunni. Kosningaþátttaka var á hinn bóginn aðeins 44%. Forsetinn hefur átt í heiftarlegri valdabaráttu við Calin Poescu Trac- ieanu forsætisráðherra sem forðum var bandamaður hans. Forsetinn hefur hvatt and- stæðinga sína á þingi til að segja af sér en hann getur ekki þving- að fram þá nið- urstöðu. Traicie- nau og menn hans lögðu fram tillöguna, sem borin var undir þjóðina með þeim rökum að forset- inn hefði gerst sekur um stjórn- arskrárbrot. Basescu Rúmeníu- forseti hélt velli Traian Basescu TUGIR þúsunda manna komu saman í miðborg Cara- cas, höfuðborgar Venesúela, á laugardag til að mót- mæla þeim áformum Hugo Chavez forseta að láta loka einni helstu einkareknu sjónvarpsstöð landsins. Forset- inn hyggst ekki endurnýja starfsleyfi stöðvarinnar, sem hann sakar um undirróður gegn stjórn sinni. Reuters Fjölmiðlafrelsis krafist í Venesúela EHUD Olmert, forsætisráðherra Ísraels, lýsti yfir því í gær að gripið yrði til hertra hernaðaraðgerða á Gaza-svæðinu létu Palestínumenn ekki af eldflaugaárásum yfir landa- mærin. Eldflaugum hersveita Hamas- samtakanna hefur rignt yfir bæinn Sderot og nágrannabyggðir undan- liðna daga og hafa rúmlega 20 Ísrael- ar farist í þeim. Ísraelar felldu átta menn, hið minnsta, í gær í loftárás- um á herflokka og meintar vopna- verksmiðjur á Gaza. Olmert forsætisráðherra sagði ljóst að Ísraelar myndu herða mjög aðgerðir herafla síns á Gaza-svæðinu linnti árásum Palestínumanna ekki. Tók hann fram að Hamas-liðar myndu gjalda árásirnar á Sderot og nágrannabyggðir „dýru verði“. Á laugardag gekk í gildi fimmta vopnahléið í innbyrðis átökum Pal- estínumanna. Þar takast á fylgis- menn Fatah-hreyfingarinnar og Hamas-samtakanna sem saman mynda þjóðstjórn Palestínumanna. Talsmaður Hamas sagði að aðgerðir Ísraela myndu styrkja vopnahléið í bardögum hreyfinganna. Ljóst væri að Palestínumenn myndu ekki berj- ast innbyrðis á meðan Ísraelar héldu uppi hernaði á Gaza-svæðinu. Olmert hótar hertum aðgerðum á Gaza

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.