Morgunblaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is FIMMTA Íslandsferð 75 ára gam- allar konu frá Bandaríkjunum fékk hörmulegan endi á laugardag þegar hún drukknaði í Reynisfjöru, að fjöl- skyldu hennar ásjáandi. Konan var að ljúka fimm daga heimsókn sinni til Íslands ásamt systur sinni, dóttur og frænku og voru þær á ferð í 17 manna bandarískum ferðahópi á vegum Kynnisferða þegar förinni var heitið í Reynisfjöru skammt vestan Víkur í Mýrdal. Þar er vin- sæll áningarstaður þar sem gefur að líta fallegar bergmyndanir í sjáv- arklettum og stórkostlegt útsýni til hafs. Varasamt er að fara neðarlega í fjöruborðið vegna brimaldna sem geta komið fyrirvaralaust að landi og sogað fólk út á dýpið sem er gíf- urlega mikið rétt úti fyrir ströndu. Þegar ferðahópurinn kom að fjör- unni klukkan 15 á laugardag lét sjór- inn ekki mikið yfir sér í hægum norðanandvara og virtist ekki þess líklegur að senda banvænar öldur á land eins og raunin varð. Leiðsögumaðurinn í ferðinni gekk með hópnum ofan í fjöru, eftir að hafa varað fólkið við öldum. „Leið- sögumaðurinn stóð í fjörunni og varnaði fólki för að hellisskúta sem þarna er en heyrði þá hróp og læti. Sá hann þá konuna liggjandi eftir að alda hafði skellt henni í fjöruna, og hvernig aldan sogaði hana út,“ segir Sigríður Ásta Hallgrímsdóttir, starfsmannastjóri Kynnisferða „Tveir menn stukku á eftir henni og náðu til lands eftir illan leik án þess að ná til konunnar.“ Eftir slysið var strax haft sam- band við björgunarsveitir og lög- reglu ásamt þyrlu Landhelgisgæsl- unnar. Samferðafólk hinnar látnu varð fyrir miklu áfalli við atburðinn og var fólkið flutt til Reykjavíkur þar sem starfsmenn bandaríska sendiráðsins og áfallateymi Rauða krossins tóku á móti því. Lík hinnar látnu fannst í sjónum um klukkan 17 og voru það liðsmenn björg- unarsveitarinnar Víkverja frá Vík sem náðu henni um borð í gúmbjörg- unarbát sinn. Ferðahópurinn heldur af landi brott í dag og mun sendiráðið annast flutning hinnar látnu til síns heima í Pensylvaníuríki. Hafa ítrekað fjallað um öryggi Að sögn Stefáns Helga Valssonar, leiðsögumanns til 19 ára og ritstjóra Fréttabréfs leiðsögumanna, hafa leiðsögumenn og fleiri aðilar ítrekað bent á mikilvægi þess að bæta ör- yggi við helstu ferðamannastaði landsins en hingað til hefur annað hvort strandað á vilja eða fjármagni til að standa að slíkum fram- kvæmdum. Þess má geta að Slysa- varnafélagið Landsbjörg mun setja upp viðvörunarskilti og bjarghring við Reynisfjöru á næstu vikum. Verður það gert í samráði við heima- menn í Vík. Stefán Helgi segir ástandið lélegt á allnokkrum ferðamannastöðum á landinu og nefnir varasamar að- stæður við Gullfoss. Þar þarf að bæta girðingu við fossinn og bera sand á göngustíg í hálku. „Og auðvit- að mætti vera viðvörunarskilti við Reynisfjöru á fjórum tungumálum,“ segir hann. „Leiðsögumaður Kynn- isferða mun hafa varað fólk við hætt- unni, en þarna er um varhugaverðan stað að ræða og erfitt að kenna nokkrum um. Ferðamenn verða mjög uppteknir við að skoða sig um í fjörunni og snúa baki í sjóinn. Þá getur alda komið aftan að fólki. Ég hef margsinnis verið með fólk þarna og oft misst fólk undir öldu, án þess þó að það hafi farið á flot. Maður varar fólk alltaf við öldunum en samt blotna alltaf einhverjir. Stefán segir að ýmsa fjölfarna ferðamannastæði mætti laga, s.s. Geysissvæðið, Dettifoss, Seljalands- foss, Skógafoss og Dyrhólaey. Einar Bárðarson, formaður björg- unarsveitarinnar Víkverja, bendir á að sjólagið við Reynisfjöru á laug- ardag hafi verið mjög sérstætt. Sjór hafi verið ládauður en síðan hafi tvær stórar öldur komið á land með fyrrgreindum afleiðingum. Segir hann að enginn hafi átt von á öðru eins og mjög erfitt sé að sjá mynstur í sjólaginu til að átta sig á hegðun sjávarins þarna. „Þetta er breytilegt dag frá degi,“ segir hann. Einar bendir á að fjaran sé nægilega breið til að fólk geti haldið sig í öruggri fjarlægð frá sjónum og samt notið útsýnis að stuðlaberginu í fjörunni sem hefur einna mest aðdráttarafl gesta. Lögreglan í Vík hefur á liðn- um árum séð ástæðu til að vara ferðamenn við öldugangi og einstök dæmi eru þess að menn hafi lent í hættu þegar öldur ná til þeirra. Magnús Oddsson ferðamálastjóri segist aðspurður um ábyrgð ferða- skipuleggjanda ekki vita til þess að þeir séu sjálfkrafa ábyrgir fyrir slys- um nema meint sök þeirra sé sönnuð fyrir dómi. Meta verði hvert mál. Á liðnum árum hafa komið upp dæmi þar sem að ferðamenn hafa höfðað skaðabótamál á hendur ferðaskrifstofum eftir hrakfarir, án þess þó að takast að sanna ábyrgð þeirra. Hins vegar féll dómur í Hæstarétti 2004 þar sem fébóta- ábyrgð var lögð á ferðaskrifstofu vegna gáleysis við að skipuleggja ferðir í Glymsgil án þess að vitn- eskja um hættur lægju fyrir. Brimaldan sogaði konuna á haf út og ógnaði samferðamönnum Hætta Björgunarsveitarmenn frá Vík við slysstaðinn á laugardag. Til stendur að setja upp viðvörunarskilti og bjarg- hring í fjörunni á næstunni. Fyrir aftan þá er stuðlabergskletturinn sem hefur feikilegt aðdráttarafl á ferðamenn.                                        Í HNOTSKURN »Ekki eru nema nokkrirdagar síðan björg- unarsveitin í Vík fékk beiðni um að setja upp viðvör- unarskilti við Reynisfjöru. Verkefnið var rétt komið af stað þegar hið hörmulega slys varð á laugardag. »Árið 1985 var karlmaðurnokkur hætt kominn í Reynisfjöru þegar brimalda hreif hann með sér á haf út. Maðurinn lifði hrakfarirnar af en var kominn 2 km frá ströndu þegar honum var bjargað. Heimsókn ferðamanna að Reynisfjöru á laug- ardag breyttist í harm- leik er öldruð kona drukknaði og félagar hennar lentu í hættu við björgunartilraunir. FJÓRIR dómar sem féllu í Hæsta- rétti fyrir helgi, um eignarréttindi á landi í svokölluðum þjóðlendumál- um, eru fordæmisgefandi varðandi önnur slík mál, að mati Guðjóns Ægis Sigurjónssonar hæstaréttar- lögmanns en hann varði réttindi sveitarfélagsins í Rangárþingi ytra gegn kröfum ríkisins. Í málunum sem hér um ræðir féllst Hæstiréttur á kröfur landeig- enda um að svæðin væru háð sér- eignarétti þeirra. Rétturinn hefur áður fellt níu þjóðlendudóma en þess eru ekki dæmi að Hæstiréttur hafi áður snúið dómi eða úrskurði um þjóðlendu yfir í eignarland. Í þremur dómanna sem um ræðir var fjallað um svæði sem liggja sunnan Mýrdalsjökuls og sumar eldri heimildir benda til takmark- aðra nytja á. Leit Hæstiréttur eink- um til þess að fá rök væru til að landnám hefði verið takmarkað líkt og óbyggðanefnd hafði talið. Í fjórða málinu, máli íslenska rík- isins gegn Rangárþingi ytra, var hins vegar deilt um hvort óbyggða- nefnd hefði verið heimilt að ganga lengra en íslenska ríkinu við af- mörkun þjóðlendu á Rangárvallaa- frétti. Skaut sveitarfélagið úrskurði óbyggðanefndar til dóms í kjölfar þess að nefndin úrskurðaði að þjóð- lenda væri stærri en íslenska ríkið gerði kröfu til. Guðjón Ægir segir dóm Hæstaréttar staðfestingu á því að það var ekki hlutverk nefndar- innar að ganga svo langt. Hún geti ekki ákvarðað upp á sitt eindæmi hvort land er þjóðlenda eða öfugt. „Þetta er ákveðin staðfesting á því fyrir landeigendur að þeir geti náð sínum rétti. Það er þá ofurlítil breyting frá því sem verið hefur,“ sagði Guðjón Ægir. „Línurnar eru með þessu lagðar, menn eiga að geta lesið úr út niðurstöðum dóm- anna eitthvað varðandi framhaldið og óbyggðanefnd lítur væntanlega til niðurstöðu hæstaréttar í þessum fjórum málum í öðrum þjóðlend- umálum og þá líka varðandi sína kröfugerð.“ Fordæmisgefandi dómar Dómar Hæstaréttar fyrir helgi í fjórum þjóðlendumálum eru staðfesting á því að landeigendur geti náð rétti sínum                         !" #      $     %    "#                         !   "  "    &#     ' % " ( $#   &#     ) %"# "  &#              !     ÞEIR voru sposkir á svip krakk- arnir sem stilltu sér upp fyrir ljós- myndara á Café Flóru í Grasagarð- inum. Krakkarnir fylgdust grannt með iðandi gullfiskunum frá brúnni þegar ljósmyndara bar að, en gáfu sér þó tíma til að stilla sér upp. Café Flóra fagnaði 10 ára afmæli á laugardag og af því tilefni blésu eigendur kaffihússins til veislu; buðu upp á tónlistaratriði og léttar veitingar fram eftir degi. Morgunblaðið/Ómar Sumarstemning í Grasa- garðinum í Laugardal

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.