Morgunblaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 24
24 MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Gunnar TryggviBergsteinsson fæddist á Húsavík 29.11. 1956. Hann lést á gjörgæslu- deild Landspítalans í Fossvogi 12. maí sl. Foreldrar hans eru Bergsteinn L. Gunnarsson, f. 28.12. 1918, d. 21.1. 1999, og Aðalbjörg Jónasdóttir, f. 30.9. 1928, bændur í Kasthvammi í Lax- árdal í Suður Þingeyjarsýslu. Systkini Gunnars eru: Halla, f. 1960, Jónas, f. 1964, og Bjarni f. 1970. Eiginkona Gunnars er Val- gerður E. Að- alsteinsdóttir, f. 3.8. 1960. Foreldrar hennar eru Að- alsteinn P. Karls- son f. 27.10. 1943, og Margrét Sig- mundsdóttir, f. 10.9. 1941. Synir Gunnars og Val- gerðar eru: Berg- steinn, f. 3.7. 1980, og Aðalsteinn Mar, f. 24.4. 1985. Útför Gunnars fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin kl. 13. Á ýmsu átti ég von þennan sunnudagsmorgun, en að fá sím- hringingu með andlátsfregn, hvað þá að sá sem hefði látist væri Gunnar Tryggvi frændi – þvílíka fjarstæðu hafði ég ekki vitað um. En eins ótrúlegt og mér þótti það og þykir enn, þá var það því miður satt. Sannleikur sem ég er að reyna að takast á við og mun eins og svo margir aðrir þurfa að tak- ast á við alla ævi. Það er alveg ljóst að ég mun um alla eilífð sakna návista við frænda minn. Það háttar svo til að milli okkar frændsystkinanna eru sterkari bönd en algengt er á milli systk- inabarna. Fyrir mér er þetta því meira en að missa frænda. Það er skrítið þegar maður er orðinn 40 ára hvað stóru frændur og frænk- ur fara að færast nær manni í aldri. Þetta var að gerast hjá okk- ur frændum þó við höfum svo sem verið í góðum tengslum alla tíð. Tengsl okkar og samvera síðustu ár og misseri hefur verið meira sem vinir eða bræður. Ef ég hefði trú á að einhver stjórnaði þessu sem væri okkur öllum æðri og að allt hafi einhvern tilgang þá verð- ur það að viðurkennast að sú trú fer mjög dvínandi. Það má vel vera að ég sé eitthvað skrítinn en að kippa burt duglegum, heiðarlegum og traustum manni, rétt 50 ára, er brjálæði sem nær engri átt. Gunni hafði gaman af því að skoða bíla, ef það var sýning í ein- hverju umboðinu þá var ekki óal- gengt að hitta Gunna þar ef maður leit inn. Þó var hann ekki beint þekktur fyrir það að vera alltaf að skipta um bíla. Nánast frá því ég bara man eftir þá hefur nafn Gunnars Tryggva varla verið nefnt eitt og sér heldur oftast „Gunni og Valla“. Þau voru í góðu og traustu hjónabandi sem alltaf virtist vera svo ferskt og innilegt. Ég finn svo til með Völlu sem hefur misst traustan lífsföru- naut, ég finn líka til með elsku Að- albjörgu sem hefur misst elsta son sinn, Bergsteini og Aðalsteini sem hafa misst pabba og öllum öðrum sem hafa misst mikið því hér hefur missirinn ekki verðið léttvægur fyrir neinn, hvort heldur það er bróðir, vinur, vinnufélagi eða frændi. Ef eitthvað ætti að vera bannað í lífinu væri það að það sé mögulegt að maður eins og Gunni látist í blóma lífsins. Ef einhver getur sett það í lög þá skal ég kjósa þann aðila strax. Líf slökknar þegar síst skyldi óréttlætið sýnir enga mildi. Minningin mun lifa innra með mér Gunni, ég mun ei gleyma þér. Takk, elsku frændi, fyrir okkar góðu samverustundir, takk fyrir að hafa verið fyrirmynd mín í svo mörgu. Takk fyrir að þiggja vin- áttu mína og endurgjalda hana með traustri vináttu. Takk fyrir allt hitt sem ég man ekki eftir að nefna. Gunni, takk fyrir að hafa verið hluti af lífi mínu. Mér þótti svo sérlega vænt um þig sem ég reyndi að sýna í verki. Gunnar Tryggvi var maður sem öllum lík- aði vel við og fannst gott að vera nálægt. Minning um góðan dreng, frænda og vin mun lifa með mér og öllum sem hann þekktu. Bless- uð sé minning þessa góða manns. Við stöndum ekki ein, við erum ein stór fjölskylda þar sem hver styrk- ir annan. Megi vináttu- og fjöl- skyldubönd sem Gunna voru hug- leikin styrkja okkur öll. Gunnar Jón Yngvason. Margt ég vildi þakka þér og þess er gott að minnast að þú ert einn af þeim sem mér þótti gott að kynnast. (G. Jóhannsdóttir.) Góður vinur minn er fallinn frá alltof fljótt. Ég kynntist Gunnari árið 1999, þegar við hófum störf um svipað leyti hjá heildverslun Ásbjörns Ólafssonar. Þar var Gunni aðstoðarlagerstjóri, alltaf ró- legur og yfirvegaður, sama á hverju gekk. Það haggaði honum ekkert þó að óþolinmóðir og oft á tíðum ósanngjarnir sölumenn hlypu hverjir um aðra þvera á lagernum. Alltaf gaf hann sér tíma til að spyrja hvernig maður hefði það og hvað væri að gerast hjá fjölskyld- unni. Hann var einn af þessum mönnum sem lét sig aðra varða. Það er dýrmætur eiginleiki í okkar hraða samfélagi. Hann spurði ekki bara út í loftið og var svo rokinn, maður fann að hugur fylgdi máli. Hlýjan og faðmlögin sem maður fékk ef eitthvað bjátaði á hjá manni voru ekta. Þannig maður var Gunni, hann var ekta. Ég hætti að vinna með honum á síðasta ári en þegar ég kom í heimsókn á gamla vinnustaðinn var alltaf eins og við hefðum hist í gær. Þannig er það reyndar um nokkra samstarfsmenn okkar, við vorum ekki bara vinnu- félagar heldur einnig vinir. Við hjónin getum ekki fylgt honum síð- asta spölinn en verðum með ástvin- um hans í huganum. Með þessum fáu orðum langar mig að kveðja vin minn Gunnar og óska honum Guðs blessunar. Elsku Valla og synir, við Óttar sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur og vitum að Gunn- ar vakir yfir ykkur. Kær kveðja, Sigrún Sigurðardóttir Að jafnaði er vorið tími bjartsýni og gleði enda gróandinn hafinn og menn og málleysingjar leika við hvern sinn fingur, fullir vonar um að sumarið verði gott og gæfuríkt. Mitt í þessari árvissu gleði vorsins hefur sorgin knúið dyra fyrirvara- laust og án nokkurrar miskunnar. Gunnar Tryggvi Bergsteinsson ✝ Anna Bjarna-dóttir fæddist á Suðureyri 27. apríl 1936. Hún lést á kvennadeild Land- spítalans við Hringbraut 12. maí síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Bjarna G. Friðrikssonar, f. 1896, d. 1975, og Sigurborgar S. Jónsdóttur, f. 1903, d. 1991. Anna var níunda í röðinni af sextán systkinum. Látin eru óskírður drengur, Elísabet, Bergþóra, Friðrik, Þórhallur, Andrés, Karl, Sigríður og Eyj- ólfur. Eftirlifandi eru Ása, Páll, Karl, Arnbjörg, Borghildur og Hermann. Anna kvæntist 30. desember 1960 Ásmundi Magnúsi Haga- línssyni vélfræðingi, f. 14. febr- úar 1931. Foreldrar hans eru fjóra vetur og gekk í Austurbæj- arskólann og fermdist í Hall- grímskirkju. Hún kom svo heim á sumrin og var á Galtarvita þar til fjölskyldan flutti inn á Suður- eyri 1950. Anna starfaði á Suð- ureyri við fiskvinnslu fram eftir aldri, fór í kaupavinnu norður í Skagafjörð og seinna á gróð- urhúsabú í Árnes og Rang- árvallasýslu. Veturinn 1954– 1955 nam hún í Húsmæðraskól- anum á Laugarvatni. Þegar Anna var um tvítugt fór hún til Danmerkur og vann þar á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn í um tvö ár. Anna kynntist Magnúsi eig- inmanni sínum á íþróttamóti á Núpi í Dýrafirði árið 1952 og byrjuðu þau búskap á Rauð- arárstíg árið 1959. Frá árinu 1970 fór Anna út á vinnumark- aðinn og vann verslunar- og þjónustustörf en lengst vann hún í versluninni Dún- og fið- urhreinsunin við Vatnsstíg, eða í ein 20 ár, við saumaskap og af- greiðslu. Anna hætti að vinna vegna veikinda 66 ára. Útför Önnu Bjarnadóttur fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafn- arfirði í dag kl. 15. Hagalín Ásbjörns- son, f. 1896, d. 1964, og Guðmunda Lár- usdóttir, f. 1895, d. 1985. Börn Önnu og Magnúsar eru: 1) Lára Borg, f. 12. júní 1960, maki Pétur Ásbjörnsson, f. 13. nóvember 1956, börn þeirra eru Magnús, f. 1982, Ásbjörn Hagalín, f. 1989, og Hanna Margrét, f. 1994, 2) Kolbrún, f. 30. nóv- ember 1962, börn hennar eru Anna Katrín, f. 1986, Arna Borg, f. 1990, og Snorri Páll, f. 1994, 3) Aðalheiður Elísabet, f. 4. mars 1964, börn hennar eru Kári, f. 1988, og Birta, f. 1990. Anna var fyrstu ár ævi sinnar á Suðureyri. Hún flutti út á Galtarvita ásamt foreldrum og systkinum vorið 1943, þá sjö ára gömul, og bjuggu þau þar í sjö ár. Frá tíu ára aldri bjó Anna hjá frænku sinni í Reykjavík í Til Önnu Yfir haf og hauður fer minn hugur til þín mæra. Þar sem lásum af lyngi ber við lundinn okkar kæra. Sólin þá í heiði hló við hjörtum þar sem ástin bjó hún var sem lindin tæra. Í þeim lundi ljúfust mær lagði hönd að brjósti guma. Aldrei fyr og foldu nær fundið blíðar náttúruna. Húmið lagðist létt um dal ljúfa geymdi sprund og hal á leið til heima túna. Okkar fundi einum frá aldrei munum gleyma. þar sem öldur unnum á með ástar stjörnu dreyma. Ungur svanni í örmum þér allt sem þráði gafstu mér dóttir dalsins heima. Má ég ekki enn um sinn una við þau minni. Þegar barminn blíða þinn bauðst mér fyrsta sinni. Enn mér ilm þinn blærinn ber þitt bros í geislum sólar er sem blik á heiðum himni. Ást við fyrstu sýn Í muna dagur hjá meyju skín er mætir hjartans innstu þrá. Sem glæðir eldinn honum hjá og hennar ást við fyrstu sýn. Þau leiddi saman huldarhönd þinn hugardraum við augum ber. Og flétta bandið þel sem fer í fingurgull og tryggðabönd. Um æskudaga ómar gára í augasteinum vonin skein og ungu hjarta meyjarelda. Anna mín var átján ára á varablóma ástin hrein og anganfrjóu brjósti hvelfda. (Ásm. Magnús Hagalínsson.) Magnús Hagalínsson Ég vil í örfáum orðum kveðja móðursystur mína Önnu Bjarna- dóttur sem nú er látin. Það er erfitt til þess að hugsa að fyrir stuttu síðan héldum við af- komendur Bjarna afa og Línu ömmu ættarkaffi og ekki átti ég von á að það væri jafn stutt í kveðjustund og raun bar vitni. Anna hefur með einstökum hætti barist við krabbamein í nokkur ár og óhætt að segja að þar hafi farið mikil baráttukona sem lét aldrei hugfallast í öllu þessu andstreymi. Á stundum sem þessum vakna margar minningar, frá því þegar við fjölskyldan að vestan fengum inni hjá Önnu og Magga í Gnoð- arvoginum á ferðum okkar til Reykjavíkur en þar kynntist maður fljótt mikilli gestrisni, hlýju og væntumþykju þeirra hjóna. Heim- sóknir þeirra vestur á sumrin treystu þau bönd en það var ríkt í okkur systkinunum að koma ávallt við á Vatnsstígnum þar sem Anna vann um árabil og kasta kveðju á hana frænku okkar ef leiðin lá um miðbæ Reykjavíkur. Því alltaf var hún jafn broshýr og hlý og gaman að hitta hana. Af stórum systkinahópi móður minnar er óhætt að segja að Anna hafi verið ein þeirra sem maður kynntist hvað mest og á margan hátt hélt hún flestum samskipta- þráðum stórfjölskyldunnar saman. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðarströnd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Elsku Maggi, Lára, Kolbrún, Að- alheiður og fjölskyldur, ég votta ykkur innilegustu samúð mína og fjölskyldu minnar. Sigrún Edda Eðvarðsdóttir. Þegar sú fregn barst mér að Anna Bjarna, móðursystir mín, væri látin eftir löng og ströng veik- indi, sem hún hafði barist hetjulega við um árabil, þá flæða ósjálfrátt fram ómæld minningabrot um sam- veruna með Önnu og fjölskyldu hennar í gegnum tíðina, svo og með stórfjölskyldunni frá Súgandafirði. Sá sem þetta ritar dvaldi lang- dvölum hjá Bjarna afa og Sum- arlínu ömmu á Súgandafirði og jafnframt heimsóttu og gistu fjöl- skyldumeðlimir hjá Ásu, móður minni, í Mjóstrætinu í Reykjavík. Átti ég þannig kost á að kynnast vel allri fjölskyldunni. Mér var í raun- inni tekið sem einu af „systkinun- um“ og hef verið þeim heiðri og ánægju aðnjótandi alla tíð. Í æsku upplifði ég sérstaklega vel þessi tengsl og kallaði Önnu „systur“ mína af litlu tilefni. Eins og aðrir í fjölskyldunni á Súgandafirði hafði Anna mikinn áhuga á íþróttum og var mikil keppnismaður. Anna þótti afar góð í handbolta og spretthlaupum og keppti í þeim greinum undir merkj- um íþróttafélagsins Stefnis á hér- aðsmótum á Núpi í Dýrafirði og vann þar til verðlauna. Á einu hér- aðsmótinu hitti hún Magnús Haga- línsson sem hún síðar giftist. Anna fluttist hún suður til Reykjavíkur og bjó m.a. um tíð hjá mömmu í Mjóstrætinu. Þegar suður var komið fékkst hún við ýmis störf m.a.; við körfugerð, fatasaum og um margra ára skeið starfaði hún við Dún- og fiðurhreinsunina við Vatns- stíg. Anna unni fjölskyldu sinni afar heitt og fylgdist með og studdi af heilum hug börn sín og barnabörn til náms, starfa og góðra verka. Gestrisni, hlýhugur og glaðværð sem við manni tók í heimsóknum til Önnu og Magnúsar og fjölskyldu, fyrst í Ljósheimunum, síðar í Gnoð- arvogi í Reykjavík og loks í Kirkju- lundi í Garðabæ er ógleymanlegur. Húsmóðurhlutverkið var Önnu í blóð borið, en þegar gesti bar að garði leið aldrei langur tími þar kaffi og gómsætt heimtilbúið með- læti var á borð borið og málin rædd af einlægni. Það var sérstaklega gott að leita til Önnu með hvað eina, þar sem hún var ætíð til staðar og vildi leysa hvers manns vanda og eigum við Hrefna henni sérstaka þökk að gjalda fyrir vinargreiða í upphafi okkar búskapar. Við kveðjum Önnu með söknuði en jafnframt þakklæti fyrir að hafa í gegnum lífshlaupið notið þeirrar manngæsku og alúðar sem hún hafði til að bera. Magnús minn, við Hrefna og Ása færum ykkur fjölskyldunni okkar dýpstu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Önnu Bjarnadóttur. Bjarni Stefánsson. Anna Bjarnadóttir móðursystir mín er látin. Eftir erfið veikindi lést hún á Landspítalanum, háskóla- sjúkrahúsi, laugardaginn 12. maí. Ég á margar góðar minningar um Önnu frænku mína. Flestar eru þær tengdar heimili hjónanna Önnu og Magnúsar Hagalínssonar í Gnoðavoginum. En þegar foreldrar mínir og systkini komu til Reykja- víkur frá Súgandafirði gistum við oft hjá Önnu og Magnúsi. Alltaf var gott að koma inn á heimili þeirra hjóna, myndarbragur á öllu og gest- risni mikil. Það var þægilegt að um- gangast Önnu og hún gaf sér tíma til að ræða við alla, líka þá yngstu. Síðar, þegar ég fór í fjölbrauta- skóla og háskólann, leigði ég her- bergi í Reykjavík. Þá gerði ég mér reglulega ferð til Önnu og Magn- Anna Bjarnadóttir Samúðar og útfaraskreytingar Bæjarhrauni 2 • sími 565 0300 Hafnarfirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.