Morgunblaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2007 9 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 Fallegar jakkapeysur Fundurinn er haldinn í samstarfi við Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga stendur fyrir morgunverðarfundi í samstarfi við Kaupþing um Starfslok viðskiptafræðinga og hagfræðinga Skráning æskileg fyrirfram á www.fvh.is, í síma 551 1317 eða á fvh@fvh.is Fundur Hvenær: Fimmtudaginn 24. maí. Hvar: Grand Hótel- Sigtúni Klukkan: 8:00-8:30 Morgunmatur og skráning 8:30-10:00 Erindi og umræður Verð með morgunverði: Gjaldfrjáls aðgangur fyrir félagsmenn FVH & 3.500 kr. fyrir utanfélagsmenn FVH framkvæmdi könnun meðal viðskipta- og hagfræðinga og eru niðurstöðurnar um margt áhugaverðar. • Hvað gerir starfslok möguleg? • Hvernig líta viðskipta- og hagfræðinga starfslok sín? • Hvað taka þeir sér fyrir hendur þegar þau verða? • Hversu margir leggja fyrir? • Hvernig stendur þú? Ert þú að gera hlutina rétt? Fyrirlesarar Niðurstöður könnunar meðal viðskipta- og hagfræðinga Þröstur Olaf Sigurjónsson, formaður FVH og lektor við Háskólann i Reykjavík Fresli til að velja Halldóra Guðmarsdóttir sérfræðingur í Eignastýringu Kaupþings Stjórnun starfsframans - að velja milli ólíkra valkosta Ingimundur Sigfússon, fyrrverandi forstjóri Heklu Í pallborði sitja fyrir utan frummælendur: Pétur Blöndal alþingismaður. Fundarstjóri: Benedikt k. Magnússon, forstöðumaður fyrirtækjasviðs KPMG og ritstjóri Hags SKRIFAÐ var á föstudag undir samning sem felur í sér að stofnun Gunnars Gunnarssonar á Skriðu- klaustri verður sjálfseignarstofnun. Við sama tækifæri afhentu afkom- endur Gunnars stofnuninni höfund- arréttinn að bókaútgáfu á verkum skáldsins og ný sýning um Dan- merkurár Gunnars var opnuð. Að sjálfseignarstofnuninni standa menntamálaráðuneytið, Háskóli Ís- lands, Rithöfundasambands Íslands, Stofnun Árna Magnússonar í ís- lenskum fræðum og Þróunarfélag Austurlands og verður uppbyggingu og rekstri menningar- og fræðaset- urs að Skriðuklaustri haldið áfram. Skúli Björn Gunnarsson, forstöðu- maður Gunnarsstofunnar, reiknar ekki með að gestir á Klaustri verði varir við miklar breytingar frá því sem verið hefur, þó nýju fólki fylgi vissulega alltaf ferskir vindar. Samningur treysti fyrst og fremst sjálfstæði stofnunarinnar. „Síðan er verið að tengja stofnunina inn í stærra samhengi,“ segir Skúli og tel- ur upp þá aðila sem standa að sjálfs- eignarstofnuninni. „Það er ekki ólík- legt að við svona kaflaskipti verði einhverjar stefnubreytingar. Nú til- nefna stofnaðilarnir menn í stjórn nýrrar stofnunar og kemur þá nýtt fólk með nýja sýn, þó vonandi haldi einhverjir af fyrrum stjórnarmönn- um áfram. Á svona tímapunkti er líka rétt að skoða hlutina upp á nýtt.“ Bækur endurútgefnar Nýja sýningin um Danmerkurár skáldsins mun á móti blasa við gest- um og gangandi til loka júlí, en á föstudag voru 118 ár liðin frá því Gunnar kom í heiminn á Valþjófs- stað í Fljótsdal. „Það eru liðin hundrað ár síðan Gunnar sigldi með draumsýn sína til Danmerkur. Það er stiklað á stóru í lífi hans þau rúmu þrjátíu ár sem hann bjó þar og tekin út sex mikilvæg ár í lífi hans.“ Skúli Björn vonast líka til að hægt verði að gefa út verk Gunnars á kilju innan skamms. Við opnunina nefndi hann að vonir stæðu til þess að hægt yrði að gefa út Aðventu og Svartfugl síðsumars, en síðarnefnda bókin hef- ur verið illfáanleg að undanförnu. Það er samningurinn við afkomend- ur skáldsins um höfundarverkin sem er hvatinn að útgáfunni. „Sá samn- ingur rennir enn styrkari stoðum undir starfsemina og gerir okkur betur kleift að halda merki og verk- um Gunnars á lofti. Þetta leggur á okkur þá kvöð að fá verk skáldsins útgefin en við njótum þá líka tekna sem af þeirri útgáfu skapast auk þess sem hægt er að vinna meira í heild með allt sem tengist Gunnari.“ Eitt af seinustu verkum fráfarandi ríkisstjórnar var að sameina jörðina Skriðuklaustur undir einu ráðuneyti, menntamálaráðuneytinu. Áður skiptist hún milli þess og landbún- aðarráðuneytisins. Ljósmynd/GG Þrír Gunnarssynir Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar, Gunnar Gunnarsson, barnabarn skáldsins, og Gunnar Björn Gunnarsson, langafabarn skáldsins og stjórnarmaður í Gunnarsstofnun, undirrituðu samkomulag um framsal höfundarréttar á verkum Gunnars skálds til Gunnarsstofnunar. Hundrað ár liðin frá Danmerkurför Gunnars Ný sýning og skipulagsbreytingar á Skriðuklaustri ÁTTUNDI bekkur Höfðaskóla varð sigurvegari í keppn- inni „Reyklaus bekkur“ á vegum Lýðheilsustöðvar. Að launum fær bekkurinn fimm daga utanlandsferð til Danmerkur með umsjónarkennara sínum. Þetta er í annað sinn sem skólinn sigrar í keppninni því fyrir sex árum fór þáverandi áttundi bekkur í svipaða ferð ásamt nemendum úr grunnskólanum á Hólum. 90 lokaverkefni bárust í keppnina að þessu sinni, seg- ir á heimasíðu Lýðheilsustöðvar, en 320 7. og 8. bekkir skráðu sig reyklausa. Í öðru sæti varð grunnskóli Bol- ungarvíkur og grunnskólinn á Hólum í því þriðja. Krakkarnir í Höfðaskóla hlutu verðlaunin fyrir for- varnarhátíð sem þau héldu á sumardaginn fyrsta, skjá- auglýsingar, skoðanakönnun sem þau gerðu, seglagerð og verkefnamöppu ásamt fleiru sem þau stóðu að og sneri að tóbaksvörnum. Reyklaus og sigursæl Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.