Morgunblaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2007 29 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Myndlist Hafnarborg | Bandaríska listakonan Ruth Boerefijn sýnir innsetningar í Bogaskála og móttöku 11. maí til 24. júní. Ruth nefnir sýninguna „Innra landslag –Interior Landscapes“ en hún samanstendur af inn- setningunum Gerrit og Nellie sem listakonan til- einkar foreldrum sínum. Opið kl. 11-17. Fyrirlestrar og fundir Háskóli Íslands, Oddi v/Sturlugötu, stofa 101 | Snjólfur Ólafsson prófessor heldur fyrirlesturinn „Tilgátur um helstu ástæður góðs árangurs útrás- arfyrirtækjanna“ í málstofu viðskipta- og hag- fræðideildar Háskóla Íslands þriðjudaginn 22. maí kl. 12.15. Hugleiðslu og friðarmiðstöðin | Þriðjudaginn 22. maí kl. 20 heldur Oddi Erlingsson sálfræðingur fyrirlestur að Grensásvegi 8, 4. hæð, suðurhlið. Fyrirlesturinn nefnist Hugleiðsla og sálfræði og er ókeypis og öllum opinn. Tekið er á móti frjálsum framlögum. Opin hugleiðsla er alla miðvikudaga kl. 20 á sama stað. Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin kl. 9-16.30. Hjúkr- unarfræðingur með viðtalstíma kl. 9-11. Botsía kl. 10. Félagsvist kl. 14. Árskógar 4 | Bað kl. 8-16. Handavinna kl. 9-12. Smíði/útskurður kl. 9-16.30. Söngstund kl. 10.30. Félagsvist kl. 13.30. Myndlist kl. 16. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handavinna, morgun- kaffi/dagblöð, bútasaumur, fótaaðgerð, samveru- stund, hádegisverður, bútasaumur, kaffi. Uppl. í síma 535 2760. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan Gull- smára 9 er opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 10-11.30. S. 554 1226, en í Gjábakka á miðviku- dögum kl. 13-14, s. 554 3438. Félagsvist í Gull- smára á mánudögum kl. 20.30, en í Gjábakka á miðvikudögum kl. 13 og á föstudögum kl. 20.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Kaffi- tár kl. 13.30. Danskennsla Sigvalda, línudans kl. 18. Samkvæmisdans, byrjendur kl. 19 og framhald kl. 20. Félagsheimilið Gjábakki | Handavinna kl. 9, leið- beinandi verður til hádegis. Gler- og postulínsmálun kl. 9.30 og kl. 13. Lomber kl. 13. Canasta kl. 13.15. Fé- lagsheimilið Gjábakki er opið kl. 9-17, heitt á könn- unni. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9.05 postulíns- málun, kl. 10 ganga, kl. 11.40 hádegisverður, kl. 13 handavinna, kl. 20.30 félagsvist FEBK. Púttvöllur við hlið félagsmiðstöðvarinnar í sumar. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9-16.30 vinnustofur opnar. Kl. 9.50 sund og leikfimiæfingar í Breiðholts- laug. Frá hádegi spilasalur opinn. Kl. 14.20 kóræf- ing. Veitingar í hádegi og kaffitíma í Kaffi Berg. Uppl. á staðnum og s. 575 7720. Félagstarfið Lönguhlíð 3 | Iðjustofa, málun, leir- mótun, postulínsmálun o.fl. kl. 9-12. Handverks- og bókastofa kl. 9-16. Kaffiveitingar kl. 14.30. Söng- og samverustund, nánar auglýst á töflu í anddyri. Uppl. í s. 552 4161. Hraunsel | Handavinnusýning kl. 13. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9-11, Sóley Erla. Hand- verkssýning kl. 13-17, sýning á munum unnum í fé- lagsstarfinu í vetur. Kaffi og meðlæti. Allir velkomn- ir. Hæðargarður 31 | Félagsmiðstöðin Hæðargarður 31 á 15 ára afmæli í ár. Hátíðarhöld verða dagana 25.-31. maí, þó ekki hvítasunnudagana. Það verður mikið fjör og sköpunargleði þessa daga. Fylgist með auglýsingum eða fáið dagskrána senda með net- bréfi. S. 568 3132, asdis.skuladottir@reykjavik.is. Korpúlfar, Grafarvogi | Á morgun þriðjudag kl. 9.30 er sundleikfimi í Grafarvogssundlaug. Norðurbrún 1 | Kl. 9 smíði. Kl. 10 botsía. Kl.13-16 postulín. Opin fótaaðgerðastofa. Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu | Hátúni 12. Brids í kvöld kl. 19. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9.15-15.30 handavinna. Kl. 11.45-12.45 hádegis- verður. Kl. 14.30-15.45 kaffiveitingar. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9.15-15.30 handavinna. Kl. 9-10 botsía. Kl. 11-12 leikfimi. Kl. 11.45-12.45 hádegisverður. Kl. 14.30- 15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9, bókband kl. 9. Handavinnustofan opin frá kl. 9, allir velkomnir með handavinnuna sína í góðan félagsskap, morgunstund kl. 9.30, botsía kl. 10, glerbræðsla kl. 13, frjáls spilamennska kl. 13. Allir eru velkomnir, á hvaða aldri sem er. Uppl. í síma 411 9450. Kirkjustarf Áskirkja | Þorgils Hlynur Þorbergsson, cand. theol, verður með morgunsöng á Dalbraut 27, kl. 9.30 í dag. 80ára. Í dag, 21. maí, eráttræð frú Pernille Alette Hoddevik, fyrrverandi sjúkraliði, til heimilis í Suður- byggð 7, Akureyri. Hún fagn- ar deginum í faðmi fjölskyld- unnar. dagbók Í dag er mánudagur 21. maí, 141. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Og þótt þér gjörið þeim gott, sem yður gjöra gott, hvaða þökk eigið þér fyrir það? Syndarar gjöra og hið sama. (Lk. 6, 33.) ÞEIR virðast voða rólegir storkarnir tveir sem voru að ditta að hreiðrinu sínu á þaki húss í þorpinu Ptich í Hvíta-Rússlandi í gær meðan sólin gekk til náðar. Kannski voru þeir að undirbúa fjölgun í fjölskyldunni eða að ræða sín á milli hvert ætti að afhenta börn daginn eftir en eins og kunnugt eru það storkarnir sem koma með börnin. Storkar standa á öðrum fæti Reuters FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostn- aðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánu- dagsblað. UNDIRRITAÐUR hefur verið samningur um stofnun rann- sóknastofu í menntunarfræðum ungra barna við Kennaraháskóla Íslands. Samstarfs- og stuðn- ingsaðilar rannsóknastofunnar eru Kennarasamband Íslands, Reykjavíkurborg og Umboðs- maður barna. Forstöðumaður rannsóknastofunnar er Jóhanna Einarsdóttir, prófessor við Kennaraháskóla Íslands. Menntunarfræði ungra barna er það fræðasvið sem fjallar um börn, aðstæður þeirra og nám frá fæðingu til átta ára. Aðalmark- mið rannsóknastofunnar er að auka og efla rannsóknir á mennt- un og uppeldi ungra barna og vera vettvangur fræðaþróunar á því sviði. Rannsóknarstofunni er ætlað það hlutverk að eiga frumkvæði að og sinna rannsóknum, miðla þekkingu og kynna niðurstöður rannsókna á sviðinu, m.a. með út- gáfu fræðigreina og fræðirita og með fyrirlestrahaldi. Með stofnun rannsóknastof- unnar er komið til móts við breyttar aðstæður í málefnum ungra barna. Flest börn á aldr- inum 3-5 ára sækja nú leikskóla og aukin þekking á því hvernig börn læra og þroskast hefur opn- að augu fólks fyrir mikilvægi fyrstu æviáranna og menntun ungra barna. Á vegum rann- sóknastofunnar taka vísinda- menn og fagfólk höndum saman um að vinna rannsóknir og sinna brýnum og aðkallandi málefnum. Rannsóknastofa í menntunarfræðum Rannsóknir Frá undirritun samnings um stofnun Rannsóknastofu í menntunarfræðum ungra barna. Ingibjörg Rafnar, umboðsmaður barna, Elna Katrín Jónsdóttir, varaformaður Kennarasambands Ís- lands, Ólafur Proppé, rektor Kennaraháskóla Íslands og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður leikskólaráðs Reykjavíkurborgar. SIGRÚN Sigurðardóttir hjúkrunar- fræðingur flytur opinn fyrirlestur á morgun, þriðjudaginn 22. maí kl. 14. í stofu L-201 á Sólborg á Akur- eyri. Fyrirlesturinn tengist meist- araritgerð hennar við Heilbrigðis- deild Háskólans á Akureyri: Kynferðisleg misnotkun og önnur sálræn áföll í æsku og áhrif þeirra á heilsufar og líðan kvenna. Leiðbeinandi hennar var dr. Sig- ríður Halldórsdóttir, prófessor við Háskólann á Akureyri, en ráðgjafi var dr. Guðrún Agnarsdóttir, lækn- ir. Áhrif kynferðis- legs ofbeldis Fáðu sms-fréttir í símann þinn af mbl.is Tryggingastofnun ríkisinsstendur fyrir alþjóðlegriráðstefnu um bóta- ogtryggingasvik á morgun, þriðjudag undir yfirskriftinni Ógnar misnotkun velferðarkerfinu? Gunnar Þ. Andersen er forstöðu- maður eftirlits hjá Tryggingastofnun: „Svikamál í sjúkratrygginga- og líf- eyristryggingakerfinu eru mikið áhyggjuefni á Norðurlöndunum, Bret- landi og víðar. Í Noregi og Svíþjóð hafa menn m.a. séð ástæðu til að stór- efla eftirlitsdeildir til að bregðast við vaxandi tryggingasvikum,“ segir Gunnar en ráðstefna þriðjudagsins er haldin í tengslum við árlegan fund yfirmanna eftirlitsdeilda almanna- trygginga á Norðurlöndum. „Sem dæmi má nefna að í Svíþjóð og Noregi hefur kærumálum vegna almanna- tryggingasvika fjölgað um 50-60% milli ára. Um er að ræða lítinn minni- hlutahóp óheiðarlegra aðila sem reyna að misnota kerfið, en þó hópurinn sé smár getur verið um stórar fjárhæðir að ræða og er hætta talin á að um- fangsmikil almannatryggingasvik grafi undan trausti almennings á hvernig stjórnvöld ráðstafa fé skatt- greiðenda.“ Gunnar segir ekki liggja fyrir ítar- legar athuganir um útbreiðslu al- mannatryggingasvika á Íslandi og leggur á það áherslu að aðeins lítill hópur reyni að misnota kerfið: „Við notum þetta tækifæri til að læra af nágrönnum okkar og viljum hvetja til umræðu um þessi mál. Stöðug þróun er á þessu sviði og virðist enginn skortur á hugmyndaflugi þeirra sem reyna að svíkja fé út úr almanna- tryggingum í nágrannalöndum okkar. Reynsla annarra getur hjálpað okkur að fyrirbyggja vandann heima fyrir en öflugar forvarnir og öflugt upplýs- ingakerfi getur skipt sköpum til að fæla fólk frá tryggingasvikum,“ segir Gunnar að lokum. Ráðstefna þriðjudagsins er haldin á Hótel Nordica og hefst kl. 13. Finna má nánari upplýsingar á heimasíðu Tryggingastofnunar ríkisins á slóð- inni www.tr.is. Tryggingar | Ráðstefna um almannatryggingasvik og forvarnir Bóta- og tryggingasvik  Gunnar Þ. And- ersen fæddist í Reykjavík 1948. Hann lauk stúd- entsprófi frá Oslo Katedralskole 1968, Cand. Oecon. frá Háskóla Ís- lands 1974 og MBA frá University of Minnesota 1976. Gunnar var sérfræð- ingur á fjármálasviði SÞ í New York og síðar forstöðumaður þróunarsviðs Pepsi Cola. Hann starfaði hjá Lands- bankanum 1991 til 2003 og var fram- kvæmdastjóri alþjóða- og fjármála- sviðs bankans 1998 til 2003, sjálfstæð- ur ráðgjafi 2003 til 2006 þegar hann tók við starfi forstöðumanns eftirlits hjá TR. Sambýliskona Gunnars er Margrét Kristín Gunnarsdóttir og eiga þau einn son en Gunnar á þrjú börn af fyrra hjónabandi. Slysavarnafélagið Landsbjörg mun njóta víðtæks stuðnings N1 í störfum sínum næstu árin. Samningur þessa efnis var und- irritaður við upphaf landsþings Slysavarnafélagsins Lands- bjargar sem haldið var í Reykja- nesbæ um helgina. Stuðningur N1 felst bæði í ár- legu fjárframlagi til starfseminn- ar á landsvísu og í veglegum af- slætti af öllum þeim bílavara- hlutum, aukahlutum, eldsneyti og bílaþjónustu sem deildirnar þurfa um land allt. Sigurgeir Guðmundsson, for- maður SL, segir samninginn sér- staklega hagstæðan, því í honum sameinist fjárhagsstuðningur og lækkað verð á bílavörum og elds- neyti sem er veigamikill út- gjaldaliður fyrir björgunarsveit- ir um land allt. „Þetta samstarf hentar mjög vel fyrir okkur. Við erum til dæmis með rúmlega hundrað sveitir og N1 er með rúmlega hundrað útsölustaði, þannig að báðir aðilar teygja sig hringinn i kringum landið.“ Slysavarnafélagið Landsbjörg eru landssamtök björgunar- sveita og slysavarnadeilda á Ís- landi. Starf samtakanna byggist á sjálfboðaliðum og er allt rekstrarfé fengið með fjáröflun- um eða með styrkjum. Björgun- arsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru um 100 tals- ins, víðs vegar um landið með það að markmiði að vera til taks hvar og hvenær sem þess er þörf. Í félaginu eru um 18.000 félagar en á sjöunda þúsund eru á út- kallsskrá og þar af eru rúmlega 3.000 virkir í starfi sveitanna. N1 er eitt stærsta verslunar- og þjónustufyrirtæki landsins. N1 er með um 100 eldsneytisaf- greiðslustöðvar um land allt, um 20 verslanir auk veitingasölu og fjölda hjólbarða- og smurverk- stæða. N1 verður einn helsti styrktaraðili Landsbjargar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.