Morgunblaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2007 35 Sýnd kl. 7 og 10 B.i. 10 ára -bara lúxus Sími 553 2075 eee L.I.B, Topp5.is eee FGG - FBL eee T.V. - kvikmyndir.is Sýnd kl. 5:40 og 8 B.i. 16 ára TÍU MUNU BERJAST, NÍU MUNU DEYJA, BLÓÐUGASTI BARDAGI ÁRSINS ER HAFINN. SVAKALEG HASARMYND MEÐ TÖFFARANUM VINNIE JONES eeee SV, MBL eee LIB Topp5.is 25.000 MANNS Á AÐEINS 10 DÖGUM! ÞAÐ ER NIÐURSKURÐUR Á SKRIFSTOFUNNI! Sýnd kl. 10:20 B.i. 16 ára Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA! ÓHUGNALEGA FYNDIN GRÍNHROLLVEKJA Í ANDA SHAUN OF THE DEAD www.laugarasbio.is www.haskolabio.is Sími - 530 1919 Fracture kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára Condemned kl. 8 - 10.30 B.i. 16 ára Lives of Others kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára Next kl. 8 - 10.30 B.i. 14 ára Mýrin 2 fyrir 1 kl. 5.40 B.i. 12 ára Köld slóð 2 fyrir 1 kl. 5.50 B.i. 12 ára Stærsta kvikmyndahús landsins Kauptu bíómiða í Háskólabíó á Kauptu bíómiða í Háskólabíó á 2 fyr ir 1 SVAKALEG HASARMYND MEÐ TÖFFARANUM VINNIE JONES. 2 fyr ir 1 NICOLAS CAGE JULIANNE MOORE JESSICA BIEL ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST DAS LEBEN DER ANDERN / LÍF ANNARRA eeee  K. H. H., FBL eeee  KVIKMYNDIR.COM eeeee  S.V., MBL Allra síðustu sýningar Allra síðustu sýningar Heimavöllur íslenskra kvikmyndagerðar Ef þú rýnir nógu djúpt sérðu að allir hafa veikan blett MAGNAÐUR SÁLFRÆÐITRYLLIR umönnun … nema að sjálfsögðu fyr- ir þúsundir dollara. Moore leggur því af stað sjóleiðis með hersinguna um borð í skipi og stefnan er tekin á Guantanamo-flóa sem er jú banda- rískt yfirráðasvæði. Hugmyndin með ferðalaginu var að bjóða ferða- löngunum uppá samskonar heil- brigðisþjónustu og hinir alræmdu hryðjuverkamenn í fangelsinu fá, en hún ku vera sú besta í gjörvöllum Bandaríkjunum. Þau hafa þó ekki erindi sem erfiði og enda í landi óvinarins mikla í suðri, Kúbu! Moore var ákaft fagnað að við- hafnarfrumsýningu lokinni á laug- ardagskvöldið. Prúðbúnir gestir stóðu úr sætum og klöppuðu næst- um á sig gat. Moore var hinn vand- ræðalegasti og var að lokum, eftir um 5 mínútna stanslaust uppklapp, leiddur út kafrjóður í framan.    Það eru ekki bara kvikmynda-stjörnur sem leggja leið sína til Cannes. Tvennir tónleikar fóru fram hér í borg síðastliðið laug- ardagskvöld. Fyrst voru það hinir snoppufríðu Finnar í Lordi sem skemmtu lönd- um sínum í teiti við ströndina. Lordi voru staddir hér til að kynna hryll- ingsmyndina Dark Floors sem liðs- menn sveitarinnar leika í. Framleið- endur myndarinnar, þeir Júlíus Kemp og Ingvar Þórðarson, voru einnig viðstaddir. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þeir félagar mæta hingað suður eftir en það var fyrst árið 1993 þegar þeir mættu með myndirnar Sódóma Reykjavík og Veggfóður í farteskinu.    Meiri músík. Virðulegt yf-irbragð rauða dregilsins föln- aði örlítið uppúr miðnætti þegar Bono, The Edge, Adam Clayton og Larry Muller Jr. mættu og tóku nokkur lög á dreglinum. Uppá- koman var til kynningar á þrívídd- armyndinni U2 3D sem sýnd er á há- tíðinni og er upptaka frá tónleikum sveitarinnar. birta@mbl.is TÓNLISTARMAÐURINN Goran Bregovic er snillingur, hann er með- al fárra sem þakka má það að tónlist frá Balkanskaganum er þekkt utan skagans góða, og sannanir fyrir gáf- unni liggja víða, ekki síst í kvik- myndatónlist. Nóg er að nefna að hann á heiðurinn af tónlistinni sem elti þá félaga Marko og Petar Pop- ara á röndum í kvikmyndinni Un- derground og tónlistinni við furðu- myndina Arizona Dream, sem hann vann að hluta með söngvaranum Iggy Pop. Fyrir utan það þá hefur hann verið poppstjarna í eigin landi um áratuga skeið, sem hefði nú hugsanlega nægt einhverjum. Bregovic hefur semsagt fyrir löngu sannað sig og umgjörðin í Laugardalshöllinni undirstrikaði það þegar hann lék fyrir Íslendinga, og glaðan hóp landa sinna, síðast- liðið laugardagskvöld. Tónlist- armaðurinn sat ánægður í hvítum jakkafötum og baðaði sig í sviðsljós- inu, studdur af kór, söngkonum frá Sófíu í Búlgaríu, strengjasveit, auð- vitað blásturssveit og ungum söngv- ara og ásláttarleikara sem hélt for- sprakkanum félagsskap fremst á sviðinu. Hljómsveitin kennir sig við brúð- kaup og jarðarfarir, af því að þar eru einu tækifærin til að koma fram, að því er Bregovic segir sjálf- ur. Jarðarförin var áberandi framan af tónleikunum, kórinn og streng- irnir voru í aðalhlutverki, sveitin lék löng lög þar sem blástur og Brego- vic sjálfur léku síður áberandi hlut- verk og treginn var gríðarlegur. Þessi kafli var jafnvel of langur, sem helgaðist kannski af kring- umstæðum. Tónlistarlega var þetta ófull- komið, eins og tónlist á að vera, Bregovic er víst sjálfur á þeirri skoðun að flutningurinn megi ekki verða of fínpússaður, og þetta heyrðist á beygluðum lúðrunum og söngvurum sem voru oft tæpir á að ná nótum, en á hárréttum stöðum. Allt virkaði þetta vel, tónlist er ekki reikniformúla heldur tilfinning, og sérstaklega í þeirri tónlist sem Bregovic flytur. Það er aðra sögu að segja um hljóminn, Laugardalshöll er við- kvæm þegar kemur að hljómburði og virkar oft alls ekki, þótt hún sé ágætur tónleikastaður að öðru leyti. Stundum límdust hinir ólíku þættir ekki saman, strengirnir, kórinn, lúðrarnir og svo ásláttur sem leik- inn var af bandi urðu að ólíkum hlutum sem hljómuðu á sama tíma en urðu ekki að heild, þetta spillti fyrir stemningunni í jarðarförinni. Þegar kom að brúðkaupinu hins vegar var hljómsveitin í essinu sínu, þá gleymdust fljótt allar áhyggjur af hljóm og öðrum smáatriðum. Þegar færðist fjör í leikinn mátti sjá fólk standa upp og reyna að vera í stuði, en án árangurs, gæslan sá til þess að fólk settist niður svo það væri ekki fyrir hinum sem enn sátu. Gæslan mátti sín hins vegar lítils eftir að allur salurinn stóð upp. Þeg- ar ærandi lúðrar og þungur trumbusláttur glymja í hrynjandi sem undirritaður hefur aðeins getað lýst sem hjartsláttartruflunum, þá er ekki hægt að sitja. Enda kom það í ljós, salurinn vildi ekki sitja í vel skipulögðum ferningum heldur standa í kös og baða út höndum, tónlistin er bara þannig. Þegar þessari stemningu var loks náð voru tónleikarnir frábærir, eftir að sveitin var klöppuð upp tóku kór- inn og strengjasveitin sér nokkuð langt hlé, málmblásturshljóðfæri og trumba sáu um hljóðfæraleik og í raun má segja að þar hafi verið há- punktur tónleikanna, þegar útsetn- ingunum sleppti og sígaunabrjál- æðið tók við. TÓNLEIKAR Laugardalshöll 19. maí 2007 Goran Bregovic - fjör fyrir brúðkaup og jarðarfarir  Morgunblaðið/Eggert Stuð „Bregovic hefur semsagt fyrir löngu sannað sig og umgjörðin í Laug- ardalshöllinni undirstrikaði það þegar hann lék fyrir Íslendinga, og glaðan hóp landa sinna, síðastliðið laugardagskvöld.“ Gísli Árnason Löng jarðarför, magnað brúðkaup

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.