Morgunblaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 26
✝ Sigurbjörg Guð-mundsdóttir fæddist 1. september 1918 í Sigluvík í Vestur-Landeyjum. Hún lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 15. maí síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Sigríður Er- lendsdóttir og Guð- mundur Hildi- brandsson. Sigurbjörg ólst upp frá tveggja ára aldri hjá fósturforeldrum sínum, Önnu Tyrfingsdóttur og Einari Ein- arssyni í Vestri-Tungu í Vestri- Landeyjum. Hún var yngst 13 systkina en þau eru öll látin. Sigurbjörg giftist Felix Þor- steinssyni húsasmíðameistara 19. júlí 1941. Hann var fæddur 30. nóv- ember 1912 í Tjarnarkoti í Þykkva- bæ, og var sonur hjónanna Jó- hönnu Felixdóttur og Þorsteins Þorsteinssonar. Sigurbjörg og Fel- ix hófu búskap í Reykjavík en byggðu sér fljótlega hús á Seltjarn- arnesi, Ytri-Grund. Þangað fluttu þau árið 1945 og bjuggu þar, allt úar 1947, gift Jóni Geir Guðnasyni. Þau eiga þrjú börn, Helenu, Guðna Þór og Hrafnhildi. 5) Sigmundur, f. 15. mars 1950, kvæntur Sigrúnu Steinbergsdóttur. Sigmundur á tvo syni, Guðmund Kristján og Leif Guðjón, og fóstursoninn Grétar. 6) Einar, f. 25. september 1951, kvænt- ur Guðbjörgu Helgadóttur, en hún á eina dóttur, Örnu Björk. 7) Felix, f. 23. ágúst 1954, kvæntur Rebekku Hannibalsdóttur. Þau eiga tvö börn, Stellu og Flosa, en fyrir á Felix fjög- ur börn, Ásgerði, Írisi Björk, Sig- urbjörgu og Felix. 8) Örn, f. 13. des- ember 1956, kona hans er Helga Ingibjörg Pálmadóttir. Þau eiga tvær dætur, Hildi Rún og Sig- urbjörgu, en fyrir á Helga dótturina Evu Ósk. Örn á fyrir þrjá syni, þá Steinberg, Birki Örn og Örn. 9) Kjartan, f. 9. október 1961, kvæntur Þóru Björgu Álfþórsdóttur. Þau eignuðust fimm dætur, stúlku and- vana fædda, Karenu, Berglindi, Silju Björgu og Kolbrúnu Söru. Fyr- ir á Þóra dótturina Þórhildi. Lang- ömmubörnin eru orðin 24 og eitt langalangömmubarn. Útför Sigurbjargar fer fram frá Seltjarnarneskirkju í dag, mánu- dag, og hefst athöfnin klukkan 15. þar til Felix lést árið 2000, en þá flutti Sig- urbjörg á heimili yngsta sonar síns, Kjartans. Þegar þau Sigurbjörg og Felix fluttust á Seltjarn- arnes var þar sveit og höfðu þau hjónin kind- ur í túni og hænur. Felix rak lítið tré- smíðaverkstæði á lóð- inni og var jafnan margt um manninn í eldhúsinu hjá Sig- urbjörgu. Heimilið varð fljótt stórt og byggði Felix við húsið eftir því sem börnunum fjölg- aði. Sigurbjörg og Felix eignuðust níu börn. Þau eru: 1) Steinunn Hanna, f. 5. mars 1942. Hún giftist Herbert Jónssyni sem nú er látinn. Sambýlis- maður Steinunnar er Benedikt Sig- urðsson. Steinunn og Herbert eign- uðust tvö börn, Elísabetu og Sigurbjörn (látinn). 2) Drengur, and- vana fæddur 2. febrúar 1943. 3) Jó- hanna, f. 2. september 1945. Hún giftist Ragnari Leifssyni sem nú er látinn. Þau eignuðust tvö börn, Bryndísi og Felix. 4) Anna, f. 24. jan- Elskuleg móðir og tengdamóðir. Hjartans þakkir fyrir allt sem þú hefur gefið okkur. Ég flyt þér, móðir, þakkir þúsundfaldar, og þjóðin öll má heyra kvæði mitt. Er Íslands mestu mæður verða taldar, þá mun þar hljóma fagurt, nafnið þitt. Blessuð sé öll þín barátta og vinna. Blessað sé hús þitt, garður feðra minna, sem geymir lengi gömul spor. Haf hjartans þakkir, blessun barna þinna, og bráðum kemur elíft vor. (Davíð Stefánsson) Blessuð sé minning þín. Einar og Guðbjörg. Bagga amma flutti til okkar í Bollagarðana árið 2000 þegar Felix afi dó. Hún amma var grönn kona, lágvaxin og kvik í hreyfingum. Hún hafði skoðanir á hlutunum og fylgd- ist vel með þjóðmálunum. Amma sat aldrei iðjulaus. Hún var lagin við prjónana, en þegar sjónin var farin að gefa sig fann hún það út að betra var að fást við heklunálina og heklaði hún fram á síðasta dag. Hún var mikill húmoristi og átti það til að stríða pínulítið en þá kom þessi sérstaki glampi í augun á henni. Hún svaraði skemmtilega fyr- ir sig, t.d. þegar mamma hafði nokkrar áhyggjur af því hvort hún gæti búið hjá okkur við þann hávaða sem fylgir svona stórum barnaskara. Þá svaraði hún með stríðnisglampa í augum að hún myndi þá bara taka úr sér heyrnartækin. Stundum laumað- ist hún að arninum til að „kynda upp húsið“ eins og hún kallaði það þegar hún fékk sér einn smók. Hún kenndi okkur vísur og gátur sem heyrast ekki lengur og sagði okkur sögur frá því í gamla daga þegar hún var að alast upp. Gleðin og húmorinn hennar ömmu kom okkur oftar en ekki í gott skap. Stundum þegar við vorum úti í garði að hoppa á trampólíninu sat amma og hló að okkur. Hún kallaði þetta fyrirbæri hoppudýnu. Svo fór að við náðum ömmu upp á dýnuna að hoppa með okkur, þá var hún að verða 88 ára. Geri aðrar ömmur betur. Á Skólabrautinni var félagsstarf fyrir eldri borgara og mikið mátti vera að til að amma léti sig vanta í fé- lagsvistina því að hún hafði verulega gaman af að spila á spil. Stundum kom hún heim með verðlaun. Hún hafði á orði hversu mikla þolinmæði spilafélagarnir sýndu henni því að hún sá mjög illa á spilin. Við systur spiluðum líka við hana, oft heima í eldhúsi en oftar í sveitinni, og var þá gjarnan einhver okkar „augun henn- ar“. Sælureitur ömmu og afa var í Grímsnesinu þar sem þau fengu land undir sumarhús. Afi var smiður og byggði fallegan bústað í Kiðjabergi og hvergi leið þeim betur en þar. Amma hafði unun af því að hugsa um fallega gróðurinn þar, hlusta á fuglana og bara vera til í sveitinni. Alltaf hlakkaði hún jafnmikið til að koma þangað og ef einhver fór aust- ur í bústað spurði hún alltaf um fuglana: Heyrðirðu fuglasöng? Sástu rjúpuna? Er komið hreiður undir pallinn? Við viljum þakka öllu því góða fólki sem annaðist hana ömmu okk- ar, bæði í dagvist aldraðra og á þeim hjúkrunarstofnunum sem hún var á síðustu mánuðina, fyrir að hugsa svona vel um hana fyrir okkur. Það voru forréttindi okkar að fá að kynnast þessari miklu konu. Fyrir það erum við þakklátar. Það er sjón- arsviptir að henni. Elsku amma, hvíl í friði, Guð laun fyrir allt. Þórhildur, Karen, Berglind, Silja Björg og Kolbrún Sara. Ég man best eftir langaömmu minni í eldhúsinu sínu á Ytri-Grund. Þar voru alltaf gestir og eitthvað sem okkur krökkunum fannst gott að borða. Langaamma Bagga og langafi Felix voru þekkt fyrir gestrisni og höfðu mjög gaman af að fá fólk í heim- sókn, sérstaklega okkur krakkana. Við heyrðum alltaf einhverjar sögur úr gamla tímanum og líka vísur og gátur sem langaamma lumaði á. Það var líka mjög gaman að fara með langaömmu í sumarbústaðinn sem þau áttu. Það var mikið brallað og á kvöldin voru spilin tekin upp. Langaömmu þótti sérstaklega gaman að spila þótt sjónin væri farin að gefa sig. Hún var líka mjög sleipur spilari. Elsku langamma, við kveðjum þig í dag og ég vona að þú fáir þína lang- þráðu hvíld. Ég mun sakna þín. Hvíl í friði. Alexander Áki Felixson. Kæra amma. Við þökkum þau ár sem við áttum með þér og vildum að þau væru fleiri. Það er gaman að búa í húsinu þínu og við ætlum að hugsa mjög vel um það fyrir þig og afa. Þú varst alltaf svo hress og kát og gaman að tala við þig. Við viljum endilega að þér líði eins vel og þú hugsanlega getur uppi hjá Guði og biðjum að heilsa afa. Við eigum eftir að sakna allra góðu tímana með þér og hittum þig vonandi eitthvern dag- inn uppi hjá Guði. Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig, og lýstu mér um ævistig. Ég reika oft á rangri leið, sú rétta virðist aldrei greið. Ég geri margt sem miður fer, og man svo sjaldan eftir þér. Sú ein er bæn í brjósti mér, ég betur kunni þjóna þér. Því veit mér feta veginn þinn og verðir þú æ Drottinn minn. (Pétur Þórarinsson.) Kveðja, Eva Ósk, Hildur Rún og Sigurbjörg. Kæra vinkona! Nú skiljast leiðir um tíma. Þakka þér fyrir alla þína góðsemi, mér og mínum til handa. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Guð geymi þig. Unnur. Sigurbjörg Guðmundsdóttir 26 MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Elsku amma og langamma. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Guð geymi þig. Bryndís, Hlynur Þór og Ragnar Smári. HINSTA KVEÐJA Föstudagurinn 20. apríl var rosalega skrítinn dagur. Ég vaknaði of seint til vinnu, engan veginn tilbúin að takast á við venjulegan vinnudag og hafði ekki hugmynd um að þetta yrði dagur sem ég myndi seint gleyma. Á leiðinni í vinnuna varð mér hugsað til þín, elsku amma mín, og fékk smásting í mag- ann, fann það á mér að eitthvað myndi gerast á þessum degi. Í hádeginu ákvað ég að taka mér frí í vinnunni það sem eftir var af deg- inum og kíkja í heimsókn til þín. Þetta var fallegur dagur, afi var þarna hjá þér eins og klettur og horfði mikið út um gluggann, á fuglalífið og selinn sem var í sjónum, sem reyndist síðan vera hundur sem var þarna á vappi. Við hlógum öll að þessu, ég, afi og pabbi og reyndum að vera svolítið á léttu nótunum. Nokkrum mínútum síðar sitjum við í setustofunni. Lækn- irinn kemur til okkar og segir að þú eigir aðeins nokkrar mínútur eftir. Kiddi frændi kom akkúrat og við fór- um inn til þín. Ég, pabbi, afi og Kiddi ✝ Emilía GuðrúnBaldursdóttir fæddist í Reykjavík 18. apríl 1930. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstudag- inn 20. apríl síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Digraneskirkju 30. apríl. vorum þarna hjá þér og horfðum á þig draga andann í síðasta sinn í þessu lífi, þetta var mjög erfitt en ég vissi samt að þessi lífsreynsla myndi gera mig sterkari. Ég fann fyrir ofboðslegri sorg en á sama tíma fyr- ir gleði. Sorg vegna þess að þú varst að fara úr þessum heimi og gleði vegna þess að fá tæki- færi til að vera hjá þér. Á tíma sem þessum verður allt svo tilfinningaþrungið og minningarnar fara í einn graut, það er það sem gerðist hjá mér. Ég er alltaf að hugsa um það hvað þú sért að gera og hugsa og hvort þú hefðir viljað gera eitthvað öðruvísi. Ég er með alveg fullt að spurningum sem fljóta um í höfðinu á mér. En þú hefur eflaust tekið eftir því. Elsku amma mín, þú varst alltaf að gera einhverja fallega hluti og gefa manni og varst með margar hug- myndir í kollinum. Mamma sagði allt- af við mig að löngunin til að skapa og hugmyndaflugið sem ég hef hefði ég frá þér, þannig að á einhvern hátt er- um við líkar sem mér finnst voða gott. En af öllum þessum hlutum sem þú prjónaðir eða saumaðir eru bleiku inniskórnir í uppáhaldi hjá mér og hef ég notað þá mikið. Eins og með hugmyndaflugið þá vantaði heldur ekki umhyggjusemina, ég fékk oft hringingu frá þér, og þú varst að láta mig vita hvað ég gæti gert til að láta mér líða betur í mag- anum, gafst mér þaratöflur, blandaðir fyrir mig ferskan ávaxtasafa og lést mig vita hvað ég mætti ekki borða út af nikkelofnæminu. En það er eitt sem ég gleymi aldrei. Það var í sumar, sím- inn heima hringdi óvart heim til þín og afa einn sunnudaginn. Enginn var í símanum og þú hélst að eitthvað hefði komið fyrir. Sara frænka var einmitt í heimsókn og þið brunuðuð í Árbæinn til að athuga hvort það væri ekki allt í lagi með mig. Fóruð í gegnum garðinn og inn um þvottahúsið. Ég fékk alveg sjokk þegar ég heyrði í ykkur og skammaðist mín alveg svakalega og vonaði að þú hefðir ekki fattað neitt. Þessari minningu gleymi ég aldrei og þetta sýnir hvað þú varst góð kona og góð amma. En svona í lokin þá er ég að flytja til Englands í haust eins og þú vissir. Og ég á eftir að vera þar næstu 2 árin, fjarri fjölskyldu minni. Ég vona bara að þú getir verið hjá mér og passað kannski smá upp á mig og kannski gefið mér smávegis innblástur þegar ég er inni í stúdíói að taka myndir í bleiku inniskónum. Elsku amma mín, við eigum örugg- lega eftir að hittast aftur einhvern tímann og sá dagur verður æðislegur. Kiss, kiss og knúsar og ef þú sérð afa Jörund þar sem þú ert þá bið ég endi- lega að heilsa honum og þú smellir kannski einum á kinnina frá mér. Takk fyrir stundirnar sem við átt- um saman. Þitt barnabarn Hrund Emilía Guðrún Baldursdóttir Frænka mín, Sigur- björg Böðvarsdóttir á Happastöðum, er látin. Hún var frænka með stóru F-i, gest- risin og gjöful. Það var alltaf tekið vel á móti drengstaulanum, þegar ég kom í heimsókn að Happó. Alltaf til góður moli í lítinn munn eða eitthvað sætt að maula. Hún kenndi mér gátur, m.a. um „mjaltakonuna“ (tíu toga fjóra …) og seinna, okkur báðum til ómældrar Sigurbjörg Böðvarsdóttir ✝ Sigurbjörg SóleyBöðvarsdóttir fæddist í Bólstað í Mýrdal 21. október 1913. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 11. apríl síðastliðinn. Sigurbjörg var jarðsungin frá Landakirkju 19. apríl sl. ánægju, að spila marías. Eitthvert sumarið, þegar ég var kominn vel yfir fermingu, vann ég í Hraðfrystistöðinni þar sem hún vann. Í kaffi- hléi einn daginn kom hún að mér þar sem ég var að pukrast við að reykja, ásamt fleiri krökkum. Þegar hún birtist mátti engu muna að ég æti fjárans sígar- ettuna og mér datt ekki annað í hug en hún myndi kjafta í pabba og mömmu. Auðvitað gerði hún það ekki – og næst þegar ég kom að Happó reyktum við „friðarpípu“ í Raleigh – túttulausum. Þessar og þessu líkar eru minning- arnar mínar um hana Frænku á Happó, góðar og skemmtilegar. Veri hún Guði falin. Sigurjón Guðmundsson. Kæri vinur. Ég þakka þér góða vináttu síðustu ára og kveð þig með 23. Davíðssálminum sem þér þótti svo fallegur. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, Einar Ólafsson ✝ Einar Ólafssonviðskiptafræð- ingur fæddist í Reykjavík 16. nóv- ember 1952. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 17. apríl síð- astliðinn og var útför hans gerð frá Hallgríms- kirkju 25. apríl. leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. Ég bið góðan guð að styrkja ást- vini þína í sorg sinni. Ragnheiður Björk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.