Morgunblaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 36
36 MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ eee V.J.V. TOPP5.IS WWW.SAMBIO.IS FRÁ FRAMLEIÐANDA MATRIX, DIE HARD OG LETHAL WEAPON HILARY SWANK SUMT ER EKKI HÆGT AÐ ÚTSKÝRA MEÐ VÍSINDUM VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA HÖRKUSPENNANDI MYND BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM FRÁ D.FINCHER LEIKSTJÓRA SE7EN & FIGHT CLUB. “BESTA KVIKMYND FINCHER TIL ÞESSA.” David Ansen, Newsweek “MÖGNUÐ KVIKMYND!” Leonard Maltin, E.T. “ÁN EFA BESTA MYND ÁRSINS TIL ÞESSA” Ó.F. ZODIAC kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára GOAL 2 kl. 5:50 - 8 B.i. 7 ára BLADES OF GLORY kl. 6 B.i. 12 ára ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ DIGITAL 3D / KRINGLUNNI ZODIAC kl. 5:50 - 9 B.i.16.ára ZODIAC VIP kl. 5:50 - 9 THE REAPING kl. 5:50 - 8 -10:10 B.i.16.ára SPIDER MAN 3 kl. 6 - 9 B.i.10.ára BLADES OF GLORY kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.12.ára BREACH kl. 6 - 10:10 (Síðustu sýn.) B.i.12.ára MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 4 LEYFÐ ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ WILD HOGS kl. 8 (Síðustu sýn.) B.i.7.ára / ÁLFABAKKA FORSALA HAFIN - TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Í TÍMA ! eeee V.J.V. TOPP5.IS eeee B.B.A. PANAMA.IS VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á Birta Björnsdóttir birta@mbl.is LEIKARINN, og nú handritshöf- undur og framleiðandi, Leonardo Di Caprio mætti til Cannes um helgina í tilefni af frumsýningu nýj- ustu myndar sinnar The 11’th Hour. Myndin er í formi heimildarmyndar og fjallar um þau eyðilegging- aráhrif sem við mannskepnurnar höfum haft á jörðina okkar. Við- fangsefnið er þarft áminningar og boðskapur myndarinnar sá að öll getum við gert eitthvað til að koma í veg fyrir frekari eyðileggingu með tilheyrandi náttúruhamförum og útrýmingu dýrategunda. Myndin er dæmigerð heimild- armynd að uppsetningu og byggist eingöngu á viðtölum við sérfræð- inga um málefnið. Inn á milli eru svo klipptar frétta- og náttúrulífs- myndir. Þetta hljómar ef til vill ekk- ert ýkja spennandi og myndin væri það í sjálfu sér ekki nema vegna þess hve umræðuefnið er áhugavert og þarft auk þess sem myndin er „ekki nema“ einn og hálfur klukku- tími en sú áður staðlaða lengd á myndum heyrir næstum til und- antekninga hér á hátíðinni í ár. Gaman var að heyra „Flugufrels- ara“ Sigur Rósar hljóma undir hug- ljúfum dýralífsmyndum og heyra sungið á íslenska tungu um flug- urnar sem bjargað var við bæj- arlækinn. Ekki veit ég hvort Di Caprio var einungis hrifinn af lag- inu eða hvort hann sé að biðla til okkar allra að verða Flugufrels- arar allra dýra á jörðinni. Ef svo er hefði þurft að hafa enskan texta undir. Di Caprio sat blaðamannafund að lokinni sýningu ásamt meðfram- leiðendum sínum, Nadiu Conners og Leila Conners Petersen, auk tveggja sérfræðinga úr myndinni. Fyrsta spurning lá beint við þar sem An Inconvinient Truth hans Al Gore vakti mikla athygli á hátíðinni í fyrra. Hafði sú mynd ekki erindi sem erfiði? „Já og nei,“ svaraði Di Caprio líkt og sannur stjórnmálamaður. „Það hefur enn ekki mikið breyst í þessum málum á heimsvísu og okk- ur fannst við þurfa að minna fólk enn og aftur á að hvert einasta litla atriði telur í þessu samhengi.“ Di Caprio var inntur eftir eigin neysluvenjum hvað umhverfisvernd varðar og sagðist hann reyna eftir fremsta megni að vera sem „græn- astur“. Annar blaðamaður ætlaði sér greinilega að hanka Di Caprio á þessu svari og spurði hvernig hann hefði þá ákveðið að ferðast frá Bandaríkjunum á hátíðina. Leik- arinn svaraði réttilega að hann hefði ekki haft möguleika á að ferðast með lest eða vetnisbíl svo flugvél hafi orðið fyrir valinu. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Leikari Leonardo Di Caprio mætti til Cannes um helgina í tilefni af frum- sýningu nýjustu myndar sinnar The 11’th Hour. Flugufrelsarinn DiCaprio „ÞETTA er þá draumur enn, eða eins og rugl í vitfirringi“ – Symlir konungur í Þjóðleikhúsinu. Symlir konungur ásamt nokkrum öðrum leikritum, saminn af Shake- speare undir lok ferils hans, er hvorki gamanleikur né harmleikur heldur tilraunaverk sem er eins kon- ar sambland af hvorutveggja. Þetta nýja form, stundum kallað „rómans“ (þó að skáldið notaði aldrei það orð sjálfur) byrjar oft á deilu eða árekstri á milli þjóða (eins og í þessu leikriti) eða einstaklinga en ágrein- ingurinn er alltaf leystur á síðustu stundu með óvenjulegum hætti. Oft- ast eru fleiri en einn söguþráður. Í Symli konungi fléttar Shakespeare til dæmis saman þrjá ólíka sögu- þræði. Innihald rómans leikrita þarf alls ekki að vera trúverðugt en minnir okkur oftast á ævintýri. Al- gengt er að börn týnist og finnist aftur, að sönn ást er borin saman við girnd og að goð og aðrar yfirnátt- úrlegar verur taka þátt í atburða- rásinni. Alls staðar í síðustu leik- ritum Shakespeare má einnig finna fjölkynngi, drauma, hamskipti og gátur. Skáldið virðist leggja áherslu á það kristilega en án þess að minnst sé á Jesú eða guð. Frekar ræður forsjá yfir öllu, þar sem persónurnar iðrast synda sinna og fyrirgefa hvor annarri. Sumir telja að með því að snúa sér að þessari leikritategund, hafi Shakespeare verið að reyna að end- urheimta vinsældir sínar við hirðina, þar sem yngri leikskáld voru farin að taka við. Aðrir sjá síðustu leikrit hans sem ljóðrænustu og dul- arfyllstu verkin sem hann samdi – eins konar lokaorð um líf og tilveru og svanasöng hans til leikhússins. Samt sem áður hefur Symlir kon- ungur ekki verið í uppáhaldi hjá fræðimönnum fyrr en nýlega. Þeir hafa séð of marga galla og fáa kosti en leikritið virðist ekki njóta sömu virðingar og Óviðrið og Vetraræv- intýri. Hins vegar hefur Symli kon- ungi gengið ágætlega á sviði þó að það hafi verið sett upp mun sjaldnar en flest önnur leikrit Shakespeares. Ástæðan fyrir þessari þversögn er að þótt Symlir konungur bjóði upp á alls konar tækifæri fyrir góða leik- ara að sýna listir sínar býr það samt yfir mörgum vandamálum sem erfitt er að leysa, og þá sérstaklega hvað varðar hegðun aðalpersónanna Ima- gýnar og Posthúmusar. Sem dæmi er ræða Posthúmusar í öðrum þætti leikritsins þar sem hann kennir kon- um um „hver synd sem nafni er nefnd“. Einnig er það Posthúmus sem skipar þjóninum sínum Písaníó að drepa eiginkonuna hans Ímagýn. Seinna sjáum við Ímagýn fyrirgefa honum þetta þó að hann eigi það alls ekki skilið. Í heild er uppsetning Cheek by Jowl („Kinn við kjamma“) hópsins á Symli konungi fjörug, hröð og bráð- skemmtileg. Mest er það Tom Hiddleston að þakka sem leikur bæði prinsinn Klótan og aðalsmann- inn Posthúmus. Hiddleston er kraft- mikill, sjarmerandi, fyndinn og ekki síst ágætur dansari og söngvari, enda er flutningur hans á „Hark, hark the lark“ langskemmtilegasta atriði sýningarinnar. Guy Flanagan ( Jakímó), Laurence Spellman (Ka- jas Lúsíus) og Richard Cant (Písaníó) eru einnig sterkir í hlutverkum sínum og gaman er að fylgjast með þeim allan tímann. Því miður var ekki alveg jafnskemmtilegt að fylgjast með þeim Gwendol- ine Christie (Drottningin) og Jodie McNee (Ímagýn). Christie er mjög hávaxin og gnæfir yfir flestar hinar per- sónurnar og þó sérstaklega yfir eiginmann sinn Symbli og, jú, það er virkilega fyndið að sjá. En sem vonda stjúp- móðirin leggur Christie of mikla áherslu á að vera fynd- in en ekki nóg á það að vera illmenni. Hins vegar skilaði Jodie McNee Ímagýn ágæt- lega en var samt oft upp- trekkt bæði í orðaflutningi og í hreyfingum. Í stað þess að vera yfirveguð kom hún oft fram sem pirruð og jafnvel manísk. Flestir sem ég talaði við eftir sýninguna voru yfir sig hrifnir. „Svona á að gera þetta! Bretar eru fagmenn! Æðislegt að sjá Shakespeare á ensku!“ Og reyndar var þessi sýning mjög lífleg. En samt sem áður saknaði ég dýpt- arinnar sem er einhvers staðar falin í Symli konungi. Senurnar með Bel- aríus og týndum sonum Symlis, þeim Gíderíus og Arvíragus, fannst mér þreytandi og tilgerðarlegar, en senan þar sem Gíderíus kemur fram á sviðið með haus Klótans var því miður á mörkum þess að vera fárán- leg. Tilgangurinn með þessum hluta sögunnar er meðal annars að bera saman sveitina og borgina, menn- ingu og ómenningu en því þema voru aldrei gerð góð skil. Eins og Óviðrið, Períkles og Vetrarævintýri fjallar Symlir konungur um það dularfulla í lífi okkar sem er ómögulegt að lýsa nema í formi drauma. Það fjallar einnig um vonir og trú enda er engin tilviljun að Symlir konungur er eina leikrit Shakespeares sem gerist á sama tíma og Jesús var á lífi, en þessi uppsetning (vegna þess að hún er uppfærð í tíma) getur ekkert sagt um þau mál. Niðurstaðan: fullt hús af stigum fyrir að vera hressileg og skemmti- leg. Ef til vill er ekki hægt að kreista meira úr þessu stykki ef aðal- áherslan er lögð á gamanleikinn. Samt fannst mér eitthvað skorta á hugmyndaflugið og töfrana sem gera síðustu leikrit Shakespeares svo sérstök og töfrandi. Symlir konungur í Þjóðleikhúsinu LEIKLIST Þjóðleikhúsið Leikstjóri: Declan Donnellan, Aðstoð- arleikstjórar: Jane Gibson og Owen Hors- ley, Búningar: Angie Burns, Sviðsstjóri: Dougie Wilson, Ljósahönnun: Judith Greenwood, Tónlist: Catherine Jayes, Cymbeline: David Collings, Cloten/ Post- humus: Tom Hiddleston, Belarius: Ryan Ellsworth, Guiderius: John Macmillan, Ar- viragus: Daniel Percival, Iachimo: Guy Flanagan, Caius Lucius: Laurence Spell- man, Pisanio: Richard Cant, Cornelius: Jake Harders, Queen: Gwendoline Chris- tie, Imogen: Jodie McNee, Ýmis hlut- verk: David Caves og Mark Holgate. Cymbeline eftir William Shakespeare í uppsetningu Cheek by Jowl Martin Regal Fjörug „Í heild er uppsetning Cheek by Jowl („Kinn við kjamma“) hópsins á Symli konungi fjörug, hröð og bráðskemmtileg,“ segir m.a. í dómnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.