Morgunblaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 32
Það gefur auga leið að slíkur grúi af upp- lýsingum er hvalreki á fjörur tónlistaráhugamanna… 39 » reykjavíkreykjavík Flugan tók flugið yfir landamærimiðbæjarins og skaust í Kringl-una til að dressa sig upp fyrirstórtónleikana með Josh Groban og rakst á sund- og tískudrottninguna Lóló eða Matthildi Guðmundsdóttur sem var eins og hind í hreyfingum á silfurlitum æf- ingaskóm. Eftir innkaup var svo þambaður einn cappuchino á Kaffi Bleu þar sem á næsta borði sat Lovísa Lipurtá Gunn- arsdóttir úr Íslenska dansflokknum, nýkom- in frá frægðarför í Kína og svo líka Ólafur Gaukur gítargúrú sem var í kaffi með sinni söngfuglafamilíu: spúsunni Svanhildi Jak- obsdóttur og dótturinni Önnu Mjöll, sem er víst söngkona fyrir vestan. Það var æðislega gaman að sjá fjölskylduna aftur í Höllinni síðar sama dag á fyrrnefndum tónleikum. Eins og vera ber þegar hjartaknúsari á í hlut var hlutfall kvenna á konsertinum 8 á móti hverjum 2 herrum. Konur á öllum aldri og af öllum stærðum og gerðum voru mætt- ar til þess að eiga unaðsstund með Josh sem sjálfur var meðvitaður um kynjamisréttið, hyllti þá karla sem voru mættir og sagði: ,,Þið eruð hérna vegna þess að þið elskið konuna við hliðina á ykkur…“ Barítóninum raddsterka var ákaft fagnað af troðfullum sal og Lucia Micarelli, frábæri fiðluleik- arinn hans, gerði sitt til þess að ljá tónleik- unum Paganini-klassa. Ókostur var þó að flugan sat til hliðar í miðjum sal og var komin með hálsríg eftir hálftíma en hafði búist við betra atlæti og fannst fúlt að þurfa að reigja sig og teygja til að berja barítón- inn unga augum á stórskjá; sérstaklega þeg- ar miðaverðið er haft í huga. Og áfram var kátt í Höllinni: Tónskáldið og gítarleikarinn Goran Bregovic, sem er náttúrlega hetja balkanskrar tónlistar, dró upp úr farteski sínu tónlist úr brúðkaupum og jarðarförum á laugardagskvöldið. Það getur sko enginn verið dauðyfli við jarðarför með svona lifandi fjöri. Í félagi við serb- neskan karlakór, búlgarskar söngkonur, strengjasveit og lúðrasveit, heillaði Goran galdramaður blóðkalda Íslendinga svo mikið að jafnvel fölustu og stífustu menn dilluðu sér og slógu taktinn kinnroðalaust. Nenni ekki nefna nöfn en get sagt ykkur að allir sem eru eitthvað í heimi tónlistar, kvik- mynda, leikhúss og myndlistar voru mættir. Í byrjun helgarinnar arkaði Fjölnir Braga- son húðflúrmeistari eftir Austurstræti í sól- inni í mikilfenglegu pilsi sem hvaða skvísa sem er gæti verið stolt af og ekki var lengur hægt að kvarta yfir hvassviðrinu. Og Ólafur Harðarson stjórnmálavitringur gekk líka hnarreistur með sigurvisst bros eftir Stræt- inu með hárautt bindið flaksandi í vindinum og vindlinginn á lofti. Sannkallaðir synir Austurstrætis…| flugan@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Siggi Hall og Svala Ólafsdóttir. Ásdís Schram, Bryndís Schram og Jón Bald- vin Hannibalsson. Sigríður Sigurjónsdóttir, Helga I. Stefáns- dóttir, Arnar Hákonarson og Ingunn Hafstað. Kári Pálsson, Margrét Kristín Blöndal og Guðrún María Ólafsdóttir. Marta Þórðardóttir, María Ólafsdóttir og Snæfríð Þorsteins. Morgunblaðið/Eggert Gígja Gylfadóttir og Sonja Gylfadóttir. Sara Hermannsdóttir og Kalli Tegland. Berglind Helga Sigurþórsdóttir, Telma Hlín Helgadóttir og Pálína Dögg Helgadóttir. Hera Magnúsdóttir, Guðrún Benjamínsdóttir, Alda Hrund Sigurðardóttir og Kristín Berta Sigurðardóttir. Ármann Skæringsson og Friðrik Ómar Hjörleifsson. flugan Kynjamisrétti á kvensukonsert … var hlutfall kvenna á konsert- inum 8 á móti hverjum 2 herrum … Guðmundur Freyr Vigfússon, Ninna Margrét Þórarinsdóttir og Hulda Helgadóttir. Andrew Burgess, Jeanne Sól Burgess og Linda Björg Árnadóttir. Kristín Petersen og Hörður Torfason. Morgunblaðið/Eggert Hrafnkell Huginn Sverrisson, Sverrir Ás- geirsson og Berglind Valdimarsdóttir. » Tónleikar Joshs Grobans voru haldnir í Laugardalshöll. » Tónleikar Goran Bregovics,stórhljómsveitar og kórs, voru haldnir í Laugardalshöll. »Magma/Kvika hönnunarsýningin var foropnuð á Kjarvalsstöðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.